Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1988, Síða 4
Fréttir
FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1988.
DV
Ólafur Ragnar Grímsson gagnrýndur á þingi:
Raunverulegri hækkun
skatta haldið leyndri
í umræðum á Alþingi um tekju- og
eignarskattsfrumvarp ríkisstjórnar-
innar var Ólafur Ragnar Grímsson
fjármálaráðherra harðlega gagn-
rýndur fyrir þau gögn sem hann
lagði fram með frumvarpinu. Ráð-
herrann var sakaður um að gefa
rangar upplýsingar um áhrif tekju-
skattshækkunar á lægstu laun, að
raunveruleg hækkun á tekjuskatti
fyrirtækja væri falin, að hækkun á
eignarskatti einstaklinga væri þann-
ig framsett að hæsta stig eignar-
skatta væri aldrei nefnt beint og að
fullyrðing hans um að persónuaf-
sláttur lækkaði væri einfaldlega
röng. Þá var hann sakaður um að
hampa úreltri khsju um að skatthlut-
fall væri hér lægra en í helstu ná-
grannalöndum.
Persónuafsláttur
lækkar ekki
í umræðunni í þinginu bentu þing-
menn stjórnarandstöðunnar á að í
fylgiritum frumvarpsins séu áhrif
skattabreytingarinnar sett fram á
villandi hátt. Eins og DV greindi frá
á miðvikudaginn er í þessum gögn-
um ekki miðaö viö óbreytt tekju-
skattslög til samanburöar við þau
nýju.
Samkvæmt núgildandi lögum ætti
persónuafslátturinn aö hækka nú
um áramót í 17.842 krónur. í frum-
varpinu er hins vegar ekki gert ráð
fyrir að persónuafslátturinn verði
nema 17.513 krónur um áramót.
Þessa staðreynd er hvergi að finna í
fylgigögnum frumvarpsins.
Þegar þessi lækkun persónuafslátt-
arins leggst við hækkaða skattpró-
sentu lækka skattleysismörk úr
50.687 krónum á mánuði í 47.513
krónur. Hjá hjónum eru skattleysis-
mörkin því 6.348 krónum lægri sam-
kvæmt frumvarpinu.
Ekki 700 krónur
heldur 8.640
Ólafur Ragnar var einnig gagn-
rýndur fyrir að í fylgigögnum frum-
varpsins væri ekki gert ráð fyrir út-
svarsgreiðslum. Samkvæmt þessum
gögnum borga hjón með 120 þúsund
krónur á mánuði um 700 krónur á
mánuði í tekjuskatt ef frumvarpið
verður að lögum. Þegar tillit er tekið
til útsyars eru skattgreiðslur hjón-
anna hins vegar um 8.640 krónur.
Það sem i gögnum segir að sé 0,6
prósent skatthlutfall er í raun 7,2
prósent.
Þegar þetta tvennt hefur verið lagt
saman kemur í ljós að eftir samþykkt
frumvarpsins hækka skattgreiðslur
þessara hjóna um 3.734 krónur á
mánuði eða 44.800 krónur á ári. Þó
hafa þau ekki nema 60 þúsund krón-
ur á mánuði hvort en það eru ein-
mitt þau laun sem Ólafur Ragnar
sagði að lögð hefðu verið til grund-
vallar við vinnslu frumvarpsins.
Skattar á slík laun skyldu ekki
hækka.
Eignarskatturinn ekki
1,5 prósent heldur 2,7
Þá var það gagnrýnt að hvergi í
frumvarpinu segir að eignarskattur
á skuldlausar eignir umfram 6 millj-
ónir sé 2,7 prósent eins og fram kom
í DV í gær. í frumvarpinu segir ein-
ungis að eignarskattur á skuldlausa
eign skuli vera 1,2 prósent og sér-
stakt 1,5 prósent álag leggist ofan á
Ólafur Ragnar Grímsson fjármála-
ráðherra útskýrir áhrif tekju- og
eignaskattsfrumvarpsins fyrir blaða-
mönnum. Hann hefur verið harðlega
gagnrýndur fyrir að þessar útskýr-
ingar séu ófullnægjandi, viilandi og
beinlínis rangar.
