Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1989, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1989, Page 4
22 Akureyri MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 1989. STEFANIA AKUREYRI Stórgíæsilegt hlaðborð í hádegínti á ótrúlega lágti verðí, m.a.: 7-8 teg. af heítum mat, græmetí, hrísgrjón, kartöflur, súpa og glæsílegt brauðborð. Á kvöldín er okkar stór- kostlegí A la carte seðíll sem víð vorum að taka í gagníð. ALLAR VEITINGAR SJÁUMST í SUMAR ____hóteí__________ STEFAHIA Hafnarstrætí 83-85, símí 96-26366 á veginn! Hraðakstur er orsök margra slysa. Miðum hraða alltaf við aðstœður, m.a. við ástand vega, færð og veður. Tökum aldrei áhættul ||u^b«ar Hansína í Dala- kofanum - er hrifnust af íþrotta- og hljómsveitarmönnum" Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri; Þeir skipta orðið mörgum þúsund- um, feröalangarnir sem hafa gist hjá Hansínu Jónsdóttur eða „Hansínu í Dalakofanum" á Akureyri þegar þeir hafa átt leið þar um. I 12 ár hefur þessi geðþekka kona rekið gistiheim- ili sitt og það þarf ekki annað en að líta í gestabækur hennar til að sjá að gestir hennar hafa haldið þakklát- ir áfram ferðinni að lokinni gistingu. „Ég opnaði í maí árið 1977 og fyrstu gestimir, sem komu, voru hljóm- sveitin Haukar, alls 8 manns,“ segir Hansína. „Þá átti ég tvær sængur, keypti tvær til viðbótar, fékk fleiri lánaðar og þetta gekk allt saman upp. í dag á ég hins vegar nóg af sængum, a.m.k. tuttugu,“ segir hún og hlær þegar hún rifjar upp þessa byrjun sína í gistihúsarekstri en þá var hún 57 ára að aldri. Öll árin, sem Hansína hefur rekið gistiheimili sitt, hafa komið til henn- ar hópar fólks og Hansína segir: „Ég er hrifnust af íþróttamönnum og hljómlistarmönnum, þeir eru mínir uppáhaldsgestir. Það hafa aldrei ver- ið nein vandræði með íþróttamenn- ina, þeir reykja ekki einu sinni og fá ekki að fara út á kvöldin. Hljómlist- armennimir era einnig reglumenn í dag því annars fá þeir enga vinnu.“ Hún nefnir nokkra hljómhstarmenn sem hafa oft gist hjá henni, s.s. Magn- ús Kjartansson, Stuðmenn og Bubba Morthens en segir að hann sé nú reyndar hættur að gista hjá sér. - Hefur aldrei dregið til tíðinda hjá þér, t.d. vegna ölvunar gesta? „Það get ég ekki sagt. Ef eitthvað er í uppsiglingu segi ég bara við strákana að þeir skuli gjöra svo vel að vera góðir. Ég er svo gömul að ég gæti verið amma þerra og þeir gegna mér ævinlega.“ Hansína segir einnig mikið um að fólk, sem sé á leið á ættarmót, gisti hjá sér og hún talar jákvætt um það að fá fjölskyldufólk í gistingu. „Það er reyndar allt fólk gott ef maður bara kemur vel fram viö það,“ segir Hansína. Á henni er engan bilbug að finna þótt hún sé að verða sjötug. „Ég ætla ekki að hætta þessu fyrr en ég nauðsynlega þarf, ég held ég verði svo gömul ef ég hætti að vinna," seg- ir hún og meinar greinilega hvert orð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.