Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1988, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1988, Qupperneq 12
12 FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1988. Spumingin Hverjar af jólabókunum líst þér best á? Jón Steinn Halldórsson útgerðar- maður: Ég er nú lítið farinn að spá í það. Ætli það sé ekki helst nasista- bókin. Kolbrún Sveinsdóttir: Mér líst vel á barnabókina um Litlu vampíruna og svo ætla ég að kaupa Markaðstorg guðanna eftir Ólaf Jóhann Ólafsson. Guðíaugur Wíum sjómaður: Mér líst vel á bækurnar eftir Yngva Hrafn og Bryndísi og svo bókina um ís- lenska nasista. Þetta eru helstu kjaftasögubækurnar. Ómar Andersen, starfsmaður Flug- leiða: Ég hef gaman af ævisögum. Mér líst vel á bókina hans séra Rögn- valdar og svo ætla ég aö gefa sjálfum mér matreiöslubók fyrir örbylgju- ofna. Anna Sigurðardóttir afgreiðslu- stúlka: Ég hef bara ekki haft nokk- urn einasta tíma til þess að spá í það en ég er að fara til þess. Eva Sigurðardóttir nemi: Það er bók sem heitir Mín káta angist eftir Guð- mund Andra Thorsson. Lesendur DV Bannaðar myndir á sjónvarpsstöðvum: Aldrei bannaðar hjá Sjónvarpinu - eða hvað? JR skrifar: Lítil athugasemd frá ungum syni mínum leiddi hugann aö misjafnri framsetningu sjónvarpsstöðvanna tveggja á því hvað er bannað fyrir börn og hvað ekki. Á dögunum var hann að horfa á Stöð 2, þegar byrjað var að sýna kvik- mynd sem bönnuð var börnum, en hætti snarlega við þegar hann sá að myndin var bönnuð börnum. Þar á bæ er gefið ótvírætt til kynna hvort myndir eru bannaðar börnum með einni eða tveimur höndum sem koma á skjáinn. Sá stutti veit vel að komi ein hendi þá er helst ekki ætlast til þess að börn horfi á viðkomandi mynd en komi tvær hendur sést yfir- leitt undir iljarnar á honum því þá er myndin stranglega bönnuð börn- urn. Það sem kom mér til aö skrifa þess- ar línur er að fyrir nokkru kom strákurinn sér vel fyrir framan sjón- varpsskjáinn þegar byrja átti að sýna kvikmynd á stöð eitt, eins og sá stutti kallar þaö, eða nánar tilekið hjá rík- issjónvarpinu. Þegar ég fann að því að hann ætlaði að fara að horfa á umrædda mynd þá var svarið stutt og laggott: „Þaö eru aldrei bannaðar myndir á stöð eitt.“ Þegar ég innti hann eftir þessu nánar þá kom skýringin; það koma aldrei neinar hendur á undan kvik- myndum hjá ríkissjónvarpinu! Menn eru greinilega ekki óhultir meö jólatréð sitt í húsagarðinum lengur. Vonandi fær sá sem stal því samviskubit og skilar því á sinn stað. Jólatré stolið úr húsagarði Maður á Lindargötunni hringdi: Ég bý við Lindargötuna og varð fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu að jólatré, sem ég var nýbúinn að festa kaup á, var stolið úr húsagarði mín- um. Síst heföi ég haldið að einhver legð- ist svo lágt að fara að stela jólatré. Vil ég því benda þeim á sem þetta athæfi framkvæmdi að skila því hið fyrsta á sama stað. Hringið í síma 27022 milli kl, 10 og 12 eða skrifið Bón- og bílaþvottur: Góð þjónusta í Bíldshöfðanum Gylfi Guðmundsson hringdi: Ég var að koma úr leiðangri aust- an úr sveitum á heimilisbílnum um helgina síðustu. í leiðinni til baka til Reykjavíkur og niður í miðbæ fór ég