Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1988, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1988, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1988. Fréttir Líklegasta mðurstaðan varðandi lánskjaravísitöluna: Ný lánskjaravísitala reiknuð en ekki notuð launavísitalan ómöguleg sem viðmiðun í flárskuldbindingum Nú er taliö aö líklegasta niðurstaö- an í breytingu lánskjaravísitölunnar sé aö eftir áramót veröi tvær vísitöl- ur reiknaðar og mönnum sé heimilt að miða skuldbindingar sínar við þá sem þeir kjósa. Með þessari niður- stöðu yrði nýi grunnurinn að láns- kjaravísitölunni í raun geröur óvirk- ur við fæðingu. Hann myndi lítil sem engin áhrif hafa á lánamarkaðinum. Astæðan er sú að nánast útilokað er að reikna launavístölu sem sam- kvæmt samþykkt ríkisstjómarinnar á að vera helmingur hins nýja grunns. í þessari samþykkt er gert ráð fyrir að nýr grunnur leysi þann gamla alfarið af hólmi. Um tíma var meira að segja gert ráð fyrir að hægt yrði að breyta eldri skuldbindingum til samræmis við nýjan grunn. Sú launavísitala, sem nú er reikn- uð, er nánast spá Hallgríms Snorra- sonar hagstofustjóra um launaþróun hverju sinni. Þessi spá hefur marg- sinnis verið leiðrétt afturvirkt á und- anfórnum árum. Slík visitala er að mati forsvarsmanna lánastofnana gersamlega ónothæf sem viðmiðun á lánamarkaðinum. Þó möguleiki sé á að bæta upplýsingastreymi til Hag- stofunnar um launaþróun er ómögu- legt að gera það með þeim hætti að þessi vísitala sé óbrigðul. í umræðum á þingi fyrir skömmu óskaði Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, eftir staðfest- ingu Ólafs Ragnars Grímssonar fjár- málaráðherra á því að ráðuneytið hefði boðið lífeyrissjóðunum að lán þeirra til húsnæðiskerfisins á næsta ári yrðu tengd núgildandi grunni lánskj aravístölunnar. „í samningaviðræðum ráðuneytis- ins og lífeyrissjóðanna var þeirri spurningu beint til okkar hvort hægt yrði að binda lán þeirra við núgild- andi lánskjaravísitölu. Við sögðum eins og var að við gætum ekki svarað þessari spurningu á þessu stigi,“ sagði Már Guðmundsson, efnahags- ráðunautur fjármálaráðherra. Innan ríkisstjórnarinnar eru það fáir aðrir en Steingrímur Hermanns- son forsætisráðherra sem vilja ein- dregið nýjan grunn vísitölunnar. Nú er málið til meðferðar hjá forsætis-, fjármála- og viðskiptaráðherra ásamt Seðlabanka. Líklegasta niður- staðan úr þeim viðræðum er sú aö heimilt verði að miða við hvorn grunninn sem er eftir áramót. Það þýðir í raun að núgildandi vísitala verði áfram ríkjandi á markaðinum þar sem sú fjármálastofnun þekkist varla sem taka myndi upp hina nýju vísitölu. -gse Gengið að fiskvmnslimni: Lokað á Bjartmar hf. á ísafirði í gærmorgun sendi kaupleigufyrir- tækið Féfang í Reykjavík skeyti vest- ur á ísafjörð. í skeytinu var eigend- um skelfisksverksmiðjunnar Bjartmars hf. bannað að nota tæki sem eru í eigu Féfangs. Verksmiðj- unni var lokað og starfsmenn sendir heim tíu dögum fyrir jól. Landsbankinn neitar Bjartmari hf. um lánaviðskipti og á meðan svo er viH Féfang ekki leyfa notkun á tækj- um sem það kaupleigði fyrirtækinu O.N. Olsen á sínum tíma. Bjartmar hf. er fyrirtæki sem var reist á rústum rækjuverksmiðjunnar O.N. Olsens er varð gjaldþrota í ágúst sl. Bjartmar hf. tók yfir eignir og skuld- ir O.N. Olsens og endurréð hluta starfsfólksins. „Þegar Bjartmar hf. sýnir fram á að fyrirtækið er komið í bankavið- skipti er Féfang tilbúið að taka upp viðræður viö Bjartmar hf„ en ekki fyrr,“ segir Kjartan G. Gunnarsson, framkvæmdastjóri Féfangs. Kjartan bætti við að Féfang hafi síðast