Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1989, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1989, Qupperneq 15
FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 1989. IsT 15 Hin fullkomna endaleysa Stuttu áður en þingmenn fóru í jólaleyfi samþykktu þeir lög um vörugjald eða öllu heldur lög um útvíkkun þessa gjalds frá því sem fyrr var. Að vísu var gjaldið lækkað niður í 9% en um leið var þeim vöruflokkum, sem undir það falla, fiölgað verulega. Satt að segja hafði ég ekki miklar áhyggjur af þessum kúnstum enda þótt ég reki ásamt öðrum litla vél- smiðju. En smátt og smátt er að renna upp fyrir mér - og eflaust fleiri kollegum mínum - að þessi lög snerta mig meira en lítið og leiða til þess að við verðum að koma á flóknu kerfi innan smiðj- unnar til þess að uppfylla þær kröf- ur sem lögin áskilja. Flókið og dýrt í framkvæmd Álagning þessa vörugjalds tekur bæði til hráefnis og fullunninnar vöru eða smíðahluta. Þetta þýðir að við verðum að fá að vita þegar við kaupum hráefni (í okkar tilfelli járn o.þ.h.) hvort á það hefur verið lagt vörugjald og þá hve há upp- hæð. Ekki nóg með það; þegar framleiðslu eða smíði á sérhveijum hlut er lokið verðum við að vita hvort þeir taka vörugjald og ef svo reynist vera að leggja það á og fá síðan í gegnum kerfið endurgreitt vörugjald til baka af því efni sem okkur var selt með vörugjaldi og fór í viðkomandi smíði. Einfalt - ekki satt? Til þess að gera þetta enn elsku- legra ákvað löggjafinn að miða vörugjaldsskylduna við tiltekna tollflokka og nú verða allar smiðjur KjaUarirm Rútur Eggertsson framkvæmdastjóri þessa lands að kaupa sér tollskrána í heilu lagi og fletta henni í hvert skipti sem reikningur er skrifaður til að ganga úr skugga um undir hvaða tollnúmer viðkomandi hlut- ur fellur og hvort sá flokkur er vörugjaldsskyldur eða ekki. Ekki framkvæmanlegt ísmiðjum Þetta fyrirkomulag útheimtir meiri vinnu og fyrirhöfn af smiðj- um eins og þeirri sem mér stendur næst fyrir utan beinan kostnaö. í fyrsta lagi mikla og flókna skriffinnsku, enda er vörugjald í eðh sínu framleiðsluskattur og nánast óframkvæmanlegur í smiðj- um, sem bæði vinna úr fiölbreyti- legum hráefnum og smíða marg- víslega hluti fyrir utan að sinna ýmiss konar viðgerðarþjónustu. í öðru lagi að kaupa og kynna sér leyndardóma tollskrárinnar til þess að geta gert sér grein fyrir vörugjaldsskyldu hráefnis og smiðavöru, en mér skilst að sú góða bók sé ekki sú einfaldasta í heimi, kvað vera eitt þúsund blaðsíður og rituð í kanselístíl. í þriðja lagi aukin útgjöld þar sem hugsanleg endurgreiðsla vöru- gjalds af hráefni - sbr. það sem sagt var hér að framan - eykur fiár- bindingu í fyrirtækinu og, eins og kunnugt er, kosta peningar pen- inga. Og kerfið brann yfir Lögin voru samþykkt 22. desemb- er sl. og öðluðust gildi 1. janúar. Þegar þetta er skrifað (17. janúar) hefur ekkert komið frá fiármála- ráðuneytinu um það hvernig á að framkvæma lögin. Það er raunar engin furða þó þetta standi í fólkinu á þeim bæ, því eins og þingmönn- um og ráðherrum var margbent á áður en þeir afgreiddu lögin þá eru þau ekki framkvæmanleg í iðn- grein eins. og málmiðnaði nema með mikilli skriffinnsku og veru- legum óþægindum fyrir alla aðila. En áfram var böðlast og lögin afgreidd. Strax eftir gildistöku þeirra fóru samtök okkar að spyija hvernig ætti að framkvæma lögin en þá fór nú að sljákka í liðinu. Síðan hafa allir keppst um að þe'gja. Eftir sitj- um við í smiðjunum og fleiri iðn- fyrirtækjum og fáum ekkert að vita til hvers er ætlast af okkur.' Þegar þar við bætist að verið er að gera reksturinn erfiðari og dýrari þá spyr maður