Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1989, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1989, Blaðsíða 27
FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1989. 35 Afmæli Jóhann Eyjólfsson Jóhann Eyjólfsson verslunarmaö- ur, Dalsbyggð 21, Garöabæ, er sjö- tugurídag. Jóhann fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk prófi frá VÍ1938 og hefur lengst af stundað verslun- arstörf. Jóhann hefur tekið virkan þátt í ýmsum félags- og trúnaðarstörfum. Hann stundaði fimleika hjá Ár- manni frá því á unglingsárunum og var í sýningarflokki félagsins í mörg ár. Þá keppti hann með meistara- flokki Vals í knattspyrnu. Jóhann var formaður Knattspymufélagsins Vals 1955-57. Hann er einn af stofn- endum Golfklúbbs Reykjavíkur og sat í stjóm hans í mörg ár, auk þess sem hann sat í stjórn Golfsambands íslands. Hann var íslandsmeistari með Val á sínum tíma, varð íslands- meistari í golfi 1960 og hefur þrisvar orðið heimsmeistari öldunga í golfl í sínum flokki, 1975,1979 og 1981. Jóhann er einn af stofnendum Lionsklúbbsins Ægis og var formað- ur hans 1970-71. Hann sat í hrepps- nefnd Garðahrepps 1954-57, sat í bygginga- og skipulagsnefnd Garða- hrepps 1948-57 og var formaður skólanefndar Garðahrepps 1954-58. Hann var fyrsti formaður sjálfstæð- isfélags Garðahrepps 1957-61 oghef- ur gegnt ýmsum fleiri trúnaðar- störfum. Fyrri kona Jóhanns var Elísabet Markúsdóttir. Börn Jóhanns og El- ísabetar eru Eyjólfur Jóhannsson, f. 13.5.1949, prentari, kvæntur Ingi- björgu Ingvarsdóttur og eiga þau þrjá syni, Eyjólf, Daða og Andra, en sonur Eyjólfs frá fyrra hjónabandi er Jóhann; Markús Jóhannsson, f. 25.2.1951, heildsali, kvæntur Guðnýju Kristjánsdóttur og eiga þau þrjú börn, Nönnu Mjöll, Lísu Maríuog Sindra. Jóhann kvæntist 13.3.1963 Fríðu Valdimarsdóttur bókara, f. 20.10. 1936, dóttur Hólmfríðar Helgadóttur og Valdimars Stefánssonar stýri- manns. Börn Jóhanns og Fríðu eru Hanna Fríða, f. 13.3.1960, húsmóðir í Kópa- vogi, og á hún tvö börn, Katrínu Osk og Hlöðver Steina. en Hanna er gift Hlöðver Þorsteinssyni; Helga, f. 26.10.1963, húsmóðir í Hafnarfirði, gift Aðalsteini Svavarssyni og eiga þau eina dóttur, Agnesi Ýr. Systur Jóhanns eru Ásthildur Eyjólfsdóttir Finlay, f. 28.9.1917, búsett í Bretlandi, ekkja eftir Will- iam Finlay og á hún tvo syni sem búsettir eru í Bretlandi, dóttur sem búsett er í Bandaríkjunum og aðra dóttur sem búsett er í Ástralíu; Ingi- björg Eyjólfsdóttir, f. 23.10.1925, kennari í Garðabæ og búsett í Hafn- arfirði, ekkja eftir Kristján Hans- son, en hún á þrjá syni búsetta í Hafnarfirði og dóttur búsetta í Garðabæ. Foreldrar Jóhanns voru Eyjólfur Jóhannsson forstjóri, f. 27.12.1895, d. 1.4.1959, ogHelgaPétursdóttir húsmóðir, f. 12.3.1894, d. 5.1.1979. Eyjólfur og Helga bjuggu á Óðins- götunni