Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1989, Side 45

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1989, Side 45
LAUGARDAGUR 7, JA^p'j)R,1989.. 57 AEmæli Margrét Þorsteinsdóttir 100 ára Margrét Þorsteinsdóttir, fyrrv. hús- freyja aö Stokkhólma og Hjaltastöö- um í Akrahreppi, en sem dvelur nú á Sjúkrahúsinu á Sauöárkróki, verður hundrað ára á morgim. Margrét fæddist í Hofdölum í Viö- víkurhreppi og ólst upp í foreldra- húsúm í Hofdölum og á Hjaltastöð- um. Hún vann öll almenn sveita- störf sem unglingur og stundaði nám við Kvennaskólann á Blöndu- ósi. Margrét giftist Sigurði Einarssyni úr Lýtingsstaöahreppi og hófu þau búskap að Hjaltastöðum en bjuggu lengst af í Stokkhólma. Margrét og Sigurður eignuðust fimm syni og eina dóttur sem öli eru á lífi. Börn Margrétar og Sigurðar eru: Þorsteinn, b. í Hjaltastaða- hvammi, kvæntur Sigríði Márus- dóttur; Pétur, b. að Hjaltastöðum, kvæntur Ragnheiði Þórarinsdóttur frá Ríp, en þau eiga tvö böm; Hjalti, lengst af b. á Hjalla, sem er nýbýli við Hjaltastaði, kvæntur Ingibjörgu Kristjánsdóttur frá Einholti í Bisk- upstungum, en þau eiga tiu börn, þrjá syni og sjö dætur; Leifur, renni- smiður í Reykjavík, kvæntur Frið- riku Elíasdóttur, en þau eiga þrjá syni; Halldór, gullsmiður í Reykja- vík, en hann á tvö börn, og Jórunn, húsfreyja á Frostastöðum, gift Frosta Gíslasyni, b. þar, en þau eiga fjóra syni. Systkini Margrétar eru öll látin en þau voru: Halldór, f. 23.9.1887, d. 22.1.1924, en hann stundaði bú- skap með móður sinni og síðar í Hjaltastaðakoti; Andrés, f. 17.4.1890, b. á Hjaltastöðum og síðar vélsmið- ur á Siglufiröi, átti Halldóru Jóns- dóttur; Herdís, f. 22.6.1891, bjó lengi á Frostastöðum; Jóhannes, f. 2.11. 1892, fór til Vesturheims; Pétur, f. 1.2.1894, guðfræðingur og starfs- maður við borgarfógetaembættið í Reykjavík, kvæntur Kristínu Svein- bjarnardóttur, ogPálmi, f. 1.6.1895, stofnaði nýbýlið Varmahlíð og var síðar starfsmaður hjá Löggildingar- skrifstofunni í Reykjavík, kvæntur Sigrúnu Guðmundsdóttur. Foreldrar Margrétar voru Jórunn Andrésdóttir frá Stokkhólma, f. 3.7. 1853, d. 21.6.1933, og Þorsteinn Hannesson, b. á Hjaltastöðum, f. 29.8.1852, d. 4.5.1910. Foreldrar Þorsteins voru Hannes Halldórsson, b. á Bjarnastöðum og Sigurlaug Þorsteinsdóttir frá Ytri- Másstöðum í Skíðadal. Sigurlaug var alsystir Þorsteins, smiðs og fræðimanns á Upsum, föður Þor- steins rithöfundar. Halldór var íjórði maður frá Halldóri Þorbergs- syni lrm. og annálaritara á Seylu, Þorbergssonar, sýslumanns, Hrólfs- sonar sterka. Margrét er em. Hún sér og heyrir þokkalega og hefur fótavist daglega. Hl hamingju með daginn 80 ára 50 ára Auður Þorsteinsdóttir, Sólvöllum 6, Akureyri. Jóhanna Eggertsdóttir, Þorkelshóli II, Rípurhreppi. Þórunn Lýðsdóttir, Markarvegi 13, Reykjavik. 