Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1988, Síða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1988, Síða 35
ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988. 35 Fólk í fréttum Haukur Gunnarsson Haukur Gunnarsson var kosinn íþróttamaöur fatlaðra 1988 á föstu- daginn, þriðja árið í röð. Haukur er fæddur 20. október 1966 í Reykjavík og æfði knattspymu með Leikni í Breiðholti 1973-1980. Hann hefur æft með íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík og nágrenni frá 1981, fyrst boccia og sund ogfrjálsar íþróttir frá 1983. Haukur hefur veriö íslandsmeistari í sveitakeppni og einliðaleik í boccia frá 1985 og var í sveit íslands sem varð í þriðja sæti í sveitakeppni í boccia á Norður- landameistaramótinu 1988. Hann vann þrenn gullverðlaun, í 100 og 400 metra hlaupi og kúluvarpi, á Norðurlandameistaramóti barna og unglinga 1983. Haukur vann brons- verðlaun í 200 og 400 metra hlaupi á ólympíuleikum fatlaðra í New York 1984 og varð annar á Evrópu- meistaramótinu í Antwerpen í Belg- íu í 100 og 400 metra hlaupi 1985. Hann vann bronsverðlaun á heims- leikum fatlaðra í Gautaborg 1986 og gullverðlaun í 100,200 og 400 metra hlaupum á heimsmeistaramóti fé- lagsliða í Wrexham í Wales 1987 og kosinn afreksmaður mótsins. Hauk- ur setti heimsmet í 100 metra hlaupi á 12,80 sek. á íslandsmeistaramóti fatlaðra á Akureyri 21. ágúst 1987 og vann gullverðlaun í 60 og 200 metra hlaupi á alþjóðlegu íþrótta- móti fatlaðra í Stokkhólmi 31. októb- er 1987. Haukur sigraði í 100 metra og 200 metra hlaupum og setti heimsmet í 400 metra hlaupi á 61,01 sek. á opna þýska meistaramótinu í Lingen við Ems 17. júlí og sigraði í 100 metra hlaupi á alþjóðlegu móti í Flensborg í Þýskalandi 23. septem- ber. Hann hlaut gullverðlaun í 100 metra hlaupi á 12,88 sek. og brons- verðlaun í 200 metra hlaupi og 400 metra hlaupi á ólympíuleikunum í Seoul 15.-24. október. Systkini Hauks eru Helgi Tómas, f. 5. desem- ber 1969, Gunnar Þór, f. 24. ágúst 1975, og Kristín Wium, f. 24. ágúst 1975. Foreldrar Hauks eru Gunnar Hauksson, skrifstofumaður hjá ESSO, og kona hans, Sigríður Krist- insdóttir, aðstoðarmaður sjúkra- þjálfara. Gunnar er sonur Hauks, pípulagningamanns í Rvík, Jóns- sonar, b. í Breiðholti í Rvík, Jóns- sonar. Móðir Hauks var Solveig Ól- afsdóttir, b. á Tindsstöðum á Kjalar- nesi, Halldórssonar, b. á Tindsstöð- um, Bjarnasonar, b. á Tindsstöðum, Halldórssonar, bróður Tómasar, afa Tómasar Guðmundssonar skálds. Móðir Solveigar var Ragnhildur Ásmundardóttir, b. á Vallá á Kjalar- nesi, Þórhallasonar, bróður Hall- gerðar, langömmu Gríms, föður Ól- afs Ragnars. Móðir Ragnhildar var Svanborg Oddsdóttir, systir Odds, afa Jósefs, afa Gunnars J. Friðriks- sonar og Gunnars Eyjólfssonar skátahöföingja. Móðir Gunnars var Bára Skær- ingsdóttir, b. á Felli í Mosfellssveit, Hróbjartssonar, b. á Rauðafelli und- ir Eyjafjöllum, Péturssonar. Móðir Skærings var