Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1989, Blaðsíða 32
F R E T TA S K O T I Ð
__________________________________________________________
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
TálknaJQörður:
Allir liggja
, skjálfandi
undir sæng
„Það er kalt hér á Tálknafiröi. Það
er enginn á ferli og bærinn líkist
helst draugabæ. Það er alls staðar
lokað og enginn í fyrirtækjunum.
Fólk liggur hér skjálfandi undir
sæng í kuldanum," sagði Sigmundur
Hávarðsson, rafvirki og félagi í
björgunarsveitinni á Tálknaflrði, í
morgun.
Rafmagnslaust hefur verið á
Tálknafirði frá því í gærmorgun. Lít-
il dísilvél er í bænum og má hún sín
lítils við að framleiða rafmagn.
„Það er skammtað rafmagn hér á
~ eina götu í einu,“ sagði Sigmundur.
Frá því að rafmagnstruflanir byij-
uðu á laugardag hafa Tálknfirðingar
fengið rafmagn frá Patreksfirði en í
gærmorgun brotnuðu þverslár á lín-
unni á milli Patreksfjarðar og
Tálknafjarðar.
Lítið er líká um rafmagn á Bíldu-
dal. En aö sögn Sigmundar eru fleiri
dísilvélar þar sem framleiða rafmagn
en hjá þeim á Tálknafirði og ástandið
því betra.
Þreifandi bylur var á Tálknafirði í
• ^pgærkvöldi og nótt. í morgun var hins
vegar komið logn. -JGH
Hitaveitan:
Kostar varaafl
milljarð króna?
Að sögn Jóhannesar Zoega, sem nú
gegnir starfl hitaveitustjóra í Reykja-
vík, þá kostar um einn til tvo millj-
arða að koma upp varaaflsstöðvum
við dælustöðvar Hitaveitu Reykja-
víkur. Guðrún Agnarsdóttir þing-
maður sagöi á Alþingi í gær að það
væri einkennilegt að Hitaveitan hefði
efni á að byggja veitingahús sem
snerist í hring en ekki að byggja
varadælustöövar. í rafmagnsleysinu
sem varð um helgina urðu stórir
hlutar Reykjavíkur heitavatnslausir.
Á næsta ári þegar Nesjavallaveitan
kemur í gagnið munu forsendur
breytast því þaðan ætti að fást orka
til að dæla upp úr borholunum. Þá
þyrfti aöeins að koma upp varaafls-
stöðvum við dælustöðvar til neyt-
enda. -SMJ
;ílo'0lLASl-o^
ÞRÖSTUR
68-50-60
VANIRMENN
LOKI
Tálknfirðingar nýta þá
bara náttúrulegan hita!
Maður fannst slasaður á Flughótelinu í Njarðvík:
Meðvitundarlaus
i
í tíu sólarhringa
- var sendur heim eftir fyrstu aðgerð á sjúkrahúsinu 1 Keflavík
Maður, sem fannst slasaður á
herbergisgangi á Flughóteli í
Njarðvík aðfaranótt 4. febrúar, hef-
ur legið meðvitundarlaus á gjör-
gæsludeild í tíu sólarhringa. Mað-
urínn fannst liggjandi á gólfi á
gangi á annarri hæð hótelsins.
Hann hafði orðið fyrir höfuðáverk-
um. Læknir, sem var gestur á hót-
elinu, annaðist manninn þar til
hann var fluttur á Sjúkrahúsið í
Keflavík. Þar var saumað í sár á
hnakka mannsins.
Að morgni laugardagsins var
hann sendur heim. Skömmu síðar
fór að draga af manninum og var
hann þá fiuttur á sjúkrahús í
Reykjavík. Þar liggur hann á gjör-
gæsludeild og hefur verið meðvit-
undarlaus í tíu daga.
Einu dvalargestirnir á þeim
gangi sem maðurinn faimst á voru
hópur Grænlendinga. Ekkert hefur
komið fram, við þá lögreglurann-
sókn sem fram hefur farið, sem
bendlar Græniendingana eða aðra
við að eiga sök á meiðslum þeim
sem maðurinn varð fyrir.
Nokkuð er um að fólk sæki á
barinn á Flughóteli. Maðurinn sem
slasaðist hafði verið gestur á bam-
um fyrr um kvöldið. Hann mun
hafa verið talsvert drukkinn.
Rannsóknarlögreglan í Keflavík
fer með rannsókn málsins.
-sme
Vertíðarbátar komust loks á sjó í morgun eftir margra daga brælu. Margir hverjir hafa ekki komist til að draga
netin síðan 8. febrúar. Sá fiskur, sem er kominn i netin, er örugglega farinn að tapa gæðum. Þá er hætta á að
netin séu illa farin ef ekki ónýt. Gæftir það sem af er vertíð hafa verið einstaklega erfiðar. Á myndinni, sem tekin var
í gær, má sjá vertiðarbáta í Reykjavíkurhöfn. DV-mynd KAE
Skipverjar á Hofsjökli reyna smygl á Akureyri:
Teknir með vodka á plastbrúsum
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri;
Skipveijar á Hofsjökli gerðu í gær
tilraun tfi að smygla vodka á plast-
brúsum í land á Ákureyri og var um
að ræða 156 lítra.
