Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1988, Síða 8
8
FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1988.
Utlönd
Ættingjarnir trúa
honum til alls
Vitni báru í gær kennsl á Carl
Gustav Christer Pettersson, 41 árs
gamlan Svía, sem mann þann er elti
Palme, fyrrum forsætisráðherra Sví-
þjóðar, frá bíóhúsi kvöldið sem hann
var myrtur. Lisbeth Palme neitaöi
að vera viðstödd þegar Pettersson
var leiddur fyrir vitni.
Pettersson, sem grunaður er um
morðið á Olof Palme og handtekinn
var á miðvikudaginn, kemur í dag
fyrir dómara sem úrskurða hvort
hann verður settur í gæsluvarðhald.
Frekari yfirheyrslur yfir Pettersson
hafa styrkt saksóknara í þeirri trú
að hann sé morðingi Palme. Meðal
annars á Pettersson að hafa viður-
kennt aö hafa verið nálægt morð-
staðnum kvöldið sem Palme var
myrtur, þann 28. febrúar 1986.
Pettersson haföi verið yfirheyrður
Þú getur
næstum allt
á ROSSIGNOL
Sigursælustu skíóin
í heiminum í dag
SKIÐAPAKKAR:
skíði, 80-100 cm 8 600-
skór, st. 25-30
skíði, 110-140 cm
skór, st. 30-35
9.600,-
skíði, 150-170 cm
skór, st. 35-39
10.600,-
skiði, 170-195 cm
skór, st. 4-12 16.600,-
Stafir, bindingarog ásetning innifalin.
Ármúla 40, Reykjavík, sími 83555.
■iðistorgi 11, Seltj., 2. hæð, s. 611055.
Laugavegi 178, aímar 16770 og 84455
Pettersson, meintur morðingi Palme, leiddur til yfirheyrslu í gær.
skömmu eftir morðið en samkvæmt
frásögnum fjölmiöla verið sleppt þar
sem vinur hans veitti honum fjar-
vistarsönnun. Sá vinur á nú að hafa
dregið þann vitnisburð til baka.
Sænska sjónvarpið greindi frá því
í gærkvöldi að verið gæti að Petters-
son heföi ekki verið einn að verki
heldur hefði hann tekið við fyrirskip-
unum frá vel þekktum glæpamanni
sem nú afplánar lífstíöarfangelsis-
dóm fyrir sprengjuárásir á skrifstof-
ur gjaldheimtunnar. Báðir eru þeir
þekktir fyrir að hafa hatað Palme
takmarkalaust. Hvorki lögreglan né
saksóknari hafa viljað staðfesta þess-
ar fréttir.
Pettersson á langan sakaferil að
baki og hefur verið dæmdur fyrir að
hafa myrt eiturlyfjaneytanda með
byssusting árið 1970 skammt frá
þeim stað sem Palme var myrtur. Á
hann þá að hafa notað sömu flótta-
leið og morðingi Palme notaði. Pett-
ersson hefur einnig verið dæmdur
fyrir morðtilraun á Sergelstorgi í
miðborg Stokkhólms árið 1977. Hefur
Pettersson oftast slegið til í fjöl-
menni.
Pettersson er af góðu fólki kominn
en þaö hefur fyrir löngu snúiö við
honum baki. Á unga aldri var honum
spáð glæstum frama. Hann var
óvenju gáfaður ungur og las fagur-
bókmenntir sem hann lærði utan að.
Tíu ára gamall var hann farinn að
lesa Ódysseifskviðu. Á táningsaldri
fékk hann áhuga á sundi og varð for-
fallinn sundmaður. Hann hefur al-
gjörlega fórnaö sér fyrir þaö sem
hann var að gera hveiju sinni. Nítján
ára gamall byrjaði Pettersson að nota
eiturlyf og gerðu foreldrarnir allt til
þess að bjarga honum en ekkert beit
á hann.
Þetta kemur fram í viðtölum við
ættingja Petterssonar sem sænsku
kvöldblöðin birtu í gær. Sá eini
þeirra sem hittir hann stundum seg-
ist ekki hafa séð hann ódrukkinn síð-
astliöin tuttugu ár. Segir ættinginn
að flestir sem eru jafnilla farnir af
eiturlyfjum og brennivíni og Petters-
son séu yfirleitt dauðir eða hættir á
hans aldri. Pettersson virðist hins
vegar hafa haldið út endalaust.
