Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1989, Page 25
LAUGARDAGUR 7. JANIJAR 1989.
Hinhlidin
Jóhannes Kristjánsson
Steingrímur og Ólafur
hafa báðir skemmti-
legt göngulag
Jóhannes Kristjánsson eftir-
herma sló í gegn í áramótaskaupi
Sjónvarpsins þar sem hann brá sér
í margvísleg gervi. Má þar nefna
Steingrím Hermannsson, Ólaf
Ragnar Grímsson, Aöalheiöi
Bjarnfreðsdóttur og Hall Hallsson
fréttamann, svo að einhverjir séu
nefndir. Jóhannes er í stjórnmála-
fræði í Háskóla íslands þar sem
Ólafur Ragnar kenndi honum tvo
vetur. Jóhannes hafði því nægan
tíma til að ná kennara sínum enda
er það samdóma álit flestra að Jó-
hannes sé nærri orðinn betri en
Ólafur Ragnar sjálfur. Eftirherman
sýnir á sér hina hliðina að þessu
sinni.
Fullt nafn: Jóhannes Kristjánsson.
Fæðingardagur og ár: 18.júlí 1955.
Sambýliskona: Halldóra Sigurðar-
dóttir, Hornflrðingur.
Börn: Engin svo ég viti.
Bifreið: Lancer 1989.
Starf: Stjórnmálafræðinemi og
skemmtikraftur.
Laun: Misjöfn.
Áhugamál: Þjóðmálin og fólkið.
Hvað hefur þú fengið margar tölur
réttar í lottóinu? Þrjár tölur og fékk
einhverjar krónur fyrir.
Hvað fmnst þér skemmtilegast að
gera? Flakka, skemmta og fylgjast
með mannlífinu.
Hvað flnnst þér leiðinlegast að
gera? Það er að borða á veitingastað
sem er með slaka þjónustu og af
þeim er töluvert til. Einnig að bíða
eftir óstundvísu fólki og flugvélum.
Uppáhaldsmatur: Vestflrskt jurta-
kryddað lambalæri með hvítlauk,
steikt við lágan hita í þrjá tíma,
nákvæmlega.
Uppáhaldsdrykkur: Kalt vatn
heima á Brekku.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag? Eru þeir ekki allir
við línuna.
Uppáhaldstímarit: Ekkert.
Fallegasta kona sem þú hefur séð
(fyrir utan eiginkonuna)? Það er
eitthvað fallegt í hverri konu.
Hlynntur eða andvígur ríkisstjórn-
inni: Ég styð alltaf ríkisstjórnir,
sama hver er, annað er ábyrgðar-
leysi.
Hvaða persónu langar þig mest til
að hitta? Gaddafi og tala yfir hausa-
mótunum á helv...
Uppáhaldsleikari: Get ekki gert
upp á milli þeirra.
Uppáhaldsleikona: Sama.
Uppáhaldssöngvari: Veljum ís-
lenskt ef það er betra, Kristján Jó-
hannsson.
Hlynntur eða andvígur bjórnum?
Ég er ákveðið andvígur bjórnum.
Uppáhaldsstjórnmálamaður:
Þaiftu að spyrja?
Hvor er skemmtilegri, Ólafur
Ragnar eða Steingrímur Herm.?
Þeir eru báðir með skemmtilegt
göngulag en að öðru leyti slá þeir
ekki Halh Halls við.
Hlynntur eða andvígur veru varn-
arliðisins hér á landi: Það er ekki
hægt að svara svo víðfeðmri spurn-
ingu í tveimur orðum en ætíð leið-
ist mér er fólk fær olíu í vatnsból
sín.
Hver útvarpsrásanna flnnst þér
best? Útvarp íslenska lýðveldisins.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Jón
Múli.
Hvort horfir þú meira á Stöð 2 eða
Sjónvarpið? Ég horfi á fréttirnar á
báðum og fréttatengda þætti en
annað ekki nema kannski ára-
mótaskaup.
Uppáhaidssjónvarpsmaður: Hver
hefur til síns ágætis nokkuö en mér
leiðist lítt þegar Helga Guðrún og
Ólína Þorvarðardóttir sjást á
skjánum, Þá er Bjarni Westmann
frábær lesari.
Uppáhaldsskemmtistaður: Það er
sá staður þar sem ég hitti skemmti-
legt fólk hverju sinni.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: Ekkert,
ekkert.
Stefnir þú að einhverju sérstöku í
framtíðinni? Ég stefni að því að
gera betur í lífinu og vera góður
strákur.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Ég
fór til Frakklands, Þýskalands,
Sviss, Lúxemborgar og Brekku á
Ingjaldssandi í heyskap. Og eitt og
annað.
-ELA
RAUMURINN
HVERFISGÖTU 46 - SÍMI 22873
Utsalm
hefst á mánudag
Símahappdrætti 1988
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
Vinningsnúmer:
1. Nissan Pathfinder
91-53520
2.-4. Nissan Sunny Coupé
91-12338 91-621445 94-80108
5.-9. Nissan Sunny Sedan
91- 38200 91-651153 91-687409
92- 15857 98-21244
10.-29. vöruúttektir
91-19725
91-22367
91-26676
91-38382
91-72017
91-74509
91-51045
91-52273
91-52837
91-671848
91-673373
91-674100
93-13099
93-41226
96-22079
96-22320
96- 71700
97- 11094
98- 11533
98-22560
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
HEILSU
SPORT
Furugrund 3
Simi 46055
Kópavogi
VIÐ ERUM AÐ BYRJA Á FULLU
Á NÝJU ÁRI í
EROBIKK OG JASS
MÁNUDAGINN 5. JANÚAR.
Allir velkomnir i gamanið hjá okkur
meðan húsrúm leyfir.