Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1989, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1989, Blaðsíða 16
16 LAUGARÐAGUR 7. JANÚAR 1989. Húsiö er virðulegt og fáir fara fram hjá án þess aö taka eftir þvi sérstaklega. A bak viö húsiö er lokaður garður meö fjölmörgum ávaxtatrjám þar sem fjölskyldan getur notiö þess aö koma saman. Talar ekki íslensku - en dreymir um að komast til íslands - staldrað við hjá Þóru Campbell í Salt Lake City Anna Bjamason, DV, De:iver: Þaö er einkennileg reynsla að hitta inni í miöri Ameríku fólk sem er af íslenskum ættum. Það heldur viss- um íslenskum einkennum, kann ekki orð í íslensku en á sér þann draum að komast einhvern tíma til íslands og líta augum þá staöi sem afar þess og ömmur kusu að hverfa frá. Eg hafði oft heyrt talað um eða lesið um þessar römmu taugar en hélt að þær tilhevrðu liðinni tíð og ég myndi aldrei hitta slíkt fólk. En fyrir röð tilviljana lá leið mín til slíkrar konu í Salt Lake City í Utahríki í Bandaríkjunum fyrir skömmu. Hún heitir Þóra Campbell og þó að hún og foreldrar henriar séu fædd í Bandaríkjunum og hafi aliö allan sinn aldur þar er hún í raun- inni rammíslensk. Hún talar ekki orð í íslensku en ber þó íslensk nöfn mjög vel fram. Hún notar t.d. íslensk- an framburð á sínu eigin nafni í stað Th sem væri í samræmi viö hennar enska umhverfi. Hún elskar að fá íslendinga í heimsókn og hún elur enn í brjósti sér þann draum að koma til íslands. Með Paradísar- heimt í farteskinu Anita Patterson, formaður íslend- ingafélagsins í Colorado, hafði hvatt okkur til að koma með sér á íslend- ingahátíð í Utah aðra helgina í ágúst. Hún kvaðst eiga þar afar elskulega frænku sem hefði í ríkum mæli erft þá íslensku eiginleika að láta hús sitt standa opið „löndum" sínum og vildi ekki heyra annað nefnt en að þeir gistu hjá henni ef þeir væru á ferð í Salt Lake City. Um tíma leit út fyrir að það yrðu þrenn hjón auk þriggja barna sem færu frá Colorado til Salt Lake City á hátíðina. Þóra kippti sér ekki upp við það og sagði: „Það verður pláss fyrir ykkur öll.“ Áður en haldið var af stað upp- götvaðist sá misskilningur að hátíð íslendinga í Utah var haldin fyrstu helgina í ágúst og var um garð geng- in. En hvorki Anita og hennar fjöl- skylda eða við vildum missa af tæki- færinu til að fara til Utah og hitta hina gestrisnu Þóru og fjölskyldu hennar. Á síðustu stundu minnkaði hópurinn en í hlað hjá Þóru renndu sex gestir. Og þar var að sönnu bæði hjarta- rými og húsrými. í húsi þeirra reyndust tuttugu og tvö herbergi og flest þeirra ekki af smærri sortinni. Meirihluta þeirra hefði mátt skipta í tvö og hefðu þau samt ekki þótt nein- ar kytrur. Við fórum til Utah gegnum Wyom- ing, svipaða leið og fyrstu mormón- arnir sem þar settust að. Okkur varð tíðrætt um þá á leiðinni enda vorum við nýbúin að lesa aftur Paradísar- heimt eftir Halldór Laxness; höfðum bók hans reyndar meö okkur, grip- um í hana í ferðinni og bárum saman við raunveruleika nútímans. Þessi leið að borginni liggur um klettaskörð og gijúfur. Nú er þar ekið á steyptum tvískiptum sex ak- reina vegi. Þegar mormónamir komu á þennan stað 1847 eftir átján mánaða píslargöngu og núverandi borgarstæði Salt Lake City blasti við þeim er þeir höföu fárið um skarð með því ófrumlega nafni „innflytj- endaskarð" var þar varla stingandi strá heldur blöstu við vindbarin fjöll, gróðursnauð eyðimörk og risastórt Salt Lake vatnið. Leiðtogi þeirra leit yfir eyðimörkina og sagði: „Þetta er staöurinn." Margir í fylgdarliði hans brustu í grát er þessi staður varð fyrir valinu eftir aö hafa farið um blómlegar sveitir og gróið land. En þarna var ónumið land og þó fyrstu mormónarnir hefðu brotiö skóflur og plóga í fyrstu tilraunum sínum til að yrkja þessa eyöimörk tókst það að lokum og þarna er nú blómleg borg, óvenjulega græn þar sem blóm- legar trjákrónur eru í öllum görðum og mynda víða laufþak yfir götum. Það var eins og einhver æðri mátt- Þóra og „höfuðsmaðurinn“ á leið til kirkju á sunnudagsmorgni. DV-myndir A.Bj. arvöld leiddu okkur af hraðbrautinni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.