Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1989, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1989, Page 12
MIÐVHKUPAGJW;14,:JÍINÍ, 1989. Akureyri dv „Samstarfið í bæjarstjóm hefur oftast verið gott'' - segir Gunnar Ragnars sem lét af störfum í bæjarstjóm í síðustu viku Gunnar Ragnars stýrir síöasta fundi sínum í bæjarstjórn Akureyrar í síðustu viku. DV-mynd gk Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri; Gunnar Ragnars lét af störfum í bæjarstjóm Akureyrar í síöustu viku. Þar hefur Gunnar setiö tvö undanfarin kjörtímabil fyrir Sjálf- stæðisflokkinn, nú hin síðari ár einn- ig sem forseti hæjarstjórnar. Jafn- framt því hefur hann í tuttugu ár veriö forstjóri Shppstöðvarinnar á Akureyri og í vor tók hann við starfi annars framkvæmdastjóra Útgerð- arfélags Akureyringa hf. DV hitti Gunnar að máli sama daginn og hann lét af störfum í bæjarstjóm og fyrsta spumingin var hvemig hon- um þætti meirihlutasamstarf Al- þýðuflokksins og Sjálfstæðisflokks- ins á yfirstandandi kjörtímabili hafa tekist. „Við settum okkur ýmis markmið að vinna að og ég tel að við höfum náð sumum og nálgast önnur. Eitt stærsta málið, sem við tókumst á við, var að fást við vandamál hita- veitunnar okkar, rekstrarvanda hennar og hvað taxtar hennar voru háir. Án þess að ég fari nánar út í þá sálma þá vom sköpuð skilyrði til að lækka taxtana til notenda um 20% sem var auðvitað verulegur ávinn- ingur.“ - Nú er það staðreynd að staða Hita- veitu Akureyrar er mjög slæm í dag, hefur ykkur ekki tekist þaö sem þið ætluðuð ykkur? „Það er rétt að hún skuldar gífur- lega mikið fé. Ég vil hins vegar vekja athygli á því að skuldasöfnun hita- veitunnar hefur verið stöðvuð. Það var gífurlega mikið vandamál varð- andi hitaveituna aö skuldir hennar fólust ekki einungis í stofnkostnaði heldur var reksturinn þannig ár frá ári að sífellt vom tekin ný lán til að fjármagna reksturinn og þaö var um skuldasöfnun að ræða á hverju ári. Þær skuldir, sem hitaveitan býr við í dag, era því ekki einungis vegna stofnkostnaðar heldur einnig til- komnar vegna haflareksturs hér áð- ur fyrr, en sá haflarekstur hefur ver- iö stöðvaður. Þótt ekki sé um stórar upphæðir að ræða hefur verið aðeins klórað í bakkann unfanfarin ár. Skuldir hafa að vísu hækkað vegna gengisbreytinga en nafnverð þeirra hefur ekki hækkað.“ Sjávar- útvegur stóraukist Gunnar víkur nú talinu að sjávar- útveginum, sem hefur stóraukist á Akureyri síðari ár, og stöðu atvinnu- fyrirtækja í bænum. „Hvað sjávarútveginn snertir hafa bæjaryfirvöld ekki komið beint þar inn í nema til aðstoðar og til að greiða fyrir en ég held að menn geti verið sammála um að sjávarútvegurinn hefur aukist mjög hér á Akureyri og hér á svæðinu og það er ekki síst vegna þess að hér kom uppsveifla. Hvað sem hver segir þá held ég því fram að meiri stöðugleiki og minni spenna á vinnumarkaði en hér var áður hafi hjálpað þar til. Um allt land hefur verið geysileg spenna sem hef- ur orsakast af vanstjórn efnahags- mála til margra ára. Ég fullyrði að ástandið hér á Akureyri að þessu leyti miðað viö landið í heild er þann- ig að við getum unað sæmilega við okkar hag. Fyrirtæki hér standa vel, það em engir stórir erfiðleikar, a.m.k. ekki hjá þorra fyrirtækjanna, og staða atvinnufyrirtækjanna er miklu betri en við mætti búast ef tekið er tiflit til þeirrar óstjómar sem hefur veriö í landinu og hefur leitt af sér geysilega erfiðleika víða um landið.“ Ánægður með samstarfið - Það má því segja að þú sért ánægð- ur með meirihlutasamstarf ykkar og Alþýðuflokksins. „í stórum dráttum tel ég aö þetta samstarf hafi verið gott. Það má auð- vitað bæta því við að það em fjórir flokkar í bæjarstjóm og mismimandi lífsviðhorf hjá því fólki sem fyllir þessa flokka. Þrátt fyrir það hefur samstarfiö í bæjarstjóm Akureyrar oftast verið gott. Við höfum auðvitað verið að glíma við mál sem em þess eðlis að lausnir á þeim eru ekki ýkja margar til þannig að í stórum drátt- um hefur ágreiningur ekki verið mikill. Það hefur verið gæfa bæj- arbúa að fulltrúar þeirra í bæjar- stjóm hafa yfirleitt ekki borist á banaspjótum. Áherslur manna em aö sjálfsögðu mismunandi. Ég fylli þann flokk sem telur að fyrst þurfi að treysta undir- stöðumar og þá komi hitt á eftir en aörir telja að útþenslan, þótt ekki sé oft til mikið fyrir henni, eigi að koma á undan. Við getum líka litið til þess að fjár- hagsstaða bæjarins er mjög góð og þá getum við líka sagt sem svo að við hér á Akureyri getum vel við unað miðað við marga aðra staði. Ef teknar em skuldir miðað við hvern íbúa þá er Akureyri í lægstu röð af sveitarfélögunum í landinu og fjár- hagur hæjarins fór mjög batnandi á síðasta ári. Þetta hefur gert það að verkum m.a. að við höfum haft svig- rúm til að standa í ýmsum verkefn- um. Miklar framkvæmdir Framkvæmdir Akureyrarbæjar og e.t.v. ekki síður ffamlag bæjarins til byggingar á félagslegu húsnæði hér hefur létt veruiega undir með bygg- ingariðnaðinum og orðið til þess að staðan í þeim iðnaði er mun betri nú en áöur var. ALHLIÐA TRYGGINGAR TM TRYGGING ER TRAUST FÁ Ferðaskrifstofa Akureyrar h/f Ráðhústorgi 3 SÍMI 25000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.