Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1988, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1988, Síða 10
10 LL FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1988. Utlönd Bandaríkin og PLO hittast í dag Fyrsti viðræöufundur Bandaríkj- anna og frelsissamtaka Palestínu, PLO, hefst í Túnis í dag. Talið er aö þessar viðræður geti orðið vendi- punktur í fjörutíu ára sögu ófriðar í Miðausturlöndum. Allar þjóðir nema ísraelar hafa fagnað viðræðum PLO og Bandaríkj- anna. ísraelar telja sig nú einangr- aöri en nokkru sinni fyrr þegar traustustu bandamenn þeirra eru famir að tala við þeirra verstu óvini. í þrettán ár höfðu Bandaríkjamenn og PLO neitað að tala saman en í þessari viku var höggviö á hnútinn. Vonast menn til að nú hylli undir frið í Miðausturlöndum. Ljóst er aö enginn friður getur orðið þar um slóðir án þess aö Bandaríkin og PLO eigi aöild að samkomulagi þar um. Að sjálfsögðu er einnig nauðsyn- legt að ísraelsmenn vilji frið. Banda- ríkjamenn hafa nokkur tök á að beita ísraela þrýstingi í þeim efnum þar sem Bandaríkin styrkja ísrael um milljarða dollara á hverju ári. Almennt er Svíum þakkað að hafa með þolinmæði sinni og ákveðni komið því þannig fyrir að Arafat gaf út yfirlýsingu sem var orðuð þannig að Bandaríkjamenn gátu sætt sig við hana. Fyrir vikiö endar þessi vika á þann hátt sem fáa hefði órað fyrir í upphafi hennar. PLO og Bandaríkin em farin að ræða saman um friö í Miðausturlöndum. Það er Robert Pelletreau, sendi- herra Bandaríkjanna í Túnis, sem stýrir þessum viðræðum af hálfu Bandaríkjamanna. PLO sendir fjög- urra manna viðræðunefnd og verða í henni tveir fulltrúar úr fimmtán manna framkvæmdastjórn PLO. Sovétríkin fylgdu í kjölfar yfirlýs- ingar Bandaríkjamanna á miðviku- dag og buðust til að taka upp stjórn- málasamband við ísrael. Perez de Quellar, aðalritari Sam- einuðu þjóðanna, hélt til New York í gær til að hefja undirbúning ráð- stefnunnar. Líklegt er að hún fari fram í Genf. Bandaríkjamenn telja hins vegar að langt sé þangaö til hægt veröur að hefja friðarráðstefnu um Miðaust- urlönd. Þeir telja að slík ráðstefna eigi einungis að vera undanfari beinna viðræðna milli ísraels og ná- granna þeirra. Reuter FJÖRFALDUR POTTUR! Nú stefnir í stærsta vinning í Getraunum frá upphafi þeirra hérlendis! Það er svo sannarlega til mikils að vinna í íslenskum Getraunum. Á síðustu þremur vikum hefur engin röð komið fram með 12 réttum. Þess vegna er fjórfaldur pottur núna - og fjórföld ástæða til að vera með! Auk þess kostar röðin aðeins 10 kr. Láttu nú ekkert stöðva þig. Getraunaseðillinn er líka fyrir þig. Jack Kemp ráðherra George Bush, verðandi forseti Bandaríkjanna, valdi í gær Jack Kemp, fulltrúadeildarþingmann frá Buffalo í New York, til að gegna embætti húsnæðismálaráðherra í ríkisstjórn sinni. Kemp er íhaldssamur þingmaður og á síðasta vetri var hann í fram- boði til forseta en þurfti fljótt að draga sig í hlé úr kosningabaráttunni þar sem hann átti ekki nægilegu fylgi að fagna. Jack Kemp er fimmtíu og þriggja ára að aldri. Hann var á sínum yngri árum atvinnumaður í amerískum fótbolta en hefur síðustu átján árin verið fulltrúi Buffalo á Bandaríkja- þingi. Talið er að Kemp, sem bauð sig ekki fram til endurkjörs á þing að þessu sinni, sjái gott tækifæri til að koma íhaldssömum sjónarmiðum sínum á framfæri í hinu nýja emb- ætti. Reuter Reagan kveikir á jólatvénu Reagan Bandaríkjaforseti kveikti í gær í síðasta skipti á jólatré banda- rísku þjóðarinnar í Washington. Hann naut aðstoðar eiginkonu sinnar, Nancy, og notaði tækifærið til þakka þjóðinni sem hann hefur leitt síðan árið 1981. „Er við kveikjum á þessu stórkost- lega jólatré þá viljum við Nancy færa þá lokaósk til allra Ameríkana að öll jól í framtíðinni megi veita þeim jafn- mikla ánægju og gleði og við hjónin höfum orðið aðnjótandi á hðnum árum í ykkar þjónustu,“ sagði Reag- an sem lætur af embætti þann 20. janúar eftir tvö heil kjörtímabil í þessu valdamesta embætti veraldar. Forsetinn og kona hans stóðu á tröppum Hvíta hússins er þau kveiktu á flmmtán metra háu jóla- trénu sem stendur í almenningsgarði sem sést frá Hvíta húsinu. Mikill mannfjöldi var samankom- inn til að fylgjast með þessum árvissa viðburði sem Calvin Coohdge byijaði á fyrir meira en sextíu árum. Reuter íhaldsmenn halda þingsæti Breski íhaldsflokkurinn hélt í gær þingsæti í einu af traustustu kjör- dæmum sínum en tapaði þó miklu fylgi þar í aukakosningum sem htið er á sem próf á það hvemig stjómin hefur staðið sig við stjórn efnahags- mála. Flokkur frjálslyndra jafnaðar- manna varð í öðru sæti og er htið á þau úrsht sem mikinn sigur fyrir þann flokk. Sijórnmálaskýrendur sögðu að ein ástæðan fyrir fylgistapi íhaldsmanna væri lítil kosningaþátttaka. Einnig er tahð að óánægja með vaxtahækk- anir á undaníomum mánuðum hafi haft sín áhrif. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.