Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1989, Qupperneq 7
LAUGARDAGUR: 7. JANÚAR 1989.
Fréttir
Bankaráð Landsbankans:
Valur er ekki
bankastjóri
Valur Arnþórsson, kaupfélags-
stjóri KEA, er ekki oröinn banka-
stjóri Landsbankans. Bankaráöið
ákvað á fundi sínum í gær að fresta
ráðningu hans til 1. febrúar og gegn-
ir Gunnlaugur Kristjánsson aðstoð-
arbankastjóri starfi aðalbankastjóra
Jil þess tíma.
Bankaráðið samþykkti þann 14.
júlí í sumar, eða fyrir tæpu hálfu
ári, aö ráða Val frá og meö 1. janúar
enda væri hann laus frá störfum fyr-
ir samvinnuhreyfinguna. Á þessu
hálfa ári hefur honum ekki tekist að
losa sig úr fyrri störfum.
-JGH
Formaður Kaupmannasamtakanna:
Gert með samþykki
verðlagsstjóra
„Þessi ákvörðun kom mér vægast
sagt mjög á óvart því ákvörðunin um
sölu plastpokanna var tekin með
fullri vitund og samþykki verðlags-
stjóra og formanns Verðlagsráðs,“
sagði Guðjón Oddsson, formaður
Kaupmannasamtaka íslands, um þá
ákvörðun Verðlagsráðs í gær að
óheimilt sé aö taka gjald fyrir burð-
arpoka úr plasti.
„Við munum ekki brjóta lög,“ sagði
Guðjón, „og hefðum við vitað þetta
hefðum við einfaldlega beðið til 1.
mars. En viðbrögð okkar nú verða
þau aö við munum leita álits lög-
manns Kaupmannasamtakanna og
síðan verður tekin ákvörðun um
hvort þesu verður haldið til streitu:
Samvinnan milli Verðlagsstofnun-
ar og Kaupmannasamtakanna hefur
verið mjög góð og mér þykir slæmt
ef verðlagsstjóri ætlar að stefna
henni í voða með einhverri úlfúð af
þessutagi.“ -JSS
Hagkaup:
Hljótum að Mtta lögum
„Þessi ákvörðun kemur mér mjög
á óvart. Og það kemur á óvart að
heyra fyrst af henni frá blaðamanni
DV. En ef þetta eru lög hljótum við
að hlíta þeim,“ sagði Jón Ásbjörns-
son, verslunarstjóri í Hagkaupi, er
DV spurði hann hvort plastpokarnir
yrðu seldir í verslunum Hagkaups í
dag eða hvort, þeir væru ókeypis.
„Verðlagsstjóri var löngu búinn að
fá þetta mál til meðferðar og hann
hefði getað tilkynnt okkur þetta
strax. Kaupmannasamtökin töldu
málið ekki heyra undir verslunarlög
um verðstöðvun og það var aldrei
ætlunin að brjóta landslög,“ sagði
Jón. -JSS
Mikligarður:
Pokarnir gefins í dag
„Pokarnir fást nú gefins eins og
áður var þar til annað hefur verið
ákveðið," sagði Þórður Sigurðsson,
sölustjóri í Miklagarði, er DV ræddi
við hann.
Þóröur kvaðst hafa kosið að þessi
breyting, að selja pokana, hefði nú
komist á, fyrst hún á annað borð
hefði verið komin af stað. „Þetta er
réttlætismál þar sem hluta af and-
virði pokanna er varið til að styðja
gott málefni. Að auki er kostnaður
verslana af þessum umbúðum gífur-
legur en hann er alls ekki reiknaður
inn í vöruverð eins og margir halda.
Hjá okkur er hann til dæmis skráður
sem auglýsingakostnaður.
Þetta hefur verið hitamál hjá Kaup-
mannasamtökunum í gegnum árin
en aldrei náðst samstaða um þetta
fyrr en nú. En það er greinilegt að
það er ekki sama hvor hækkar, Jón
eða séra Jón.“
-JSS
Breytingar á Stöö 2:
Valgerður án Helga
í helgarþættinum
- ég sagði nei takk, segir Helgi Pétursson
Ekkert verður úr sameiginlegum
þætti Valgerðar Matthíasdóttur og
Helga Péturssonar á Stöð 2. Þáttur-
inn átti að heita Gott kvöld og vera
á dagskrá föstudaga, laugardaga og
sunnudaga. Ætlunin var að hleypa
þættinum af stokkunum um helgina
og búið að setja hann á dagskrá strax
á eftir fréttum.
„Valgerður vildi heldur vera með
sjálfstæðan þátt en að starfa með
öðrum,“ sagði Jón Óttar Ragnarsson,
sjónvarpsstjóri Stöðvar 2.
„Við ræddum um þetta yfir jólin
og niðurstaðan varð sú að Valgerður
verður meö vikulegan þátt á laugar-
dögum en Helgi fer í sjálfstæða þátta-
gerð,“ bætti Jón Óttar við.
Hann sagði Valgerði byrja með
sinn þátt í kvöld en ekki væri afráðið
hvert yrði fyrsta verkefni Helga Pét-
urssonar.
„Ég sagöi nei takk þegar mér.
bauðst að vinna með Valgerði að
nýjum þætti,“ sagði Helgi Pétursson
er ummæli Jóns Óttars voru borin
undir hann. Þá sagði Helgi að ekkert
samráð hefði verið haft við hann er
þátturinn Gott kvöld var ákveðinn.
„Við Valgerður hættum samstarfl
í 19:19 fyrir nokkrum mánuðum þeg-
ar ákveðið var að gera 19:19 frétta-
tengdari. Ég held að þaö hafi verið
rétt ákvörðun og finnst hugmyndin
um þáttinn Gott kvöld vera afturför
frá fyrri stefnu,“ sagði Helgi.
9
ATH.
Skírteinaafhending
í dagsemhér segir
Videodagur
í Bolholti
Hittumst niðri i skóla.
Jólasýning nemenda, frumsýning
íslenska jazzballettflokksins o. <1.
Hraunbergi kl. 2-4
Suðurveri kl. 2-4
Bolholti kl. 4-6
Suðurver Hraunberg
• 83730 • 79988
Bolholt
• 36645
Gróörarstööin
GARÐSHORN &
við Fossvogskirkjugarð sími 40500
-pv