Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1989, Síða 25
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 1989.
43--
Akureyri
,,Nægur tími
til að hugsa"
- segir Sigurbjöm Sveinbjömsson kranamaður
Gamli kraninn „að störtum" í miðri nýju fiskihöfninni á Akureyri.
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Ég held að þessi krani sé af árgerð
1961 og að hann hafi verið fluttur
hingað ijl lands notaður," sagði Sig-
urbjöm Sveinbjömsson sem við hitt-
um í miðri nýju fiskihöfninni á Ak-
ureyri.
í miðri höfninni, já, því þar var
Sigurbjöm að störfum á þessum eld-
gamla P og H krana sem sennilega
hefur komið hingað til lands frá
Þýskalandi þótt hugsanlegt sé að
hann hafi verið smíðaður í Banda-
ríkjunum.
En sá gamh stendur fyrir sínu og
á honum vinna þeir baki brotnu, Sig-
urbjörn og Hermann Jónsson sem
mun reyndar hafa verið með þessa
gömlu gröfu lengi. Það lætur hátt í
gripnum þegar hann er í gangi og
þeir félagar skiptast á um að sitja við
stjómtækin.
„Það er mikill hávaði. Hins vegar
er þetta ekki starf sem krefst mikillar
einbeitingar svo það er nægur tími
til að hugsa,“ sagði Sigurbjöm.
Margir voru vantrúaðir á að hægt
væri að dýpka höfnina með þessum
gamla krana eingöngu en það virðist
ætla að takast. Fyrst var dýpkað við
viðlegukant sem þegar hefur verið
gengið frá. Síöan lá leið gamla kran-
ans út í höfnina sjálfa miðja og hon-
um var ekið eftir uppfyllingu úr efni
sem hann tók sjálfur úr botni hafnar-
innar. Þannig verður haldið áfram
og það bendir ekkert til annars en
að þessi tæplega þrítugi krani muni
ljúka sínu verki.
Konic
Sigurbjörn Sveinbjörnsson við stjórntækin í gamla krananum.
DV-myndir gk
PUSTKERFIN FRA FJOÐRINNI
Gæðavara úr álseruðu efni sem gefur 70-80% betri endingu gegn ryði.
KYNNTU ÞÉR OKKAR VERÐ ÁÐUR EN ÞÚ LEITAR ANNAÐ