Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1988, Síða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1988, Síða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988. LífsstHI_________________________________ 15%feitthakká nær sama verði og fitusnautt sú að þeir fái að vita hvað verið er að kaupa. Ekki bara nautakjöt Eins og fram hefur k'omiö fannst kinda- og svínakjöt í nokkrum hakk- sýnanna. Niðurstöðurnar gáfu ekki til kynna hve mikið hakkið væri blandað öörum tegundum, einungis að þær væru fyrir hendi í sýnunum. Þetta hafa kaupmenn gagnrýnt, talið þessar niðurstöður ómarktækar og talið þær eiga upptök sín í því að leif- ar sitji eftir í hakkavélum og því greinist aðrar kjöttegundir í nauta- hakki. Það að hakkavélar skuli ekki vera þrifnar oftar en niðurstöður gefa til kynna er í sjálfu sér afar ámæhs- vert. Hitt er ekki síður athyglisvert að í nokkrum sýnum fannst kolvetni sem gaf til kynna að einhverjum öðr- um efnum væri blandað í hakkið. Það er sjálfsögð krafa neytenda að þessar niðurstöður verði rannsakað- ar nánar og skýrari svör komi fram en hingaö til. -Pá Buist er við að normannsþinur verði vinsælasta jólatréð í ár. Könnun Verðlagsstofnunar á nautahakki, sem hefur vakið mikla athygli, var einkum ætlaö að kanna fituinnhald í nautahakki. Niðurstöð- urnar voru þær að ekkert samhengi er milli fituinnihalds og verðs. Ódýr- asta hakkið fæst í Vogaveri og kostar 420 krónur kílóið. Dýrasta hakkið var selt í Kjörmarkaði KEA á Akur- eyri og kostaði 630 krónur. Munur- inn er 50%. Minnsta fituinnhaldið var í hakki frá Kjötstöðinni í Glæsibæ með 0,4% fitu og kostaöi 499 krónur kílóið. Feit- asta hakkið fékkst í versluninni Austurstræti 17 en þaö var 14,9% feitt og kostaði 495 krónur kílóiö. Ef teknar eru þær verslanir sem seldu hakk með minnstu fituinni- haldi lítur listinn yfir fimm efstu þannig út: / Kjötstöðin 0,4% fita 499 kr/kg Sunnukjör 2,2% fita 549 kr/kg Starmýri 2,5% fita 553 kr/kg Borgarbúðin 2,7% fita 610 kr/kg Breiöholtskjör 2,8% fita 509 kr/kg Nítján verslanir seldu hakk sem var á bilinu 5-10% feitt. Sé hins veg- ar litið á þá sem voru með mest fitu- Neytendur innihald lítur listinn yfir fimm efstu þannig út: Austurstr. 17 14,9% fita 495 kr/kg Kaupstaður 13,3% fita 445 kr/kg Kjötmiðstöðin 12,6% fita 495 kr/kg Nóatún 12,0% fita 460 kr/kg Kjörm. KEA 12.0% fita 630 kr/kg Af þessu má ráöa að ekkert sam- hengi er milli fituinnihalds og verðs á nautahakki. Þótt hér verði ekki lagður dómur á það hvert sé æskilegt fituinnihald í nautahakki er alveg ljóst að nauðsynlegt er að koma á einhvers konar stöðlum í þessu efni. Aðalkrafa neytenda hlýtur að vera Ymislegt fleira en nautakjöt greindist í sýnum af nautahakki. Slíkt hlýtur að kalla á frekari rannsóknir. Lifandijólatré Jólatré með rót, sem eiga að geta hfað áfram eftir jólin, njóta vaxandi vinsælda. Aðallega er boðið upp á tvær tegundir með þeim hætti. Rauð- grenitré með rót fást hjá Blómavali, Alaska og Landgræðslusjóði. Trén eru höggvin í Skorradal og að sögn söluaðila eiga þau að geta lifað áfram í garðinum eftir jólin. Verðið á rauð- grenitrjám með rót er frá 730-2.220 hjá Blómavali og frá 640 til 1.460 hjá Landgræðslusj óði. Tré, sem seld eru með rót hjá Skóg- ræktarfélagi Reykjavíkur í Fossvogi, hafa nokkra sérstöðu. Það er sitka- greni, sem er ræktað í stöðinni sjálfri, og selt í pottum eða tréstömp- um. Verðið er frá 3.700- 5000. Ásgeir Svanbergsson, verkstjóri hjá Skóg- rækt Reykjavíkur, sagði í samtali við DV að sitkagrenið væri mun líklegra til þess að lifa af í loftslagi höfuð- borgarsvæðisins en rauðgrenið. Auk þess væri rótarkerfi sitkagrenisins þétt en rætur rauðgrenisins gisnar og því væru lífslíkur sitkagrenis mun betri. Ásgeir sagði að tré, sem ætti aö lifa áfram eftir jól, yrði að hafa inni eins stuttan tíma og unnt væri. Einkum bæri að forðast ljós og mikinn hita ogvökvayrðitréðreglulega. -Pá Meðferð á jólatrjám Þegar kominn er tími til að skreyta jólatréð er sagað af endanum, trénu komið fyrir í fætinum og þess gætt að ávallt standi vatn í skálinni neðst í fætinum. Gott er að úöa tréð allt með vatni áður en því er komið fyrir. Þegar tréð er komið í fótinn þarf að halda því síröku og úða jafnvel öðru hverju. Gott er að slökkva ljósið yfir nóttina og gæta þess að tréð standi ekki nálægt ofni eða öðrum hitagjafa. -Pá DV kannar verð á jólatrjám: 10-20% hækkun milli ára Búist er við að normannsþinur veröi vinsælasta jólatréö í ár en sala á honum hefur farið vaxandi undan- farin ár aö sögn stærstu aðilanna í jólatréssölu. Furan er býsna vinsæl líka enda álíka barrheldin og þinur- inn. Reiknað er með að tæplega tuttugu þúsund jólatré seljist í ár eins og í fyrra. DV kannaði verð hjá íjórum stærstu aöilunum sem selja jólatré. Meðalverð á hjá þessum íjórum á norðmannsþin upp að 100 cm stærð er nú 1002 krónur sem er jafnhátt og í fyrra. Dýrast er hjá Landgræöslu- sjóði, 1.170 kr., en ódýrast 850 kr. hjá Álaska. Meðalverð á rauðgreni í sama stærðarflokki er nú 453 krónur en var 405 krónur í fyrra. Hækkun milli ára er 12%. Stafafura í minnsta stærðarflokki kostar nú 640 krónur en var á 528 hjá sömu aðilum í fyrra. Hækkun milli ára er 21% Sé litið á stærðarflokkinn 125-150 cm, sem er trúlega algengastur, kost- ar normannsþinur af þeirri stærð nú 1.785 kr. Það er sama verð og í fyrra. Rauðgreni í þessum flokki kostar 1.036 krónur en kostaði 935 krónur í fyrra. Hækkun milli ára er 10%. Stafafura af þessari stærð kostar nú 1.451 krónu en kostaði 1.235 í fyrra. Hækkun milli ára er 17%. Sé htið yfir töfluna hér að neðan virðist Landgræðslusjóður selja trén á hæstu verði en Alaska er yfirleitt ódýrast. Trén eru flest innflutt en mikið af rauðgreni og furu er þó höggvið innanlands. Samkvæmt upplýsingum söluaðila eru innfluttu trén 4-5 vikna gömul þegar þau eru seld en innlendu trén eitthvað yngri. Sé tréð geymt á köldum stað breytir aldurinn ekki miklu um endinguna. -Pá

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.