Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1989, Page 24
24
ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1989.
LífsstQI
Mikið úrval er að finna í verslunum af hvers kyns morgunverðarkorni. I könnun DV kemur fram að ekkert samhengi
er milli verðs og trefjainnihalds og einnig að merkingu íslenskrar framleiðslu er sitthvað ábótavant.
DV-mynd KAE
„Efnisþætti í samsettum hráefnum
skal tilgreina ef hráefnið er 25% eða
meira af nettóþyngd vörunnar, eða
ef nauðsynlegt er til að neytandinn
fái rétta hugmynd um samsetningu
hennar...“. I 17. grein sömu reglu-
gerðar segir: „Fyrir vörutegundir,
sem eru merktar eða auglýstar sér-
staklega vegna innihalds trefja, til-
tekinna orkuefna eða bætiefna, skal
merkja næringargildi vörunnar
samkvæmt ákvæðum 16. og 18. grein-
ar.“
Framleiðendur umræddra vöru-
tegunda verða því að taka sig á til
þess að fullnægja ákvæðum reglna
og til þess að vera samkeppnisfærir
við sams konar vöru innflutta. -Pá
Hvað er svona
merkilegt við trefjar?
„Trefjaefni eru sérlega heppileg
fyrir meltinguna og líklega besta
vöm sem til er gegn harðlífi, melting-
arkvillum og meltingarsjúkdómum,"
segir Jón Ottar Ragnarsson í bók
sinni, Næring og vinnsla.
„Æskilegt að fá 25% af orku og
næringarþörf dagsins úr morgun-
matninn. Trefjaefni em nauðsynleg
fyrir meltinguna,“ stendur í Heimil-
isfræði Námsgagnastofnunar.
Sé litið í erlendar bækur um matar-
gerð og næringarfræði kemur í ljós
að þær em allar sammála um að
menn hafi of lengi horft framhjá
mikilvægi trefjainnhalds fæöunnar.
Rétt hlutfall trefja getur komið í veg
fyrir meltingartruflanir og tryggt að
líkaminn starfi á þann hátt sem nátt-
úran ætlaðist til.
-Pá
Góð þjónusta
hjá gullsmið
Ung kona hafði ekki alls fyrir
löngu samband við neytendasíðuna
og sagði henni frá viðskiptum sínum
við gullsmið hér í bæ.
Konan hafði fengið silfurarmband
í jólagjöf sem keypt var hjá Val Fann-
ar gullsmið, Hafnarstræti 18.
Armbandið virtist vera ágætlega
vandað við fyrstu sýn en ekki hafði
konan átt það lengi þegar það bilaði.
Farið var með armbandið í viögerð
og var hún konunni að kostnaðar-
lausu.
Leið nú nokkur tími en þá bilaði
armbandið aftur. Fór konan enn á
ný með armbandið og ætlaði að láta
gera við það og bjóst hún jafnframt
við að þurfa aö greiða háar fjárhæöir
fyrir viðgerðina. En annað kom á
daginn, þegar armbandið hafði verið
skoðað var það dæmt gallað og var
konunni boðið að fá nýtt í stað þess
gamla án nokkurra málalenginga.
Óvenjugóð þjónusta sem vert er að
vekja athygli á.
-Pá
Tegund Hitaein. ílOOg Trefjar ílOOg Verð pr. kg
Amo Muesli 350 99 446
Morgungull 465 2,5 g 415
Granóla 500 428
Fiber Kost 240 35 g 302
Kelloggs Fruit'n'Fibre 338 6,4 g 466
KelloggsAII-Bran 249 28,6 g 304
Alpen-Muesli 366 8,4 g 290
Kelloggs Country-Store 346 5,6 g 317
Solgryn-haframjöl 390 119 115
Weetabix 335 12,9g 321
Cocoa Puffs 400 0 479
Kelloggs Cornflakes 350 0 364
Kruska-Nutana 360 illllill! 448
Granola-Nutana 405 422
Frjálst,óháð dagblað
Askrifendur
Léttið blaðberunum störfin og sparið þeim sporin.
Notið þjónustu DV og kortafyrirtækjanna. //
Greiðið áskriftargjaldið með greiðslukorti.
V/SA
Meðþessum
boðgreiðslum
vinnstmaigb
# Þær losa áskrífendur
við ónæði vegnainn-
hekntu.
• Þæreruþægilegur
grelðslumáti sem
tryggir skllvísar
grelðslurþréttfyrir
annireðatjarvistir.
e Þærlétta blaðberan-
umstörfinenhann
heldur þoóskertum
tekjum.
e Þæraukaötyggi.
Blaðberarerutll
dæmlsoftmeðtdlu-
verðarQártiæðirsem
getagtatasL
Hafið samband
við afgreiðslu DV
kl. 9-20 virka daga,
laugardaga kl. 9-14
í sima 27022
eða við umboðsmenn okkar
ef óskað er nánari
upplýsinga.
DV kannar morgunverðarkom:
Trefjaríkt
kom ódýrara
- merkingum víða ábótavant
Ekkert samhengi er sjáanlegt milh
trefiainnihalds, fiölda lútaeininga og
verðs á ýmsum tegundum morgun-
verðarkorns. í könnun DV, sem náði
til 12 mismunandi tegunda, var
Cocoa Puffs dýrast en það kostar 479
krónur kílóið.
Hæsta trefiainnihaldið var að finna
í Fiber Kost eða 35%. Fiber Kost er
innflutt frá Norðurlöndum og vakti
athygli fyrir afar nákvæmar inni-
haldsmerkingar. Það kostar 302'
krónur kílóið.
Kelloggs AU-Bran, sem margir
kannast við, inniheldur 28,6% trefiar
og kostar aðeins 304 krónur kílóiö.
Niðurstaðan varð sú aö yfirleitt virt-
ist verðið vera einna lægst á því sem
innihélt mestar trefiar. Yfirleitt var
innflutt vara mun betur merkt en
íslensk.
í flestum búðum má fá þrjár mis-
munandi tegundir af morgunverðar-
komi frá íslenska fyrirtækinu An-
anda. Engar upplýsingar er að finna
á umbúðum um trefiahlutfall, fiölda
hitaeininga eða bætiefni. Hráefnin
eru aðeins talin upp og því mjög er-
fitt fyrir viðskiptavim að átta sig á
því hvað hann í raun er að kaupa.
• Sömu sögu er að segja af Morgun-
gulli sem er íslensk framleiðsla.
Venjutegt Morgungull er með 2,5%
trefiainnihald sem er mjög lágt.
Neytendur
Granóla, sem er blanda frá sama fyr-
irtæki, er í umbúðum sem eru merkt-
ar „trefiaríkt“ en á umbúðum er eng-
ar upplýsingar að finna um magn
trefia í kominu.
Þetta er ótvírætt í bága við nýja
reglugerð um merkingu neytenda-
umbúða sem gildi tók um áramót en
þar segir í 13. grein: „Ef á umbúðum
eru fullyrðingar um að varan inni-
haldi mikið eða htið af tilteknum
hráefnum skal magn þeirra koma
fram.“ í sömu grein segir einnig: