Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1989, Side 37
49
LAUGARDAGUR 7. JANUAR 1989.
LífsstQl
Tíu bestu
skíðastaðir
heimsins?
Davos deilir skíöasvæöi sínu að miklu leyti með Klosters sem er öllu fallegri staöur. Þar stunda Karl og Diana
líka vetrariþróttir sínar.
Frakkland
Argentiere, Chamonix, Vallée
Blanche.
Good Skiing Guide kallar þetta
skíöasvæöi Mekka hinna karlmann-
legu. Gill segir að Chamonix dalur-
inn eigi fáa keppinauta hvað varöar
erfiðu brekkurnar. Chamonix er
samkomustaður sannra fjalla-
manna, bæði innfæddra og erlendra.
Þeir eru grennri, í betra ásigkomu-
lagi, brúnni og oftar skeggjaðir en
venjulegir dauðlegir menn. Aö
afloknum degi í brekkunum og áöur
en menn fara í bað getur maður rek-
ist á þá í leiðsögumannahúsinu þar
sem þeir eru að búa sig undir næsta
dag. Þeir allra bestu hittast í brekk-
unum í Argentiere. Til að njóta að-
stöðunnar þar til fulls verða menn
að hafa bíl, vera vel á sig komnir og
hafa gaman af brekkum sem gera
kröfur til skíöamannsins. í góðu
veðri og góðum snjó er Vallée
Blanche jökulbrekkan frá Mont
Blanc til Chamonix opin fyrir hópa
undir leiðsögn. Hún er löng, ekki
erfið og getur verið fjölmenn.
Bandaríkin
Aspen, Kólóradó.
Aspen er gimsteinn skíðastaðanna
tjögurra sem ganga undir þessu sam-
eiginiega nafni. Hinir eru Snowmass
(fyrir miðlunga), Buttermilk (fyrir
byrjendur) og Aspen Highlands (fyr-
ir miðlunga og lengra komna). Aspen
er gamall silfurnámubær sem hresst
hefur verið upp á og andrúmsloftið
þar er alþjóðlegt og fjörugt. Aðalfjall-
iö þar heitir Ajax og er það í miklum
metum vegna erfiðustu brekknanna
sem eru langar og brattar. Þær auð-
veldari eru líka góðar.
Kanada
Bugaboos, Cariboo og the Monas-
hees (Breska Kólumbía).
Þyrluskíðamennska í kanadísku
auöninni er aðeins fyrir hina vell-
auðugu, þrumugóðu og þá sem eru í
toppstandi. Þyrlur fljúga með skíða-
mennina upp á fjallatindana og
sækja þá aftur við fjallsræturnar.
Miðhlutinn er brun niöur snarbratt-
Hverjir eru þeir skíðastaðir sern
sérhver áhugasamur skíðamaður
ætti að gera sér far um að heim-
sækja áður en hann sér á bak bestu
árum sínum?
Ekki er til neinn algildur mæli-
kvarði til að bera saman áþreifanlega
hluti eins og lyftugetu annars vegar
og stemmningu og skíðaánægju hins
vegar. Listinn, sem hér fer á eftir,
er til kominn eftir að Chris Gill, rit-
stjóri The Good Skiing Guide, og
Shona Crawford Poole, umsjónar-
maður ferðakálfs Sunday Times í
London, báru saman bækur sínar.
Engin ástæða er að deila um fimm
staði, Argentiere, St. Anton, Trois
Vallées, Val D’Isere og Zermatt.
Chris Gill er enn með Aspen, Jack-
son Hole og þyrluskíðaþjónustuna i
Kanada á sínum lista. St. Anton er á
lista ShonU Crawford Poole. Það sem
ofar öllu ber að hafa í huga eru gæði
skíðaaðstöðunnar fyrir góða miðl-
unga og þá sem lengra eru komnir.
Viö réttar aðstæður er Verbier best fyrir þá sem vilja skíöa utan troðinna
brauta.
Chamonix er samkomustaöur sannra fjallamanna, bæði innfæddra og er-
lendra. Þeir eru grennri, í betra ásigkomulagi, brúnni og oftar skeggjaðir
en venjulegir dauðlegir menn.
ar brekkur, þar sem enginn hefur
rennt sér áður, í stórkostlegu lands-
lagi og með aðeins nokkrar aðrar
manneskjur í sjónmáli. Skíðamenn-
irnir gista í fjallakofum úti í sjálfri
auðninni. Ef skíðamennska er vana-
bindandi þá er þessi tegund hennar
hálfu verri en hinar.
