Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1988, Síða 27
FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1988.
43'
Afmæli
Eiríkur Eiríksson
Eiríkur Eiríksson frá Dagverðar-
gerði, bókavörður á bókasafni Al-
þingis, Brávallagötu 66, er sextugur
í dag. Eiríkur er fæddur í Dagverð-
argerði í Hróarstungu og ólst þar
upp. Hann var í námi í Alþýðuskól-
anum á Eiðum 1946-1948 og vann á
búi foreldra sinna í Dagverðargeröi
til andláts fóður síns, 1957. Eiríkur
var b. í Dagverðargerði 1958-1967
og vann við ýmis störf, m.a. hjá
Skógrækt ríkisins á Hallormsstað á
sumrin 1967-1972 og við ömefna-
skráningu á vetrum 1969-1972.
Hann.vann við undirbúning útgáfu
á ritinu Sveitir og jarðir í Múlaþingi
1972-1974 og hefur verið bókavörður
á bókasafni Alþingis frá 1975. Eirík-
ur hefur unnið við útgáfu á Þjóðsög-
um og sögnum Sigfúsar Sigfússonar
frá 1979 og hefur veriö í stjóm Átt-
hagasamtaka Héraðsmanna 1981-
1984 og frá 1986. Ljóð eftir Eirík hafa
birst í Lesbók Morgunblaðsins og
auk þess hefur hann flutt útvarpser-
indi og skrifað um þjóðlegan fróð-
leik í tímaritiö Múlaþing. Systir Ei-
ríks er Málmfríður, f. 3. febrúar
1922, í Dagverðargerði.
Foreldrar Eiríks vom Eiríkur
Sigfússon, b. í Dagverðargerði, og
kona hans, Anna Gunnarsdóttir.
Eiríkur var sonur Sigfúsar, b. á Víf-
ilsstöðum í Hróarstungu, Eiríksson-
ar, b. í Ármótaseli í Jökuldalsheiði,
Sigurðssonar. Móðir Sigfúsar var
Una, systir Sigfúsar, afa Guðfmnu
Þorsteinsdóttur í Teigi, Erlu skáld-
konu, móður Þorsteins Valdimars-
sonar skálds. Una var dóttir Sigfús-
ar, b. á Langhúsum í Fljótsdal, Jóns-
sonar, b. á Melum í Fljótsdal, Þor-
steinssonar, ættföður Melaættar-
innar.MóðirUnuvarÞorbjörg .
Árnadóttir sem talin var dóttir Hall-
gríms, b. í Stóra-Sandfelli, Ás-
mundssonar, fóður Guðrúnar,
ömmu Gunnars Gunnarssonar
skálds. Hallgrimur var faðir Helga,
afa Benedikts Gíslasonar frá Hof-
teigi. Hallgrímur var bróðir Indriða,
afa skáldanna Jóns og Páls Ólafs-
sona. Móðir Eiríks Sigfússonar var
Málmfríður, systir Guðrúnar, konu
Sigmundar Jónssonar í Gunnhild-
argerði sem Gunnhildargerðisættin
er talin frá. Málmfríður var dóttir
Sigfúsar, b. í Straumi í Hróarstungu,
Þorkelssonar, b. í Njarðvík, Sig-
urðssonar, b. í Hólshjáleigu, Jóns-
sonar, prests á Eiðum, Brynjólfs-
sonar. Móðir Sigurðar var Ingibjörg
Sigurðardóttir, b. á Surtsstöðum,
Eyjólfssonar og konu hans, Bóelar
Jensdóttur, sýslumanns á Skriðu,
Wium, bróður Edvards Wium, borg-
arlæknis og varaborgarstjóra í
Kaupmannahöfn.
Anna var dóttir Gunnars, sem lést
ungur á Þuríðarstöðum í Eiðaþing-
há, systkinabarn við Jón, afa Jóns
Hnefils Aðalsteinssonar. Gunnar
var sonur Hemings Nikulássonar
frá Arnkelsgerði á Völlum. Móðir
Önnu var Guðbjörg Þorsteinsdóttir,
b. á Þrándarstöðum í Eiðaþinghá,
Jónssonar, b. í Hleinargarði í Eiða-
þinghá, Skiða-Gunnarssonar, b. á
Ærlæk í Axarfirði, Þorsteinssonar,
ættföður Skíða-Gunnarsættarinnar.
Móðir Þorsteins var Guðbjörg, syst-
ir Soflíu, ömmu Bjarna Ásgeirsson-
ar ráðherra og langömmu Gunnars
Bjarnasonar ráðunautar. Sofíía var
einnig langamma Hallgríms tón-
skálds og Sigurðar, stjórnarfor-
manns Flugleiða, Helgasona. Guð-
björg var dóttir Vemharðs, prests í
Reykholti, Þorkelssonar. Móðir
Vernharðs var Guðbjörg Vem-
harðsdóttir, prests í Ötradal, Guð-
mundssonar, bróður Þorláks, föður
Jóns, prests og skálds á Bægisá.
