Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1988, Page 40
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Askrift - Dreifing: Sími 27022
ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988.
Alvarlegt slys
á gangbraut
Alvarlegt umferðarlys varð á gang-
•^braut á Grensásvegi í morgun. Ekið
var á gangandi vegfaranda. í morgun
var talið að vegfarandinn hefði slas-
ast alvarlega - þegar DV fór í prentun
var ekki vitaö hversu alvarlegir
áverkarnir voru.
Bíll valt á mótum Flókagötu og
Lönguhlíðar í morgun. Tvennt var í
bílnum og voru bæði flutt á slysa-
deild. Þau munu ekki hafa slasast
alvarlega.
Bíll valt í Svínahrauni í gærkvöldi
og annar á Þrengslavegi. Ekki urðu
alvarleg slys á fólki.
-sme
GILJAGAUR
t
Jólasveinninn sem kemur
ofan af fjöllum í dag
heilir GIUAGAUR.
Hann er annar
í röðinni af
jólasveinunum þrettán.
11
DAGAR
TIL JÓLA
LOKI
Svo eru menn reknir
fyrir að kaupa of mikið
brennivín!
Alþýðuflokkur og Framsókn hafna tekjuafgangi:
Bensín og áfengi
hækkað til að
tryggja afgang
segir Ólafur Ragnar Grímsson
Innan Alþýðuflokks og Fram-
sóknarflokks minnkar nú fylgi við
að afgreiöa íjárlög með tekjuaf-
gangi. Þar telja menn að í ijósi þess
mikla samdráttar í þjóðfélaginu sé
ekki réttlætanlegt aö ríkið leggi á
skatta umfram þau útgjöld sem það
stendur fyrir.
„Þaö er aiveg rétt að samdráttur-
inn er mun meiri en reiknaö var
með er gengið var frá fjárlagafrum-
varpinu og það verður að taka tillit
til þess. En það er of snemmt að
nefna nokkrar tölur í því samhengi
núna,“ sagöi Ólafur Ragnar Gríms-
son fjármálaráðherra.
1.200 miiljón króna tekjuafgang-
ur samkvæmt fjárlagafrumvarpi
hefur nánast étist upp í meðförum
stjómarflokkanna. Framsóknar-
menn hafa hafnað 480 milljón
króna skatti á happdrætti. Al-
þýðuflokksmenn hafa hafnað 500
milljónum sem áttu að nást með
því að hækka tekjuskatt einstakl-
inga um þijú prósent í stað tveggja
eins og nú er ráðgert.
Við endurskoðun fjárlagafrum-
varpsins hefur komið í Ijós að
tekjustofnarnir hafa veikst á und-
anfömum mánuðum. Auk þess
hafa ýmsir útgjaldaliðir hækkað
um 400 milljónir.
Af tillögum Ólafs Ragnars um
niðurskurð hafa um 1.200 til 1.300
milljónir verið samþykktar í
Stjórnarflokkunum. Stór hluti af
þessum niðurskurði fer til þess að
mæta minni tekjum en spáð var.
Hluti er vegna þess að hinir stjórn-
arflokkamir hafa hafnað tekjuöfl-
unarleiðum.
Það er því ljóst af þessu að tekju-
afgangur rikissjóðs verður mun
minni en gert var ráð fyrir í tjár-
lagafrumvarpinu. Fjárveitinga-
nefnd á síðan eftir að hækka út-
gjöld ríkissjóðs.
„Ég vil ekki segja hversu miklu
minni tekjuafgangurinn er en segir
í íjárlagafrumvarpinu. Það þarf að
skoða mat á öðrum tekjuöflunar-
leiðum, til dæmis hærri tekjur
Áfengis- og tóbaksverslunarinnar
og hækkun á bensíngjaldi," sagði
Ólafur Ragnar.