75 ára 40 ára Kristín E. Jóhannesdóttir, Aðalstræti 32, ísafirði. Ásbjörn Pálsson, Kambsvegi 24, Reykjavik. Gunnþórunn Sigurbjamadóttir, Laugarbrekku 15, Húsavik. Marinó Sólbergsson, Lindargötu UA, Reykjavík. Bergur Höskuldsson, Karlsrauðatorgi 20, Dalvík. Guðmundur Óli Seheving, Tunguseli 5, Reykjavík. Hildur Sveinsdótdr, Daltúni 31, Kópavogi. Páll G. Loftsson, Aðalstræti 22, ísafiröi. Valgerður Guðmundsdóttir, Hlíöarbraut 15, Blönduósi. Inga Jóna Andrésdóttir, 70 ára Stanislawa, Bogatynska, Grettisgötu 98, Reykjavík. Sigurbjörn Haraldsson, Garðabraut 24, Akranesi. Ágústa Jónsdóttir, Sæborg, Árskógshreppi. KambaseU 19, Reykjavik. Knútur Eyjólfsson, Hraunbæ 54, Reykjavík. Bjarni Reykjalín, Akurgerði 7F, Akureyri. Þorstcinn G. Benjamínsson, Þórðargötu 24, Borgarnesi. María N. Guðmundsdóttir, Hörgslandi 1, Hörgslandshreppi. Til hamingju með morgundaginn 95 ára 60 ára Valfríður Guðmundsdóttir, Furugerði 1, Reykjavík. Gréta Jóhannesdóttir, Grundarbraut 5, Ólafsvík. Jón Sigurður Eiríksson, Fagranesi, Skarðshreppi. 85 ára Kristjana Magnúsdóttir, Mávabraut 9C, Kefiavík. Óli Hjartarson, Ytri-Jaðri, Staðarhreppi. 40 ára Magnús Gislason, Skúlaskeiði 6, Hafnarfirði. Anna M. Jónsdóttir, Laxeldisstöö, Nauteyrarhreppi. Magnús Sigurðsson, 75 ára Þórdis Gunnlaugsdóttir, Æsufelli 6, 5 hæð C, Reykjavík. Hún tekur á móti gestum á heimili sínu á afmælisdaginn frá klukkan 15.00. Jóna Jónsdóttir, Blikahólum 4, Reykjavík. Aðalheiður Karlsdóttir, Ólafsvegi 20, Ólafsfirði. Guðrún Ólafsdóttir, Kirkjubæjarklaustri I, Kirkjubæj- arhreppi. Sigrún Ólafsdóttir, Álftagerði, Seyluhreppi. Aragerði 13, Vatnsleysustrandar- hreppi. Eyþóra V. Kristjánsdóttir, Vesturbergi 25, Reykjavík. Benedikt Skarphéðinsson, FrostaskjóU 87, Reykjavík. Peter Radovan Jan Vosicky, Vífilsgötu 5, Reykjavik. Marin Pétursdóttir, Kaplaskjólsvegi 50, ReykSavík. Kristín Jónsdóttir, Háteigi 6, Akranesi. Anita L. Þórarinsdóttir, HUðarenda, Bárðdælahreppi. Indriði Kristinsson, 70 ára Kambahrauni 35, Hveragerði. Ester Steindórsdóttir, Finncy Árnadóttir, Eyrargötu 4, Suöureyri. Signður Einarsdóttir, Austurvegi 53, Selfossi. Steinunn Danielsdóttir, Smáravegi 10, Dalvík. Lerkilundi 36, Akureyri. Sigurður Styrmisson, Reynilundi 4, Akureyri. André Bachmann Sigurðsson, Hábergi 20, Reykjavik. Hann tekur á móti gestum á heimfii sínu á af- mæUsdaginn eftir klukkan 20.00. Guðrún Einarsdóttir Guðrún Einarsdóttir, fyrrv. hús- móðir í Reykjavík, er níræð í dag. Guðrún fæddist á Hróðnýjarstöð- um í