Móðir Guðbjargar var Ragnheiður
Einarsdóttir, systir Eyjólfs Eyja-
jarls. Móðir Guðbjargar Þorsteins-
dóttur var Anna Guðmundsdóttir,
b. í Dölum í Mjóafirði, Pálssonar,
b. á Seljamýri í Loömundarfirði,
Sigmundssonar. Móðir Páls var Ing-
veldur Jónsdóttir, b. í Húsavík,
Oddssonar, b. á Nesi í Loðmundar-
firði, Guðmundssonar, ættföður
Galdra-Imbuættarinnar. Móðir
Odds var Þuríður Árnadóttir, prests
á Hofi á Skagaströnd, Jónssonar og
konu hans, Ingibjargar Jónsdóttur,
Galdra-Imbu.
Eiríkur tekur á móti gestum á
Hótel Borgkl. 17-19.
Margeir Ingólfsson
Margeir Ingólfsson húsasmíða-
meistari, Engimýri 12, Garðabæ, er
sextugurídag.
Margeir fæddist að Búðum á Fá-
skrúðsfirði og bjó þar til 1945 er
hann flutti til Reykjavíkur og hóf
þar nám við Iðnskólann. Margeir
bjó hjá föðurbróður sínum, Björg-
vini Þórarinssyni, og konu hans
meðan á náminu stóð.
Margeir hefur starfað við húsa-
smíðar alla tíð og þá einkum ný-
byggingar. Hann hefur þrisvar
byggt yfir fjöldskyldu sína. Fyrst í
Melgerði í Kópavogi þar sem þau
bjuggu í átta ár, síðan í Faxatúni í
Garðabæ þar sem þau vom í tuttugu
ár og loks að Engimýri í Garðabæ,
en þangað flutti fjöldskyldan 1985.
Margeir kvæntist 16.12.1928 Elsu
Guðsteinsdóttur, ritara og leiðsögu-
manni, f. 16.12.1932, en foreldrar
hennar voru Guðsteinn og Herta
Einarsson og eru þau bæði látin.
Eins og fram er komið gengu þau
Margeir og Elsa í hjónaband á sam-
eiginlegum afmælisdegi sínum en
foreldrar Margeirs giftu sig einnig
þennan mánaðardag og loks sonur
hans og tengdadóttir.
Margeir og Elsa eiga þrjú böm.
Þau em: Ingólfur Steinar, f. 7.2.1952,
byggingatæknifræðingur, kvæntur
Ásu Sigríði Árnadóttur, en þau búa
í Borgarnesi og eiga þrjú börn,
Hörpu, f. 1981, Þorbjörgu Elsu, f.
1982, oglngólf Steinar, f. 1984, auk
þess sem Ingólfur á tvo syni frá
fyrra hjónabandi, þá Margeir Stein-
ar, f. 1974, og Gísla Steinar, f. 1976;
Gyða Hafdís, f. 4.11.1956, inn-
heimtustjóri í Pennanum í Hallarm-
úla, gift Páli Árnasyni fram-
kvæmdastjóra, en þau búa í Reykja-
vík og eiga einn son, Arnar Stein,
f. 1987, auk þess sem Gyða á annan
son, Harald Kristinn Sigurbjöms-
son, f. 1975; og Erla Margrét, f. 2.2.
1960, en hún á tvær dætur, Rut, f.
7.6.1978, og Rakel, f. 1.2.1985, en
maður Erlu Margrétar var Ragnar
Heiöar Einarsson sem er látinn.
Margeir á þrjár systur. Þær em:
Þórunn, húsmóðir á Fáskrúðsfirði,
gift Ástþóri Guðnasyni; Stefanía,
húsmóðir á Fáskrúðsfirði, ekkja eft-
ir Friðrik Jóhannesson, og Gyöa,
húsmóðir á Egilsstöðum, gift Sveini
R. Eiðssyni.
Foreldrar Margeirs: Ingólfur Þór-
arinsson, f. 30.7.1894, d. 6.8.1955,
sjómaður og verkamaður á Fá-
skrúðsfirði, og kona hans Klara
Sveinsdóttir, f. 31.10.1902.
Foreldrar Ingólfs voru Þórarinn
Marteinsson, sjómaður á Fáskrúðs-
Margeir Ingólfsson.
firði, og kona hans, Karólína Jóns-
dóttir.
