Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1988, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1988, Page 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988. Lífsstíll DV Skammdegiö er ríkjandi um þessar mundir: margir dragast inn í skel sína og geta engan veginn, án hjálp- ar, höndlað hamingjuna en aðrir eru á því að þeim frnnist skammdegið einkar þægilegur forleikur jólanna. Skammdegisþunglyndi er ekki þaö sama og annað þunglyndi. Til dæmis má benda á að þeir sem þjást af skammdegisþunglyndi fitna oftast í sínu þunglyndi. Hins vegar grennast þeir sem þjást af gamla „góða“ þung- lyndinu. En það sem er mest ein- kennandi fyrir þetta fyrirbæri er að menn verða þunglyndir á veturna en þessu léttir svo á sumrin; með öðrum orðum hverfur þunglyndið í sól og birtu. Hins vegar virðist algengasta tegund þunglyndis yfirleitt gera hvaö mest vart við sig á vorin. Það má sjá af því að sjálfsvíg eru hvað algengust á þeim tíma. Sofa og borða meira Venjulegir þunglyndissjúklingar sofa illa, þeir byrja að vakna snemma morguns og ná ekki að festa blund- inn aftur. Skammdegissjúklingar sofa hins vegar allt of mikið, þeir sofa vært alla nóttina en eiga mjög erfitt með að vakna á morgnana á þeim tíma sem annað fólk fer á fæt- ur. Auk þess eru þeir gjarnan syfjað- ir á daginn. Þeir sofa að meðaltali tveimur klukkustundum lengur á veturna en sumrin og komast jafnvel af með mjög lítinn svefn á sumrin. Tilraun með ljósameðferð Andrés Magnússon, læknir á rann- sóknastofu geðdeildar Landspítal- ans, hefur gert skammdegisþung- Andrés Magnússon geðlæknir við Ijósaboxið sem hann notar. Skammdegisþunglyndi ekki eins og annað þunglyndi - ljósameðferð getur hjálpað lyndi að aðalviðfangsefni sínu. Hann er nú að gera tilraun með ljósameð- ferð og hefur nýlega fengið til sín nokkur þar til gerð ljósabox til að rannsaka hvernig þau virka á skammdegisþunglyndi. Það hefur verið fundið út að að lík- aminn þýðir ljósmerkin inn í inn- kirtlakerfið sem gerist að verulegu leyti í gegn um hormón sem heitir melatónín. Flestar taugarnar frá sjónhimnunni fara til sjónstöðva heilans en nokkrar fara aðra leið og enda á heilakönglinum, og boö eftir þessum taugum hindra að melatónín losni. Lengi vel var talið að þetta kerfi væri ekki lengur virkt í mönn- um, væri þróunarfræðilega úrelt eins botnlanginn. Það sem villti um fyrir mönnum var að maðurinn þarf meira ljósmagn til að hefja losun melatónins en önnur dýr, það upp- götvaöist ekki fyrr en 1980. Fjórðungur telur sig hafa einkenni Andrés Magnússon fékk rannsókn- arstöðu sína við Landspítalann síðari hluta síðasta árs og hefur því ekki getað kannað þetta vandmál íslend- inga til hlítar vegna þess að hann náði ekki skammdeginu á síðasta ári. Hann réöst hins vegar í spum- ingakönnun þar sem hann notaði úrtak úr þjóðskrá. Ekki sagðist hann vera búinn að vinna endanlega úr því en það lítur út fyrir að segja megi að allt að því 4% þjóðarinnar eigi við alvarlega skammdegissjúk- dóma að stríða. Skammdegissjúk- dómar skiptast í þrjú stig; svæsið skammdegisþunglyndi, vægt skammdegisþunglyndi, og síðan er vægasta stigið sem ekki einu sinni hefur verið nefnt skammdegisþung- lyndi heldur fyllir þennan hóp ein- ungis fólk sem segist finna fyrir breytingum á sér með árstíðum aö því marki að um vandamál sé að ræða. Þar við krossar um fjórðungur þjóðarinnar. Næstu spurningu á list- anum, þar §em spurt er hvort þetta væri vægt, verulegt eða svæsið vandamál, svara flestir að þetta sé vægt vandamál. Eða, eins og Andrés orðar það, að þeir finni fyrir ein- hverjum breytingum sem þeim finn- ist erfiðar. Ekki aðgerðalaus í meðferðinni „Það sem ég er aö virtha við núna er tilraun með ljósameðferð. Við er- um nýlega búnir að fá til landsins sérhönnuð ljósabox. Fólk hringir í mig vegna þess að það hefur frétt af þessu. Ég tek fólkiö síðan í viðtal og met sjúkdóm þess með ákveðnum spurningum með vissu millibili með- an á ljósameðferð stendur. Svo að fólk fái betri skilning á ljósa- meðferöinni má geta þess að sjúkl- ingurinn situr fyrir