Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1989, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1989, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 1989. Útlönd Hrist upp í járntjaldinu Tveggja ára erfiðar samningavið- ræður um hernaðarlega slökun, mannréttindi og efnahagslega sam- vinnu í Evrópu hafa nú leitt til sam- komulags sem Eduard Sévardnadse, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, segir að hafi hrist upp í járntjaldinu. Hann tilkynnti einnig fækkun skammdrægra eldflauga Sovétríkj- anna í Austur-Evrópu. Samningurinn, sem þrjátíu og flmm Evrópu- og Norður-Ameríku- ríki skrifuðu undir í lok ráðstefn- unnar um öryggi og samvinnu í Evr- ópu, setur nýja staðla varðandi skyldur í mannréttindamálum og hrindir af stað nýjum viðræðum um fækkun hermanna í Evrópu. í ávarpi við lok ráðstefnunnar í Vínarborg í gær sagði Sévardnadse: „Vínarfundurinn hefur hrist upp í járntjaldinu, veikt ryögaðar stoðir pess, sett sprungur í það og flýtt fyr- ir eyðingu þess.“ Með þessum orðum sínum var hann að skírskota til orða Winstons Churchills er hann notaði orðið járn- tjald til að lýsa þeim hugmynda- fræðilega þröskuldi sem lá gegnum álfuna eftir að Austur-Evrópuríkin voru keyrð undir stjórn kommún- ismans eftir seinna stríð. Flestir utanríkisráðherrarnir, sem töluðú í lok ráðstefnunnar, voru sammála George Shultz, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, um að ráð- stefnan í Vín niarkaði upphaf nýrrar slökunar í Evrópu. Ýmsir urðu þó til að gagnrýna stjórnir Tékkóslóvakíu og Austur- Þýskalands fyrir að senda vopnaða lögreglumenn gegn borgurunum á meðan blekið á Vínarsamningnum væri vart þornað. Þetta töldu utanríkisráðherrar þessara tveggja landa gróf afskipti af innanríkismálum. Rúmenar lýstu því hreinlega yfir að þeir ætluðu sér að virða að vettugi þau ákvæði samn- ingsins sem þeim líkaði ekki. Sévardnadse lýsti þvi yfir í gær að Sovétríkin myndu fjarlægja nokkurt magn af skammdrægum eldflaugum frá Austur-Evrópu á næstu tveimur árum. Hann sagði að eldflaugarnar yrðu fjarlægðar um leið og fimmtíu þús- und hermenn og fimm þúsund skrið- drekar verða fjarlægðir. Bandaríkjastjórn fagnaði þessari ákvörðun Sovétmanna í gær og sagði að þetta benti til þess að Sovétmönn- um væri alvara með að draga úr víg- búnaði. Reuter Eduard Sévardnadse, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, brosir hér til (rétta- manna á fundi i Vín í gær. Símamynd Reuter Beint flug í svissnesku skíðalöndin Vissir þú aö lestar ganga frá flugstöðinni í Zurich til allra helstu skíðastaöa í Sviss. Þú getur jafnvel innritaö töskurnar beint áfram með lest, í Keflavík. Skíöastaöir Sviss eru rómaöir um víða veröld. Þar má nefna: St. Moritz, Andermatt, Braunwald, Davos og Klos- ters. Hafðu samband viö næstu ferðaskrifstofu eða söluskrifstofur Arnarflugs. Skelltu þér á skíöi með Arnarflugi. Söluskrifstofa Amarflugs og KLM Austurstræti 22, sími 623060. Söluskrifstofa Amarflugs Lágmúla 7, sími 84477. Samstaða samþykkt Svo virðist sem leiðtogar pólska kommúnistaflokksins hafi rutt brautina fyrir viðurkenningu Sam- stöðu, hinna bönnuðu verkalýðs- samtaka. Miðnefnd pólska komm- únistaflokksins gerði í gær opinbert skjal þar sem mælt er með því aö banninu frá 1982 við stofnun nýrra verkalýðsfélaga verði aflétt og að komið verði á frelsi verkalýðsfélaga í Póllandi. Skjalið, sem var birt í gær, hafði verið rætt á löngum fundi í miðnefnd flokksins og þar höföu orðiö á því breytingar. í því eru sett skilyrði fyrir stofnun nýrra verkaiýðsfélaga. Þau verða að virða stjórnarskrána, haga sér þann- ig að hagvöxtur aukist, reiða sig ein- ungis á innlent fiármagn til starfsem- innar og standa vörð um öryggi ríkis- ins. Umbæturnar í skjalinu felast í því að gert er ráð fyrir að pólitísk félög og klúbbar veröi leyfð, auk þess sem heimilt verði að stofna Samstöðu og önnur verkalýðsfélög aftur. Stjóm Samstöðu kemur saman á sunnudag til að ræða viðbrögð sam- takanna og ákveða hvort þau eigi að taka þátt í nefndum hringborðsum- ræðum. Reuter Dali þungt haldinn Salvador Dali, einn umdeildasti listamaður tuttugustu aldarinnar, liggur nú þungt haldinn á sjúkrahúsi meö lungnabólgu sem gæti dregið hann til dauöa, að því er læknar segja. Tilkynning var gefin út um ástand Dalis á miðnætti í nótt og samkvæmt henni var líðan listamannsins, sem nú er 84 ára gamall, óbreytt þó enn væri óttast um líf hans. Vinir Ðalis segja að hann hafi beð- ið um hljóðsnældur með eftirlætis- tónlist sinni, leikinni af hljómsveit veitingastaðarins Maxim í París. Dali er einnig sagður hafa beðið um liti og pappír til aö mála á en hann hefur ekld málað síðan 1983. Vegna sjúkdóms hefur hann ekki haft stjórn á handahreyfingum sínum. Dali liggur á sjúkrahúsi í heimabæ sínum Figueras á Spáni. Þangaö var hann fluttur á miðvikudaginn vegna hjartveiki. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.