Laxárdal í Dölum þar sem bjuggu foreldrar hennar, Einar Þor- kelsson og Ingiríður Hansdóttir. Einar var fæddur 20. apríl 1858, d. 7. febrúar 1958, og vantaði því aðeins rúma tvo mánuöi í aö ná hundraö ára aldri. Hefur langlífi Einars fylgt börnum hans mörgum. Foreldrar Einars voru Þorkell Einarsson á Dunk í Hörðudal og síð- ar á Hróðnýjarstöðum og fyrri kona hans, Sigríður Jónsdóttir. Ingiríður lést 18. desember 1938, sjötíu og þriggja ára að aldri. Hún var dóttir Hans Ólafssonar á Gauta- stöðum í Hörðudal og fyrri konu hans, Salome Sigurðardóttur Jóns- sonar sem lengst af hefur verið kenndur viö Tjaldbrekku. Margir afkomendur Sigurðar fluttust vest- ur um haf og eru af þeim stórir ætt- bálkar í Kanada. Guðrún var í fóðurgarði heima á Hróðnýjarstöðum fram til ársins 1928 en flutti þá til Reykjavíkur. Þann 20. október 1928 gekk hún að eiga Árna J. Árnason húsgagna- smíðameistara. Heimili Guðrúnar og Áma stóð lengst afað Mánagötu 24 í Reykja- vík þar sem þau reistu sér hús í byrjun seinna stríðs. Ámi féll frá í blóma lífsins, 24. apríl 1949, en hann var fæddur 9. maí 1896. Foreldrar hans voru Jón Óli Árnason, b. í Köldukinn í Haukadal í Dölum, og kona hans, Lilja Þorvarðardóttir, af Leikskálaætt. Að manni sínum látn- um hélt Guðrún heimili á Mánagö- tunni í nær fjóra tugi ára. Síðustu þrjú árin hefur Guðrún verið vist- maður á Elli- og hjúkrunarheimil- inu Grund. Þeim Guðrúnu og Árna varð fimm barna auðið. Þau eru: Steinunn, f. 15. maí 1929, gift Gunnari A. Aðal- steinssyni, deildarstjóra hjá Kaup- félgi Borgflrðinga, en þau eiga sex börn og þrettán barnabörn; Inga, f. 5. mars 1932, gift Sigurði Markús- syni, framkvæmdastjóra hjá Sam- bandi íslenskra samvinnufélaga, en þau eiga fjögur börn og flmm barna- börn; Guðrún Lilja, f. 6.8.1934, gift Guðmundi Benediktssyni, starfs- manni hjá Múlalundi, en þau eiga eina dóttur, átti Guðrún Lilja spn áður, en barnabörnin eru tvö; Árni Jón húsgagnasmíðameistari, f. 18.3. 1939, starfsmaður hjá Flugleiðum í Reykjavík, en kona hans er Edda Þorsteinsdóttir og eiga þau þrjú börn; Brynhildur Erna, f. 7.7.1943, starfsmaður hjá Samvinnutrygg- ingum í Reykjavík. Einari og Ingiríði á Hróðnýjar- stööum varð níu barna auðið. Þau eru: Salóme, kona Kristmundar Eggertssonar í Rauðbarðaholti; Þor- kell, b. á Hróðnýjarstöðum, en hann átti fyrst Guðrúnu Valgerði Tómas- dóttur frá Kollsá (d. 1930) en seinni kona hans var Hrefna Jóhannes- Guðrún Einarsdóttir dóttir frá Hrafnadal; Sigríður, kona Guðmundar Guðbrandssonar á Leiðólfsstöðum; Sigurhans Vignir, ljósmyndari í Reykjavík, en kona hans var Anna Elísabet Bárdal, ætt- uð úr Stykkishólmi; Herdís, kona