fyrir hálfum mánuði sent Bjartmari hf. skeyti þar sem notkun kaupleigu- tækjanna var bönnuð. í dreifibréfi til starfsmanna í gær sögðu eigendur Bjartmars hf. að til stæði að opna verksmiðjuna 2. jan- úar. Það er hins vegar ljóst að ekki verður af opnun nema Landsbank- inn samþykki Bjartmar hf. sem við- skiptaaðila. Landsbankinn átti langstærstu kröfuna í þrotabú O.N. Olsens. í haust lagði bankinn til að tilboði Bjartmars hf. í þrotabúið yrði tekið, enda átti Bjartmar hf. besta boðið. Engu að síður neitaði Landsbankinn Bjartmari hf. um lánaviðskipti þegar búið var að ganga frá sölunni. Búist er við að Landsbankinn ákveði í næstu viku hvort fiski vinnslufyrirtækið Bjartmar hf. lifi eða deyi. 18 starfsmenn vinna hjá Bjartmari. -pv Húsbréfakerfið: Má ekki verða næsta fórnarlamb gráa markaðarins - segir Steingrímur Hermannsson „Það er ýmislegt athyglisvert við húsbréfin. Þau geta vonandi leitt til heilbrigðari kaupa og sölu á hús- næði. Það er hins vegar spumingin hvort pláss sé fyrir þessi bréf í yfir- keyrðum fjámagnsmarkaði okkar eða verður þetta enn eitt fóður 'fyrir gráa markaðinn?" sagði Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra en svo virðist sem full eining sé ekki innan ríkisstjómarinnar um hús- bréfakerfið. Nefndin, sem nú hefur skilað áliti sínu, klofnaði í afstöðu sinni og skiluðu fuUtrúar ASÍ og framsóknarmanna séráliti. Ráðherranefnd veröur skipuö um málið en svo virðist sem ráðherrar framsóknarmanna séu hlynntari húsbréfakerfinu en fulltrúi fram- sóknarmanna í nefndinni. Stein- grímur staðfesti að honum litist að mörgu leiti ágætlega á húsbréfakerf- ið en hann ætti þó eftir að kynna sér það mun betur. Félagsmálaráöherra hefur boðað fmmvarp um húsbréfin snemma á næsta ári og sagðist2 leggja mikla áherslu á að þetta kerfi yröi tekið upp og líta á þetta sem framtíðar- lausn fýrir almenna húsnæðiskerfið. Fulltrúar annarra sijómmálaflokka styðja þetta en þó með ýmsum fyrir- vörum. -SMJ Skátaheimilið við Sólheima í Reykjavík skemmdist mikið af eldi í gærdag. Húsið og innanstokksmunir skemmdust mikið en engin slys hlutust af. DV-mynd S. Þorir Jensen, forstjóri Bflaborgar: Spöriim 100 milljónir á ári með sameiningunni Þórir Jensen, forstjóri Bílaborg- ar hf„ segir að sameining Sveins Bgilssonar hf. og Bílaborgar hf„ sem gengiö var frá í fyrradag, spari fyrirtækjunum yfir 100 milljónir króna á ári. ÖIlu starfsfólki beggja fyrirtækjanna verður sagt upp um áramótin og hluti þess endurráð- inn. „Sparaaðurinn felst fyrst og fremst í hlutfallslega lægri launa- kostnaði og þá er ætlunin að Skeif- an 17, hús Sveins Egilssonar, verði seld og við þaö sparast mikfil rekstrarkostnaður,' ‘ segir Þórir Jensen. Að sögn Þóris er stefnt að því að fyrirtækin eigi jafiistóran hlut í nýja fyrirtækinu. Ekki er það þó Jjóst ennþá. Bílaborg hf. hefur selt á þessu ári um 800 bíla en Sveinn Egilsson um 1000. í fyrra seldu bæði fyrirtækin um 3000 bíla. Um fjórðungur alls bílaflota landsmanna, 35.000 bílar. era frá fyrirtækjunum báðum. „Starfsemi fyrirtækisins verður að langmestu leyti í Bílaborgar- húsinu uppi á Fosshálsi. Þar verða skrifstofur, verkstæði og viðhald og sala nýrra bíla, nema Suzuki og Ford sem seldir verða í Framtíðar- húsinu. Sala notaðra bíla verður auk þess öll í Framtíðinni,“ segir Þórir. -JGH Húsnæðisstofhun: 34 mánaða biðtími Þeir sem sækja nú um lán hjá Húsnæðisstofhun þurfa að bíða í 34 mánuði eftir að fá lánsloforð. 16.000 manns hafa sótt um lán í núverandi kerfi síðan 1986 og hafa 8000 umsókn- ir veriö afgreiddar. 