Ólafúr Ragnar vildi ekkert segja
um hversu mikið áfengi og bensín
þyffti að hækka til þess að ríkissjóð-
ur yrði afgreiddur með afgangi. -gse
Slökkviliö Reykjavikur var með brunaæfingu að Reykjalundi í morgun. Allt slökkviliðið tók þátt í æfingunni. Hún
þótti takast mjög vel. Á myndinni má sjá tvo slökkviliðsmenn eiga við brunahana við Reykjalund. DV-mynd GVA
Veðriö á morgun:
Hvasst í
sunnan
áttinni
Á morgun veröur sunnanátt
um alit land, 7-9 vindstig á Suð-
vestur- og Vesturlandi en hægari
vindur á Norðaustur- og Austur-
landi. Súld eða rigning verður á
Suður- og Vesturlandi. Hitinn
verður 3-8 stig.
Ákærður fyrir
nauðgun og
hrottalega
líkamsárás
Búið er að ákæra mann fyrir að
hafa nauðgað konu og veitt henni
lífshættulega áverka á heimili henn-
ar í Þingholtunum í Reykjavík í sept-
ember síðasthðnum.
Maðurinn veitti konunni þunga
áverka á kvið - svo gera varö á henni
aðgerð strax og hún kom á sjúkra-
hús. Konan mun hafa verið í lífs-
hættu. Manninum er gefið að sök aö
hafa nauðgað konunni auk þess að
vera valdur aö áverkunum.
Sverrir Einarsson sakadómari fer
með málið í Sakadómi Reykjavíkur.
Dóms er ekki að vænta fyrr en eftir
áramót. -sme
Bílar fuku og
trilla sökk
Hólmfríður Priöjónsdóttir, DV, Rauferhöfn;
Mjög slæmt veður var á Raufar-
höfn og í nágrenni í gærkvöldi og í
nótt. Trilla sökk í höfninni og meö
naumindum tókst að bjarga annarri.
Bárujárn fauk af gamla Kaupfélags-
húsinu. Bárujárnið fauk á báts-
skrokk sem stóð austan við húsið.
Skrokkurinn skemmdist nokkuð af
völdum bárujárnsins.
Vöruflutingabíll, sem var að fara
frá Raufarhöfn til Kópaskers, fauk
út af veginum við bæinn Nes,
skammt norðan við Raufarhöfn.
Grafa var fengin til að halda við bíl-
inn og tveir vörubílar drógu hann
upp á veginn. Það tók um fimm
klukkustundir að ná bílnum upp á
veginn. Bíllinn skemmdist nokkuð
en engin slys urðu á mönnum.
Jeppabifreið fauk af veginum aust-
an við Raufarhöfn. Óhappið varð á
svokölluðum Hálsi. Jeppinn valt nið-
ur bratta hlíð og er talin ónýtur.
Ökumaðurinn, sem var einn í bíln-
um, slapp vel aö því tahö er. Hann
skaddaðist á hendi en var orðinn
kaldur þegar hann fannst. Hann
hafði þá verið íjórar klukkustundir
í bílnum.
Þá fauk bifreið af Aðalbraut, sem
er aðalgatan á Raufarhöfn. Vélarlok
fauk upp á annarri bifreið. Töluverð-
ar skemmdir urðu vegna þessa.
Að sögn lögreglunnar var annríki
mikið á meðan veðurhamurinn var
hvað mestur. Það var um klukkan
átta í gærkvöld sem veðurofsinn
hófst og það tók ekki að lægja fyrr
enn á þriðja tímanum í nótt. A Þórs-
höfn var einnig slæmt veður. Þar
fauk meðal annars húskofi af grunni
sínum.
Bókablað
á morgun
Á morgun fylgir DV sérstakt 24
síðna bókablað, þar sem er að flnna
skrá um allar bækur sem gefnar
hafa veriö út á þessu hausti og upp-
lýsingar um innihald þeirra og verð.
-ai.
^eluAsro
ÞRDSTUR
68-50-60
VANIR MENN
r