Daníels Tómassonar, smiðs á Kollsá og síðar í Reykjavík; Guðrún, af- mæhsbarnið; Kristján organleikari, til heimilis að Hróðnýjarstöðum og síðar í Reykjavik, ókvæntur; Helgi, húsgagnasmíðameistari í Reykjavík en kona hans var Aðalbjörg Hall- dórsdóttir, og Hróðný, ekkja Jó- hannesar skálds úr Kötlum. Af þess- um hópi eru nú þrjú á lífi: Guðrún, Helgi og Hróðný. Guðrún eyðir afmælisdeginum með börnum sínum, tengdabörnum og systkinum. Ásta Ólafsdóttir Ásta Ólafsdóttir, til heimilis að Skúfslæk í Vilhngaholtshreppi í Árnessýslu, verður flmmtug á morgun. Ásta fæddist á Syðstu-Mörk í Vest- ur-Eyjafjallahreppi og ólst þar upp. Hún fór eftir fermingu í Skógaskóla og síðan í Húsmæðraskólann á Stað- arfelli í Dölum. Ásta vann ýmis störf á yngri árum, stundaði landbúnað- arstörf og fiskvinnslu og var ráðs- kona hjá Rafmagnsveitum ríkisins í þrjá vetur og ráöskona við útgerð í Þorlákshöfn. Hún giftist 1963 Eiríki Magnússyni frá Skúfslæk, syni Magnúsar Ei- ríkssonar og Ingibjargar Gísladótt- ur. Ásta og Eiríkur tóku við búinu á Skúfslæk er foreldrar Eiríks hættu búskap. Börn Ástu og Eiríks eru Magnús, f. 3.9.1964, vélvirki og starfsmaður hjá B.M. Vallá; Árni, f. 8.9.1968, búfræðingur og staifsmaður hjá SS á Selfossi; Ólafur, f. 8.9.1968, iðn- skólanemi í Reykjavík, og HaUa, f. 10.8.1977, í barnaskóla. Systkinin eru öll til heimilis á Skúfslæk. Eiríkur lést 1982. Seinni maður Ástu er Sigurður Einarsson frá Austurkoti en þau Ásta og Sigurður búa blönduðu búi á Skúfslæk. For- eldrar Sigurðar eru Einar Sigurðs- son og Anna Ólafsdóttir. Ásta hefur unnið að félagsmálum en hún er m.a. meöUmur í hesta- mannafélaginu Sleipni og er mikill áhugamaður um hestamennsku. Systkini Ástu: Sigriður, f. 26.9. 1921, gift Bjarna Ársælssyni og búa þau í Bakkakoti í Rangárvallasýslu og eiga eina dóttur; Guðjón, f. 23.9. 1922, kvæntur Helgu Dagbjartsdótt- ur, og búa þau að Syðstu-Mörk og eiga einn son; Ólafur, f. 5.5.1925, kaupfélagsstjóri Kaupfélags Rangæ: inga á HvolsvelU, kvæntur Rann- veigu Baldvinsdóttur og eiga þau fjögur börn; Sigurveig, f. 14.6.1925, gift Hjalta Jóhannssyni og búa þau í Reykjavík og eiga þrjá syni; Sigur- jón, f. 3.7.1927, kvæntur Svanlaugu Auðunsdóttur frá Stóru-Borg og eignuðust þau tíu börn; Jóhanna, f. 2.8.1928, gift Sigurði Sigurðssyni á Akranesi, og eiga þau fimm börn, og Árni, f. 12.7.1931, tæknifræðing- ur, kvæntur Sonju Ólafsdóttur, þau eru búsett í Sviss og eiga þrjú börn. Foreldrar Ástu voru Ólafur Ólafs- Asta Olafsdóttir. son, f. 24.5.1891, d. 1973, b. að Syöstu-Mörk, og Halla Guðjónsdótt- ir, f. 7.8.1891, d. 1971.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.