Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1988, Síða 19
ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988.
19
Sviðsljós
Hryllingsbrúðkaup
í Hollywood
Þaö er ekki að því að spyrja þegar
þessir leikarar í Hollywood ganga
upp að altarinu: alltaf þurfa þeir að
vera öðruvísi en við hin.
Robert Englund heitir maður þar
vestra, líklega þekktari undir nafn-
inu Freddy Krueger, maðurinn með
löngu beittu neglurnar í hryllings-
myndunum Martröð á Álmstræti,
eitt, tvö, þrjú, o.s.frv. Robert gekk í
það heilaga á dögunum og bauð gest-
um sínum upp á hryllingstertu með
kampavíninu.
Litlu sætu brúðhjónastytturnar á
tertunni voru af beinagrindum og
sömuleiðis stytturnar af hljóðfæra-
leikurunum sem blésu þeim til heið-
urs (á tertunni að sjálfsögðu). Þetta
þótti fínt og gestir flissuðu eins og
smápíur.
„Freddy var ekki viðstaddur en ég
er viss um að honum hefði líkað
brúðkaup okkar,“ segir Robert Eng-
lund og heldur áfram: „Bara verst
að athöfnin fór ekki fram á Álm-
stræti."
Brúðurin er 26 ára og heitir Nancy.
Hún vinnur við kvikmyndir eins og
brúðguminn og þau hittust í vinn-
unni. Bingó.
Brúðkaupstertan góða til heiðurs
Freddy. Takið eftir beinagrindunum.
Hattasýningar eru ekki oft haldnar hér á landi og því kærkomin tilbreyting
að fá að berja augum alíslenska hatta. Hattameistarinn sjálfur (Rósi) er
fyrir miðju með girnilegan brauðhatt og sýningarfólkið berst um að fá bita.
Heilsugæsla Suður-
nesjamanna kynnt
Ægir Már Karason, DV, Suðumesjum:
Sjúkrahús Keflavíkurlæknishér-
aðs og Heilsugæslustöð Suðurnesja
höfðu í fyrsta skipti opið hús fyrir
Suðurnesjamenn í lok nóvember.
Þar gátu gestir séð hvernig búið er
að þessum stofnunum og hvað þar
er gert. Hús beggja stofnananna voru
opin til sýnis og upplýsingar veittar
um starfsemina og ýmsum fyrir-
spumum svarað.
Keisaraskurður var sýndur á
myndum, hvernig slík aðgerð er
framkvæmd og þar til barnið er fætt.
Einnig fékk fólk innsýn í störf heilsu-
gæslustöðvarinnar og kynntist þar
verklegum þáttum. Þar var hægt að
fá blóðþrýsting mældan, svo fátt eitt
sé nefnt, og D-álman margumtalaða
var sýnd - að vísu á teikniborðinu.
Fjöldi fólks nýtti sér tækifærið til að
kynnast heilsugæslunni á Suður-
nesjum.
Blóðþrýstingur mældur.
DV-mynd Ægir Már
□B
Reykjavíkurvegi 66 - sími 54100.
Krómaðir leðurstólar
með eða án arma.
Svart, hvítt, brúnt,
grátt leður.
Verð frá kr. 4.070,- stgr.
Uppákoma í
Tunglinu
Laugardagskvöldið 3. desember
var svokallað i-D kvöld í Tunglinu.
Nafngiftin stafaði af komu ritstjórn-
ar hins breska tímarits i-D sem'er
þekkt fyrir óvenjulegt útlit og ferska
meðhöndlun þeirra mála sem efst
eru á baugi í heimi tísku og tónhst-
ar. Með þeim komu til landsins Dave
Dorrell úr M-A-R-R-S, sem sá um að
spila nýjustu tónlistina, og tveir
hipp-hopparar.
Meðal skemmtiatriða var talsvert
óvenjuleg sýning á alislenskri fram-
leiðslu. Fyrst var Rósi með hattasýn-
ingu en hann hefur hannað og saum-
að mikinn fjölda óvenjulegra hatta.
Einnig var mjög lifandi tískusýning
frá Punktinum sem er ný verslun
sem nokkrir ungir íslenskir hönnuð-
ir hafa opnað. Þetta þjóðlega framtak
verður síðan kynnt í i-D ásamt mynd-
um af fongulegum íslendingum í
skemmtanaham.
Sjón „rappari" og Ragna létu sig
ekki vanta á sýninguna. Á öxl Sjón
má sjá bita af brauðhattinum góða.