í Reykjavík og síðar í Sveinatungu í Garðabæ. Eyjólfur var sonur Jóhanns, b. og alþingismanns í Sveinatungu í Borgarfirði, Eyjólfssonar, b. og skálds í Hvammi í Hvítársíðu, Jó- hannessonar Lund, vinnumanns á Gilsbakka, Jónssonar. Móðir Ey- jólfs í Sveinatungu var Helga Guð- mundsdóttir, b. á Sámsstöðum í Hvítársíðu, Guðmundssonar, bróð- ur Sigurðar, afa Jóns Helgasonar, prófessors og skálds. Meðal annarra bræðra Guðmundar voru Jónas og Gísli, afar Steins Dofra ættfræðings. Guðmundur var sonur Guðmundar, b. að Háafelli í Hvítársíðu, Hjálm- arssonar, ogkonu hans, Helgu Jóns- Jóhann Eyjólfsson. dóttur, ættforeldra Háafellsættar- innar og Ingibj argar Sigurðardóttur Móðir Eyjólfs var Ingibjörg Sig- urðardóttir, b. í Geirmundarbæ á Akranesi, Erlendssonar, b. og hreppstjóra á Bekansstöðum í Skil- mannahreppi, Sigurðssonar, b. á Bekansstöðum, Vigfússonar. Jóhann verður að heiman á af- mælisdaginn. Anna Jórunn Benediktsdóttir Anna Jórunn Benediktsdóttir hús- móðir, til heimilis að Grýtubakka 22, Reykjavík, er fimmtug í dag. Hún fæddist að Stóra-Rimakoti í Þykkvabæ í Rangárvallasýslu og ólst upp í Þykkvabænum. Eiginmaður Önnu Jórunnar er Páll Hallgrímsson verkamaður, f. 22.1.1932, sonur Ingibjargar Páls- dóttur húsmóður og Hallgríms Konráðssonar verkamanns. Anna Jórunn og Páll byijuðu sambúð 1958 en giftu sig 31.12.1962. Dóttir Önnu Jórunnar og Páls er Ingibjörg Pálsdóttir, f. 27.5.1975. Foreldrar Önnu Jórunnar voru Benedikt Jóhann Pétursson, b. að Stóra-Rimakoti í Þykkvabæ í Rang- árvallasýslu, f. 18.3.1900, d. 1971, og Jónína Þorgerður Jónsdóttir hús- móðir, f. 22.8.1908, d. 1971. Jóhann Samsonarson Jóhann Samsonarson verkamaður, Laufvangi 12, Hafnarfirði, er sjötug- urídag. Jóhann fæddist á Þingeyri við Dýrafjörð óg ólst þar upp. Hann hóf ungur almenn verkamannastörf á Þingeyri en flutti til Patreksfjarðar eftir stríð og var þar lengst af verk- stjóri. Hann hefur verið verkamað- ur í Hafnarfirði sl. tíu ár Kona Jóhanns er Guðrún Hulda Jóhannesdóttir, f. 20.4.1927. Böm Jóhanns og Guðrúnar Huldu eru Samson, f. 1943, vélvirki í Straumsvík; Jóhannes, f. 1944, vél- virki á Akureyri; Sigurður, f. 1946, byggingameistari á Patreksfirði; Ragna, f. 1949, sjúkraliði á Sauðár- króki; Svanur, f. 1953, fram- kvæmdastjóri á Hvammstanga; Guðrún, f. 1954, hjúkrunarfræðing- ur á Hjaltlandi; Þorbjörg, f. 1955, kennari í Hafralækjarskóla í Þing- eyjarsýslu, og Heiðar, f. 1957, inn- kaupamaður í Hagkaup í Reykjavík. Foreldrar Jóhanns voru Samson Jóhannsson, sjómaður á Þingeyri, og kona hans, Bjamey K. Svein- bjömsdóttir. Samson var sonur Jóhanns, b. á Saumm, Samsonarsonar, b. og Jóhann Samsonarson. hreppstjóra á Brekku í Dýrafirði, Samsonarsonar, skálds í Hólahól- um, Samsonarsonar, skálds á Klömbrum í Vesturhólum, Sigurðs- sonar. Móðir Samsonar í