Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1989, Qupperneq 2
Fréttir
LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1989.
Atlaga gegn töfum á KeflavlkiirflugvellL:
Tíu þúsund feta aksturs-
braut verður lögð í sumar
Tíu þúsund feta akstursbraut
verður lögð meðfram hinni svoköll-
uðu norður-suðurbraut á Keflavík-
urflugvelli í sumar.
Að sögn Friðþórs Eydal hjá-vamar-
liðinu veröur þessi akstursbraut til
mikilla bóta. Hann sagði aö í dag
þyrftu flugvélar að keyra langa leið
eftir norður-suðurbrautinni, að enda
hennar, í flugtaksstöðu. Þannig væri
brautin upptekin meðan vél æki að
flugtaki. Með tilkomu akstursbraut-
arinnar yrðu tafir vegna þessa úr
sögunni þar sem flugvélarnar ækju
að flugtaki á sérstakri braut.
Þorsteinn Ingólfsson hjá varnar-
málaskrifstofunni 'sagði að heimild
til þessara framkvænida hefði verið
samþykkt í október. Væri eftir að
ganga frá samningum milh varnar-
liðsins og verktaka og eins væri eftir
að fullhanna framkvæmdina. Því
væri ekki hægt að nefna neinar fjár-
hæðir aö svo stöddu.
-hlh
embætti. DV-mynd Ægir
Hjón þjóna ná-
grannasóknum
Plastpokamir:
Landvernd fær að
sjá söluskýrslur
Ægir Kristinsson, DV, Fáskrúðsfiröi;
í messu á gamlárskvöld setti pró-
fasturinn, séra Þorleifur K. Krist-
mundsson, séra Sjöfn Jóhannesdótt-
ur í embætti prests við Kolfreyju-
staða- og Fáskrúðsfjarðarkirkjur en
séra Þorleifur fer í þriggja mánaða
fn vegna veikinda.
Séra Sjöfn predikaði og þjónaði fyr-
ir altari og ldrkjukór Fáskrúðsfjarð-
arkirkju söng. Sjöfn Jóhannesdóttir
er eiginkona séra Gunnlaugs Stef-
ánssonar í Heydölum í Breiðdai en
hann þjónar einnig Stöðvarsókn.
„Landvemd mun koma til með að
hafa fullt eftirlit með því að sá hluti
söluverðs plastpoka í verslunum,
sem samtökin eiga að fá, skih sér til
þeirra. Samkvæmt þeim samningi,
sem við gerðum við kaupmannasam-
tökin, hefur fuhtrúi Landvemdar
aðgang að söluskýrslum framleið-
enda pokanna þannig að þar sést
hversu mikið magn hver verslun
kaupir,“ sagði Auður Sveinsdóttir,
varaformaður Landverndar, er DV
ræddi við hana.
Auður sagði að ekkert vandamál
yrði fyrir fulltrúa samtakanna að
hafa eftirht með söluskýrslunum
þar, sem fyrirtækin sem framleiddu
plastpokana, væra ekki nema þijú.
Varðandi það að frá áramótum
hefðu kaupmenn selt ómerkta poka
„Við rennum alveg bhnt í sjóinn
hvað þetta varðar,“ sagði Eysteinn
Helgason, framkvæmdastjóri Plast-
prents hf., er DV spurði hann hvort
framleiðendur plastpoka óttuðust
ekki að framleiðslan drægist saman
þegar fariö væri að selja pokana í
verslunum. Verslanaeigendur, sem
blaðið hefur rætt við, segjast þegar
hafa merkt aö fólk komi aftur í versl-
anir með plastpoka sem það hafi áður
keypt.
„Þaö segir sig sjálft að það verður
útlit fyrir einhvern samdrátt,“ sagði
Eysteinn, „en viö vitum ekkert
hversu mikinn. Á móti sjáum við
fram á aukningu í framleiðslu á sorp-
pokum, en notkun þeirra hlýtur að
í verslunum sínum sagði Auður að
samkomulag hefði náöst mn þetta
atriði. Yrði febrúarmánuður tví-
reiknaður, þannig að Landvernd
myndi í raun fá sinn ágóða af janúar-
sölunni, eins og um hefði verið sam-
ið. Mihibilsástand hefði skapast með-
an verið væri að framleiöa merkta
poka í aUar verslanir og yrði það
brúað á þennan hátt.
„Ég get ekki annað sagt en að þessi
nýjung, að efla starfsemi Landvemd-
ar með þessum hætti, hafi mælst vel
fyrir,“ sagði Auöur. „Síðan þetta
kom tíl hefur fjöldinn allur af smá-
vörukaupmönnum, öðram en mat-
vörukaupmönnum, hringt og beðið
um svona poka. Þetta hefur því hlot-
ið miklu betri viðtökur en við nokk-
urn tíma þorðum aö vona.“ -JSS
aukast, þegar fólk fer að fara sparleg-
ar með verslunarpokana."
