Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1989, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1989, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚMl 1989. ' Hetjurnar sjö“. - Frá vinstri: Skjöldur, Óiafur, Gunnar, Dúi, Víkingur, Felix og Þorsteinn DV-myndir gk Djöfulgangur í íþrótta- húsinu við Laugargötu - þegar nafnlausa „skallboltaliðið" æfir þar á þriðjudögum Þeir eru vígalegir þegar þeir ganga til leiks í litla íþróttasalnum við Laugargötu á Akureyri hvert þriðju- dagskvöld. Sennilega eru þeir sam- anlagt einn alþyngsti íþróttahópur hér á landi og þyrfti sennilega að fara til Japans á vit súmú-glímu- manna þar til að finna samjöfnuð. Gylfi Kristjánsjon, DV, Akureyri: íþróttin, sem þeir iðka, er ekki stunduð víða hér á landi. Um er að ræða „skallbolta“ eða „skalltennis" sem fer þannig fram að tvö lið kepp- ast vjð að koma bolta yfir net eins og notaö er í blaki og má baaði sparka og skalla boltann yfir netiö. . Hópurinn í íþróttahúsinu við Laug- argötu notar blakbolta við iðju sína og-áð ájálfsögðu er leikið eftir ákveðnunr reglum sem óþarfi er að skýra nánar út hér. Þessi hópur, sem er reyndar nafnlaus, er orðinn rúm- lega 20 ára gamall og þeir sem skipa hópinn í dag eru lögreglumennimir Ólafur Ásgeirsson og Ingimar Skjóldal, Vikingur Bjömsson eld- vamareftirlitsmaður, Þorsteinn Pét- ursson, starfsmaður fógeta og fyrr- verandi lögreglmnaður, Dúi Bjöms- son kirkjugarðsvörður, Tómas Búi Böðvarsson slökkviliðssljóri, Stefán Stefánsson lagermaður og Gunnar Helgason rafvirki. Þá em tveir ótald- ir, Felix Jósafatsson lögreglumaður, sem að sögn Ólafs Ásgeirssonar er varamaður enn sem komið er, og Jón Sigurgeirsson heiðursfélagi. Sá er áttræður að aldri, búsettur erlendis eins og er en gefur hinum ekkert eft- ir þegar hann er viðstaddur. Það gengur mikið á þegar þessir kappar djöflast við að koma boltan- um yfir netið, og það em ekki ein- göngu fætur og höfiið sem notuð em, raddböndin em þanin allan tímann „Gullskallinn“ beitir fætinum. Ólafur sýnir „bakdyrabragöið“ snjalia sem vekur ávallt mikia hrifningu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.