Hólahól- um var Ingibjörg Halldórsdóttir, prests á Breiðabólsstað í Vestur- hópi, Hallssonar og konu hans, Helgu Oddsdóttur, stúdents og annálaritara á Fitjum í Skorradal, Eiríkssonar, b. á Fitjum Odddsson- ar, biskups í Skálholti, Einarssonar. Til hamingju með daginn 80 ára Jens S. Ólafsson, Brekastíg 29, Vestmannaeyjum. Kolbeinn Guðnason, Engjavegi 10, Selfossi. Heiðvig H. Andersen, Suðurgötu 52, Siglufirði. Kristín Steindórsdóttir, Skyggni, Hrunamannahreppi. 50 ára Einar Magnússon, Hvannalundi 13, Garðabæ. Jón Anton Magnússon, Holtagötu 3, Kaldrananeslireppi. Leifur Sigurösson, Kvígsstöðum, Andakílshreppi. Guðrún Áslaug Ámadóttir, Kerlingardal, Mýrdalshreppi. Elías Sveinssonj Brautarholti I, IsafirðL Uros Ivanovic, Álftamýri 2, Reykjavík. Jóhanna Friðriksdóttir, Skeijavöllum 4, Kirkjubæjar- klaustri. Þorsteínn Magnússon, Byggðavegi 92, Akureyri. Hafsteinn Björnsson, Háarifi 61, Rifi, Neshreppi. Hákonarstöðum 1-2, Jökuldals- hreppi. Hilmar S.R. Karlsson, Vesturbergi 78, Reykjavfk. Súsanna Halldórsdóttir, Stigahlíð 14, Reykajvík. Gunnar Haraldsson, Tjamarbóli 14, Seltiamamesi. Sigríður M.S. 1 Ú ■ Orrahólum 7. Reykjavík. Andlát Theodór A. Jónsson Theodór A. Jónsson framkvæmda- stjóri, Hátúni 12, Reykjavík, lést 7. júní. Theodór Arnbjöms var fæddur 28. júní 1939 á Stað í Staðardal í Steingrímsfirði og ólst upp á Hólma- vík. Hannlauk Samvinnuskólaprófi frá Samvinnuskólanum í Bifröst 1961 og var skrifstofumaður í lífeyr- isdeild Tryggingastofnunar ríksis- ins 1961-1964. Theodór var fulltrúi í endurskoöunardeild Trygginga- stofnunarinnar 1964-1973 og var for- stöðumaður Vinnu- og dvalarheim- ilis Sjálfsbjargar í Rvík frá 1973. Hann var einn stofnenda Sjálfs- bjargar 27. júní 1958 og var ritari Sjálfsbjargar, félags fatlaöra í Rvík, frá stofnun 1958-1960. Theodór var varaformaður Sjálfsbjargar, lands- sambands fatlaðra, 1959-1960, for- maður 1960-1988 og framkvæmda- stjóri landssambandsins frá 1988. Hann var í stjóm Bandalags fatlaöra á Norðurlöndum frá 1961, formaður 1968-1972 og varamaður í trygging- aráði Tryggingastofnunar ríkisins frá 1974. Theodór var í stjóm Sjúkrasamlags Seltjamamess frá 1974 og í bygginganefnd heilsu- gæslustöðvar á Seltjarnanesi 1974- 1978. Hann var í stjórn Hjálpar- tækjabankans frá stofnun 1976-1980 og í framkvæmdanefnd alþjóðaárs fatlaðra á vegum félagsmálaráðu- neytisins 1980-1981. Theodór hefur verið varamaður í stjórn Örykja- bandalags íslands frá 1988. Hann var ritstjóri Skólablaðs Samvinnu- skólans 1960-1961 og Sjálfsbjargar, timarits fatlaðra 1960-1967. Theodór var sæmdur heiðursmerki Rauða kross íslands 1974, riddarakrossi fálkaorðunnar 1981 og gullmerki Sjálfsbjargar 1988. Theodór kværit- ist 6. janúar 1973, Elisabetu Jóns- dóttur, f. 31. október 1941, fram- kvæmdastjóra. Foreldrar Elísabetar