Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1989, Page 6
24
Akureyri
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 1989.
DV
„Það þurfti að
hrista upp í þessu"
- s,egir Einai' Viðarsson bakari sem býður stóru brauðgerðunum á Akureyri birginn
Með tveimur afgreiðslustúlkum í versluninni. DV-mynd gk
góðra veiga
og veitinga
þarscm umhverfið vekuránægju
I veitingasafnum okkar, Hðfdabcrgi. er boðið upp
á f)ölbreytuin og Jjúífengan mat og drykk í nýjum
oggfæsalegum húsakynnum.
Undabcrg er notaleghr, nýttskutegur bar, par er goit
að s«tja og rabba saman yfir glasi af góðu víni.
Við viljum cinníg vekja alhygií á matstofunni, Súitm-
bergiÞar fasftirvai góðra vcitinga á hóflcgu verði.
HOTEL KEA
Hatnarstræii 87-8Ú ■ 600 Akurevri - Fósthölí 283
AKIREYRI
Einar að störtum í bakaríinu.
DV-mynd gk
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Auðvitað tók ég vissa áhættu með
því að fara út í þennan rekstur hér
í bænum þar sem fyrir voru tvær
stórar brauðgerðir en það þurfti að
hrista upp í þessu, menn gátu gert
nánast hvað sem þeir vildu eins og
aö selja frosin brauð og ýmislegt þess
háttar," segir Einar Viðarsson, bak-
arameistari í Einarsbakaríi á Akur-
eyri.
Mörgum fannst hann tefla djarft
þegar hann réðst í það í byrjun árs-
ins 1978 að opna brauðgerð og versl-
un í bænum og hella sér út í sam-
keppni við stóru brauðgerðirnar
tvær í bænum, Brauðgerð Kr. Jóns-
sonar og Brauðgerð KEA, en það er
engan bilbug að finna á Einari.
„Þetta gekk strax miklu betur en
ég hafði nokkru sinni reiknað með.
Ég fékk bræður mína til að vinna
með mér í byijun, ætlaði að hafa þá
hjá mér nokkra daga, en þeir urðu
fastir í þrjár vikur vegna þess hversu
mikið var að gera þangað til ég var
búinn að ráða fólk til starfa,“ segir
Einar. í dag starfa hjá honum um 15
manns í 10 stöðugildum.
Einar lærði í Álfheimabakaríi i
Reykjavík, vann síðan sem verkstjóri
hjá brauðgerð Myllunnar þar til
hann flutti norður til Akureyrar.
„Ég kom með talsvert af nýjungum
í byrjun þegar ég opnaði og það er
alltaf reynt að koma með einhverjar
slíkar af og til,“ segir Einar. Hann
segir að íjárfestingar sínar í tækjum
og öðru viðkomandi bakaríinu nemi
nú um 25 milljónum króna og auk
afborgana hafi vaxtagreiðslur numið
um 3 milljónum króna á síðasta ári.
„Það er vissuiega erfitt að standa í
þessu og verður það í einhvem tíma,
en þessi verslun er ömgglega komin
til að verasegir Einar. Hann segir
að um 60% framleiðslunnar seljist í
brauðbúö hans, sem er í sama húsi
og bakaríið, en um 40% fari til versl-
ar.a og fyrirtækja í bænum.
Einar fyrir utan höfuðstöðvarnar við Tryggvabraut