DV-mynd GVA
eignir umfram 6 milljónir.
Margir stjómarliða segjast hafa
itaðið í þeirri trú að á eignir umfram
6 milljónir leggðist 1,5 prósent skatt-
ur. Staðreyndin er hins vegar sú að
álagið leggst ofan á 1,2 prósentin og
verður því 2,7 prósent.
Mismunurinn á þessu er umtals-
verður. Af 15 milljón króna skuld-
lausri eign greiðir hver einstaklingur
177 þúsund, samkvæmt skilningi
margra stjómarliða. Samkvæmt
frumvarpinu verður skatturinn af
þessari eign hins vegar 285 þúsund
krónur.
Hækkun á skatti á
fyrirtæki mun meiri
Sjálfstæðismenn gagnrýndu einnig
að upplýsingar um skattahækkanir
á fyrirtæki væru settar fram á vill-
andi
hátt. í frumvarpinu segir að tekju-
skattur þeirra hækki úr 48 prósent í
50 prósent. f framsögu sinni tók Ólaf-
ur Ragnar aldrei annað fram en
hækkunin næmi 2 prósentum.
í frumvarpinu er hins vegar gert
ráð fyrir að heimild fyrirtækja til að
leggja hluta hagnaðar í varasjóð
verði skert úr 30 prósentum í 15 pró-
sent.
Ef fyrirtæki leggur 30 prósent af
hagnaði sínum í varasjóð og greiðir
48 prósent skatt af afganginum tekur
Fréttaljós
Gunnar Smári Egilsson
ríkið um 33,6 prósent af hagnaðinum.
Samkvæmt frumvarpinu er fyrir-
tækjum hins vegar ekki heimilt að
leggja nema 15 prósent af hagnaðin-
um til hliöar. Helmingurinn af af-
ganginum eru 42,5 prósent.
Frumvarpið gerir því ráð fyrir 8,9
prósent skattahækkun þótt ekki sé
tekið tillit til annarra þátta en þess-
ara tveggja. Önnur ákvæði frum-
varpsins auka enn viö raunverulega
skattahækkun frumvarpsins.
ísland fært
niður um 12 sæti
í umræðunni um frumvarpið
nefndi Ólafur Ragnar að skatttekjur
hins opinbera væru hér lægra hlut-
fall af landsframleiðslu en í öllum
aðildarríkjum Efnahags- og fram-
farastofnunarinnar í París (OECD),
að Spáni, Portúgal og Tyrklandi und-
anskildum. Þessi fullyrðing hefur oft
heyrst áöur í umræðum um skatta-
mál.
Þorsteinn Pálsson kom strax á eftir
Ólafi í ræðustól og véfengdi þessa
fullyrðingu. Hann benti á grein sem
nýlega birtist í Vísbendingu, tímariti
um efnahagsmál, þar sem þessi full-
yrðing er hrakin.
Þar er bent á að óbeinir skattar séu
hér um 70 prósent af tekjum ríkis og
sveitarfélaga en ekki nema 30 pró-
sent að meðaltali í OECD. Óbeinir
skattar eru því stærri hluti lands-
framleiðslunnar en í nágrannalönd-
unum. Skattarnir leggjast á vöruverð
og hækka þar með landsframleiðsl-
una í mælingum.
í greininni er bent á að ef þessi
þáttur óbeinna skatta í landsfram-
leiðslu á íslandi er numinn burt
greiða íslendingar ekki þriðju lægstu
skattana í OECD heldur þá tíundu
hæstu af 25 aðildarríkjum.
