Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1989, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1989, Qupperneq 24
24 IÁL'(SArDAGUIí 1. JANtlAR I98ii: Sérstæð sakamál______________pv „Ég kem aftur á morgun' Marion, Denise og Artúr. Þrá getur orðiö sterki reyndar svo sterk að hún getur breytt líkams- starfseminni. En þá er stundum komið á slæmt andlegt ójafnvægi eins og greinilega kom fram er at- burðurinn, sem hér greinir frá. átti sér stað í Vestur-Þýskalandi. Atburðarásin hófst á fimmtudegi. Þá gekk ung. lag- leg og dökkhærð kona inn á ung- barnadeildina í einu stærsta sjúkra- húsinuí Augsburg í Vestur-Þýska- landi. Kvaðst konan vera móðir eins barnanna þar. lítillar stúlku að nafni Denise. Denise litla hafði verið lögð inn á sjúkrahús nokkrum mánuðum eftir fæðinguna vegna rangra efnaskipta sem höfðu valdiö því að barnið þreifst ekki sem skyldi. Hafði hún verið á sjúkrahúsinu í þrjár vikur er hér var komið. í þrjá tíma sat konan hjá Denise litlu og lék við hana. Fór vel á með þeim og var greinilegt að unga, dökkhærða kon- an var mjög hrifin af stúlkubarninu. Er hjúkrunarkonunum þótti vera móðurinnar orðin nógu löng höfðu þær orð á því við hana. Tók konan ábendingu þeirra vel, stóð á fætur, brosti og sagði: „Ég kem aftur á morgun.“ Svo þagnaði hún en bætti svo við. ,,Ég vona að þið hafið þá ekkert á móti því að ég fari með hana í stutta gönguferð." Ekki sagðist sú hjúkrunarkvenn- anna sem fyrir svörum varð hafa neitt að athuga við það ef veðrið yrði gott. Daginn eftir kom unga, dökkhæröa konan aftur. Þá hafði hún með sér síðbuxur handa Denise litlu og skó. Konan ræddi við hjúkrunarkonu og hafði orð á því við hana að hún hefði tekið fatnaðinn með sér til þess að vera viss um að litlu stúlkunni yrði ekki kalt á meðan þær væru úti. Hjúkrunarkonan beið á meðan konan klæddi barnið en gekk síðan með henni út í garðinn. Þar beiö þá eldri kona með bamavagn og sagðist hún vera amma Denise litlu. „Barnið er horfið!" Hálftíma eftir aö þetta gerðist kom ung kona, Marion Leibeling, á ung- barnadeildina til þess að heimsækja dóttur sína. Eftir nokkra stund kom hún fram á gang til hjúkrunarkvenn- anna og spurði hvar dóttir sín, Den- ise, væri. „Barnið er horfið,“ sagði hún og bætti við að í rúminu væri ekki annað en plasthéri og lítil hringla. „Já, móðir hennar kom hingað áð- an og fór með hana út að ganga.“ „Enég ermóðirin," sagði Marion Leibeling þá. Hjúkrun- arkonurnar störðu fyrst undrandi á hana en svo varð þeim ljóst að ekki væri allt með felldu. Er Marion Leibeling hafði sýnt fram á að hún væri móðir Densie var þegar í stað haft samband við lögregl- una. Hún gat hins vegar enga vís- bendingu um það fundið hvar litla stúlkan væri og svo leið fram í næstu viku. Lögreglan færheimsókn Er þriðjudagurinn í næstu viku rann upp kom ung kona á fund lögregl- unnar í Augsburg og sagðist vita hver það væri sem rænt hefði Denise litlu Leibeling af sjúkrahúsinu. Er konan hafði sagt sögu sína fór lögreglan að húsi því sem hún vísaði á. Þar bjó þá ung kona að nafni Ros- witha Mayer og sambýlismaður hennar. Roswitha varð náföl og skelfd að sjá er hún sá hverjir komn- ir voru. í fanginu var hún með litla stúlku. Denise. Roswitha geröi sér þegar í stað ljóst að komist hafði upp um hana og lagði þegar öll spilin á borðið. „Egyildi bara vera mamma í nokkra daga," sagði hún er lögreglan gekk á hana og kraföi hana skýringa á barnsrán- inu. Þótti þá lögregluþjónunum sem eitthvað annaö byggi að baki verkn- aöinum en glæpahneigö. Og þeir reyndust hafa rétt fyrir sér. I ljós kom svo aö um var aö ræöa sorgarleik sem verður að teljast óvenjulegur en á sér þó hliðstæður. Hélt sig ólétta Stærsta ósk Roswithu Mayer í lífmu var að verða móðir. Það hafði hana lengi dreymt um en þó var hún enn barnlaus. Árið áður, í ágúst, hafði hún þó haldið að hún væri loks með barni og hélt til læknis til þess að láta prófa hvort svo væri ekki. Niðurstaðan af prófinu reyndist jákvæð og varð Roswitha þá afar glöð. En gleði hennar stóð ekki lengi. Tveimur mánuðum síðar fór hún aftur til læknis og þá fékk hún