Eysteinn var spurður hvort fram-
leiðendur hefðu ekki sett sig upp á
móti þeirri ákvörðun kaupmanna aö
selja plastpokana. „Nei, það höfum
við ekki gert. Þegar einhver selur
vöm fer hann ekki að skipta sér af
því hvort viðskiptavinurinn selur
hana aftur eða gefur. Þetta er fýrst
og fremst ákvörðun okkar viöskipta-
vina og ef hún er þeim til hagsbóta
þá fógnum við því. Við lítum einnig
jákvætt á samstarfið viö Landvernd
og teljum slíka samvinnu framleið-
enda, seljenda, neytenda og áhuga-
fólks um náttúmvemd mjög af hinu
góöa.“ -JSS
Ýsan fór á
220 krónur í
Grimsby
- og 143 kr. í Hafiiarfirði
Ýsan seldist á 220 krónur kílóið
á fiskmarkaðnum í Grimsby í
gærmorgun þegar fjögur tonn af
ýsu vom seld úr togaranum Hjör-
leifi sem er í eigu Granda hf. Þá
fékkst hæsta verð fyrir ýsu í sögu
Fiskmarkaðarins í Hafnarfiröi í
gærmorgun eða 143 krónur kíló-
ið.
Jón Olgeirsson hjá Fylki í
Grimsby kvað ýsuna úr Hjörleifi
hafa verið fallega. „Það sem ræð-
ur þó úrshtum núna á markaðn-
um hérna er hve framboðið er
htið af fiski frá heimabátunum.
Þess vegna vantar fisk hér.“
Ágætis verð fékkst einnig fyrir
þorskinn í Grimsby í gær eða um
120 krónur fyrir kílóið.
Skortur er á fiski hjá Fiskmark-
aðnum í Hafnarfirði og það er
einmitt ástæðan fyrir þessu met-
verði á ýsu á markaðnum í gær-
morgun. -JGH
Óvissa um
framtíð
Hafarnarins
Sigurgeir Sveinsson, DV, Akianesi:
Uppsagnir starfsfólks Hafam-
arins hafa nú tekið gildi og ekki
er vitaö á þessari stundu hvert
framhaldið verður. Starfsfólkinu
var sagt upp með þriggja mánaöa
fyrirvara.
Höfðavík, skip Hafamarins,
mun sigla með afla sinn og selja
erlendis í þessum mánuði.
Flugfélag Noröurlands:
Besta árið í
sSgu félagsins
Gylfi Kristjánsson, DV, Akuxeyri:
„Það hggja að vísu engar tölur
fyrir um afkomu félagsins á síð-
asta ári en ég tel ljóst aö árið 1988
hafi verið besta árið í sögu félags-
ins,“ segir Sigurður Aðalsteins-
son, framkvæmdastjóri Flugfé-
lags Norðurlands.
„Uppgjör eftir fyrstu 9 mánuði
ársins var það hagstæðasta sem
við höfum fengiö og þótt þrír síð-
ustu mánuðir ársins séu oft erfið-
ir þá er það mín skoðun að þeir
hafi ekki breytt heildardæminu
neitt að ráði. Að vísu er Flugfélag
Norðurlands ekki það stórt fyrir-
tæki að hér sé um mjög stórar
upphæðir að ræða en miöað við
veltu er rekstrarafgangur ársins
greinilega mjög hagstætt hlut-
fall,“ sagði Sigurður.
Á síðasta ári seldi Flugfélag
Norðurlands eina Twin Otter vél
og keypti aðra nýrri.
Búist við að KRON reki
aðeins fimm verslanir
Kaupfélag Reykjavíkur og ná-
grennis (KRON) hefur ákveðið að
hætta starfsemi í þrem verslunum
sínum og hefur starfsfólki þeirra
verið sagt upp. Það era verslanir
KRON við Tunguveg, Strandgötu í
Hafnarfirði og verslunin við Dun-
haga Þetta era allt htlar hverfa-
verslanir og er talið líklegt að
rekstur verði áfram í þeim. Þegar
hefur annar aðih tekið við verslun-
inni við Tunguveg og er búist við
að flestallt starfsfólkið, sem þar
starfar, fái vinnu þar áfram.
Að sögn Ara Eggertssonar, for-
manns starfsmannafélagsins, mun
það ekki grípa til neinna aðgerða í
kjölfar þessara uppsagna. 19
manns fengu uppsagnarbréf um
áramót og þar af fimm í verslun-
inni Kaupstað.
Þá er búist við að KRON losi sig
einnig við verslanir sínar í Eddu-
felli og Stakkahhð. Þá verða aðeins
fimm verslanir eftir í rekstri
KRON. Það verða Kaupstaður,
Kaupgarður, Miövangur, Mikh-
garður í vesturbæ og Mikhgaröur
við Sund.
-SMJ
Framleiöendur plastpoka:
Sjáum fram
á samdrátt
- segir framkvæmdastj óri Plastprents