sig hvort fólkinu sé sjálfrátt. Mér væri svo sem rétt sama þó kerfiö kæmi aldrei frá sér reglum um þessa innheimtu ef það hefði ekki búið svo um hnútana í upp- hafi með lagasetningunni að við sem berum ábyrgð á fyrirtækjum verðum líka látnir bera ábyrgð á að vörugjaldið skili sér, enda þótt enginn viti hvernig á að fara að því. Þetta er líklega liður í að efla íslenskan iðnað. Hvar var iðnaðarráðherra? Það er ömurlegt til þess að hugsa að iðnaðarráðuneytið, með við- skiptaráðherra í broddi fylkingar, skyldi ekki hafa getað - eða viljað - komið í veg fyrir þetta slys, sem ég vil kalla. Það er líka fróðlegt að hafa í huga að um sama leyti og þessi ófögnuður er lagður á iðnað- inn þá er rýmkað verulega fyrir innflutningi með því að veita inn- ílytjendum, sem keppa við íslensk- an iðnað, rýmri heimildir til að taka erlend vörukaupalán, en jafn- hagstæð lán liggja ekki á lausu fyr- ir okkur. Kannski súpum við nú seyðið af því að enginn úr þinglið- inu né embættismenn, sem hafa með þessi mál að gera, eru frá iðn- aðinum. Ég er alveg handviss um að ef þetta mál hefði t.d. snert bændur hefðu þeir séð um það strax í þing- inu að kveða niður slíka álagningu - a.m.k. af tæknilegum ástæðum. Ógæfa okkar í iðnaðinum er sú að hafa ekki málsvara sem víðast í kerfinu en treysta e.t.v. of mikiö á þá sem nú reyna að telja okkur trú um að þetta vörugjald skekki ekki samkeppnisstöðu iðnaðarins. Það má vel vera að það eigi við um tiltölulega einfaldan fram- leiðsluiðnað en út í hött að halda slíku fram um þann hluta iðnaðar- ins sem hér hefur verið sérstaklega gerður aö umræðuefni. Þessi send- ing til okkar í málmiðnaðinum er eitt það versta sem menn muna og er þó af ýmsu skrautlegu að taka í gegnum tíðina. Ég vona að menn reyni a.m.k. að læra af þessu rugli öllu saman. Sú von er þó líklega andvana fædd því fyrst verða ráðamenn að viður- kenna mistök sín, en mér skilst að í þessu máh sé ekkert slíkt að finna hjá þeim. - En það má nú vona. Rútur Eggertsson „Eftir sitjum við í smiðjunum og fleiri iðnfyrirtækjum og fáum ekkert að vita til hvers er ætlast af okkur.“ Opinber barnavernd á íslandi frá 1947 Á íslandi búa 76.000 ungir þegnar sem eiga rétt á hagsmunagæslu samfélagsins, segir m.a. í greininni. Á íslandi búa 76.000 ungir þegnar sem alhr eiga rétt á ákveðinni hags- munagæslu samfélagsins varðandi mannréttindi og vörn gegn andlegu og líkamlegu ofbeldi og vanvirðu frá hendi fullorðinna, innan sem utan heimila. Öll ungmenni eiga rétt á menntun, viðurværi og heim- ili, sem tryggt getur félagslegt ör- yggi þeirra og lagt grunn að líkam- legri og andlegri vellíðan. Þessi ungmenni eiga rétt á æruvernd og því að opinberar stofnanir virði lög landsins þegar málefni ungmenna eru afgreidd. Skilnaðarbörn og ungmenni í félagslegum vanda eiga rétt á þvi að opinberir aðilar starfi að mannúðlegri og réttmætri lausn mála. Sama gildir auðvitað um þau börn og ungmenni sem vanvirt eru eða vanrækt í umhverfi sínu af öðrum ástæðum. Lokað kerfi Árið 1947 í kjölfar síðustu heims- styrjaldar var grunnur lagður að núgildandi barnaverndarlögum á Alþingi sem endursamþykkti lög- gjöfina með smábreytingum árið 1966. Þessi fornu og úreltu lög eru í raun komin yfir fertugt og taka ekki mið af nútímaaðstæöum en einkennast af embættismannavið- horfum 19. aldar og löngu hðnum samfélagsháttum. Þar er einstakl- ingsréttur barna eða mannréttindi ekki skilgreiningaratriði, en full- trúum barnaverndarstofnana ætl- að sjálfdæmi um vinnubrögð og viðhorf að mestu leyti. Völd stofn- ana eru rækilega tryggð enda þær taldar óskeikular. Yfir 200 pólitískt skipuðum nefndum sveitarfélaga er