Sviss
Davos.
Davos deilir skíðasvæði sínu að
miklu leyti með Klosters sem er öllu
fallegri staður. Þar stunda Karl og
Díana líka vetraríþróttir sínar. Gill
Ferðir
segir að brekkurnar i Davos séu sér-
lega langar og að allir geti skíðað þar
sér til ánægju. Biðraðir við lyfturnar
til að komast upp á Parsenn ættu að
vera mönnum hvatning til aö taka
daginn annaðhvort snemma eöa
seint.
Frakkland
L’Espace Killy, Val d’Isere, Tignes.
Jean-Claude Killy, uppáhalds-
skíðasonur Val d’Isere, hefur léð
nafn sitt skíðastaðnum sem tengist
Tignes. Þetta er eitt af stærstu skíða-
svæðum í heimi og þangað koma
snillingarnir ár eftir ár. Brekkurnar
fyrir byrjendur eru margar, vel
troðnar og vel merktar og ótroðnu
brautirnar eru svo fjölmennar að
jafnauðvelt er að rata þar og úti á
hraðbrautunum.
Austurríki
St. Anton.
Gill segir að þetta sé einn þeirra
staða sem alvarlegir skíðamenn vilji
ekki missa af. Brekkurnar eru langar
og brattar og breiðar. Hið mikla orð,
sem fer af Arlberg, skíðaskóla Hann-
esar Schneider, er sönnun þess að
þetta er staðurinn fyrir þá sem vilja
ná sem mestri fullkomnun í íþrótt
sinni. Good Skiing Guide segir að
erfiðu brekkurnar þar séu fjölbreytt-
ari en nokkurs staðar annars staðar.
Frakkland
Trois Vallées, Courchevel, Méribel,
Les Meuniers, Val Thorens.
Trois Vallées svæðið á engan sinn
líka ef menn á annað borö vilja vakna
snemma og fara eitthvað á skíðum.
Þar á meðal er leiðin um dalina þrjá
(Trois Vallées). Á sólríkum dögum
myndast oft miklar biðraðir þegar
allir ætla sér að skíða til fjarlægustu
staðanna, Courchevel og Val Thor-
ens um Méribel og Les Meuniers.
C.ourchével er flottur, nútímalegur
og hreint ekki ódýr staður. í dalbotn-
inum er þorpið Le Praz, með bjálka-
kofum, reyk af eldiviði og einn besta
matinn í Alpafjöllunum.
Sviss
Verbier.
Menn kunna aö undrast frægð
Verbier þangaö til þeir hafa kynnst
skemmtanalífinu þar. Skíðaaðstaðan
er langt frá því að vera kjörin fyrir
þá sem tilheyra fjölmennasta hópn-
um, þ.e. þá sem ekki eru sérlega góð-
ir. Örtröðin er mikil á aðalsvæðun-
um vegna vinsælda nokkurra
brekkna sem gott orð fer af. Við rétt-
ar aðstæður er Verbier best fyrir þá
sem vilja skíða utan troðinna brauta.
Sviss
Zermatt.
Ekki eru allir sammála um að Zer-
matt eigi heima á listanum yfir tíu
bestu skíðastaðina fyrir skíöaaðstöö-
una eina, þó svo margir álíti það. En
allir eru sammála um aö blanda
góðrar skíðaaðstöðu og eins falleg-
asta þorpsins í Ölpunum sé frábær.
Þeir sem þekktu til staðarins fyrir
margt löngu kvarta yfir mannfjöld-
anum og nýbyggingunum. Ekki þeir
sem sjá Zermatt í fyrsta sinn.
Bandaríkin
Jackson Hole, Wyoming.
Jackson Hole er einn þeirra skíða-
staða sem enginn ætti að láta fram-
hjá sér fara. I Bandaríkjunum hefur
hann orð á sér fyrir að vera erfiður,
en það er fleira sem heillar. Teton-
fjöllin, með skörðóttum tindum sín-
um, eru stórkostlegur bakgrunnur.
Þá er snjórinn góður og innfæddir
eru viðmótsþýðir.