Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1989, Side 23
ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1989.
23
Smáauglýsingar - Sími 27022 Þverholti 11
Þjónusta
Tréverk og timburhús. Byggjum timb-
urhús, öll innanhúss smíðavinna, ný-
smíði, viðgerðir, breytingar. Kostnað-
aráætlanir, ráðgjöf og eftirlit. Fag-
menn. Símar 656329 og 42807.
Málarar geta bætt við sig verkefnum,
úti og inni. Einnig flísalögn. Uppl. í
síma 623106 á daginn og 77806 á kvöld-
Raflagnateikningar - sími 680048. Raf-
magnstæknifræðingur hannar og
teiknar raflagnakerfi í íbúðarhús,
verslanir o.fl.
Trésmiður. Nýsmiði, uppsetningar.
Setjum upp innréttingar, milliveggi,
skilrúm og sólbekki, inni- og útihurð-
ir. Gerum upp gamlar íbúðir. S. 18241.
Trésmíðavinna. 2 vandvirkir trésmiðir,
öll alm. trésmíðav.: glerjun, gluggar,
nýsmíði, viðhald og breytingar, jafnt
úti sem inni. S. 91-671623, 91-624005.
Málaravinna. Málari tekur að sér alla
málaravinnu, 30 ára reynsla. Tíma-
vinna. Uppl. í síma 91-38344.
Tökum að okkur alhliöa breytingavinnu,
flísalagnir o.fl. (Múrarameistari).
Bergholt hf., sími 671934.
Múrverk. Get bætt við mig múrverkum
eða flísalögnum. Uppl. í síma 675369.
■ Ökukennsla
Aðgætiö! Gylfi K. Sigurðsson,
löggiltur ökukennari, kennir á Mazda
GLX 88, ökuskóli, öll prófgögn, kenn-
ir allan daginn, engin bið. Heimas.
689898 og 83825, bílas. 985-20002.
R-860. Sigurður Sn. Gunnarsson, lög-
giltur ökukennari, kennir allan dag-
inn á Mercedes Benz. Lærið fljótt,
byrjið strax. Ökuskóli, visagreiðslur
Bílas. 985-24151 og hs. 675152.
Gylfi Guðjónsson ökukennari, kennir á
Rocky turbo. Örugg kennslubifreið í
vetraraksturinn. Okuskóli og próf-
gögn. Vinnus. 985-20042 og hs. 666442.
Skarphéðinn Sigurbergsson kennir á
Mazda 626 GLX ’88, ökuskóli og öll
prófgögn. Kenni allan daginn, engin
bið. Greiðslukjör. Sími 40594.
Sverrir Björnsson. Kenni á Galant 2000
EXE ’87, hjálpa til við endurnýjunar-
próf, útvega öll prófgögn. Engin bið.
Sími 91-72940.
■ Innrömmun
Ál- og trélistar, sýrufrítt karton. Mikið
úrval. Tilb. ál-, tré- og smellurammar.
Plaköt og ísl. grafík. Rammamiðstöð-
in, Sigtúni 10, s. 91-25054.
■ Húsaviðgerðir
Endurnýjum hús utan sem innan. At-
vinnu og íbúðarhúsnæði, innréttingar
á hálfvirði. Uppl. í símum 91-671147
og 44168.
■ Tilsölu
Mjög fallegur stofuskápur „klassi"
stærð: lengd 4,15, hæð 2,20, dýpt 47cm.
Skrifborð og stóll klassi stærð: lengd
1,70, hæð 76 cm, breidd 85 cm. S. 37462.
Skautar, stærðir 26-44, verð 2760.
Sportbúðin, Laugavegi 97, sími 17015,
og Völvufelli 17, s. 73070.
Dúnmjúku sænsku sængurnar komnar
aftur, verð frá 2.900-4.900, koddar,
tvær stærðir, verð 650 og 960. Rúm-
fatnaður í úrvali. Póstsendum. Skotið,
Klapparstíg 31, Karen, Kringlunni 4,
simi 91-14974.
Smiðum snúin stigahandrið úr tré. Ger-
um verðtilboð. Pantanir í síma 675630.