í ljósi þessarar gagnrýni, sem fram-
setning á gögnum frá fjármálaráðu-
neytinu fékk í þinginu, er ekki að
undra að stjórnarandstaðan áskildi
sér fullan rétt til að afla sér sjálf-
stæðra gagna um áhrif skattafrum-
varpsins í nefndum þingsins. -gse
Ef vörugjald hækkar 1 25%:
Gosdrykkir og sælgæti hækka um 11-12 prósent
- sagði forstjóri Nóa-Síríusar á fundi með starfsfólki
„Þessu vörugjaldi er fyrst og
fremst stefnt gegn fáeinum fram-
leiðslufyrirtækjum og fólkinu sem
hjá þeim vinnur. Ef 25% vörugjald
verður lagt á þessa framleiðslu •
hækkar varan um 11-12%. Þetta þýð-
ir aö hún verður ekki samkeppnisfær
við erlenda vöru sem seld verður á -
mikið lægra verði,“ sagði Kristinn
Björnsson, forstjóri sælgætisgeröar-
innar Nóa-Síríusar, á fundi sem fyr-
irtæki í gos-, sælgætis- og kexiðnaði
héldu með starfsfólki sínu í gær í
Bíóborginni. Þar var til umræðu
frumvarp ríkisstjórnarinnar til laga
um að leggja 25% vörugjald á gos-
drykki og sælgæti í stað 14 % áður. °
Fundurinn var mjög fjölmennur og
nær hvert sæti í húsinu skipað. Guð- '
mundur Þ. Jónsson, formaður
Landssambands iðnverkafólks og
Iðju, sagði að staða iðnverkafólks
hefði breyst mjög til hins verra á
seinni mánuðum. Áður hefðu verið
5-7 á atvinnuleysisskrá hjá Iðju og
það yfirleitt fólk sem hefði verið að
fara á milli starfa. Nú væru tugir
manna á atvinnuleysisskrá, flestir til
lengri tíma að því er virtist.
í fundarlok var borin upp tillaga
og samþykkt samhljóða, þar sem seg-
ir m.a. að sameiginlegur fundur
starfsfólks í ofangreindum iðnfyrir-
tækjum skori á alþingismenn og al-
þingiskonur að fella frumvarpið um
vörugjaldið. Það sé sett fram án rök-
stuðnings. Þó viröist liggja ljóst fyrir
að helsta von fjármálaráðherra til
að fá þennan hluta frumvarpsins
samþykktan sé aö það verði gert
vegna hollustu- og manneldissjónar-
miða.
„Fundurinn vísar þeim sjónarmið-
um á bug og lýsir furðu sinni á slíkri
skinhelgi. Ofangreindar iðngreinar
nota nú aðeins um 25-30% af inn-
fluttum sykri. Eru þá ótaldir fjöl-
margir vöruflokkar sem fluttir eru
til landsins með miklu sykurinni-
haldi án þess að vörugjald sé á þá
lagt.“
-JSS
Ætla að syngja
í sólarhring
Sextíu nemendur í Gagnfræöa- nemendumir munu syngja.
skóla Mosfellsbæjar ætlað aö halda Nemendumir hafa safiiað áheit-
uppi söng í einn sólarhring um um og ágóöanum verður variö til
helgina. Söngur þeirra mun hefjast kaupa á húsgögnum fyrir skólann.
klukkan tólf á hádegi á laugardag Opiö hús verður í skólanum frá
og er ætlunin , *■ sungið veröi til klukkan fimm síðdegis til klukkan
hádegis á sunnud. „. Þaö era jóla- átta á laugardagskvöldið.
lög og fleiri skemmtileg lög sem -sme
Starfsmenn fjölmenntu á
fundinn í gær, eins og sjá
má á meðfylgjandi mynd. Á
innfelldu myndinni er Krist-
inn Björnsson, forstjóri sæl-
gætisgerðarinnar Nóa-Sír-
iusar, í ræðustóli. Við borð-
ið sitja Guðmundur Þ. Jóns-
son, sem var fundarstjóri,
og Lýður Friðjónsson frá
Vífilfelli.
DV-mynd BG