Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1989, Qupperneq 2
20
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 1989.
Akureyri_______________________________py
„Ég veit ekki neitt
skemmtilegr a en flugið''
- segir Gestur Einar Jónasson útvarpsmaður, fyrrum leikari og nýbakaður einkaflugmaður
Gyifi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Það má segja að ég haíi verið að
sniglast í kringum flug og flugmenn
alveg fá því ég man eftir mér. Pabbi
var flugumferðarstjóri á Akureyrar-
flugvelb og ég var að þvælast þar
öllum stundum. Það var því snemma
ljóst að ég ætlaði mér að læra eitt-
hvað sem tengdist fluginu, flugið
sjáift eða flugumferðarstjórn.“
Það er Gestvu- Einar Jónasson sem
hefur orðið en þótt flugiö sé aðalá-
hugamál hans er Gestur þekktari
fyrir annað. Hann lék um árabil hjá
Leikfélagi Akureyrar, lagði síðan
fyrir sig blaðamennsku en hefur að
undanfomu starfað hjá Ríkisútvarp-
inu á Akureyri við fréttaöflun og
dagskrárgerð. En við ætluðum að
ræða um flugdelluna að þessu sinni.
„Ég var ekki nema 16-17 ára þegar
ég fór að læra flug og fór í bóklegt
einkaflugmannspróf þegar ég var 18
ára. Það er skemmst frá því að segja
að ég náði ekki prófinu og er þetta í
eina skiptið sem hef fallið á prófi.
Hins vegar gafst ég ekki upp, fór í
prófið.árið eftir og náði því þá.“
Ýmislegt varö til þess að Gestur
hætti í fluginu, hann vann langan
Gestur Einar hugar að vélinni á Akureyrarflugvelli áður en haldið er I loftið.
Hér er Gestur kominn upp í vélina, í sæti flugmannsins og senn var haldið
I loftið. DV-mynd gk
vinnudag á þessum árum, m.a. við
malbikun gatna á Akureyri, og síðan
tók leikhúsið við með mikilli vinnu
á öllum tímum dags og á kvöldin.
En flugbakterían er lífseig og við
hana losnaði Gestur ekki. Því var það
fyrir rúmum tveimur ánun að hann
dreif sig í bóklega einkaflugmanns-
prófið í þriðja skiptið og það stóð
ekki fyrir honum. Síðan tóku flug-
tímamir við og nú fyrir skömmu
lauk hann verklega prófinu með
pompi og prakt.
„Ég veit ekki neitt skemmtilegra
en flugið. Mér líður mjög vel þegar
ég er kominn upp í loftið og ég er
alveg eins og nýr maður þegar ég er
búinn að fara í flug. Það er e.t.v. erf-
itt að lýsa því hvað veldur þessu, en
flugið er ögrandi og maður sér t.d.
landið sitt frá öðnr sjónarhomi og
kynnist því vel. Félagsskapurinn er
líka skemmtilegur, það em margir
skemmtilegir strákar í fluginu sem
maður er að kynnast og þetta er
virkilega skemmtilegt."
- Er ekki draumurinn að eignast
sína eigin vél og geta flogið hvenær
sem manni dettur í hug?
„Jú, auðvitað er það æskilegast að
eiga sína eigin vél, eða öllu heldur
hluta í vél, því menn kaupa oftast
vél nokkrir saman. En þaö þarf líka
að byggja skýh yfir vélamar svo
þetta er nokkur peningur. Það er
varla nokkurt vit í öðm þegar búið
er að taka þetta próf en hafa aðgang
að einhverri ákveðinni vél.“
- Hvert fljúga akureyrskir flugá-
hugamenn aðallega?
„Það er um ýmislegt að velja. Menn
eiga það til að skreppa í kaffi, t.d.
austur að Mývatni, fara á Sauðár-
krók, Siglufjörð, Ólafsfjörð, fram á
Melgerðismela, suður tU Reykjavík-
ur eða eitthvað annað, það er um
margt að velja. Ég hef sjálfur haldið
mig nærri Eyjafirðinum til þessa en
DV-mynd gk
flaug þó til Egilsstaða og Vopnafjarð-
ar í tengslum við prófið."
- Kemur til greina að þú getir nýtt
flugið í sambandi við t.d. fréttaöflun
fyrir útvarpið, fetað í fótspor Ómars?
„Vissulega er sá möguleiki fyrir
hendi en til þess þyrfti ég þó helst
að eiga mína eigin vél. Það er ekki
dýrara að nýta flugvél í ferðir út frá
Akureyri en t.d. bílaleigubíl. Ég hef
einu sinni sameinaö flugferö og
vinnu en það var einmitt þegar Stein-
grímur samgönguráðherra „tók
fyrstu sprengjuna“ við göngin í Ól-
afsfj arðarmúlanum," segir Gestur og
hver veit nema hann eigi eftirað slá
starfsbræðrum sínum við með því
að fljúga eftir fréttunum eins og flnn
maður?
Akureyrarblað
í 9.
Sérstakt Akureyrarblað kemur nú
fyrir augu lesenda DV níunda árið í
röð, en hefð er komin á það að gefa
slíkt blað út einu sinni á ári.
Staða DV á Akureyri hefur sífellt
eflst undanfarin ár og útbreiösla
blaðsins í bænum eykst stöðugt. DV
var einmitt fyrsta dagblaðið sem réð
blaðamann í fast starf á Akureyri.
Skrifstofur DV og ritsfjóm fluttu
fyrir skömmu í nýtt húsnæði að
Strandgötu 25 og með tilkomu þess
sinn
batnaði öll aðstaða verulega. Þar er
sími biaðamanns 26613 en sími af-
greiöslu, sem er opin frá kl. 13-19
virka daga, er 25513 og þar er tekið
á móti auglýsingum og áskriftum.
Blaðamaður DV á Akureyri er
Gylfi Krisfjánsson. Akureyringar og
aðrir Norðlendingar em hvattir til
að hafa samband við hann þurfi þeir
að koma einhveiju á framfæri eða
hafa hugmyndir um fréttir eða annaö
efhi.
Aðsetur DV á Akureyri hefur nú verið flutt í nýtt húsnæði að Strandgötu 25.
DV-mynd gk