Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1988, Page 29
ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988.
Menning
29
DV
Gleymt líf
í nýútkominni bók, Minna - engin
venjuleg mamma, rekur Helga Thor-
berg sögu móður sinnar, Guðfinnu
Breiðfjörð, sem látin er fyrir þremur
árum. Bókin er sett saman úr hand-
riti sem Guðfinna skildi eftir sig og
frásögnum dóttur hennar sem ávarp-
ar hana í annarri persónu.
Þetta er saga konu sem komst aftur
út í lífið eftir að hafa verið lokuð
inni á geðsjúkrahúsi árum saman.
Þetta er lífsreynslusaga konu sem
náði tökum á þunglyndi, sinnuleysi
og uppgjöf og vildi með sögu sinni
„gefa öðrum von og kjark til að sigr-
ast á eigin erfiðleikum" (5) eins og
Helga segir í upphafi bókar.
í kaflanum um uppvaxtarár Minnu
kemur fram að hún missti móður
sína þriggja ára. Hún var elst þriggja
systra og flæktist milli ættingja en
var lengst hjá föðurömmunni Þor-
björgu Guðmundsdóttur í Hafnar-
firði sem tók að sér sonardæturnar
ungu og gætti þeirra vel. Pabbi henn-
ar giftist aftur og hún eignaðist hálf-
systkini. Hún var pabbastelpa.
Amma hennar var fádæma dugleg
kona, hafði misst tvo menn og séð
fyrir sér og börnum sínum með
vinnu við uppskipun á kolum og
salti, þvottum, saumaskap og tekið
kostgangara. Minna var björt yfirlit-
um og falleg, alltaf í góðu skapi, blíð
og góð, hafði frjótt ímyndunarafl og
var kjarkmikil og djörf. Og vildi gera
öðrum til hæfis. í barnaskólanum í
Hafnarfirði tók hún þátt í barnaleik-
ritum og þar vaknaði áhugi hennar
á leiklist sem fylgdi henni allt lífið.
Systurnar fermdust saman og um
haustið drukknaði pabbi þeirra.
Minna ætlaði ekki að geta sætt sig
við að pabbi væri horfinn fyrir fullt
og allt.
I blóma lífsins
Minna lauk gagnfræðaprófi frá
Flensborgarskóla og lærði hár-
greiðslu, sem þá tók sex ár, þrjú ár
sem nemi og þrjú ár til að ljúka
meistaraprófi í greininni.
Hún kom undir sig fótunum og
keypti hlut í hárgreiðslustofu Hún
var vinsæl og gædd persónutöfrum,
sem engir gátu staðist. Hún tók þátt
í sýningu Leikfélags Hafnarfjarðar
þegar Bæjarbíó var vígt með sýningu
á Kinnarhvolssystrum: hún kom, sá
og sigraði, því að hún reyndist hafa
Bókmenntir
Sigríður Th. Erlendsdóttir
bæði leikhæfileika og fallega söng-
rödd. En þegar allt virtist leika í lyndi
þá kom þunglyndið. Hún leitaði
lækninga í Danmörku og náði heilsu
kom heim aftur að ári hðnu og gift-
ist. Hún varð póstmeistarafrú í Vest-
mannaeyjum og eignaðist þrjár dæt-
ur á þremur árum. Hún var glæsileg
húsmóðir og gestrisin og fyrstu árin
voru góð ár. Hún fór að leika með
leikfélaginu en þar hafði leiklist ver-
ið iðkuð um áratugaskeið við örðug-
ar aðstæður. Einn kafli bókarinnar
er helgaöur leiklistinni sem átti hug
hennar og birtir eru dómar um leik
hennar. í Vestmannaeyjum lék hún
Guðnýju í Lénharði fógeta, Ástu í
Skugga-Sveini, í Grænu lyftunni og
Ærsladraugnum og var sótt til að
leika í Dorothea eignast barn hjá
Leikfélagi Reykjavíkur og fékk góðar
viðtökur. Hún var full af lífskrafti
og það var sjónarsviptir að henni
Guðfinna Breiðfjörð í hlutverki Jó-
hönnu í Kinnarhvolssystrum.
þegar hún fór frá Eyjum. Hjónaband-
inu lauk með skilnaði og hún hélt til
Reykjavíkur þar sem hún tók til
starfa við sína iðn til að sjá dætrun-
um farborða. Hún fylgdist vel með
öllum nýjungum í iðninni, hafði mik-
il umsvif og marga í vinnu. Hún
ruddi brautina á þeim vettvangi og
tók karlmenn sem nema.
