Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1988, Síða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1988, Síða 33
ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988. 33 DV ________________________________________Lífestfll Jakkaföt á karlmenn: ,,I<Jassískari en oft áður/y Þeir tveir sem eldri eru klæðast gráum alullarjakkafötum, svona eins og fínir bisnesskarlar gera. Jakkaföt sem þessi kosta á bilinu 20 til 23 þúsund. Sá yngri er stúdenta- og sportlegri í stökum jakka og buxum. Jakkafót á karlmenn virðast það sem alltaf gengur, ár eftir ár. Karlmenn klæðast jakkfótum við öll tækifæri og ekki þvað síst á hátíðarstundum eins og á jólunum. Satt að segja öf- undast kvenþjóðin oft út í karlmenn- ina yfir því að geta hreinlega labbað sig inn í karlmannafataverslun og keypt sér jakkfót án mikillar mæðu - á meðan þær rölta búð úr búð að leita sér að einhvers konar fatnaði. Auk þess virðist enginn agnúast út í það þótt karlmenn klæðist sömu jakkaíotunum við hvert tækifærið á eftir ööru. Þessu virðist öðruvísi far- iö með kvenfólkið. En hverjum það er að kenna skal ósagt látið. Aðspurðir hvort merkin væru gæð- astimpill á fatnað svöruðu þeir því báðir játandi, að minnsta kosti miöað við vörur sem hvor um sig selur. „Það er samt mismunandi lagt í merkin. Á bak viö sum er ekki neitt,“ sagði Sævar Karl „svo eru önnur merki sem byggö eru á gamalli hefð sem hafa virkilegan gæðastimpil. Ég vil líkja þessu við Kjarvals-málverk en eins og flestum er kunnugt er gæðastimpill á bak við hans nafn.“ Góður sölumánuöur Sævar sagði einnig að karlmenn þyrftu ekki að eiga mjög mikið af fótum til að vera vel fataðir. Aðal- málið væri að eiga góðar flíkur sem hægt væri að blanda saman þannig aö útkoman yrði fjölbreytt. Hins veg- ar þyrftu bisnessmenn og pólitíkusar að eiga mikiö af fatnaði. Hafa þessir tveir menn trú á að jólasaian gangi upp í ár þrátt fyrir krepputal. Það var ekki annað hægt en að leita svara við þvi á þessum síðustu og verstu tímum: Guðmundur Blöndal svaraði því til að nóg hefði verið að gera hjá sér en jólasalan hefði byrjaö síðar en til dæmis í fyrra. „Ég hef þá trú að á svona tímum minnki fólk við sig í stórum hlutum en leyfi sér frekar að að kaupa föt og skemmti sér meira,“ sagði Guðmundur. Sævar Karl sagði einnig að nokkur reytingur hefði verið í nóvember og það sem af væri desembermánuði. En besti sölu- tíminn væri á haustin og vorin. í raun væri mest að gera á vorin þegar fermingarnar og útskriftirnar væru. -GKr Karlmanna- fatnaöurinn vandaöri „Karlmannafatnaður er miklum mun vandaðri hér á landi en kven- fatnaðurinn. Mér finnst konurnar kvarta sáran yfir því að þær fái ekk- ert nema bómullardruslur utan á sig,“ sagði Guðmundur Blöndal, ann- ar eigandi verslunarinnar PÓ, í sam- tali við DV. Sævar Karl Ólason tók í sama streng og sagði fatnaðar hafa farið mjög aftur hér á landi. Þessir tveir menn hafa báðir ára- Milligrá jakkaföt, alull, með brúnum röndum eru einnig hátískuvara. Þessi jakkaföt fást hjá PÓ og kosta um 18.000. Stakir jakkar kosta allt frá 9000 upp í 20 til 25 þúsund. Sá köflótti er á milliverði og kostar 14.900. langa reynslu af kaupmennsku, Sæv- ar Karl með sína verslun og Guð- mundur Blöndal sem keypti PÓ fyrir um tveimur árum en þá hafði hann starfað í versluninni í ein 14 ár. Þeir tveir voru sammála um það að karlmannafatatískan nú væri klassískari en oft áður. í kjölfar þess fylgir einnig að litirnir eru að sama skapi klassískari. Þeir litir, sem eru ríkjandi nú, eru dökkblár og grár, og brúnt ívaf læðist þar inn auk ýmissa jarðlita. Skyrturnar eru hvít- ar innanundir jakkafótunum en bindin eru í öllum litum. Einnig ber nokkuð á röndóttum skyrtum þar sem grunnliturinn er hvítur. En ef um staka jakka og buxur er að ræða þá eru jakkarnir oftar en ekki köfl- óttir eða röndóttir og buxurnar ein- litar. Axlirnar stækka og boðungarnir breikka Axlirnar á jakkafatajökkunum hafa stækkað þannig að nú virka karlmennirnir íturvaxnari en áður og boðungarnar hafa breikkað. Að sama skapi sýnast jakkarnir örlítiö innsniðnir. Varla sést nokkuö annað en svokallaðir sextölujakkar, það er að segja jakkar með sex tölum. Þeir eru tvíhnepptir. Venjan er þó aö ekki sé hægt að hneppa nema tveimur tölum en hinar fjórar eru upp á punt. Með öllum þessum tölum virka jakk- arnir síðari og breiðari, en eins og allt sem tengist tískunni er alltaf um það bil helmingurinn blekking. Efnin í jakkafötum eru undantekn- ingalaust alull, segja þeir báðir, Sæv- ar Karl og Guðmundur. Tíska Vinningstölurnar 10. des. 1988 Heildarvinningsupphæð kr. 2.793.812,- Þar sem enginn var meá 5 réttar tölur á laugardaginn var færist 1. vinpingur, sem var kr 2.381.596, yfir á 1. vinning á laugardag- inn kemur. Bónustala + fjórar tölur réttar, kr. 413.990, skiptast á 5 vinnings- hafa, kr 82.789 á mann. Fjórar tolur réttar, kr. 714.015, skiptast á 135 vinningshafa, kr. 5.289 á mann. Þrjár tolur réttar, kr. 1.665.807, skiptast á 4.589 vinningshafa, kr. 363 á mann. Sölustaðirnir eru opnir frá mánudegi til laugardags og loka ekki fyrr en 15 mínútum fyrir útdrátt. Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.