Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1989, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1989, Blaðsíða 5
MIÓVIKUDAGÚR 14. JÚNÍ ító. Akureyri Hlynur og Andri við afgreiðsluborð „Pizza Elefant" með pitsu á milli sín. DV-mynd gk Pizza Elefant á Akureyri: Fórum út í þetta af ævin- týramennsku - segja Hlynur Jónsson og Andri Gylfason Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Þessu hefur verið geysilega vel tekið og við höfum ekki gert neitt til þess að auglýsa okkur,“ segja þeir Hlynur Jónsson og Andri Gylfason, tveir ungir Akureyringar sem reka veitingastaðinn Pizza Elefant á Ak- ureyri. Veitingastaður þeirra er á 2. hæð hússins Hafnarstræti 100 þar sem Bleiki fillinn er til húsa. Það er Spán- verjinn Antonio Melado sem rekur Bleika fílinn en þeir Hlynur og Andri pitsastaðinn sem sjálfstæða einingu þar inni. „Viö fórum út í þetta af algjörri ævintýramennsku" segja þeir félag- ar en hvorugur þeirra hefur starfað við slíkan rekstur fyrr. Reyndar var Hlynur að læra matreiðslu á Hótel KE A en hefur nú gert hlé á því námi. Þeir segja að hugmyndin um rekst- ur staðarins hafi kviknað yfir kafíi- bolla á Uppanum sem er annar veit- ingastaður í hjarta Akureyrar. Þeir opnuðu svo á „B-daginn“, 1. mars, með pompi og prakt. Eins og nafn staðarins gefur til kynna er höfuðá- herslan lögð á pitsur en einnig eru þeir nú að hefja frcunleiðslu og sölu á matarpönnukökum. Úrvahð af pitsunum er mikið en vinsælust er „Milano" sem er með tómati, osti, nautahakki, pepperoni, sveppum, lauk og grænum pipar. Þá er sjávar- réttapitsa mjög vinsæl en hún er með túnfiski, kræklingum, rækjum og hvítlauksolíu. Verðið á pitsunum er frá 330 krónum. oo 23 PHILIPS KANN TÖKIN Á TÆKNINNI Sýnishorn af fjölþættri framleiðslu Philipstækja: Myndbandstæki Þvottavélar Hrærivélar Litsjónvörp Uppþvottavélar Matvinnsluvélar Videoupptökuvélar Frystikistur Örbylgjuofnar Hljómtæki Rakvélar Gufugleypar Geislaspilarar Ryksugur Staujárn Bíltæki Kaffivélar Grillofnar Útvarps- og segulbandstæki Brauðristar Djúpsteikingarpottar Kæliskápar Hárblásarar Ljósaperur þekkja allir þegar minnst er á góðar þvottavélar og t.d. kæliskápa Sambyggðar þvottavélar og þurrkarar Úrval kæliskápa Stórir amerískir kæliskápar AKVRVÍK ÍS hf., Glerárgötu 20, 600 Akureyri, sími 96-22233/22232 I Viö hjá B & L erum stoltir af aö kynna nýja og endurbætta Lada Samara. Lada Samara hefur nýja og kraftmikla 1500 cc vél og fæst nú bæöi 3 og 5 dyra. Lada Samara er rúmgóöur, framhjóla- drifinn fjölskyldubíll, meö góöa fjöörun og aksturseiginleika, sem gerir hann sérstaklega hentugan fyrir íslenska staöhætti. Lada Samara svo sannarlega kærkomin kjarabót fyrir íslenskar fjölskyldur. 3ja d. 1300 399.617.- 3ja d. 1500 444.091.- 5 d. 1300 456.873.- d. 1500 485.446.- Framhjóladrifinn bíll á undraverði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.