vom, Jón V. Guðjónsson, fram- kvæmdastjóriá Seltjarnamesi, og kona hans, Gyða Valdimarsdóttir, iðnrekanda í Rvík. Fósturböm The- odórs voru Bjami Sigurðsson og Kristín Sigurðardóttir. Bróðir Theo- dórs er Ragnar Skagfjörð, f. 1930, matvælaverkfræðingur í Þýska- landi. Foreldrar Theodórs voru Jón Sæ- mundsson, verslunarmaður í Rvík, og kona hans, Elín Helga Tómas- dóttir. Jón var sonur Sæmundar, b. í Aratungu, Jóhannssonar, b. í Ara- tungu, Hjaltasonar, b. í Hólum, Jónssonar, b. á Grænanesi, Jóns- sonar. Móðir Jóns var Margrét Gunnlaugsdóttir, Torfasonar, prests í Kirkjubólsþingum, Bjarna- sonar. Móðir Torfa var Margrét Torfadóttir, systir Páls, langafa Þor- kötlu, ömmu Jóns Sigurðssonar for- seta. Móðir Jóns var Helga Jóns- dóttir, h. á Svanshóli í Bjarnafirði, Arngrímssonar, b. í Krossnesi, Jónssonar, b. í Ingólfsfirði, Alexíus- sonar. Móöir Jóns var Þorbjörg Halldórsdóttir, prests í Ámesi Magnússonar, prófasts á Staö í Steingrímsfirði, Einarssonar, próf- asts á Staö, Sigurðssonar, prófasts á Breiðabólstað í Fljótshlíð, Einars- sonar, prófasts og skálds í Heydöl- um, Sigurðssonar. Móðir Jóns á Svanshóh var Elísabet Jónasdóttir, b. á Krossanesi, Jónssonar og Ingi- bjargar Guðmundsdóttur, prests í Árnesi, Bjarnasonar. Móðir Elísa- betar Jónsdóttur var Guðríður Páls- dóttir, b. á Kaldbak, Jónssonar og konu hans, Sigríðar Magnúsdóttur, ættforeldra Pálsættarinnar. Ehn var dóttir Tómasar, b. 4 Spáná í Unadal, Björnssonar, b. á Á, Sigurðssonar, b. á Brúarlandi, Sigurðssonar. Móðir Sigurðar var Sigríður Hákonardóttir, b. á Hval- nesi, Einarssonar. Móðir Hákonar var Sigríður Gunnarsdóttir, systir Guðmundar, fóður Gunnars á Skíðastöðum, ættfóður Skíðastaða- ættarinnar. Móðir Elínar var Ingi- leif Jónsdóttir, b. í Saurbæ á Neðri- bygð, Guðmundssonar og konu hans, Sigríðar Þorleifsdóttur, b. á Botnastöðum, Þorleifssonar, b. og hreppstjóra í Stóradal, Þorkelsson- ar. Móðir Þorleifs var Ingibjörg Guðmundsdóttir, b. í Stóradal, Jóns- sonar, b. á Skeggsstöðum, Jónsson- ar, ættfóður Skeggsstaðaættarinn- ar. Móðir Sigríðar var Ingibjörg, systir Einars, fóður Indriða rithöf- undar. Ingibjörg var dóttir Magnús- ar, prests í Glaumbæ, Magnússonar Theodór A. Jónsson. og konu hans, Sigríðar, systur Bene- dikts, langafa Einars Benediktsson- ar skálds og Bjargar, móður Sigurð- ar Nordals. Sigríður var dóttir Hall- dórs Vídalíns, klausturhaldara á Reynistað, Bjamasonar. Móðir Halldórs var Hólmfríður Pálsdóttir Vídalíns, lögmanns í Víðidalstungu. Móðir Páls var Hildur Amgríms- dóttir lærða, vígslubiskups á Mel- stað, Jónssonar. Sjálfsbjörg, lands- samband fatlaðra, hefur stofnað sjóð til minningar um Theodór og er gírónúmer hans 292400. Theodór verður jarðsunginn frá Hallgríms- kirkjukl. 13.30 ídag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.