Hofsjökull hafði komiö til hafnar á
Austfjörðum um helgina en þá fannst
ekkert áfengi um borð. Rannsóknar-
lögreglan á Akureyri hafði hins veg-
ar grun um að smygla ætti vodka á
land á Akureyri og var fylgst með
skipinu er það kom til Akureyrar um
hádegið í gær.
Skömmu síðar sást til tveggja skip-
verja sem höfðu fengið lánaða bifreið
og bárp þeir plastbrúsa úr skipinu í
bifreiðina. Þeim var veitt eftirför í
verbúö í Sandgerðisbót þar sem þeir
voru síðan handteknir.
Sem fyrr sagði var um að ræða 156
lítra og við leit í skipinu fannst meira
magn af áfengi og auk þess bjór og
tóbak. Alls voru það 8 skipveijar sem
játuðu við yfirheyrslur í gærkvöldi
að hafa átt smyglvarninginn.
Veðriö á morgun:
Kólnar á
öllu
landinu
Á morgun verður norðanátt,
víða nokkuð hvöss. Hríðarveður
norðanlands og suður með Aust-
fjörðum. Dálítil él suður til
Breiðaíjarðar en úrkomulaust að
mestu sunnanlands og við Faxa-
flóa, þó líklega skafrenningur.
Frost 8-12 stig.
Rafmagns-
truflanir
voru víða
í morgun
Enn voru víöa rafmagnstruflanir í
morgun. Að sögn Kristjáns Jónsson-
ar, rafmagnsveitustjóra ríkisins,
urðu bilanir á Suðurlandi, Norður-
landi vestra og Vesturlandi vegna
illviðris í nótt. Vestfirðir heyra ekki
undir Rafmagnsveitu ríkisins heldur
Orkubú Vestfjarða. Þar var líka víða
rafmagnslaust í morgun, sérstaklega
á sunnanverðum Vestfjörðum.
Á Suðurlandi og Norðurlandi
vestra voru flestir bæir komnir með
rafmagn í gær en í bilanir urðu aftur
í nótt og í morgun var unnið að við-
gerðum á þessum stöðum. Staðan á
Vesturlandi í morgun var sú að í
Borgarfirði eru enn nokkrir bæir
rafmagnslausir. Viðgerðarflokkar
urðu að hverfa frá í gærkvöldi vegna
illviðris. Reynt var aftur í morgun.
Norðurland eystra og Austfirðir
hafa sloppið að mestu við rafmagns-
truflanir síðustu daga. Þar var gott
ástand í rafmagnsmálum í morgun.
-JGH
Dröfn farin
á ýsuslóð
í morgun átti rannsóknaskipið
Dröfn að halda á ýsuslóð Vest-
mannaeyjabáta til að rannsaka
svæðið. Það hefur staðið til í nokkra
daga að Dröfn færi í þennan leiðang-
ur en ekki orðið úr því fyrr en nú
vegna veðurs. Einar Jónsson fiski-
fræðingur verður leiðangursstjóri en
hann er helsti sérfræðingur Ha-
frannsóknastofnunar í ýsunni.
„Við munum ekki taka neinar
ákvarðanir um hvort fleiri hólfum
verður lokaö á svæðinu fyrr en að
loknum þessum leiðangri. Það er
stórt hólf lokað í Meðallangsbugt nú
þegar og það verður látið duga í bili,“
sagði Jakob Jakobsson, forstjóri Haf-
rannsóknastofnunar í samtali við DV
í morgun.
Sem kunnugt er hefur verið afar
mikið af smáýsu í afla Vestmanna-
eyjabáta að undanfömu. Skiþstjórar
báta í Vestmannaeyjum hafa mót-
mælt ásökunum um aö þeir klæði
trollpokana til að ná smáýsunni. Þeir
halda því fram að ef mikill ufsi er í
aflanum sé útilokað að smáýsan
sleppi út þótt riðill pokans sé lögleg-
ur, eða 155 millímetrar.
-S.dór
Flestir vegir
að verða færir
Flestir helstu vegir á landinu eru
að verða færir. Vegagerðarmenn
standa víða í ströngu við snjómokst-
ur. Ástandið er einna verst á Vest-
fjörðum. Þar er mikill snjór og þegar
birti í morgun átti að taka ákvarðan-
ir um hvort yrði mokað.
Fært er frá Reykjavík um Þrengsli
austur á firði. Heliisheiði er ófær.
Verið er að opna leiðina norður til
Akureyrar og eins til Hólmavíkur.
Fært er til Sigluíjarðar - úr Skaga-
firði. Frá Akureyri er fært til Húsa-
víkur, á Langanes og til Vopnafjarð-
ar.
í morgun var hafist handa við að
opna fjallvegi á Snæfellsnesi. í morg-
un hófst mokstur á Heydal. Fært
verður að Reykhólum. -sme