Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1989, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1989, Side 15
LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1989. 15 ' Hvemig hefur þjóðin það? Mér þótti áramótaskaupiö sniðugt. Sumt af því getur flokkast undir fimmaurabrandara en atriöin voru stutt og mörg og inn á milli var háðið og grínið hreint frábært; einkum þó eftirherman Jóhannes sem hrá sér í allra kvikinda líki og sló í gegn. Auðvitað eru það pólitík- usamir sem aðallega eru skot- spænir spaugsins, enda hafa þeir lagt til ærið yrkisefhi. Svo ein- kennilegt sem það kann að virðast höfum við alltaf mesta ánægju af að sjá stjómmálaforingjana dregna sundur og saman í háði og hlæjum aldrei hærra en þegar skepnuskap- urinn er mestur. Það hggur við að þjóðin fái útrás eða nái að svala hefndarþorsta sínum þegar háð- fuglamir hafa stjórnmálamenn að athlægi. Annars er það skrítið hvað stjómmálamenn em fyrirferðar- mikhr. Og stjómmál yfirleitt. Við horfum ekki á sjónvarpsfréttir öðmvisi en tveir eða fleiri ráð- herrar birtist á skerminum. Við opnum ekki blöðin öðmvísi en vitnað sé í einhver ummæh þeirra. Aht í fúlustu alvöm. Og svo þegar kemur að gamninu og áramóta- skaupinu eru þeir áfram hafðir til brúks. Eins og ekkert annað sé ómaksins vert að minnast á. Einn seinheppinn hæstaréttardómari fær að fljóta með, vandræðagangur íþróttafréttamanna, spéspegill af handbolta og annað aukreitis. En það eru stjórnmálamennirnir sem halda uppi fjörinu með aulafyndni og ruglanda sem er þó ekki annað en endurtekning á hinni fúlu al- vöm. Við áramótin staldra fjölmiðlarn- ir við og gera upp reikningana við hðna árið. Hvemig er það gert? Jú, með áramótaávörpum flokksfor- ingjanna sem skoða árið út frá stjómmálaatburðum og dæma ár- angur og afleiðingar út frá gengi síns flokks og sinnar sfjómar. Ann- ar mælikvarði er aldrei lagður á hðna tíð. Aðrar hræringar í þjóðlíf- inu eru ekki á dagskrá. Það eru að vísu birtir annálar um íþróttaaf- rek, bókaútgáfu, gengisfellingar, eldsvoða og aflabrögð. Menningar- hfið er mælt í sýningum, lífsstílhnn er metinn eftir bhum og ferðalög- um, velmegunin er mæld í líkams- þyngd. Statistikin blífur. En hvernig hefur þjóðin það? Hvemig hður henni? Hvað hefur gerst í þjóðarsálinni á árinu sem leið, hver er þróunin, breytingin, frcunvindan? Sama súpan Hver svo sem fyrirferðin er í stjómmálunum og hversu ábúð- armiklir sem stjómmálamennimir em í sjónvarpinu þá er það fjarri lagi að stjórnmálaatburðir ráði gæfu og gengi hins venjulega manns. Við sjáum það hka af at- burðarás síðasta áratugar að stjómmálin hafa htið breyst þótt stjómarskipti hafi verið tíð. Þetta er sama súpan, sömu vandamáhn, sömu bjargráðin aftur og aftur, aðeins með breyttum formerkjum og nýjum andlitum. Launafólk er ekkert betur sett með vinstri stjóm. Atvinnurekendur em ekk- ert kátari þótt hér sitji hægri stjóm. Ekki kýs þorskurinn og ekki er doharinn í framboði. Þó em það fiskamir og valútan sem era stærstu örlagavaldamir í hinu póhtíska veraldargengi skamm- lífra ríkisstjóma. Ekki stjóma ís- lenskir ráðherrar ohuverði, sjávar- afla eða vöxtunum. Steingrímur æsir sig einhver ósköp út af gráa markaðnum og lætur illa yfir fjár- magnskostnaði. Og það með réttu. En staðreyndimar segja okkur að vextir hafi einmitt verið gefnir frjálsir undir hans forsæti í ríkis- stjóm. Sama