Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1988, Page 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988.
Utlönd
Bilun í merkjakerfi talin
orsök járnbrautarslyssins
Þak nokkurra lestarvagna rifnaði við áreksturinn.
Simamynd Reuter
Valgerður A. Jóharmsdóttir, DV, London:
Þrjátíu og sex manns létust og yfir
hundraö slösuöust þegar þrjár járn-
brautarlestar rákust saman á há-
annatíma í London í gærmorgun.
Tahö er að bilun í merkjakerfi hafi
valdiö árekstrinum. Þetta er mann-
skæðasta jámbrautarslys í Bretlandi
í meira en þrjátíu ár.
Slysið átti sér stað viö Clapham
brautarmótin í Suður-London. Far-
þegalest frá Basingstoke beið kyrr-
stæö eftir grænu ljósi þegar önnur
Björgunaraðstæður voru erfiðar á slysstað og þurfti að ferja farþegana upp Björgunarmenn reyna að komast inn í brakið af lestunum sem rákust sam-
háa bakka þar sem brautarsporið er niðurgrafið. Simamynd Reuter an i London í gær. Þrjátiu og sex manns biðu bana og yfir hundrað slösuð-
USt í árekstrinum. Simamynd Reuter
Al-sjálfvirkir heimilis- og fjölskyldu blóðþrýstimælar.
Með og án prentara. Útprentun hærri og lægri mörk, púls, dagsetning
og tími mælingar. Allt sjálfvirkt meó því einu aö þrýsta á hnapp.
íslenskur leíðarvísír
Model 700CP með prentara
Modei 700C án prentara
Helstu sölustaöir eru lyfjaverslanir.
Viö sendum einnig í póstkröfu út á land.
Heildsölubirgöir
Logaland heildverslun
Símar 12804 og 29015
farþegalest keyrði aftan á hana á
mikilli ferð. Aftasti vagn kyrrstæðu
lestarinnar lagðist alveg saman og
eimreið hinnar lestarinnar gjöreyði-
lagðist. Báðar lestamar, með samtals
yfir þúsund farþega, köstuðust af
sporinu, fimm vagnar ultu og brak
þeyttist í allar áttir. Nokkrum mínút-
um síðar keyrði tóm lest inn í flakið
af lestunum tveimur og jók enn á
eyðilegginguna og mannfallið. Snar-
ræði varðar í tómu lestinni kom í veg
fyrir að íjórða lestin keyrði inn í
hrúgaldið. Hann stökk út og í veg
fyrir aðvífandi lest sem tókst að
stöðva í tæka tíð.
Það tók lögreglu og sjúkrahð fleiri
klukkutíma að ná öllum úr brakinu.
Aðstæður til björgunar vom erfiðar,
brautarsporið er niðurgrafið og ferja
þurfti farþega upp háa bakka og
sjúkrabörur og gögn vora látin síga
niður í reipi. Margir þeirra sem lét-
ust lifðu af sjálfan áreksturinn en
dóu áður en tókst að koma til þeirra
hjálp. í sumum tilvikum þurfti að
taka af fólki útlimi til að ná því úr
flakinu áður en því blæddi út.
Ríkisstjórnin hefur fyrirskipað op-
inbera rannsókn á orsökum slyssins.
Talsmaður jámbrautanna sagði í
gær að við fyrstu athugun benti allt
til þess að bilun í ljósum hafi verið
orsök slyssins. Hlutar merkjakerfis-
ins í Clapham, sem era ein umferðar-
þyngstu brautarmót í Evrópu, eru
meira en fimmtíu ára gamlir en ver-
ið er að vinna að endurnýjun. Tals-
maðurinn sagði of snemmt að segja
tíi um hvort sú vinna gæti hafa átt
þátt í þessu hroðalega slysi.
Lausir gegn
tryggingu
Suður-afríski verkalýðsleiðtoginn
Moses Mayekiso og fiórir aðrir
stjómarandstæðingar vora látnir
lausir í gær gegn tryggingu. Höfðu
þeir þá setíð inni í sautján mánuði.
Fimmmenningarnir vora sakaðir
um landráð og hófust réttarhöld yfir
þeim í janúar 1987. Var þeim bannaö
að snúa aftur til heimkynna sinna í
Alexandríu sem er í úthverfi Jó-
hannesarborgar. Þeim er gefið að sök
að hafa reynt að ná yfirráðum í Alex-
andríu á árunum 1985 til 1986 en þá
voru miklar óeirðir þar.
Fimmenningarnir þurfa einnig að
tilkynna sig daglega á lögreglustöð,
þeir mega ekki taka þátt í sfióm-
málum né veita fréttamönnum við-
töl. Þeir mega heldur ekki vera innan
um fleiri en tíu í einu.
Réttarhöld í máli þeirra hefiast aft-
ur í febrúar. Reuter