Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1989, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1989, Blaðsíða 10
28 MipyiKUDAGUR 14, JÚNÍ 1989. Akureyri „Eg varð hrein- lega að gera þetta'' - segir Helena Dejak, frumkvöðullinn að stofnun Ferðaskrifstofunnar Nonna á Akureyri Gyifi Kristjánason, DV, Akuieyii; „Hugmyndin að stofnun þessarar ferðaskrifstofu varð eiginlega til við eldhúsborðið heima hjá mér að Pétursborg. Mig hefur lengi langað til þess að gera eitthvað til þess að reyna að fá fleiri útlendinga til að koma til Akureyrar. Ég er búin að reka feröaþjónustu í Pétursborg í 8 ár, hef haft mest afskipti af útlend- ingum og hef auðvitað heyrt á þeim hvað þeir vilja helst geta gert hérna og hvað þeim finnst vanta hér í fermannaþjónustuna,“ segir He- lena Dejak um aðdragandann að stofnun Ferðaskrifstofunnar Nonna sem nýlega hefrn- tekið til starfa á Akureyri. „Mér frnnst ekki hafa verið gert nægjaniega mikið til þess að sýna fram á þá möguleika sem eru í móttöku erlendra ferðamanna hér fyrir norðan. Ég fór til Júgóslavíu til viðræðna við Kompas, sem er alþjóðleg ferðaskrifstofa með höf- uðstöðvar þar og ætlunin var að reyna að koma á ferðum Júgóslava og annarra Evrópubúa hingað til lands og um leið tók ég að mér sölu á ferðum íslendinga til Portoroz í Júgóslavíu. Niðurstaðan varð sú að Kompas var tíibúið í samstarf og nú er það komiö inn í þeirra sölukertí að selja ferðir til íslands.“ Varvöruðvið Það má segja að þetta sé þá í upp- hafi einkaframtak þitt í þeim tH- gangi að efla ferðamannastraum til Akureyrar? „Já, reyndar. Það reyndu margir að vara mig við, höfðu litla trú á þessu en það er eitthvað í mér sem olli því að ég gafst ekki upp. Mér þykir mjög vænt um ísland og sér- staklega Norðurland og ég varð hreinlega að gera þetta. Eg vil sýna að það sé hægt að reka ferðaskrif- stofu hér sem leggur höfuðáherslu á ferðir útlendinga hingað í stað þess að hugsa bara um að fara með Islendinga í ferðir til útlanda.“ Hvernig er markaðurinn í Júgó- slavíu fyrir ferðir til íslands, er mikill áhugi? „Júgóslavar ferðast mikið um all- an heim og hvers vegna þá ekki til íslands? Mér tókst að telja mönn- um í Júgóslavíu trú um að ísland Þótt Helena sé drifkrafturinn í starfsemi Ferðaskrifstofunnar Nonna og eigi öðrum fremur heið- urinn af því að koma fyrirtækinu á laggirnar stendur hún ekki ein að þvi. Hluthafar ásamt henni eru Iönþróunarfélag Eyjafjarðar, Ferðaskrifstofan Atlantíc, júgó- slavneska ferðaskrifstofan Kompas og vinkona Helenu, Guörún Hall- grímsdóttír. Nonnanafnið erþekkt Helena Dejak á skrlfstofu sinni. væri mjög fallegt land og mér tókst að fá menn inn á það að reyna þetta. Málið er nú komið það langt að fyrstí hópurinn kemur hingað til lands 12. júií. Það verður flogið frá Júgóslavíu til Frankfurt og það- an til íslands. Það eru ekki bara Júgóslavar sem verða í þessari ferð, einnig ítalir, Austurríkis- menn og Þjóðverjar. Það eru engin vandamál við að flnna eitt og annað fyrir þetta fólk að gera. Við bjóðum m.a. göngu- feröir á Súlur og Glerárdal, rútu- ferðir um Norðurland og ferðir á hestum svo eitthvað sé nefnt. Möguleikarnir eru svo sannarlega fyrir hendi hér.“ „ísland er sérstakt" Verður þú ekki vör við að fólki finnist ferð til íslands vera dýr? „ísland er dýrt land. Það eru Fen- DV-mynd gk eyjar lika en fólk fer þangað samt. Ef fólk er að leita aö einhveiju sér- stöku fer það þangað sem það er að finna og vill borga fyrir það. ís- land er mjög sérstakt, eina landið í heiminum sem er með hreint loft og hreint land og það á ekki að vera ódýrt að ferðast hingað. Ég sel þetta þannig aö ísland sé sérstakt land, og þeir sem hafa áhuga á því að kynnast landinu verða að borga fyrir það.