tvískinnungs gætir í öllum flokkum varðandi ríkisfjár- máhn. Við höfum á stuttum tíma haft fjóra fjármálaráðherra úr þrem flokkum. Allir draga þeir vsmrækslusyndir og hallarekstur á eftir sér. Samt hamast þeir við að skammast út í óstjórnina hjá öðr- um, bæði á undan og eftir sinni eigin óstjórn! Hlutverkaskipti Því er auðvitað ekki að neita að það er blæbrigðamunur á stjórnmála- flokkum og stjórnmál hafa eða geta haft áhrif á einstaka þætti þjóðar- búsins og afkomu landsmanna í bráð. En í lengd er sami rassinn undir þeim öhum, enda em það ytri skilyrðin sem ráða ferðinni um efnahagsástandið. Góðæriskafl- arnir á þessum áratug draga dám af markaðsverði, aflabrögðum og gengi krónunnar gagnvart erlendri mynt. Samdrátturinn verður held- ur ekki nema að hluta skrifaður á landsstjórnina. Utanaðkomandi áhrif hafa þar sömuleiðis sitt að segja. A þessu ári hafa orðið hlutverka- skipti í ríkisstjóm. Mennimir, sem vom í stjórnarandstöðu í gær, em komnir í ráðherrastólana í dag. Og öfugt. Og hver trúir því að ástandið væri betra eða verra ef óbreytt stjórn hefði setið? Hver trúir því að skattar hefðu ekki verið hækk- aðir, gengið feht eða ríkisfjármálin í ólestri? Það duga engar sjón- hverfingar til að láta fólk glepjast af málflutningi sem ýmist er í aust- ur eða vestur, eftir því hvorum megin borðsins mennimir sitja. Ef einhvem dóm á að kveða upp um frammistöðu stjómmálamanna og flokka þá er hann sá einn að þeir hafa flotið sofandi að feigðarósi. Þeir hafa ekki haft sfjóm á ofþensl- unni eða ftjálsræðinu, þeir hafa ekki haft stjóm á ríkisfjármálun- um eða fjármálafylliríinu. Þeir hafa aldrei séð skóginn fyrir tiján- um. Hver er sagan? Stjómmálaforingjarnir gefa okkur skýrslur um áramótin og fyrir þá er sagnfræði ársins það sem gerist í málatilbúnaði, stjómarskiptum og brigðmælum. En íslandssagan verður ekki skráð í ártölum eða ráðherrum. Hún snýst ekki um niðurfærslur eða undanfærslur. Sagan mælist í því hvemig þjóðinni vegnar í prívatlífinu:' fæðingum, hjúskap, atvinnuhorfum, íbúðar- kaupum, ferðalögmn, sjónvarps- dagskrám, listaviðburðum, veik- indum, tómstunduni, tískum, hjónaskilnuðum, launum, andlát- um. í stuttu máh þeirri hamingju sem fólk hefur út úr lífinu frá degi til dags. Sú lífshamingja og það hversdagslíf er langt, langt í burtu frá heimi stjórnmálanna, karpinu í þingsölum, skiptunum á ráð- herrastólunum. Þjóðfélagið tekur hægfara breyt- ingum, svo hægfara stundum að erfitt er að átta sig á þeim. Forseti íslands benti á það í áramótaræðu sinni að íslendingar hefðu fimmtán prósent meira til ráðstöfunar en þeir höfðu fyrir fimm árum. Hver hefur tekið eftir þessu? Samt tölum við um kreppu af því þjóðartekjur dragast saman um örfáa húndraðs- hluta! íslendingar ferðast tvöfalt meira en þeir gerðu fyrir tíu ámm. Enginn tekur eftir því heldur. Hvaða áhrif hafa þessi ferðalög á hfshætti, hvaða viðhorfsbreýtingar leiða af auknum samskiptum við aðrar þjóðir? Fyrir örfáum ámm þótti enginn maður með mönnum nema hann væri skráður í stjómmálaflokk. Nú er manni sagt að flokksfundir séu fámennir og flokksstarf nánast dautt. Ný kynslóð forðast flokks- bönd. Hvað segir þetta okkur um póhtíska undirstrauma eða hlut- verk stjórnmálaflokka í almennu félagsstarfi? Mikih urmull kemur út af nýjum bókum á árinu. En fæst af því telst til bókmenntaverka. íslensk tunga er á undanhaldi