Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1989, Side 27
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 1989.
45
Gunnar Öxndal Stefánsson við „vélina sina“, tvítuga lóskurðarvél sem
DV-mynd gk
enginn hefur snert við nema hann.
Gunnar Öxndal Stefánsson
„Ég man
tímana tvenna
hérna"
- en hann hefur starfað í tæplega 40 ár hjá Gefjun og Álafossi
Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri:
„Það hafa orðið gífurlegar breyt-
ingar hérna síðan ég byrjaði hér
fyrir tæplega 40 árum, óhætt að
segja að ég muni tímana tvenna
síðan ég byrjaði að vinna hér,“ seg-
ir Gunnar Öxndal Stefánsson sem
starfar í vefdeildinni hjá Álafossi á
Akureyri.
Gunnar hóf störf hjá Gefjun í
desember 1949, þá 14 ára gamall,
og sendlastörf og ýmis önnur störf
voru það sem hann fékkst við til
að byrja með. Hann hefur einnig
starfað á lager en lengst af hefur
hann þó verið í vefdeildinni. „Það
má segja að ég hafi verið í tauinu
mestallan tímann og ég kann því
bara vel. Ég hef unnið hér á ýmsum
vélum, s.s. við lóskurð og annan
frágang.
Ég missi aldrei dag úr vinnu, þó
getur verið að ég hafi veriö veikur
í einn dag eða svo, það er nú ekki
meira,“ segir Gunnar. Hann bendir
á eina vélina og segir: „Þessi vél
er búin að vera héma í 20 ár og það
hefur ennþá enginn unnið eitt
handtak á henni nema ég.
Þótt fyrirtækið sé vel vélvætt í
dag hefur ekki alltaf verið svo og
þegar Gunnar var ungur strákur í
gömlu Gefjun var það handaflið
sem réð. „Þetta var allt unnið í
höndunum í gömlu verksmiðjunni.
ÖIl efnin voru t.d. vafin upp í hönd-
unum og strangamir síðan bomir
á bakinu langar leiðir, þetta var
forneskjulegt og erfitt. Það er því
ekki saman að líkja þessum tíma
og vinnuaðstöðunni í dag.“
- Laun iðnverkafólks hafa aldrei
þótt neitt til að hrópa húrra yfir
og það gerir Gunnar ekki.
„Já, launin hafa álltaf verið lág
og mikið um yfirvinnu. Bónusinn
kom hins vegar til skjalanna fyrir
nokkrum ámm og þá batnaði þetta
nokkuö.“
„Þeir ættu aö prófa að lifa á þess-
um launum, þessir æðstu menn,“
segir nú Áslaug Jónasdóttir, kona
Gunnars, sem kemur að en hún
hefur starfað í fyrirtækinu í um 30
ár. Þau hjón hafa því skilað nokkr-
um dagsverkunum í Gefjun og síð-
an hjá Álafossi. „Ég er nú orðin 60
ára og fór í fýrsta skipti til útlanda
í þriggja daga ferð fyrir tveimur
árum. Þótt þetta væri ekki nema
þriggja daga ferð til Glasgow var
ég marga mánuði að borga lán sem
ég tók til að komast í þessa ferð,“
bætir hún við.
„En okkur líkar vel hérna,“ segir
Gunnar. „Ég væri ekki búinn að
vera svona lengi hérna ef mér lík-
aði ekki vel og ætli maður fari
nokkuð héðan nema maður verði
rekinn,“ segir hann og hlær. „Hér
hafa alltaf verið yndislegir yfir-
menn og þá ekki síst núna í dag,“
segir Áslaug og þrátt fyrir að laun-
in séu ekki há sýnir það hvað þau
hafa starfað lengi í fyrirtækinu að
þeim hefur líkað vel.
KOMIÐ, SJÁIÐ OG SANNFÆRIST - HONDA ER BETRIBÍIL
/ICCORD
HONDA ACCORD
árgerð '89, 4 d. EXS.
Sjálfskiptur með öllu.
Verð kr. 1.263.000,00.
(H)
BÍLAR SEM VEKJA ATHYGLI!
Cl VIC HONDA CIVIC SHUTTLE árgerð '89. 4WD.
116 Din hestöfl. Verð aðeins kr, 1.030.000,00.
HONDA CIVIC SPORT
árgerð '89. 75/90/130
hestöfl.
Verð frá kr. 715.000,00
(H)
GREIÐSLUSKILMÁLAR
VIÐALLRA HÆFI.
Honda á íslandi: Reykjavík, sími 689900 - Þórshamar hf., Akureyri