Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1989, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1989, Page 10
10 FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1989. Utlönd Efnahagslegt öngþveiti - bíöur hins nýkjöma forseta Argentínu Carlos Menem, frambjóöandi Perónista, sagði á blaðamannafundi að loknum sigri sinum í forsetakosningunum í Argentínu nýlega að efna- hagsástandið væri honum efst í huga. Hinn nýkjörni forseti á erfitt verk fram undan því gjaldþrot blasir við. Símamynd Reuter Hinn nýkjörni forseti Argentínu, Carlos Menem, á erfitt verk fram undan. Landiö rambar á barmi gjaldþrots, skuldar milljarða doli- ara í erlendum lánum, og er aö margra mati í raun gjaldþrota. Á þriðja áratug þessarar aldar var efnahagur Argentínu í blóma. í dag er hann hruninn. íbúarnir orðnir langþreyttir Lægstu laun í Argentínu eru um 40 dollarar á mánuði eða sem svar- ar um 2.200 íslenskum krónum. Verðbólga á ársgrundvelli er að meðaltali hátt í fjögur þúsund pró- sent og skuldir vegna erlendrar lántöku nema nú 60 milljörðum dollara. íbúar Argentínu eru orðnir lang- eygir eftir úrbótum í efnahagsmál- um og létu það í ljós í kosningunum sem haldnar voru þann 14. þessa mánaðar. Þá sigraði Menem, fram- bjóðandi Perónista, frambjóðanda stjómarflokksins, Eduardo Ang- eloz, með rúmlega 10 prósenta mun. Kjósendur lokuðu augunum fyrir því að stjórn Perónista hefur fram til þessa ætíð fylgt efnahags- legt og stjórnmálalegt öngþveiti. Vonin hrynur Ævintýraljómi hefur sveipaö Perónista og frambjóðendur þeirra æ síðan Juan Perón var kosinn for- seti árið 1946. Perón höfðaði til verkalýðsins í landinu sem hafði ætíð látið stjórnmálaumræðu fram hjá sér fara. Hugmyndir hans og hugsjónir héldu lífi á ánmum eftir 1955, þegar herinn steypti stjóm hans, og til 1973 þegar hann komst til valda á ný. Árið 1983, þegar einræðisstjórn hersins lét af völdum eftir sjö ára setu, sigraði frambjóðandi Róttæka flokksins, Raúl Alfonsín, frambjóö- anda Perónista öllum til mikillar undrunar. Mikil bjartsýni ríkti í landinu og vonuðust íbúarnir til að nú færi að rofa til. En Alfonsín tók við landi í upplausn, efnahags- lega sem og stjórnmálalega, og hef- ur ástandið lítt batnað. Efnahagur- inn er í rúst og herinn hefur þríveg- is ógnað lýðræðinu síðan árið 1987. Efnahagslifið í brennidepli Kosningarnar í ár snerust aðal- lega um tvennt: annars vegar um efnahagsástandið og efnahagsað- gerðir Alfonsíns forseta, sem lítinn árangur hafa borið, og hins vegar um persónuleika frambjóöend- anna. Efnahagsástandið er skiljanlega á hvers manns vörum. „Við erum að leita að bjargvætti, argentínsku kraftaverki," sagði einn kjósenda í samtali viö Reuter-fréttastofuna rétt fyrir kosningar. í kosningabaráttunni lofaði Me- nem öllu fögru og hét því að hækka laun og draga úr sköttum hins starfandi almennings í landinu. En fyrirhugaðar efnahagsaðgerðir Menems eru mjög óljósar. Hann talar um framleiðslubyltingu en erfitt er að gera sér grein fyrir hvemig hann hyggst rétta við hið nær gjaldþrota ríkisbú. Verðbólgan æðir áfram Sérfræðingar telja að verðbólga í maí muni ná 50 prósenta markinu. Gjaldmiðilhnn, ástralinn, hefur rýrnað um 80 prósent gagnvart dollar frá því í febrúar og Alfonsín forseti hefur ekki greitt vexti af erlendum lánum í heilt ár. Menem kveöst munu fara fram á greiðslustöðvun á erlendum lánum á meðan ríkið réttir úr kútnum. „Við getum ekki greitt skuldir okk- ar á meðan fólkið sveltur," sagði hann. Lánardrottnar Argentínu búast hvort eð er ekki við greiðsl- um á næstunni. Margir telja að ætli Menem að skera eitthvað niður halla ríkissjóðs og minnka verðbólgu verði hann að grípa til mikilla aðhaldsaðgerða og launalækkunar. Ekki er víst að það falli í góðan jarðveg meðal forystu- manna verkalýðsfélaga sem studdu hann í kosningunum. Þrátt fyrir bágborið efnahags- ástand í Árgentínu segja fulltrúar erlendra banka í landinu að þeir séu nokkuð bjartsýnir á framtíð- ina. Einn þeirra kvaðst telja að Menem myndi takast að auka til- trúna á getu ríkisstjórnarinnar með því að leggja fram raunhæft íjárlagafrumvarp. Glaumgosinn Menem Menem líkist lítt stjórnmála- manni í útliti. Hann er 58 ára gam- all ríkisstjóri, lágvaxinn, með stóra barta, veikur fyrir skrautlegum fatnaði og dáir hraðskreiðar bif- reiðir og fallegt kvenfólk. Menem er af sýrlensku bergi brotinn og var, þar til nýlega, mú- hameðstrúar. Þá snerist hann til kaþólskrar trúar til að geta boðið sig fram. Eiginkona hans, Zulema, er múhameðstrúar. Menem og kona hans eru skilin að borði og sæng, að því er talið er, en geröu með sér samning um að halda saman vegna kosning- anna. „Fylgið mér“ Menem er ekki mikill ræðuskör- ungur en bætir úr því með ræðum sem eru þrungnar