“ En hvers vegna heitir ferðaskrif- stofan Nonni? Er það vegna Jóns Sveinssonar? „Já, ég vildi velja nafn á ferða- skrifstofuna sem tengdi hana órjúf- anlega við Akureyri. Það komu ýmis nöfn upp í hugann en nafnið Nonni varð ofan á ýmissa hiuta vegna. Nonnanafnið er mjög þekkt í Júgóslavíu og viðar í Evrópu og það er einnig auðvelt í munni út- lendinga. Jón Sveinsson gerði mjög mikið fyrir Akureyri og mér finnst að Nonni standi nálægt mér í því sem ég er að gera. Ég fór því til fógeta og festí þetta nafn á ferða- skrifstofuna." Helena hefur verið á íslandi í 15 ár og segist hreinlega hafa orðið ástfangin af landinu strax og hún kom hingað. „Ég er orðin íslend- ingur enda á ég heima hér. Það er svo skrítíð að þegar ég kom hingað fyrst og steig út úr flugvéhnni fannst mér eins og ég væri komin heim. Ég veit ekki hvernig ég á að útskýra þetta, en svona er það bara.“ - Miklir möguleikar Ert þú bjartsýn á rekstur ferða- skrifstofunnar? „Já, ég hlýt að vera það. Sú bjart- sýni þýðir þó ekki að ég reikni með miklum peningum í kassann fyrstu árin en bjartsýnin byggist á því að þetta framtak verði tíl þess aö þjappa Akureyringum og Norð- lendingum saman um að gera átak í ferðaþjónustu sinni því á þessu sviði eru mjög mikhr ónýttir mögu- leikar," sagði Helena Dejak. Orð dagsins á Akureyri: „Fólk er mjög þakklátt fyrir þessa þjónustu" - segir Jón Oddgeir Guðmundsson Gylfi Kiistjánsaon, DV, Akureyn: „Orð dagsins. Ofurmagn kraftsins sé Guös en ekki frá oss. Síðara Kor- intubréfið, 4.7. Trúin hefur meðtekið kraft tíl aö sigra syndina, standast freistinguna, þola þrautir, vinna þrekvirki, vera sterkust þegar mest reynir á, sjá færa leið þegar sundin lokast. Þetta gerist svo lengi sem við áköUum Guð í trú, hann er þjálparinn og lífgjafinn, hann hefur gefið okkur hæfileika trúar og trausts, frá honum einum kemur mátturinn. Þess vegna ber honum heiður og dýrð því hans er mátturinn ævinlega. Drottinn Guö blessi þig og varð- veiti í Jesú heUaga nafni, amen.“ Þannig hijóðaði boðskapurinn sem hijómaði er hringt var í síma 21840 á Akureyri þriðjudaginn 23. maí sl. Um er að ræða „Orö dagsins" þar í bæ en þessa þjónustu hafa Akureyringar getað notfært sér í 18 ár. Sá sem veit- ir þessa þjónustu á eigin vegum heit- ir Jón Oddgeir Guðmundsson, fer- tugur bæjarbúi sem var því rétt um tvítugt þegar hann hóf að lesa orð dagsins inn á símsvara. „Kveilqan að þessu var sú að ég var hjá vini mínum í heimsókn. Hann haföi verið aö hlusta á breska útvarpið og þar var verið að segja frá símsvara sem nýlaga var búið að setja í gang. Okkur fannst æskUegt að koma þessari þjónustu á fót hér fyrir norðan, fólk gæti hringt og hlustað á guðsorð og heyrt það út- skýrt í fáum orðum. Ég hugleiddi þetta, fékk tíl Uðs við mig góða vini til að setja saman stuttar hugleiðing- ar auk þess sem ég sjálfur samdi hugleiðingar á las þær inn á band.“ Og síðan hefur ekki faUið úr dagur og ávaUt er skipt um texta eftir hvem dag. En hversu mikiö er hringt í sím- svarann? „í dag eru sennUega að jafhaði um 30 hringingar á dag. Þær hafa heldur aukist að undanfómu og mest fara þær í um og yfir 60 á einum degi. Notkunin er því mikU og þörfin á Jón Oddgeir Guðmundsson hefur 118 ár séð um að Akureyrlngar geti hlust- að ð „Orð dagsins". DV-mynd gk þessu og fólk er mjög þakklátt fyrir þessa þjónustu." Hefur þú að öðm leyti haft mikU afskipti af trúmálum? Ég er virkur félagi í KFUM og hef veriö frá blautu bamsbeini. Þá sit ég í sóknamefhd Akureyrarkirkju og ég hef unniö við sumarbúðir KFUM að Hólavatni. Símaþjónustuna hef ég hugsað þannig að í símsvarann gæti fólk hringt sér til uppörvunar og huggunar og að þessi orð, sem flutt em, séu tii styrktar og uppörvunar fólki sem á í erfiðleikum," sagði Jón Oddgeir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.