Lokuð inni
Þótt vel gengi í fyrstu fór svo að
hún gat ekki risið undir langvarandi
álagi sem starfmu fylgdi. Margt fór
úrskeiðis og hún veiktist aftur. Þar
með hófst tólf ára nær samfelld dvöl
á geðsjúkrahúsum. Lengsta frásögn
Minnu er af lífmu innan rimlanna
sem lætur engan ósnortinn. Segir þar
frá daglegu lífi á Kleppsspítala frá
sjónarhóli sjúkhngsins, fundum með
læknum og viðtölum viö sálfræð-
inga. Og öllum lyfjunum. Hún fann
vel hve margir áttu bágt með að
heimsækja hana. „Mér leið oröið
best ef ég var látin í friði og afskipta-
laus. Það kom líka að því að lokum
enda eru geðsjúklingar hvað minnst
heimsóttir, þeir gleymast auðveld-
lega vinum og vandamönnum" (118).
Með dugnaði og lífskrafti tókst henni
að lokum að sigrast á þunglyndinu
og komast út sem frjáls manneskja.
En hún átti eftir að reka sig á að
„vinnumarkaðurinn beið ekki með
opinn faðminn að taka á móti fyrr-
verandi geðsjúklingi“ (139). Hún fór
í fiskvinnu og kynntist bónus-
vinnunni og komst að 'raun um að
fólki með skerta starfsorku var hafn-
að. Meira að segja hennar eigið stétt-
arfélag hafnaði henni. En Minna lét
ekki deigan síga og átti nokkur góð
ár ólifuð. Hún sótti sálarró í Landa-
kotskirkju og trúin veitti henni
styrk. Hún tók kaþólska trú skömmu
síðar. í bókarlok segir frá því er hún
veiktist af krabbameini, sem ekki var
við ráðiö, og sú spurning vaknar
ósjálfrátt hvort sá sjúkdómur geti
ekki átt sér geðrænar orsakir? Á
undanförnum áruni hefur verið uppi
umræða um viðhorf til fólks með
geðræn vandamál. Þessi bók er sann-
arlega verðugt framlag til þeirrar
umræðu. Hún er í senn einlæg frá-
sögn og eykur skilning okkar á lífi
þeirra sem við þann vanda eiga að
stríða.
Minna - engin venjuleg mamma.
Helga Thorberg lýkur sögu móður sinnar,
Guðfinnu Breiðfjörð.
ísafold, 1988, 173 bls.
S.Th.E.
Dagbók um ást, hugsjón og dauða
Þetta er harla óvenjuleg bók og ásér
fáar systur eða engar á þessari bóka-
vertíö - og þó eru ævisögur engin
nýlunda. Hér er sagt frá manni sem
lést ungur að árum við upphaf ævi-
starfs, ókvæntur og barnlaus, með
alla lífsdrauma órætta. Frá hverju
er þá að segja mannsaldri síðar?
Samt er þetta mikil örlagasaga, sögð
með óvenjulegum og nærgöngulum
hætti, af bróður hans, svo að hún
grípur lesandann föstum tökum og
hann situr lengi hljóður og hugsandi
eftir lesturinn. Þessi íslenska harm-
saga æskumanns átti sér margar
hhðstæöur á þriðja og íjórða áratug
þessarar aldar, en þær voru fæstar
sagöar á bókum - sögurnar um hvíta
dauðann - og voru þó átakanlegar,
lærdómsríkar og persónulegar
reynslusögur, en hklega oftast of sár-
ar til þess að hægt væri að segja þær
eða skrifa.
En hér hafa varðveist fágætar
heimildir sem hvílt hafa í þögn í hálfa
öld. Nú eru þær teknar fram og sagan
sögð.
Opinská og einlæg
Pétur Finnbogason frá Hítardal var
elstur ellefu systkina, fæddur 1910.
Hann óx upp í Dölum vestur og varð
hraustur og mannvænlegur piltur,
gekk í menntaskóla og síðan kenn-
araskóla og geröist kennari og skóla-
stjóri, en veiktist af berklum 1938,
barðist við þá á Kristneshæli rúmt
ár, laut í lægra haldi fyrir þeim og
lést í júlí 1939, þrítugur að aldri.
Nú hefur Gunnar Finnbogason
skólastjóri ráðist í að rita ævisögu
Péturs bróður síns. Hann nefnir
þrjár ástæður öðrum fremur til þess,
en veigamest er sú aö Pétur lét eftir
sig dagbækur, sem eru með þeim
brag að réttmætt er að gefa þeim
góðan gaum. Þær eru kjarni og auður
þessarar frásagnar og þær fela í sér
svo ópinskáa og einlæga lýsingu á
innri baráttu æskumannsins við vá-
gestinn að ég man ekki eftir því að
Pétur Finnbogason og Sólborg Lárusdóttir.
Bókmenntir
Andrés Kristjánsson
hafa lesið aörar játningar mér til
meiri skilnings á þessari glímu sem
margur háði á berklaárunum.
Höfundur notar dagbækur Péturs
sem aöalheimild en fyllir söguna með
eigin vitneskju eða feng úr bréfum
og frásögnum skólasystkina, nem-
enda og kunningja Péturs sem eftir
lifa.