tilfinninga- næmi. „Fylgið mér“ voru kosn- ingaslagorð hans. Og fólkið fylgdi honum. í kosningabaráttunni lagði Me- nem áherslu á baráttu fyrir rétti almennings. Margir litu á kosning- arnar sem val milli flokks hinna ríku, Róttæka flokksins, og flokks almúgans, flokks Perónista. Styrkur Perónista hefur falist í stuðningi millistéttarinnar og verkamanna. Þeir hafa átt vísan stuðning í iönhéruðum landsins, þéttbýlissvæðum og víða um sveit- ir. Þrá Argentínubúa eftir betri tíð og ævintýraljóminn, sem leikur enn um nafn Peróns, urðu til þess að flokkur Perónista komst til valda á nýjan leik eftir 13 ára langa bið. Reuter Hvað kostar kjötið? Mánudaginn 8. maí sl. kannaði Verðlagsstofnun verð á nokkrum tegundum af kjöti og unnum kjötvörum í nokkrum verslunum á höfuðborgarsvæðinu. DILKAKJÖT NAUTAKJÖT SVÍNAKJÖT UNNAR KJÖTVÖRUR Lærissn. Súpukjöt Hangikjöt Nauta- úrmiölæri Kótilettur Læri Hryggur blandað óúrb. læri gúllas Snitsel Kótilettur Læri með Kinda- Nauta- Kjötfars Vínarpyls. 1 kg. 1 kg. 1 kg. 1 kg. 1 kg. 1 kg. 1 kg. 1 kg. 1 kg. beini 1 kg. hakk 1 kg. hakk 1 kg. 1 kg. 1 kg. 9.392,- Amarhraun, Arnarhrauoi 21, Hf. 943-1032 630-651 672-687 615-638________394________792_______998 1098________959________498_______439________497________243 614 9.784,- Asgelr, Tindaseli 3, Rv._______________935________658________658_______638________460________871_______950 1295________957________520_______435________495________298_______614 9.758,- Borgarbúðin, Hófgerði 30, Rv.__________1030 616-649_______609________602________427________835_______960 1050_______995________590________472________650_______370 552-614 9.408,- Breiðholtskjör, Arnarb. 4-6, Ry.________815________646 605-749________591________391________773_______944 1310 874________491________428________616_______310________614 9.342,- Fjarðarkaup, Hólshrauni 1b, Hf. 843-1030________649_______693________635 375-425________798 1037 1163_______859________513________448 448-528_______329 552-614 8.789,- Grundarkjðr, Furugrund 3, KÓp. 849- 948 574-651 633-687 574-638 393-436________764_______915________915_______853________498________444 465 298 614-639 9.075,- Gæðakjör, Seljabraut 54, Rv. 848-976 595-616 645-693 595-635 393-430 648-695_______948 1050_______950________498________398________545_______348 614-639 9.979,- Hagabúðln, Hjarðarhaga 47, Rv,__________995________596_______649________586________487________825______1044_______1164______1042________596 471 590 295 639 9.394,- Hagkaup, Kringlunni, Rv.___________943-1030 630-649 683-693 576-635________£[5________807_______992_______1189_______976________487 449 549 249 449 9.539,- Kauplélaglð, Miðvangj Hf.__________944-1037 631-649 683-728 577-635 413-415________778_______974_______VI20_______983________570 399 530 290 552-614 9.539,- Kaupstaður, Mjóddinni, Rv._________944-1037 631-649 683-728 577-635 413-415________778_______974_______1220 983 530 499 565 285 457-614 10.042,- Kjöthöllin, Háaleitisbr. 58-60, Rv. 970________657_______707________642________441________870_______961 1040 1070________650 430 608 382 614 8.467,- Kjötmiðstöðln, Garðatorgi, G.bæ 785-976 649 639-693 629-635 415-428 795-827 825 925 748 467 315 485 295 495-614 9.837,- Laugarás, Norðurbrún 2, Rv. 998-1032 527-650 645-687 635-638 412-435_______843_______986 1195______998 10.109,- Melabúðln, Hagamel 39, Rv.____________833_______631 685_______621_______420________830 1135 1450_______980 9.660,- Mlkllgarður, v/Holtaveg, Ry. 944-1037 631-649 683-734 577-602 413-415________795_______974______1220______983 9.891,- Nóatún, Nóatúni 17, Ry._______________999_______646________684 632________vm________890_______933______1361______879 9.837,- SS, Háaleitisbraut 68, Ry._______775-1030 595r 649________693_______635 393-415________802_______996 1290______976 10.352,- Slggl og Lalll, Kleppsv. 150, Rv. 1032_______651________687_______638_______436________790______1179______1287_______990 10.125,- Sparkaup, Lóuhólum 2-6, Ry. 898-1032 651-679 685-687 635-638_______436________843______1198 -1278_______970 9.843,- Straumnes, Vesturbergi 76, Rv. 980-1030_______620________663_______595_______395________843______1070______1041_____1050 9.743,- Verslunln, Austurstræti 17, Rv._______950_______690________695_______650_______430________750_______960______1170 920 615_________459_______545_________365 614 593_________390_______590_________337_______614 570_________479_______565_________369 457- 639 489_________460_______545_________349_______614 599_________495_______575_________VI8_______595 590_________498________595________365 614-639 635_________499 554 320 523-614 570 491 539 372 614 510 495 550 359 614

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.