Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1989, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1989, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1989. Ólafur Hauksson, fyrrum útvarpsstjóri: Bylgjan og Stjaman eiga að sameinast Ólafur Hauksson, útvarpsstjóri Stjörnunnar, sagöi upp starfi sínu fyrir áramótin og í kjölfar þess ákváðu eigendur stöðvarinnar að segja upp öllu sínu starfsfólki og stokka upp eins og það er stundum kallað. Ólafur, sem haföi fengist við blaðaútgáfu í áratug hjá Sam-útgáf- unni, sagði að það hefðu verið mikil viðbrigði aö setjast í stól útvarps- stjórans og margt hefði verið öðru- vísi en hann bjóst við. Nú veltir hann fyrir sér að fara í einkarekstur þar sem hann getur nýtt sér þá reynslu sem hann hefur aflað sér. Einnig seg- ist hann hafa tilboð í höndunum sem hann er að skoða. „Frjáls útvarpsrekstur er mjög ungur á íslandi. Stjarnan er t.d. ekki nema eins og hálfs árs gömul. Engu að síður er búið að vera mjög mikið umrót á markaðnum. Menn hafa verið að þreifa sig áfram og menn hafa ekki komið sér niður á neitt ákveðið framtíðarform. í svona miklu umr óti er nauðsynlegt að geta tekið dæmið upp frá grunni og skoð- að allar hliöar þess. Það er mitt mat núna í þessari stööu og því átaki sem framundan er að eigendurnir sjálfir hafi frítt spil. Ég tók því þá ákvörðun að hætta. I sameiningu með eigendun- um ákváðum við að segja upp öllu starfsfólki til að endurskoða rekstur- inn frá grunni. í raun eru því eigend- ur Stjörnunnar í sömu sporum núna og þegar þeir byrjuðu. Þeir eru að móta nýja útvarpsstöð á daglöngum fundum núna.“ Skipað gæti ég ... - Fannst þér erfitt aö vinna með þremur eigendum við stjórn stöðvar- innar? „Það hefur bæði kosti og galla. Kostirnir eru þeir að maöur hefur þrjá mjög duglega og áhugasama menn sem vinna eins og skepnur alla daga vikunnar. Allt eru þetta menn sem hafa mikla reynslu í útvarpi. Ókosturinn er kannski sá og þá á máltækið: Skipað gæti ég væri mér hlýtt, vel við. Það er ljóst aö þegar eigendur eru starfandi í fyrirtæki þá er allt öðruvísi samband milli þeirra og stjórnanda heldur en þegar starfs- menn eru ekki eigendur. Það kom aldrei til beinna árekstra en þetta hafði vissa ókosti í fór með sér og meðal annars meö hliðsjón cif þessu fannst mér besta framtíðarformiö að eigendur stjórni sjálfir. Ég gerði mér ekki grein fyrir þess- um fjölmiöli í upphafi. Stöðin er í gangi allan sólarhringinn og það ger- ir allt aörar kröfur til allrar skipu- lagrúngar en ég hafði þekkt áður. Það þarf að skipuleggja vinnu frá sjö á morgnana og fram á nótt alla daga ársins, líka um jól og áramót. Þetta veldur öðruvísi launagreiðslum. Það er aldrei hægt að setjast niður og pústa og hugsa um hvað við ætlum að gera á mánudaginn. Hlutirnir ger- ast strax. Kosturinn er líka sá að hægt er að senda fréttimar út á með- an þær gerast eins og raunin varð þegar eldsvoðinn kom upp á Ártúns- höfða á miðvikudaginn.“ Lítið vit á tónlist - Fannst þér starfið eiga við þig? „Mjög svo. Þetta er einn skemmti- legasti tími sem ég hef upplifað. Hins vegar hefur þaö háð mér persónulega hversu lítið vit ég hef á tónlist og þar af leiðandi hefur þetta verið meira stúss í peningamálum en æskilegt hefði verið.“ - Hefur þú hugmynd um hvaða breytingar verða geröar á Stjöm- unni? „Breytingamar verða í þá átt að færa dagskrána nær hiustandanum og stefnt að því að ná til fjöldans. Á starfsmannahaldi og öðru verða ekki algjörar breytingar heldur fyrst og fremst áherslubreytingar þó hugsan- lega verði kallað til eitthvað af nýju fólki. Eiríkur Jónsson fréttastjóri er í fríi fram í miöjan janúar þannig að ekki er farið að ræða neinar breyt- ingar í þeirri deild." - Á stöðin einhverja lífsmöguleika? „Já, hún á mikla möguleika á aö lifa vegna þess að ef maður horfir á sveiflurnar í hlustun þá er takmark- íð að ná aftur mestu hlustuninni. Þegar henni hefur verið náö koma inn rífandi tekjur og þá á stööin mikla rekstrarmöguleika. Framtíðin í útvarpsrekstri og samkeppni Stjörnunnar og Bylgjunnar virðist vera sú að vinsældirnar sveiflast mjög mikið á milli. Þegar feitu mán- uðirnir ganga yfir þarf að leggja til hhöar fyrir mögm mánuðina sem óhjákvæmilega munu fylgja í kjölfar- ið. Ég sé ekki fram á að það breytist." Leit að hinu nýja - En af hverju breytast vinsældirnar svona til og frá? „Ég á mjög erfitt með að átta mig á því. Kannski er svarið það aö fólk skiptir ekki eins ört um stöðvar og haldið hefur verið. Fólk er límt viö eina ákveðna stöö í einhverja mán- uöi og fær síðan leiö á henni. Þá er skipt yfir og hlustað þangað til sama sagan endurtekur sig. Fólk er sífellt í leit að einhverju nýju.“ - Nú heyrir maður oft talað um að báðar stöðvarnar séu þunnar, inni- haldsrýrar og lítið gert fyrir hlustandann. „Samt er mikið hlustaö á þær. Áð- ur en Stjárnan varð til var Bylgjan með fimmtíu prósent hlustun en það dugöi aðeins fyrstu fjóra mánuði hennar. Síðan 1987 hefur verið mjög stabíl útvarpshlustun. Þegar stöðv- amar hafa verið að þreifa fyrir sér með vinsælt form er það góð afþrey- ingartónhst og stuttar fréttir sem fólk vill. Allri kynningu á tónlistar-. mönnum og öðru talmáli hefur verið haldiö í lágmarki og því er ekkert sem stendur upp úr í dagskrá stöðv- anna. Það eru engin leikrit, umræðu- þættir eða annað slíkt. Það má kannski segja sem svo að fyrir þá sem vilja eitthvaö matarmeira þá nægja þessar stöövar ekki. Þess vegna hafa verið skörp skil í könnun- um því þeir sem leita eftir slíku efni stilla á rás 2 ákveðna tíma dagsins. Þessi hlustun, sem Ríkisútvarpið er að fá, er eingöngu á fréttir og talmáls- þætti snemma morguns og síðdegis. Hins vegar er skammast út í einka- stöðvarnar ef þær eru með of mikið talmál. Þessir stöðvar eru fyrst og fremst fjölmiðlar vinnudagsins." - í BandaríkjunumogBretlandihafa þættir, sem bjóða upp á getraunir, spurningaleiki og frásagnir úr mannlífmu, notið mikilla vinsælda. Af hverju ekki hér? „Það er á vissan hátt óhkt rekstrar- form miðað við hér á landi. Auglýs- endur hérlendis auglýsa nær ein- göngu á stöðinni sem er á toppnum og þó hin stöðin sé rétt á eftir þá dugar það ekki til. í Bandaríkjunum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.