Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1989, Síða 22
;40
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 1989.
Akureyri
„Eg reyni bara að taka
lífinu eins og það er"
- segir Julio Eduardo Soares Geto frá Grænhöfðaeyjum
„Júili“ ásamt fjölskyldu sinni, eiginkonunni Arlindu og börnunum Nadine og Magna. DV-mynd gk
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Þeir sem þekkja hann kalla hann
sjaldan annað en Júlla en rétta
nafn piltsins er Julio Eduardo So-
ares Geto og hann kemur frá Græn-
höfðaeyjum. Júlli hefur verið á
Akureyri lengst af síðan árið 1981.
Nú er fjölskylda hans komin til
hans, kona og tvö böm, og það er
ekki að heyra á Júlla að neitt farar-
sniö sé á honum og hans fólki.
„Ég kom fyrst til íslands í des-
ember árið 1981. Á þeim tíma hafði
Þróunarsamvinnustofnun íslands
verið með togarann Bjart á Græn-
höfðaeyjum og það var verið að
kenna okkur þar að veiða. Þá hafði
verið ákveðið að fara með Bjart til
íslands vegna þess að hann hentaöi
ekki að öllu leyti til þessa starfs og
hafin var smíði á öðru skipi, Feng,
sem síðar tók við hlutverki Bjarts.
Ég kom hingað með vini mínum
sem var skipstjóri á Bjarti og síðan
þróuðust málin þannig að ég var
meira og minna að fylgjast með
smíðinni á Feng. Ég fékk einnig
aðstoð til að fara í nám og fór að
læra vélvirkjun. Ég er ekki búinn
að ljúka því námi alveg en stefni
að því að gera það áður en langt
um líður.“
Júlli fór svo til Grænhöfðaeyja þeg-
ar Fengur hélt þangað en hann
sneri síöan aftur til Akureyrar.
Hvað olli því?
„Æth það hafi ekki verið vegna
þess að héma em meiri möguleik-
ar, t.d. varðandi vinnu. Mér líkaði
vel hér, eignaðist hér vini sem ég
saknaði og þess vegna m.a. kom ég
aftur. Konan min og börnin tvö
komu líka og hér emm við enn.“
- Hvernig hefur fjölskyldunni
gengið að aðlaga sig hér, ísland og
Grænhöfðaeyjar em gjörólík lönd
á flestan eða allan hátt?
„Það má segja að það hafi verið
erfitt í fystu. Konan mín átti t.d. í
erfiðleikum með að venjast lífinu
héma. Hún var hka bundin heima
yfir börnunum til að byrja með og
kynntist fáum en eftir að hún gat
farið að vinna úti hefur þetta batn-
að mikið. Krakkarnir hafa aðlagað
sig vel öhu hér og strákurinn, sem
er eldri, hefur náð valdi á íslensku
og er byijaður í skóla og líkar vel.“
- Lífið hér hlýtur samt að vera
mjög frábmgðið lífinu á Græn-
höfðaeyjum, þó við nefnum ekki
annað en veðrið.
„Já, en það þýðir ekkert að vera
að hugsa neitt um það, ég reyni
bara að lifa hfinu eins og það er,
það skiptir ekki öllu máh þótt veö-
urfarið sé öðruvísi. Spjórinn í vetur
minnti mann á hvar maður er í
heiminum. Haustið var ágætt og
fyrri hluti vetrarins en síðan kom
mikih snjór. Þetta er vissulega frá-
brugðið því sem er heima á Græn-
höfðaeyjum. Þar fer hitinn stund-
um yfir 30 stig og er að meðaltali
24-26 stig yfir árið. Það er því
stundum of heitt þar og ágætt að
kynnast nýju veðurfari. Ég tek
þessu bara eins og öðm sem við
ráðum ekki við,“ sagði Júhi, eða
Julio Eduardo Soares Geto, að lok-
um.
kl. 12.00-16.00
SYNING
SUNNUDAG
Umboðsaðílí á Akureyrí:
SEGLAGERÐIN
ÆGIR
Plaststóll
verð kr. 950
staðgreitt
Furusett
með púða, hægt að
brjóta saman, kr. 21.508
- stgr. 20.432.
Innifalíð: Eldavél, ísskápur, hítari.
Eitt með öllu, reíst á 4 mínútum.
Við fengum nokkur felli-
hjólhýsi með fortjaldi á kynn-
ingarverði.
Nokkur sýningareintök:
Evfförð
HjaTteyrargötu 4 — simi 96-25222
SEGLAGERÐIN
ÆGIR
EYJARSLÓÐ 7 - SÍMI 621780
Strandgötu 25
Akureyri
Afgreiðsla og
smáauglýsingar
Sími
25013
Ritstjórn
Sími
26613
Heimasími
blaðamanns
25384
Opið virka daga
kl. 13-18
laugardaga
kl. 11-13
Akureyri