um Bíldshöfðann og ætlaði að láta skola mestu óhreinindin af bílnum og fór því í biðrööina þar sem biðu um 10 bílar hjá Bón- og bílaþvottastöðinni við Bíldshöföa. Ég var búinn aö bíða þarna nokkrar mínútur og komnir bílar fyrir aftan mig þegar ég sá að ég hafði ekki tíma til að bíða lengur og bjóst því til að taka mig út úr röðinni og aka burt. Þá kom aðvíf- andi maður út úr stöðinni og spurði mig hvort ég vildi ekki bara panta tíma og koma þá síðar þegar mér hentaði betur. Ég sagði sem var að ég hefði ekki ætlað að bíða með þvottinn til morguns og nú væri ég orðinn of seinn til að bíða lengur, en klukkan var að verða 6 síðdegis! Þá sagði sá úr stööinni að ég gæti alveg kom- ið seinna um kvöldið og jafnvel pantaö tíma því þarna væri opið alla daga frá 8 að morgni til kl. 22 aö kvöldi. Þetta passaði mér vel svo að ég kom aftur rétt eftir kvöldverð og þá var mun styttri röð en minn bíll var tekinn inn samtundis. - Ég hef ekki í annan tíma fengið bílinn eins vel þrifinn eins og í þetta skipti. En eftirtektarverðast þótti mér athyglin sem mér var veitt strax í byrjun og varð til þess að ég kom aftur. Staðgreiðslu- kerfið í steik? K.P. skrifar: Það hlaut að koma að því íyrr en síðar að staðgreiðslukerfi skatta fengi á baukinn hjá stjórnmála- mönnum okkar eins og allt annað sem hér er tekið upp og hefur reynst bærilega annars staðar. Það sagöi raunar viö mig góöur maður, sem mikla reynslu hafði haft gegnum árin af meðferð skattamála, að sér þætti þaö mikið kraftaverk ef staögreiðslukerfi skatta gæti skilaö sér hér á sama hátt og annars staðar. Einfaldlega vegna þess að ríkissjóður hér er rekinn svo aö segja „eftir hend- inni“ og aldrei er vitað fyrirfram hve mikið þarf í þann botnlausa kassa. Meðan gamla kerfiö var og hét var einfaldara fyrir hið opinbera að ná inn hækkuöum gjöldum því þá voru líka lagðir á skattar „eftir hendinni'* þegar kom í ljós hve mikið þurfti til árið eftir og menn greiddu af tekjum síðasta árs. - Þá var allt í lagi að leggia á og hækka prósentustigin því þá voru menn komnir -með hærri laun en þeir höfðu árið áður. Nú er erfiðara um vik hjá hinu opinbera með lækkandi veröbólgu og fastri skattaprósentu. Þess vegna er nú farið að ýja að því að hækka skattaprósentuna og það verður gert árlega upp frá þessu. Hátekjumenn munu sleppa eins og venjulega en fólkið meö meöal- launin borgar brúsann eins og ávallt áður en nú' með verðmeiri krónum, ef veröbólgan hjaðnar. Það hefur líka sitt að segja að sleppa heilu ári í sköttum eins og gert var í byrjun staðgreiöslukerf- ins og veit ég ekki hvemig rikis- sjóður ætlar aö brúa það bil. - Sennilega eru þeir hagfræöispek- ingarnir þó að uppgötva það fyrst nú að slíkt var ekki hægt og þess vegna er allt bramboltið með skattahækkanirnar núna. En auð- vitað vill enginn af stjórnmála- mönnunum viöurkenna að það sé ástæðan - eða þora það ekki. - Ef skattprósentan héldist fóst og óbreytt eins og annars staðar þar sem staðgreiðslukerfi er til staðar og ríkissjóður væri ekki rekinn eft- ir hendinni, þá væri þetta í góðu formi hér einnig. - En því er ekki að heilsa, því miður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.