að vita aö hún hefði aldrei ólétt verið. ímynduð þungun Roswitha ætlaði í fyrstu ekki að trúa því sem læknirinn sagði henni en skýring hans var á þá leið að hún hefði ímyndaö sér að hún væri þung- uð. Slíkt væri sjaldgæft en ekki óþekkt. Er unga konan hafði gert sér ljóst að læknirinn hafði rétt fyrir sér fannst henni sem heimur hennar væri að hrynja til grunna. Hún hélt heim en gætti þess aö segja sambýlis- manni sínum ekki frá sannleikanum um „þungunina“. Lék hlutverk óléttu konunnar Reyndar var andlegt ástand Ros- withu nú orðið slíkt, í framhaldi af ósk hennar og von langtímum saman um að verða ólétt, tíðindunum um að hún væri það og loks úrskurðin- um um að hún væri það ekki og hefði ímyndað sér þungunina, að hún sá sér enga leið færa aðra en þá að lát- ast ólétt. Tók hún nú að borða mikið af súkkulaði og á nokkrum tíma þyngdist hún um tíu kílógrömm og leit því út fyrir að hún væri tekin að þykkna talsvert undir belti. í apríl átti Roswitha að ala barnið. Þá lét hún niður í ferðatösku, sagði sam- býlismanni sínum að hún væri að því komin að ala barnið og héldi nú á fæðingardeildina sem hún hefði valið sér. Nokkru siðar kom Roswitha heim aftur og skýrði þá brosandi frá því að hún hefði eignast litla dóttur. Hún hefði hins vegar verið svo lítil að hún þyrfti að vera á fæðingardeildinni um nokkurra vikna skeið. Þetta var aðdragandinn að ráninu á Denise litlu Leibeling. Taugaveiklun og andlegt ójafnvægi veldur því að konur láta óskina um að verða móð- ir ná svo sterkum tökum á sér að þær segja að hluta til skilið við raun- veruleikann og gefa sig á vald ósk- hyggju og ósannsögli. En á vissu tímabili getur þetta ástand orðið svo alvarlegt að konan tekur að sýna þess ýmis líkamleg einkenni að hún sé ólétt. Þannig var það um Roswithu May- er. Er hún hélt fyrst til læknis til þess að fá úr því skorið hvort hún væri ólétt bar hún þess ýmis líkam- leg einkenni að hún væri það og því fékk hún þann úrskurð sem áður greinir frá. „Einkennin sem Roswitha sýndi voru meðal ann- ars þau að hún hætti að hafa á klæð- um,“ segir sálfræðingurinn Reinhart Stalman sem kannaði ástand Ros- withu Mayer. „Og ástæðan var sú,“ Roswitha Mayer. sagði hann, „að hún óskaði þess lengi og heitt að eignast bam.“ Skýringar Stalmans og lækna voru að öðru leyti á þann veg að þegar kona hefði lifað of lengi í slíkum hugarheimi yrði svipuð breyting á hormónastarfsemi líkamans og þeg- ar kona yrði ólétt. Konan hætti að hafa á klæðum, eins og fyrr segir, móðurlífið þrútnaði en að auki stækkuðu brjóstin og hörðnuðu. Konan hefði því öll ytri einkenni þungaðrar konu þótt hún væri það alls ekki. Roswitha Mayer varð fyrir miklu andlegu áfalli er hún fór í síðara sinnið til læknis og / komst að því að hún var ekki með barni en hafði þess í stað aðeins ímyndaö sér að hún væri þunguð. Hún vildi þá ekki segja sambýlis- manni sínum frá því, meöal annars af ótta við viðbrögð hans, og því ákvað hún að látast ólétt. Sú ákvörð- un leiddi til versnandi andlegs ástands sem leiddi svo loks til þess að hún gekk í berhögg við lögin. Marion Leibeling og maður hennar, Artúr, lifðu í ang- ist þá fimm daga sem leitin að dóttur þeirra stóð yfir. Myndin af foreldrunum með Den- ise litlu var tekin rétt eftir að þau fengu hana aftur i hendur. Hún var með öllu ómeidd og vel á sig komin þótt hún hefði verið tekið af sjúkra- húsinu þar sem hún átti að vera. Denise litla, Roswitha Mayer, Marion Leibeling og maður hennar, Artúr, urðu víða fréttaefni eftir át- burð þennan og ein af spumingun- um, sem fyrir foreldrana voru lagð- ar, var sú hvort þau myndu síðar segja Denise litlu frá því hvað drifið heföi á daga hennar þegar hún var aðeins fimm mánaða. „Já, ég ætla að segja henni það þegar hún hefur náð þeim aldri að slíkt sé óhætt," svaraði Marion þá. Sálfræðingurinn Reinhart Stalman telur að Roswitha Mayer hafi með andlegu ástandi sínu þegar tekið út þá refsingu sem rétt sé að láta hana taka á sig en að sjálfsögðu er það dómstólanna aö skera úr um það hvort sú skoðun Stalmans er rétt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.