Foreldrar Klöru voru Sveinn Þor-
varðarson, b. á Djúpavogi og Lóni
og víðar á Austfjörðum, og Kristín
Kristjánsdóttir.
Ægir Sigurðsson
Ægir Sigurðsson kennari, til heimil-
is að Heiðarbraut 71, Keflavík, er
fertugurídag.
Ægir fæddist á Vopnafirði og ólst
þar upp en flutti á unglingsárunum
með foreldmm sínum á Norðfjörð
þar sem hann var á síldveiðum eitt
sumar auk þess sem hann vann í
síld í landi. Ægir var við nám í Hér-
aðsskólanum á Laugum í Reykjadal
og lauk þaðan landsprófi og gagn-
fræðaprófi 1965. Hann lauk síðan
stúdentsprófi frá ML1969, BS-prófi
í jarðfræði frá HÍ1977 og prófi í
uppeldis- og kennslufræði frá HÍ
1981.
Ægir var kennari við Barna- og
unglingaskóla Vopnafjarðar
1969-70, Gagnfræðaskóla Keflavík-
ur 1974-76 og Fjölbrautaskóla Suð-
urnesja frá 1976. Hann hefur verið
áfangastjóri við Fjölbrautaskóla
Suðurnesja frá 1983 og leysir nú af
sem aðstoðarskólameistari.
Ægirkvæntist 14.11.1970 Ölmu
Vestmann, f. 26.3.1949, kennara og
sálfræðinema við HÍ. Foreldrar
Ölmu eru Nikulás Vestmann, lög-
regluþjónn á Keflavíkurflugvelli, og
Guðlaug Stefánsdóttir húsmóðir.
Ægir og Alma eiga fjögur börn.
Þau eru Ægir Karl, f. 14.11.1968,
nemi í sálfræði við HÍ; Nikulás, f.
11.9.1970, fjölbrautaskólanemi;
Haukur Viðar, f. 15.4.1972, fjöl-
brautaskólanemi; og Lóa Mjöll, f.
20.6.1973.
Ægir á fjögur systkini. Þau eru
Alda Sigurveig, húsmóðir á Þing-
Baldvin Jóhannesson
Baldvin Jóhannesson, yfirdeildar-
stjóri hjá Símstöðinni í Reykjavík,
Otrateigi 30, Reykjavík, er sextugur
í dag. Baldvin fæddist í Bolungarvík
og ólst þar upp til 1941. Hann var
gagnfræðingur frá Flensborg og
lauk símvirkjaprófi frá Póst- og
símaskólanum. Baldvin var í sérná-
mi í ritsímatækni í Belgíu 1968, Eng-
landi 1969 og Þýskalandi 1975. Hann
fluttist til Rvíkur haustið 1941 ásamt
foreldrum sínum og hefur búið þar
síðan. Baldvin vann almenn störf til
1952 en hóf þá störf hjá Pósti og síma
og hefur unnið þar síðan að undan-
skildu 1955 er hann vann á Keflavík-
urflugvelli. Hann var formaður
fimmtu deildar Félags ísl. síma-
manna og um skeið í stjórn félagsins
og í kjararáði BSRB frá 1976 þar til
það var lagt niður. Baldvin var
formaður Hverfasamtaka Sjálfstæð-
isflokksins í Laugarnesi frá stofnun
1977-1985 og í umferðarnefnd Rvík-
ur 1982-1986 og varaformaður frá
1986. Baldvin kvæntist3. mars 1951
Ragnheiði Indriðadóttur, f. 30. jan-
úar 1930. Foreldrar hennar voru
Indriði Ólafsson, brunavörður í
Rvík, og kona hans, Ragna Matthí-
asdóttir. Indriði var sonur Ólafs
Kjartanssonar frá Litla-Skarði.
Ragna var dóttir Matthíasar Matthí-
assonar frá Holti við Skólavörðu-
stíg. Börn Baldvins og Ragnheiðar
eru Ragna Birna, f. 16. apríl 1951,
tannlæknir, gift Helga Bjarnasyni
viðskiptafræðingi. Böm þeirra eru
Bjarni, f. 15. mars 1985, og Ragn-
heiður, f. 31. maí 1985; Gunnar, f. 10.
mars 1956, verkfræðingur í Rvik,
sambýliskona hans er Guðrún Jak-
obsdóttir skrifstofustjóri, sonur
þeirra er Baldvin Ingi, f. 5. apríl 1988;
ÆgirSigurðsson.
eyri við Dýraijörð; Ásvaldur, af-
greiðslumaður hjá Kaupfélaginu
Fram á Norðfirði, lengi b. að Hömr-
um í Álftafirði; Herdís Júlía, kenn-
ari á Ottero í Noregi, og Karl Heið-
ar, byggingaverkamaður á Akur-
eyri.