8000 umsóknir liggja óafgreiddar og ef ætti aö vera hægt aö afgreiða þær þyrfd 23 millj- arða króna til þess. Þetta kom fram á blaöamannafundi hjá Jóhönnu Siguröardóttur félags- málaráöherra í gær þar sem hún kynnti niöurstöður húsbréfanefndar Kjartans Jóhannssonar. Boðaði Jó- hanna frumvarp eför jólafrí um nýtt kerfi byggt á húsbréfahugmyndinni. Sú hugmynd byggir á innri fjár- mögnun húsnæðiskerfisins þannig að sefiandi lánar kaupanda gegn framvísun fasteignaveðsbréfs. Bygg- ingarsjóður ríkisins kaupir þetta bréf og gefur út húsbréf sem á að vera unnt að selja á almennum markaði, Þaö kom fram hjá ráöherra að von- ast væri til aö húsbréfakerfið tæki til starfa samhliða núverandi kerfi strax á næsta ári og þá væri jafnvel hægt að fá inn einn tíl tvo milljarða áþannhátt. -SMJ Holiday Inn athugar kaup Einn af forstjónun Holiday Inn hótelkeðjunnar hefur verið hér á landi þar sem hann athugar kaup hótelkeðjunnar á Holiday Inn hót- elinu í Reykjavík. Þeir sem fara með stjóm hótelsins vörðust allra frétta af samningaviðræðum. Vitað er að rætt hefur verið um kaup á meirihluta hlutafjár þar sem Hofiday Inn keðjunni er annt um að ekki komi til uppboðs eða gjaldþrots á hóteli sem ber nafnið Hohday Inn. -sme Tekjuöflunar- frumvörpin renna i gegn „Hver segir að við höfum ekki meirihluta á þingi,“ sagði einn þingmaöur stjómarinnar glað- klakkalegur eftir atkvæða- greiðslu um tvö af tekjuöflunai-- framvörpum ríkisstjórnarinnar sem voru afgreidd frá neðri deild í gær. Það voru framvörp um skatt á verslunar- og skrifstofu- húsnæði og lántökuskatt. Það voru aðeins þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem greiddu atkvæði gegn frumvörpunum en þingmenn Kvennahsta og Borg- araflokks sátu ýmist hjá, voru fjarstaddir eða greiddu atkvæði með frumvörpunum. Nafhakall var viðhaft þegar 1. grein frum- varpsins um skatt á verslunar- og skrifstofuhúsnæði var sent til 3. umræðu og vakti þá athygli að Albert Guömundsson sagði já en Óh Þ. Guðbjartsson nei. Þeir voru einu þingmenn flokksins sem tóku þátt í atkvæðagreiðslunni. -SMJ Vestmannaejjafeija: Ný ferja besti kosturinn Samgönguráðherra, Steingrím- ur J. Sigfússon, segir að hann hafi sannfærst rnn að þaö sé hæp- in fjárfesting að kaupa gamalt skip, 10,12 eða 15 ára, fyrir 50 til 60% af kostnaðarverði nýsmíðar til aö sigla á milh lands og Vest- mannaeyja. Sagði ráðherra að það stefndi í það á næsta ári að þá hefjist endanleg hönnun og ákvöröun um gerð og smíði nýrr- ar feiju og muni heimild í láns- fjárlagafrumvarpinu vera ætluð í því skyni. Sagðist ráðherra vera sannfærður um að notað skip sé ekki lausnin. Þetta kom fram þegar sam- gönguráðherra svaraöi fyrir- spum Guðna Ágústssonar á Al- þingi um það hvað hði athugun á smíði nýrrar fetju á þessari leið. Sagðist Guðni meta svar ráðherra á þá leið að þessi ferja yrði komin innan tveggja eða þriggja áiÆMJ Ráðherrafundur um Arnarflug Fimm ráðherrar í ríkisstjóm- inni koma saman á sérstökum fundi í dag og ræða málefni Am- arflugs ásamt öðram málum. „ Viö fóram yfir stöðuna í Amarflugs- málinu," ságði Steingrímur J. Sigfússon samgönguráðherra 1 morgun. Steingrímur sagði að viöræður Amarfiugs og Flugleiða heföu gengiö ágaetlega og mál nokkuö skýrst á hvaöa sviöum hægt er að koma fyrir samvinnu og hag- ræöingu. Það er viss árangur í sjónmáh þó ég vfiji ekki skýra hannfrekar.“ - Hefui ríkisstjómin ákveðiö hvort og hvemig hún ætlar að styCöa Amarflug? , .Þaöhafáengar ákvarðaim,veri ið teknar. Menn vflja sjá hvað ksmur út úr viöræöum flugfélag- auaa,“ ....................JSEBá

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.