Solveig Pálsdóttir. Móðir Solveigar var Þorgerður Jónsdóttir, systir Guðrúnar, langömmu Sigurðar, afa Þorsteins Pálssonar alþingismanns. Móðir Báru var Gíslína Einarsdóttir söngs, húsmanns í Hafnarfirði, Sigurðs- sonar, vinnumanns í Grímsbæ í Rvík, bróður Steinunnar, langömmu Þorsteins, föður Víg- lundar, formanns Félags íslenskra iðnrekanda. Sigurður var sonur Þorkels, b. i Gjáhúsum í Grindavík, Valdasonar og konu hans, Þórunnar Álfsdóttur, b. í Tungu í Flóa, Ara- sonar, b. á Eystri-Loftsstöðum, Bergssonar, b. í Brattsholti, Stur- laugssonar, ættföður Bergsættar- innar. Sigríður er dóttir Kristins Wium, bifreiðastjóra í Rvík, Vilhjálmsson- ar, vörubílstjóra í Rvík, Stefánsson- ar, b. í Suðurkoti í Grímsnesi, Jóns- sonar. Móðir Kristins var Sigríður, dóttir Hans Wium, b. á Keldunúpi á Síðu, Jónssonar, b. á Uppsölum í Landbroti, Pálssonar, b. á Hnappa- völlum í Öræfum, Jónssonar, bróð- ur Einars, langafa Guðnýjar, ömmu Halldórs Laxness. Móðir Hans Wium var Ragnhildur Bjarnadóttir, b. í Mörk á Síðu, Jónssonar, b. á Núpsstað í Fljótshverfi, Bjarnason- ar, bróður Eiríks, langafa Karítasar, móður Jóhannesar Kjarvals. Móðir Sigríðar er Helga Ágústs- dóttir, verkamanns í Rvík, Jónsson- ar, b. í Vogskoti í Álftaneshreppi, Jónssonar, bróður Páls, afa Garðars Steinarssonarflugstjóra. Móðir Jóns var Þorbjörg Bergþórsdóttir, b. á Sámsstöðum í Hvítársíðu, Ólafs- Haukur Gunnarsson. sonar og Þorbjargar Böðvarsdóttur, systur Jóns, afa Björns, afa Björns Bjarnasonar aðstoðarritstjóra og Markúsar Arnar Antonssonar út- varpsstjóra. Móðir Ágústs var Guð- björg Herjólfsdóttir, b. í Flekkuvík, Herjólfssonar, bróöur Kjartans, langafa Margrétar Guðnadóttur prófessors. Móðir Ágústs var Þórdís Kristjánsdóttir, húsmanns í Ólafs- vík, Halldórssonar. Eiður Guðnason. Eiður Guðnason, þingflokksformað- ur Alþýðuflokksins, hefur verið í fréttum vegna andstöðu við skatta- frumvarp íjármálaráðherra. Eiður Svanberg er fæddur 7. nóvember 1939 í Rvík og var í námi í stjóm- málafræðum í háskólanum í Delaw- are í Bandaríkjunum 1960-1961. Hann varð löggiltur dómtúlkur og skjalaþýðandi í ensku 1962 og B.A. í ensku og enskum bókmenntum í H.í. 1967. Eiður var blaðamaður og síðar ritstjómarfulltrúi Alþýðu- blaðsins 1962-1967 og varaborgar- fulltrúi Alþýðuflokksins í Rvik 1964-1968. Hann var í námi í sjón- varpsfræðum og upptökustjórn hjá sænska sjónvarpinu 1967 og 1968 hjá ITV í London, var yfirþýöandi og fréttamaður Sjónvarpsins 1967- 1978,'varafréttastjóri 1971-1978. stjórnaði gerð fjölda heimildarkvik- mynda og þýddi útvarpsleikrit og útvarpssögur. Eiður var formaður Blaðamannafélags íslands 1974-1975 og í útvarpsráði 1978-1987. Hann hefur verið alþingismaður Vestur- lands frá 1978 og formaður þing- flokks Alþýðuflokksins frá 1983. Eiður var í Norðurlandaráði 1978- 1979 og frá 1981, formaður íslands- deildar ráðsins 1978-1979 og í for- sætisnefnd þess, formaður menn- ingarmálanefndar 