Verslun
■ BOar til sölu
Willys CJ7 '78, 6 cyl., 4 gíra, mjög gott
eintak. Uppl. á bílasölu Garðars, sími
18085 og 28067.
Þessi bill er til söju, Benz 1417, árg.
’70, áður R-52017. Ýmsir möguleikar á
samningum. Uppl. í símum 98-78305,
98-78384 og 98-78687 e.kl. 19.
Ford Club Wagon XLT '85 disil til sölu,
12 manna, sjálfskiptur, vökvastýri,
vökvabremsur, veltistýri, cruisecont-
rol, framdrif og millikassi geta fylgt.
-Uppl. í síma 29904 og 46599.
Gröfuþjónusta, sími 985-25007.
Til leigu í öll verk Cat. 428 traktors-
grafa. Höfum einnig vörubíl. Leitið
tilboða. Kvöldsími 91-21602 og 641557.
Líkamsrækt
Stórútsölunni haldið áfram. Full búð af
vönduðum kápum og jökkum á mjög
hagstæðu verði. Nokkrar ljósar sum-
arkápur úr gaberdíni á kr. 2000. Næg
bílastæði. Póstkröfuþjónusta. Kápu-
salan, Borgartúni 22, sími 23509.
Mitsubishi Colt '88 til sölu, keyrður 9
þús. km, litur rauður, verð 540 þús.
Skipti ath! Vantar nýlega bíla á skrá.
Nýja Bílahöllin, Funahöfða 1, sími
672277.
Þjónusta
Húsaeinangrun hf. Að blása steinull
ofan á loft/þakplötur og í holrúm er
auðveld aðferð til að einangra ánþess
að rífa klæðningar. Steinullin er mjög
góð einangrun, vatnsvarin og eldþol-
in, auk góðrar hljóðeinangrunar.
Veitum þjónustu um land allt. Húsa-
einangrunin hf., símar 91-22866/82643.
Trimform - nýjung á íslandi. Trimform
meðferð vinnur fljótt og örugglega
vöðvabólgu, bjúg og gigt, þar á meðai
liðagigt. Styrkir vöðva og liðbönd.
Bjóðum einnig nudd, snyrtingu og
gufubað. Nudd- og snyrtistofa Helgu,
Garðastræti 13A, sími 91-11708.
Gefum okkur
tíma í umferðiimi.
Leggjum tímanlega af stað!
Ofto Versand pöntunarlistinn er kom-
in. Nýjasta tískan. Stórkostlegt úrval
af fatnaði, skóm o.fl. Mikið af yfir-
stærðum. Verð kr. 250 + burðargj.
Til afgreiðslu á Tunguvegi 18 og Helg-
alandi 3, sími 91-666375 og 33249.
alllgengurbetur * ^
Til ritstjóra Dagblaðsins Vísis:
Um upptöku bifreiðar o.f I.
Kjallarirm
Hörður Ólafsson
hæstaréttarlögmaður
„Með dómi Hæstaréttar 3. þ.m. var því
slegið föstu að lögreglan getur bóta-
laust lagt hald á allar bifreiðar fyrir
umferðarlagabrot. ‘ ‘
Herra ritstjóri
Ég leyfi mér að þakka yður fyrir
birtingu fréttar í dag um að ég haíi
verið tekinn 26 sinnum próflaus,
bíllinn tekinn af mér á Þorláks-
messu og krafa gerð um upptöku
hans í ríkissjóð. í litlu þjóðfélagi
þarf ekki að nefna nöfn til að vita
við hvem er átt.
Fréttin segir að um sé að ræða
stórhættulegan ökuníðing sem hafi
fengið og muni fá makleg mála-
gjöld, m.a. missa bótalaust allverð-
mæta bifreiö sína. Þar með ætti að
vera unnt að gleyma fréttinni og
fara að hugsa um eitthvað annað.
Frétt yðar gefur hins vegar tilefni
til að skoða málið; og það er nauð-
synlegt því það varðar allan al-
menning.
Til „bráðabirgða“?
Samkvæmt dómi Hæstaréttar 3.