framan sérstak- lega útbúiö ljósabox. í því eru sex flúrperur, fyrir aftan þær eru speglar en fyrir framan dreifigler. Sjúkling- urinn situr fyrir framan boxið í um það bil eins metra fjarlægð. Það þýð- ir samt ekki að sjúklingurinn þurfi að sitja aðgerðalaus fyrir framan boxið heldur getur hann gert nánast hvað sem er, lesið, horft á sjónvarp, unnið einhverja handavinnu og svo framvegis. Áhrifin koma í ljós eftir 2 til 4 daga „Meðferðin byggist ekki á þvi að Skammdegissjúklingar verða venju- lega eiturhressir í sól og blíðu. DV-mynd KAE Heilsa fólk fari í nokkra ljósatíma og sé síð- an batnað það sem eftir er vetrarins. Fólkið þarf að horfa í ljósin daglega og árangurinn byrjar að koma í ljós eftir tvo til fjóra daga. Þetta er ekki eins og með þunglyndislyf þar sem áhrif fara að koma í ljós eftir viku en fullur árangur næst ekki fyrr en eftir tvær til þijár vikur. Ljósmeð- ferðin fer mjög fljótt aö bera árang- ur. En það er líka svo að árangurinn hverfur eftir tvo til íjóra daga ef þú heldur þessu ekki áfram, það þarf að halda þessu við,“ sagði Andrés. - Hvað þarf að vera langan tíma á dag við ljósaboxin? „Þegar rannsóknirnar voru aö fara í gang vildu menn herma eftir sumri. Þannig að þeir lengdu ljósatíma dagsins um þrjár klukkustundir á morgnana og þijár klukkustundur síðdegis. Síðan eru menn eiginlega komnir niður í tvo tíma á dag. Eg nota sjálfur aðferð sem ég kynnti mér í Columbia University í New York, síöastliðinn vetur, sem byggir á þvi aö auka ljósmagnið með því að hafa hvítan endurvarpsflöt í kring. Þá er maður kominn niður í 40 mín- útur á dag. Með þessu er hægt að ná ljósmagninu úr tvö þúsund luxum upp í 8000 þúsund lux. Það má geta þess að venjulegt vinnuljós er um það bfi 200 lux en sólarljósið 100.000 lux.“ Ekki skaðlegt fyrir augun - Getur þetta mikla ljósmagn ekki verið skaðlegt fyrir augun? „Nei, það er margsinnis búið að rannsaka það hvort þetta sé skaðlegt fyrir augun en það hafa aldrei fund- ist neinar augnskemmdir. Enda er það skfijanlegt þar sem við erum að herma eftir sólarljósinu en náum aldrei styrkleika sólarljóssins." - Er þá ekki alveg hægt að nota venjulegan ljósalampa? „Nei, vegna þess að, eins og áður segir, verður ljósið að fara um augun tfi þess að koma hormóninu melatón- ín af stað. Það hefur sýnt sig að fólk læknast ekki eingöngu með því að hleypa ljósi í gegnum húðina. í venjulegum ljósalömpum er fólki ráölagt að nota hlífðargleraugu." - Geta þá ekki skammdegisjúklingar verið meö svona lampa heima hjá sér? „íslendingar eru svokölluð dellu- þjóð. Ég ætla bara vona að þetta verði ekki ein af þeim dellum sem ríða yfir. En ef manneskjan þjáist af skamm- degisþunglyndi fer meðferðin ekki fram inni á spítala heldur heima hjá 'viðkomandi. Hins vegar eru þessi ljós ekki enn flutt inn tfi landsins. Við læknarnir erum enn að spytja okkur hvort þetta sé virkfiega tilfell- ið. En þetta er mjög „lógískt", ef fólki liður vel á sumrin af hveiju ekki að herma eftir sumri.“ Best sýnir hvað sjúkdómurinn er orðinn viðurkenndur í Bandaríkjun- um að hann er kominn inn í flokkun- arkerfi geðsjúkdóma. Þar kemst eng- inn sjúkdómur inn nema hann sé sæmilega vel rannsakaður. Menn telja greinilega að skammdegisþung- lyndi sé tfi og þetta sem sagt sé til- fellið. Allir velkomnir til meðferdar Andrés er einnig að vinna með þessi ljós á nokkrum menntskæling- um. Hann er að athuga hvort þeir geti vaknað betur með svona ljósa- meðferð. Sú rannsókn á hins vegar ekkert skylt við hvort nemendurnir séu hrjáðir af skammdegisþunglyndi eður ei. Andrés er opinn fyrir að fá fólk í rannsókn sem telur sig þjást af skammdegisþunglyndi. Þijú skfiyrði verða að fylgja því að fólk telji sig þurfa meðferð, það er eins og áður segir: að það verði alltaf verulega niðurdregið í skammdeginu og það hverfi algjörlega á sumrin. Og þegar það er niöurdregið þá sofi það og borði meira. Hægt er að ná tali af Andrési Magn- ússyni í geðdefidarhúsi Landspítal- ans í síma 601721 og kynna sér þetta nánar. -GKr

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.