1982-1988 og formaður laganefndar frá 1988. Hann var í ráögjafarnefnd Pósts og síma 1980-1983 og í samstarfsnefnd með Færeyingum og Grænlending- um um sameiginleg hagsmunamál 1984-1986, er formaður þjóðarátaks- nefndar um umferðarmál og vara- formaður Samtaka um vestræna samvinnu. Eiður kvæntist 16. mars 1963 Eygló Helgu Haraldsdóttur, f. 19. janúar 1942, píanókennara. For- eldrar hennar eru Haraldur Gísla- son, framkvæmdastjóri í Rvík, og kona hans, Þórunn Guðmundsdótt- ir. Börn Eiðs og Eyglóar eru Helga Þóra, f. 4. október 1963, viðskipta- fræðingur, gift Ingvari Erni Guð- jónssyni, rafmagnsverkfræðingi í framhaldsnámi í Florida Institute of Technology, Þórunn Svanhildur, f. 19. febrúar 1969, og Haraldur Guðni, f. 24. maí 1972. Systkini Eiðs eru Ingigerður Þórey, f. 29. desem- ber 1940, d. 17. desember 1982, handavinnukennari í Rvík, gift Bjarna Þjóðleifssyni lækni, og Guð- mundur Brynjar, bifreiðarstjóri í Rvík, f. 15. maí 1942, kvæntur Guð- ríði Eygló Þórðardóttur. Bræður Eiðs, samfeðra, voru Tryggvi, múr- ari í Rvík, f. 17. nóvember 1930, d. 19. október 1952, og Sverrir, f. 23. desember 1937, d. 13. ágúst 1988, skrifstofumaður á Höfn í Homa- firði, kvæntur Erlu Ásgeirsdóttur bankastarfsmanni. Foreldrar Eiðs eru Guðni Guð- mundsson, d. 1947, verkamaður í Rvík, og kona hans, Þóranna Lilja Guðjónsdóttir. Guðni var sonur Guðmundar, b. á Þverlæk í Holtum, Jónssonar, b. í Hreiðri í Holtum, Guðmundssonar, b. i Steinkrossi, Oddssonar, bróður Eyjólfs, langafa Odds, föður Davíðs borgarstjóra. Móðir Guðmundar var Margrét Ól- afsdóttir, b. á Fossi á Rangárvöllum, Bjamasonar, b. á Víkingslæk, Hall- dórssonar, ættföður Víkingslækjar- ættarinnar. Móöir Jóns var Kristín Jónsdóttir, systir Þorgils, föður Þu- ríðar, langömmu Guörúnar Er- lendsdóttur hæstaréttardómara, Jóns Þorgilssonar, sveitarstjóra á Hellu, og Sigríðar, móður Jóhanns Sigurjónssonar sjávarlíffræðings. Móðir Guðna var Ólöf Ámadóttir, b. á Skammbeinsstöðum, langafa Júlíusar Sólnes alþingismanns, Hrafns Pálssonar deildarstjóra, Svanfríðar, móður Signýjar Sæ- mundsdóttur óperasöngkonu, Kristínar móður Þórðar Friðjóns- sonar, forstjóra Þjóðhagsstofnunar, og Þórannar, móður Brynjólfs Mog- ensen læknis. Bróðir Árna var Jón, langafi Guðna Kristinssonar á Skarði, Eyjólfs Ágústssonar í Hvammi á Landi, Margrétar Guðna- dóttur prófessors og Guðnýjar, móð- ur Guðlaugs Tryggva Karlssonar hagfræðings. Annar bróðir Árna var Jón yngri, langafi Ingu, móður Þorgerðar Ingólfsdóttur söngstjóra. Árni var sonur Áma, b. í Galtarlæk á Landi, Finnbogasonar, bróður Jóns, afa Guðrúnar, ömmu Þórs veðurfræðings og Jökuls rithöfund- ar Jakobssona og Boga Ágústssonar fréttastjóra. Jón var einnig faðir Jóhanns, langafa Ingólfs Margeirs- sonar ritstjóra. Móðir Áma var Margrét Jónsdóttir, b. á Ægissíðu, Þorsteinssonar og konu hans, Guð- rúnar Brandsdóttur, b. í Rimhúsum, Bjamasonar, bróður Ólafs á Fossi. Móðir