Pettersson hefur aldrei veriö viö
kvenmann kenndur og alltaf verið
einstæðingur. Hann hringir þó oft í
ættingjana sem vilja ekkert með
hann hafa. Segja ættingjarnir að
Pettersson lifi algjörlega í öðrum
heimi. Trúa þeir öllu upp á hann þó
að hann hafi aldrei ögrað þeim bein-
línis.
Allir þessir ættingjar segja að Pett-
ersson hafi aldrei haft áhuga á
stjórnmálum og aldrei skipt sér af
þeim.
Reyndar var fyrsta kenning lög-
reglunnar sú að geðbilaöur maður
hefði verið að verki. Var jafnvel búist
við að sá gæti ekki setið á sér og
færi að gorta af afrekinu. Ekkert slíkt
heyrðist þó. Samsæriskenning átti
sér marga talsmenn og voru öfga-
menn innan lögreglunnar undir
smásjá. Lengi var unnið eftir PKK-
sporinu svokallaða en það var helsta
vinnukenning Hans Holmér, lög-
reglustjóra í Stokkhólmi, sem á sín-
um tíma var látinn víkja vegna
óánægju með hversu lítið honum
miðaði áfram við rannsókn morös-
ins. Kenning Holmérs var að kúrd-
ísku samtökin PKK stæðu á bak við
morðið á Palme.
Ýmsum þótti þó ótrúlegt ef um
samsæri væri að ræða, þar sem verð-
launin til handa þeim sem gæti vísað
á moröingja Palme voru tæplega
fjögur hundruð milljónir íslenskra
króna, aö enginn skyldi svíkja lit til
að afla samtökunum fjár.
Snemma í júní voru sænsku blöðin
sneisafull af fréttum um einkarann-
sókn bókaútgefands Ebbe Carlssonar
á Palmemorðinu. Það kom fram að
dómsmálaráðherra Svíþjóðar,
Anna-Greta Leijon, hafði lagt bless-
un sína yfir leynilögreglustörf bóka-
útgefands. Þeir sem hávaöasamastir
voru í gagnrýninni bentu á að Carls-
son væri náinn vinur Holmérs lög-
reglustjóra og þannig hefði Holmér
getað haft áhrif á rannsóknina löngu
eftir að honum var sparkaö og þann-
ig getaö haldið PKK-sporinu á lífi.
Ebbe Carlsson var einnig náinn vin-
ur dómsmálaráðherrans sem neydd-
ist til aö segja af sér í kjölfar þessa
máls.
Margir höföu þó samúð meö Leijon
þar sem þeir voru sannfærðir um að
hún hefði fyrir alla muni viljað finna
morðingja Palme. Hann er nú ef til
vill fundinn eftir nær þriggja ára gíf-
urlega kostnaðarsama leit.
Til vinstri má sjá teikningu er gerð var eftir lýsingu vitna af manni þeim er
var á hlaupum í grennd við morðstaðinn skömmu eftir morðið á Palme.
Til hægri er passamynd af Svíanum Pettersson sem grunaður er um morðið.
Simamynd Reuier
Fleiri finnast
á Iffi
í rústunum
Björgunarmenn keppa nú við
tímann í leit sinni að fólki sem
kann að vera á ffi í rústunum eftir
jarðskjálftann í Armeníu í síðustu
viku. Tass fréttastofan skýröi frá
því að í gær hefði maður verið graf-
inn upp úr rústunum í Spitak, átta
dögum eftir jarðskjálftann. Aðeins
fáeinir af tuttugu þúsund íbúum
bæjarins lifðu af skjálftann. Dag-
blaðiö Izvestiya greinir frá því að
björgunarmenn hafi fundið á ffi
konu og fjögurra ára bam hennar
í Lenínakan sem einnig varð mjög
illa úti í jarðskjálftanum.
í gær skýrði nefnd sú er stjómar
björgunarstarfmu í Armeniu frá
aö uppgötvast hefði að tuttugu af-
skekkt þorp, auk þeirra sem áður
var vitaö um, heíöu orðið mjög illa
úti í jarðskjálftanum. Hefur vakiö
mikla furöu að ekki skuh hafa tek-
ist að afla upplýsinga um þau fyrr.
Rcuter
Þessar russnesku dúkkur er til söiu á basar í Japan ásamt öðrum vör-
um frá Sovétrikjunum. Ágóðanum af sölunni verður varið tii hjálpar-
starfs i Armeniu. Simamynd Reuter