Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1988, Qupperneq 18
18
ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988.
Sviðsljós
Brúðkaupskoss
undir mistilteini
Linda „Sue-Ellen“ Gray er með
kærastann í prufukeyrslu. Hann
heitir Patrick Markey, skeggjaður
sjónvarpsframleiðandi. Þau hafa í
hyggju að ganga í hjónaband um jóla-
leytið.
„Linda segir að sig langi mest af
öllu til aö fá brúökaupskossinn undir
mistilteininum,“ segir náinn vinur
leikkonunnar. Annar vinur segir að
ástin milli hjónaleysanna verði
sterkari meö hverjum deginum sem
líður. Síðan segir vinurinn: „Linda
sagði þetta við mig: Við Patrick búum
saman og fmnst það ofsa gaman. Ég
er búin að hitta fjölskyldu hans og
hún er frábær. Hann er búinn að
hitta krakkana mína tvo og það er
líka frábært."
Linda er oröin 48 ára en Patrick
er bara 37. Hún segir að jólin séu til-
valinn tími því þá er hún í fríi frá
Dallas. Þá geta fjölskyldur þeirra líka
verið saman.
Frábært!
Ómar Garðarsson, DV, Vestmannaeyjum:
Skipstjóra- og stýrimannafélagið
Verðandi í Vestmannaeyjum átti 50
ára afmæli í lok nóvember og í tilefni
þess var efnt til glæsilegs afmælis-
fagnaöar í Hallarlundi. Félaginu bár-
ust gjafir og árnaðaróskir víða af
landinu og margar ræður voru flutt-
ar.
Sigmar Gíslason á Katrínu VE var
veislustjóri og stjórnaði fagnaðinum
af röggsemi. Sveinn Valgeirsson,
formaður Verðandi, flutti aðalræðu
kvöldsins en meöal annarra ræðu-
manna má nefna Friðrik Ásmunds-
son, skólastjóra Stýrimannaskólans
í Eyjum; Guöjón A. Kristjánsson, for-
seta Farmanna- og fiskimannasam-
bandsins; Elías Björnsson, formann
Jötuns, og Gísla Eiríksson, formann
Vélstjórafélagsins í Eyjum.
Guðfinnur Þorgeirsson, fyrrum skipstjóri, og Haraldur Hannesson, fyrrum
skipstjóri og útgerðarmaður á Baldri VE, voru gerðir að heiðursfélögum í
Verðandi. DV-mynd Ómar
Linda Gray og kærastinn hennar. Þau ætla að gifta sig um jólin.
Fjórir fyrrverandi aflakóngar í Eyjum í afmælisveislunni. Frá vinstri Sigurjón
Óskarsson, Óskar Matthíasson, Guðmundur Ingi Guðmundsson og Hilmar
Rósmundsson. DV-mynd Ómar
Aflakóngar
og aflaklær
- Verðandi í Vestmannaeyjum 50 ára
Stefanía og Ron Bloom, nýi kærast-
inn. Mónakóbúar bíða nu þess að
Stefanía stillist og gifti sig.
Nýr tengda-
sonurífursta-
fjölskylduna?
Mónakóbúar geta nú andað léttar
því Rainier fursti virðist sáttur við
Ron, nýja kærastann hennar Stef-
aníu. Þegar Stefanía var með Mario
hér áður töluðust feðginin vart við.
Rainier þoldi manninn hreint ekki
og reyndi allt til að stía þeim sund-
ur. En Stefanía hefur alltaf verið
sjálfstæð og pínulítið frek og sleit
sambandinu við pabba til að halda í
kærastann.
En nýi kærastinn virðist falla í
kramið hjá kalli. Nýlega var hann í
heimsókn í Los Angeles og hitti dótt-
ur sína og strákinn. Þeir sáust saman
í innkaupaferð í borginni og Ron var
bljúgur og góður og bar alla pakkana
fyrir þann gamla. Hvort þeir ræddu
brúðkaup skal ósagt látið en alla
vega gaf Rainier grænt ljós á giftingu.