Ólafar var Ingiríður, systir Jóns, afa Jóns Helgasonar, prófess- ors og skálds. Ingiríður var dóttir Guðmundar, b. á Keldum, Brynj- ólfssonar, b. í Vestri-Kirkjubæ, Stef- ánssonar, b. á Árbæ, Bjamasonar, bróður Brands í Rimhúsum. Þóranna er dóttir Guðjóns, renni- smiðs í Réttarholti í Garði, Björns- sonar, b. á ímastöðum í Vöðlavík, Jónssonar, b. á ímastööum, Þor- grímssonar í Skógargerði Þórðar- sonar. Móðir Þorgríms var Guðrún Þorgímsdóttir, systir Illuga, langafa Friðjóns, föður skáldanna Guð- mundar á Sandi og Sigurjóns á Laugum. Móðir Guðjóns var Svan- hildur Magnúsdóttir, b. á Haga í Mjóafirði, Magnússonar. Móöir Magnúsar var Guðrún Skúladóttir, systir Skúla, langafa Hansínu, langömmu Hannesar Hlífars Stef- ánssonar, heimsmeistara unglinga í skák.MóðirSvanhildarvarVal- . gerður Jónsdóttir, b. á Kirkjubóli, Vilhjálmssonar, bróður Þóra, langömmu Þóreyjar, ömmu Eyþórs Einarssonar, formanns Náttúru- verndarráðs. Móðir Valgeröar var Valgerður Sveinsdóttir, systir Halldóra, langömmu Stefaníu, ömmu Ármanns Snævarr hæsta- réttardómara. Móðir Þórönnu var Guðrún Guð- mundsdóttir, b. í Réttarholti í Garði, Grímssonar, bróður Guðrúnar, langömmu Sigurlaugar Þorkelsson- ar, blaðafulltrúa Eimskipafélagsins. Móðir Guðrúnar var Guðrún Þor- kelsdóttir, b. á Grímsstöðum í Með- allandi, Þorkelssonar og konu hans, Guðrúnar Höskuldsdóttur. Til hamingju með daginn! 85 ára Guðrún Magnússon, Hverahlíð 17, Hveragerði. 75 ára Guðrún Kristinsdóttir, Skíðabraut 6, Dalvík. Guðjón Jónsson, Esjuvöllum 5, Akranesi. 70 ára Guðmundur Þórðarson, Grandarbraut 24, Ólaísvík. Herdís S. Jónsdóttir, Sogavegi 52, Reykjavík. 60 ára__________________________ Sigríður Ólafsdóttir, Holtahólum, Mýrahreppi. •* Gissur Þórður Jóhannesson, Heijólfsstöðum 2, Álftavers- hreppi. Guðmundur Guðjónsson, Túngötu 7, Grindavík. Fríða Guðbjartsdóttir, Kvigjndisdal 2, Rauöasands- hreppi. Kristinn D. Friðriksson, Einholti 10C, Akureyri 50 ára___________________ Ásgeir Valdemarsson, Birkivöllum 21, Selfossi. Ásmundur Kristjánsson, Heiðmörk, Skútustaðahreppi. Birgir K. Johnsson, Reykjavegi 78, Mosfellsbæ. Kristján Helgason, Suðurvangi 4, Hafnarfirði. 40 ára Sigurlaug Jóhannesdóttir, Höföabraut 7, Hvammstanga. Tryggvi Jónsson, Ártúni, Bólstaðarhlíðahreppi. Maria Aðalsteinsdóttir, Bröttuhlíð 1, Seyðisfirði. Einar Þorgeirsson, Sævangi 28, Hafnarfirði. Bryndís Konráðsdóttir, Holtabrún 16, Bolungarvík. Guðmundur Aðalsteinsson, Freyjuvöllum 17, Kefiavík. Hólmfríður Friðriksdóttir, Strandgötu 29, Eskifirði. Svana Halldórsdóttir, Melum, Svarfaöardalshreppi. Halldóra G. Haraldsdóttir, Logafold 46, Reykjavík. Tilmæli til afmælisbarna Blaðið hveturafmælisbörn og aðstandendur þeirra til að senda því myndir og upplýsingar um frændgarð og starfssögu þeirra. Þessar upplýsingar þurfa að berast í síðasta lagi tveimur dögum fyrir afmælið. Munið að senda okkur myndir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.