Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1989, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1989, Blaðsíða 10
10, II Breiðsíðan LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1989. Helga Melsted, fyrrum Ford-sigurvegari: Helgar sig nú móðurhlutverkinu Það er yndislegt aö hugsa um DV-mynd GVA Helga Melsted með litla soninn, Daniel litið barn.“ Helga Melsted, sigurvegari Ford- keppninnar hér á landi fyrir flmm árum, hefur nú lagt sýningarstörf á hilluna og gegnir móðurhlutverkinu þess í stað. „Þetta er yndislegt og ólýsanlegt," sagði Helga í samtali við Breiðsíðuna. Sonur hennar, Daniel Melsted Fredrikson. fæddist 10. nóv- ember sl. og er því rétt tæplega tveggja mánaða. Helga er búsett í Hollandi en kom hingað til lands í ágúst sl. þar sem hún var ákveðin í aö ala barnið hér heima. Hér ætlar hún að dvelja fram í byrjun mars en unnusti hennar, Fred VanAalst, fór heim til Hollands i vikunni. Hann starfar einnig við sýningarstörf. „Ég veit ekki hvort ég fer aft'ur í fyrirsætustarfið. Það verður bara að koma í ljós. Ætli ég verði ekki að minnsta kosti að megra mig fyrst," sagði Helga og hló. „Eg var að vinna fyrstu mánuði meðgöngunnar en hætti síðan," sagði hún ennfremur. Helga sagði aö það ætti vel við sig að hugsa um barnið. „Mér finnst þetta sannarlega gaman.“ Hún er nú orðin 21 árs og segist ekki telja heppilegt fyrir stúlkur, yngri en 18 ára, að leggja út á braut fyrirsætustarfsins. „Þegar ég hugsa til baka fmnst mér ég alls ekki hafa verið nógu þroskuð sextán ára þegar ég fór fyrst utan. Síðan fer það auð- vitað eftir hverri stúlku hversu þroskuð hún er. Mín skoöun er samt sú að starfið sé ekki eftirsóknarvert yngri stúlkum en 18 ára.“ Helga er búsett í htlu þorpi sem er um hálftíma akstur frá Amsterdam. Hún segist kunna vel við sig þar. „Þetta er rólegt hverfi þar sem við búum og gott fólk þar. Samt gæti svo farið að við flyttum innan skamms en það er ennþá óráðið.“ Helga segir að Hollendingar séu fremur íhaldssamir að velja aðeins hohenskar stúlkur til fyrirsætu- starfa og því ráðleggi hún engri stúlku að reyna fyrir sér þar. „Maður þarf að hafa góða myndabók og geta eitthvað til að fá vinnu í Hollandi," sagði hún. Helga segist þó ekki sjá eftir þeim árum sem hún vann sem fyrirsæta. „Þetta var góð reynsla sem maður býr að.“ Ekki segist hún fylgjast neitt að ráði með fegurðarsamkeppni eða annarri shkri keppni núorðið. „Áhugamál mín snúast um svo margt annaö núna. Enda er fyrir- sætustarfið aðeins spennandi í smá- tíma, síðan verður það eins og hver önnur atvinna, sem sagt rútína,“ sagði Helga Melsted sem nú helgar sig bleiuþvottinum fremur en öðru. -ELA Unnusti Helgu, Fred VanAalst, startar einnig að sýningarstörfum. Þau eru búsett í Hollandi, föðurlandi hans. Þ>ú ert 2000 krónum ríkari Það er ekki af ótta við að fyrrum forstjóri Bifreiðaeftirlits rikisins verði atvinnulaus sem hann er heiðraður með 2000 krónum heldur vegna þess að hann var þegar kominn i hringinn þegar myndin var tekin. Vegna útsjónarsemi Ijósmyndarans getur hann vitjað peninganna á ritstjórn helgar- blaðs DV, Þverholti 11. DV-mynd S Leiðréttingar vegna uppskriítar Guðrúnar Agnarsdóttur í uppáhaldsuppskrift Guörúnar Agnarsdóttur að önd, sem birtist fyrir jólin í blaðinu, urðu smá- vægilegar viUur sem þurfa leið- réttingar við. Guðrún sagði þó að villurnar hefðu ekki komið að sök í matreiðslunni en uppskriftin væri betri ef hun væri lagfærð. í fyrsta lagi var talað um í upp- skriftinni aö nota ætti hveiti- brauð. Guðrún segir að miklu betra sé að nota heilhveitibrauð og það geri hún ævinlega, þótt hvort tveggja megi nota. í öðru lagi átti innmaturinn, laukurinn og raspið að steikjast upp úr ríf- legum skammti af jurtasmjörlíki. (í blaðinu hafði orðið ríflegur far- ið aftan við lifrarkæfuna, paté, en átti að vera fyrir aftan smjör- líkið.) í þriðja lagi átti að standa valhnetur í staðinn fyrir vel hakkaöar hnetur. Guðrúnu langaði einnig að bæta viö, þar sem hún hefur feng- ið nokkrar fyrirspurnir um upp- skriftina, að skilja ætti fituna úr soðinu sem kæmi í ofnskúffuna. Einnig mætti nota sömu fylling- una innan í fuglinn og í háls hans. Uppskriftin er ekki síöur heppi- leg í gæs en önd. Þeir sem geyma uppskrift Guð- rúnar ættu endilega aö bæta þessum atriðum inn í því Guðrún fullvissar okkur um að þannig sé uppskriftin betri en ella. -ELA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.