í fjölmiðlum og daglegu tah. Hvaða lærdóm getum við dregið af þessari þróun? Erum við að glata málsnilldinni og rit- snihdinni? Hafa ungu rithöfund- amir ekki lengur erindi eða eiga klassískar bókmenntir ekki lengur upp á pallborðið? Tískufaraldur Annað er einnig eftirtektarvert. Fólk er uppteknara en áður af eigin hag. Hver og einn dregur sjálfan sig inn í skel sinnar eigin veraldar, lætur hugsjónir, stjórnmálavafst- ur, sjálfboðaliðastörf eða þegn- skyldu lönd og leið, kærir sig koh- óttan um örlög annarra. Gömlu stríðandi fylkingamar til vinstri og hægri í póhtíkinni eru horfnar, herstöðvaandstasðingar eru salt- stólpar, jafnvel sérviska í klæða- burði og hárgreiðslu hefur orðið undan að láta fyrir þeirri tísku að vera eins og hinir. Ekkert er heil- agt, ekkert er þess virði að standa með því og falla. í íþróttúm skipta menn um félög eins og þeir skipta um nærbuxur sem einu sinni þótti jaðra við foðurlandssvik. Tísku- byltingar eins og friðarhreyfingin, sextíu og átta kynslóðin, hipparnir, fijálshyggjuliðið og allar aðrar bylgjur og faraldrar láta ekki fram- ar á sér kræla; rétt eins og enginn nenni lengur að frelsa heiminn. Það má enginn vera að því að beij- ast fýrir aðra vegna þess að þeir em uppteknir af sjálfum sér. Það em þjóðfélagsbreytingar af þessu tagi, hugarfar, lífshættir og þær kröfur sem fólk gerir til lífs- ins, sem em miklu merkilegri held- ur en skylmingar nokkurra stjóm- málaforingja. Menn spyija yfirleitt ekki hver annan á nýársnótt: Hvernig hefur flokkurinn það? Menn spyija: Hvemig hefur í]öl- skyldan það? Hvernig hefur þjóðin það? Er hún betur stödd en í fyrra? Menn óska hver öðrum til hamingu með að hafa hfað árið af. Römm er sú frétt Já, hver lifði árið af? Ég er ekki frá því að gamla ársins verði einkum minnst fyrir þá endurhæfingu sem íslendingar ganga í gegnum. Sam- dráttur í efnahagsmálum hefur kennt okkur að ganga hægt um gleðinnar dyr. Margir hafa farið of geyst og reist sér hurðarás um öxl. Gjaldþrot blasa við og mikil upp- stokkun á sér stað í viðskipta- og atvinnulífi. Það er erfiður hreins- unareldur en er um leið víti th varnaðar. Gjaldþrot skilja eftir sig slóð vonbrigða og erfiðleika en öh él birtir upp um síðir og svo fram- arlega sem tjónið verður ekki gjald- þrot sálarinnar þá mun stundar- strit herða okkur í eldinum. Allt stál herðist í eldi. Það sem eftir stendur er reynslan og skilningur- inn á því að ekki er allt gull sem glóir. Þetta kennir okkur annað. At- vinnurekstur er ekki ávísun á auðæfi. Hann er áhætta og áræði. Við getum þakkað fyrir að enn skuh vera tii menn sem vilja leggja út í slíka ævintýramennsku. Undir þeim og kjarki þeirra er afrakstur þjóðarinnar kominn, sem og af- koma launþega. Kannski hafa augu einhverra opnast fyrir þessum ein- földu lögmálum og launafólk áttað sig á því að vegur og velgengni fyr- irtækis er velgengni þeirra sem þar starfa. Svo römm er sú frétt að fyrirtæki riði á barmi gjaldþrots að maður rekur upp stór augu og fylhst vel- þóknun yfir hverri þeirri atvinnu- starfsemi sem þrífst eða lifir þessar hörmungar af. Ég hef það á tilfinn- ingunni að fleiri hugsi eins. Það er í þessari tilfinningu, þessari hugs- un, sem árið er effirminnilegast þegar það hverfur í aldanna skaut. Það vom þó allténd nokkrir sem liföu það af! Ehert B. Schram

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.