Foreldrar Ægis: Sigurður Jónsson
sjómaður, f. 1.2.1919, en hann er
látinn, og Heiður Júlíusdóttir, f. 3.6.
1921.
Foreldrar Sigurðar voru Jón Sig-
urjónsson, verkamaður á Vopna-
firði, og Sigurveig Ólafsdóttir.
Foreldrar Heiðar voru Júlíus Jón-
asson, verkamaður og ættfræðingur
á Svalbarðs'eyri, og Herdis Þor-
bergsdóttir.'
Baldvin Jóhannesson.
Guörún Erna, f. 25. mars 1958, lækn-
ir, gift Bjarna Bessasyni verkfræð-
ingi, sonur þeirra er, Sigþór Bessi,
f. 9. september 1985.
Systkini Baldvins eru Björn, f. 14.
október 1919, kaupmaður í Rvík,
kvæntur Oddnýju Ólafsdóttur og
eignuðust þau sex börn, þau skildu;
Magnús, f. 9. desmber 1920, húsa-
smíðámeistari og fyrrv. borgarfull-
trúi, kvæntur Berthu Karlsdottur
og eignuðust þauíjögur börn. Sonur
Berthu, Markús Örn Antonsson út-
varpsstjóri, ólst upp hjá þeim; Pét-
ur, f. 4. júní 1923, húsasmíðameist-
ari í Kópavogi, kvæntur Elínborgu
Magnúsdóttur og eiga þau þrjú
börn. Fóstursystir Baldvins er Guð-
laug Árnadóttir og á hún eina dótt-
ur. Foreldrar Baldvins voru Jó-
hannes Teitsson, húsasmíðameist-
ari í Bolungarvík, og kona hans,
Guðrún Magnúsdóttir, kennari og
skáldkona. Jóhannes var sonur
Teits Halldórssonar, b. á Bergsstöð-
um á Vatnsnesi, og konu hans, Ingi-
bjargar Ámadóttur. Guðrún var
dóttir Magnúsar Péturssonar, b. á
Hríshóli í Reykhólasveit, og konu
hans, Guðbjargar Björnsdóttur, b. á
Kaldrananesi, Björnssonar.
85 ára
Hannes Guðmundsson,
Auðólfsstöðum, Bólstaöarhlíöar-
hreppi.
Ingibjörg Ágústsdóttir,
Breiðabliki, Svalbarðsstrahdar-
hreppi.
75 ára
Karl Jónatansson,
Nípá I, Ljósavatnshreppi.
70 ára
Stefán Sigurjónsson,
Uppsalavegi 9, Húsavík.
Þorsteinn Guðmundsson,
húsasmíðameistari, Eskihlíð 16B,
verður sjötíu ára 19.12. nk. Hann
tékur á móti gestum í Víkingasal
Hótel Loftleiða sunnudaginn 18.12.
milli klukkan 16 og 19.
Kristrún Soffía Jónsdóttir,
Ásenda 12, Reykjavík, verður sjö-
tug föstudaginn 23.12. nk. Hún tek-
ur á móti gestum i safnaöarheim-
ili Fíladelfíusafnaðarins laugar-
daginn 17.12. klukkan 15-19.
60 ára
Páll Guðfinnsson,
Aðalstræti 37, Patreksfíröi.
Aðalbjörg Skarphéðinsdóttir,
Brúsholti, Reykholtsdalshreppi.
Elías Ketilsson,
Þjóðólfsvegi 3, Bolungarvík.
Jóhann Byron Guðnason,
Bjargarstíg 5, Reykjavík.
50 ára
Alla Berta Albertsdóttir,
Tunguseli 5, Reykjavík.
Fríða Jóhannesdóttir,
Múla I, Aðaldælahreppi.
40 ára
Hafsteinn Sæmundsson,
Hrannarbyggö 5, Ólafsfiröi.
Eyjólfur Eðvaldsson,
Fjörugranda 4, Reykjavik.
Ragnheiður Guðmundsdóttir,
Marbæli, Seyluhreppi.
Steindór Halldórsson,
Skarðshlíð 9B, Akureyri.
Jóhann R. Jakobsson,
Birkimel 5, Seyluhreppi.
Sigurbjörg Bjömsdóttir,
Skipasundi 25, Reykjavík.
Jón Þorgeir Jónsson,
Miðstræti 22, Neskaupstaö.
Sigriður Kr. Snorradóttir,
Hlíðarbraut 11, Blönduósi.
Orri Brandsson,
Hæðargarði 3, Nesjahreppi.
Halldór Ólafsson,
Túnhvammi 3, Hafnarfirði.
Magnús Guðbrandsson,
Hafiiartúni 16, Siglufirði.