ásamt KjaUarinn Baldur Andrésson arkitekt ráðherraskipuðu Barnaverndar- ráði ætlað að annast framkvæmd barnaverndarmála undir yfirum- sjón menntamálaráðuneytisins. Þessu nefndafargani er ætlað að vera í senn málshefiandi, annast rannsókn mála, fella endanlegan dóm á grunni eigin rannsóknar og framfylgja eigin niðurstöðu. - Kerfi þessu er ætlað að fara með viða- mikið endanlegt dómsvald á sviði viðkvæmustu og þýðingarmestu einkamála. Aldrei hefur tekist að hnekkja efnislega niðurstöðum þessa kerfis fyrir almennum dómi, né heldur að knýja fram opinbera rannsókn á starfsháttum þess þótt rökstuddar óskir hafi um slíkt bor- ist. - Um er að ræða lokað kevfi rannsóknardómstóla og fram- kvæmdavalds sem starfar í and- stöðu við þýðingarmestu ákvæði stjórnarskrár okkar varðandi mannréttindastöðu einstaklinga, t.d. barna og ungmenna. Þetta and- rúmsloft valdníðslu og geðþótta- vinnubragða er alvarleg þversögn og gerir barnavernd að öfugmæli. - Alkunna er einnig að oft tekur meðferð einstakra mála mörg ár - niðurstaðan verður því gjarnan fáránleg tímaskekkja í lok van- virðandi málsmeðferðar. Eins og að líkum lætur er kerfi opinberrar barnaverndar á íslandi einhver einkennilegasti þáttur stjórnsýslunnar. Kerfið hefur verið í starfrænni kreppu um áratugi sem stöðugt harðnar. Vegna starf- rænna annmarka hins póhtíska nefndafargans og faglegrar van- þekkingar þess hefur framkvæmd barnaverndar í raun verið fahn starfsmönnum þess, sem fyrir bragðið fá óheyrileg völd i hendur við skipan einkamála barna til frambúðar, þótt oft séu þeir háðir blessun yfirvalds. Hér í Reykjavík búa 26.000 ungmenni sem verndar eiga að njóta frá hendi htillar nefndar. Augljóslega fara starfs- menn nefndarinnar með hið eigin- lega úrlausnaryald, en ábyrgð þeirra er þó afar takmörkuð gagn- vart þolendum geðþóttavinnu- bragða. Nefndin hefur takmarkaða yfirsýn yfir vandamál ungmenna og á einnig erfitt með að veita eigin starfsmönnum nauðsynlegt aðhald við lausn fiölmargra mála. Ranglát lög „Á skal að ósi stemma“ var sagt og gildir það ekki síst um vernd mannréttinda ungmenna. Kreppa barnaverndarkerfisins á sér ekki síst rætur í úreltum og ranglátum barnaverndarlögum sem sannar- lega gera börnum ekki hátt undir höfði - en vegsama embættisvaldið og geðþóttaforsjá hinna fullorðnu. Meira en tvö ár eru liðin síðan þáverandi menntamálaráðherra tók af skarið og skipaði nefnd til að berja saman frumvarp til splunkunýrra barnaverndarlaga. Ætlunin var að færa börnum það öryggi á íslandi sem þau hafa án verið í allt of langan tíma. í nóvember á síðasta ári heyrðist síðast frá umræddri nefnd sem nýtur forystu núv. formanns Barnaverndarráðs íslands. Þá var tilkynnt að drög að frumvarpi yrðu fullbúin um síðustu áramót og lögð fram til kynningar. Síðan hefur ekkert frést, en áhugafólk um barnaverndarmál- efni bíður mjög spennt eftir niður- stöðum nefndarinnar. Hið háa Al- þingi íslendinga hlýtur einnig að bíða í ofvæni eftir að mega bæta fyrir hina frumstæðu'afurð sína frá 1947 og 1966 sem varð á kostnaö barna. Bréf þetta er ritað til að hvetja umrædda nefnd til að ljúka starfi sínu hið fyrsta og til að vekja at- hygli á væntanlegu framlagi menntamálaráðuneytisins til þess að skapa íslenskum ungmennum stórbætt mannréttindi. Málið varðar að sjálfsögðu 76.000 íslensk ungmenni, en einnig er um að ræða spurninguna um hvort samfélag okkar á að kallast sið- menntað. Baldur Andrésson „Meira en tvö ár eru liðin síðan þáver- andi menntamálaráðherra tók af skar- ið og skipaði nefnd til að berja saman frumvarp til splunkunýrra barna- verndarlaga.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.