þ.m. getur lögreglan svipt menn
ökuleyfi „til bráðabirgða” til lang-
frama, í mínu tilfelli frá 18. nóv-
ember 1986 til 11. nóvember 1988,
þegar dómur loks var kveðinn upp.
I lögfræðinni er okkur kennt um
mannréttindi, sem kallast á ensku
„due process” eða á íslensku
kannski „tilskihn meðferð", sem
sé að enginn verði sviptur réttind-
um, m.a. til að sjá sér farborða
(samanber t.d. um atvinnubíl-
stjóra), nema samkvæmt dómi eftir
aö lærður dómari hefur skoðað mál
hans og rannsakað.
Þessi mannréttindi eiga sér ekki
hljómgrunn í íslenskum umferðar-
lögum. Tíður akstur minn eftir 14.
febrúar 1988, eftir að hafa verið
sviptur „til bráðabirgða” frá 18.
nóvember 1986, var til að mótmæla
þessu mannréttindabroti. Auk þess
fannst mér það misþyrming á ís-
lensku máli að tala um að „til
bráðabirgða” gæti þýtt í 13 mán-
uði. Nú á dögum er það þó kannski
allt í lagi, sbr. t.d. „bráðabirgða-
lög“.
Brugðið skjótt við
Til að herða á mótmælum mínum
lét ég dómsmálaráðuneytið, ríkis-
saksóknara, lögreglustjóra og
sakadómara vita um mótmæla-
akstur minn með bréfi til þeirra 21.
ágúst í fyrra. Mótmælin voru svo
ítrekuð með bréfi til ríkissaksókn-
ara 7. nóvember sl. Var þá brugðið
skjótt við, enda hafði ég þá einnig
birt ríkissaksóknara og lögreglu-
stjóra stefnu í bótamáli fyrir ólögr
mætar handtökur. Var dómur
kveðinn upp 11. nóvember sl„ m.a.
um brot 13. febrúar 1986! Hljóðaði
hann um 4 ára sviptingu frá 18.
nóvember 1986 og 4 manaða fang-
elsi óskilorðsbundið. Er það eini
dómurinn sem hefur gengið í.máh
mínu.
4 mánaða fangelsi óskilorðs-
bundið! Hefur maðurinn drepið
einhvern? Ég hef ekið bifreið í 50
ár og aldrei beyglað bretti, ahtaf
verið á fullum bónus. Ökuferih
minn er e.t.v. einstakur að þessu
leyti. Hins vegar er dýrt að vera
óþekkur, óþekkur við ríkissak-
sóknara, sakadómara og Hæstarétt
um skilning á mannréttindum.
Ákvæði óþörf
Með dómi Hæstaréttar 3. þ.m. var
því slegið fóstu að lögreglan getur
bótalaust lagt hald á allar bifreiðar
fyrir umferðarlagabrot.
Samkvæmt skilningi Hæstarétt-
ar eru bifreiðar „hlutir” eða „mun-
ir“. Og ef bifreið er vitlaust parker-
að t.d., eða víkur ekki fyrir umferð
frá hægri, keyrir á 100 á Keflavík-
urveginum o.s.frv., hefur hún verið
notuð sem verkfæri th að fremja
með henni umferðarlagabrot, eins
og t.d. ef um væri að ræða kúbein,
dýrk eða glerskera til þjófnaðar,
kerald til bruggunar, eða byssu til
að drepa mann.
Þær bifreiðar, þessa „hluti“ eða
„muni" er því heimilt að gera upp-
tæka til ríkissjóðs. Á þessu hafa
menn ekki áttað sig hingað til.
Fram að þessu hefur t.d. verið talið
að sérstaka heimUd í lögum þyrfti
til að gera afla og veiðarfæri upp-
tæk fyrir landhelgisbrot. Þessi
dómur Hæstaréttar gerir þess kon-
ar gamaldags ákvæði óþörf.
Um þessa hluti mættu menn
gjarnan hugsa þegar lögreglustjór-
inn í Reykjavík neyðist til að sækja
um 1000 fermetra lóð undir bif-
reiðageymslfu.
Virðingarfyllst,
Hörður Ólafsson
I ». I 3 ,. l<» t j fi ,H