En dagbækur Péturs eru þegar á
allt er litið mergur þessa verks og
hugföng lesandans og þær eru í senn
vitni um skáldleg tök á máh og efni,
fágætlega einlæg birting á eigin
hugsun og tilfmningum og lýsandi
dæmi um viöhorf, tilfinningar og
hugsjónir um land, þjóð og líf bestu
kvista þeirrar kynslóðar sem óx úr
grasi á þessum vonarglæstu áratug-
um íslensks þjóðfrelsis.
Upphafin ást
Dagbókarkaflamir sem birtast í
heihegum og samfelldum þáttum í
bókinni em aðallega úr þremur
hverfum. Sá fyrsti úr Vestur-Lan-
deyjum, þar sem Pétur var farkenn-
ari einn vetur og kynntist ýmsum
nýjum lífsháttum.
Næsti kafli er dagbók frá Dalvík,
þar sem Pétur er kennari við ungl-
ingaskóla. Þar kemur ástin, Sólborg
Lárusdóttir, inn í líf hans, og hann
skrifar um hana hvern dag, trúir
dagbókinni fyrir allri hrifningu sinni
og innstu kenndum, segir allt af
hjartans einlægni. Og þetta er ró-
mantísk, eldheit og upphafin ást eins
og hún getur flogið hæst. Svona var
víst ást unga fólksins á þessum ró-
mantísku árum, hrein og barnslega
tær. Ungi maöurinn svalar dýrustu
þrá sinni með því að skrifa um stúlk-
una sína og ást þeirra í dagbókina,
trúir henni fyrir öhu, hrærður, þakk-
látur og sæll, skrifar ástarsögu sína
skáldlegum orðum og ljóðrænum
sth. Þetta er hugtækur lestur, lifs-
leikur æskumanns í tákni þess tíma
sem hann liföi. En er þetta breytt?
Tímarnir virðast að minnsta kosti
aðrir, en hklega er unga fólkiö sjálfu
sér líkt enn.
í biðsal dauðans
Þriðji dagbókarkaflinn er frá árinu
í biðsal dauöans í Kristnesi. Þar er
margt ritað sem falhð er th skilnings
á hfi og baráttu berklasjúkhngs á
hæli. Þar grúfir myrkriö yfir en geisl-
ar vonar brjótast þó oft í gegn. Ungi
maðurinn trúir á lífið til hinstu
stundar. Hann hugsar og skrifar um
það sem hann á ógert og ætlar aö
gera. Hann öðlast hugfró og svölun
við hndir tungunnar og skáldskapar-
ins. Hann skrifar smásögur og yrkir
ljóð þar sem hann ákallar lífið til
lokastundar. Þessi dagbók er heim-
ildarík um hugarferil ungrar mann-
eskju í slíkri lokaraun. Þvílíkar sög-
ur gerðust margar en voru fæstar
skrifaöar og enn færri birtar. Hér eru
lesendur leiddir í biðsalinn.
Dagbækur Péturs Finnbogasonar
eru ritaðar á blæfógru máli, svo aö
auðsætt er að hann hefur verið ritfær
í besta lagi, og hann hefur ekki kast-
að höndum th þeirra. En þó má gera
ráð fyrir að ýmislegt hafi verið lag-
fært, þegar búið var th prentunar.
Annaö einkenni þessara dagbóka er
hve fátt þær segja af yfirbragði daga
og starfs. Þaö efni sem máli skiptir'
kemur úr hugardjúpi hans sjálfs.
Hann opnar hug sinn. Líklegt má
telja að honum hefði ekki orðið um
sel ef honum hefði vitrast að þessar
opinberanir hans um sjálfan sig yrðu
gefnar út í bók og kæmu fyrir al-
þjóðar augu, og það getur hvarflað
að manni vafi um rétt til slíks, svo
opinskáar sem þær eru. En hér ber
hálfa öld og kynslóðir á milh.
Frásögn Gunnars er vel rituð og
skilrík, en auðvitað setur heitur
straumur bróðurminningar víða
svip sinn á hana. Þessi bók og dag-
bækur hennar eru skilaboð frá hð-
inni tíð með leiðarvísi th að bera
saman það sem var og er.
Gunnar Finnbogason:
í Hitardal og Kristnesl
Ævlsaga Péturs Finnbogasonar.
Bókaútgáfan Valfell 1988.
A.K.
Mb^u %%%
■elecbric
Petra KM 463 kaífikanna, glæsi-
legar línur, hraðvirk, 1000 W.
Kr. 2.130,-
Petra TA 1139 brauðrist, glæsi-
legar línur, 900 W.
Kr. 2.950,-
Petra WA 640 vöfflujárn.
Kr. 3.290,-
Krullujárn með blæstri, vönduð
vestur-þýsk járn.
Kr. 1.590,-
Hárblásarar, 1200-2000 W.
Fallegir litir.
Kr. 1.160,-
Rennið við - næg bílastæði
Einar Farestvett&Co.hf.
Borgartúni 28
Símar 91-16995,91-622900
Leið 4 stansar við dyrnar.