Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1989, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 1989.
41
Akureyri
VERÐLAUNAPENINGAR
stærð 42 mm.
Nonnahús:
Von á mik-
illi aukn-
ingu í sumar
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii:
Nonnahús á Akureyri var opnaö
gestum 1. júní sl. og verður opið
hvem dag fram til 1. september kl.
14-16.30. Einnig geta hópar, sem vilja
komast í húsið á öðrum tímum, pant-
að tíma í síma 23555.
„Við eigu von á mikilli aukningu
ferðamanna í Nonnahús í sumar,
ekki síst vegna sýningar á sjónvarps-
myndinni um Nonna og Manna bæði
hér heima og erlendis,“ sagði Ragn-
heiður Árnadóttir í samtali við DV,
en hún á sæti í Nonnanefnd Zonta-
klúbbs Akureyrar sem sér um rekst-
ur Nonnahúss.
Ragnheiður sagði að undanfarin ár
hefðu komið á milli 4 og 5 þúsund
gestir í Nonnahús hvert sumar. Mest
em það erlendir ferðamenn sem
sýna Nonnahúsi áhuga. Þjóðveijar
eru þar íjölmennastir en einnig koma
feröamenn frá öðrum Evrópulönd-
um og jafnvel alla leiö frá Asíu til
að líta Nonnahús augum.
Mikil aðsókn skólafólks var í
Nonnahús í vor í kjölfar sýningar
sjónvarpsmyndarinnar um Nonna
og Manna og eflaust á sú mynd stór-
an þátt í því að aðsókn að húsinu í
sumar mun verða meiri en undanfar-
in ár. Zontakonur á Akureyri hafa
því búið sig undir annasamt sumar.
Nonnahús á Akureyri.
DV-mynd gk
AUGLÝSING
Gísli Jónsson, forstöðumaður
skrifstofu Fjárfestingarfélags íslands á Akureyri:
Eru Akureyringar sparsamir?
Já, Gísli Jónsson, forstöðumað-
ur útibús Fjárfestingarfélags ís-
lands á Akureyri, er ekki frá
því. ,,En þeir eru ekki nískir,"
segir hann, „langt því frá. Og
greinilegt er að fólk er farið að
hugsa meira um ávöxtun pening-
anna sinna en áður var."
Skrifstofa Fjárfestingarfélags-
ins var sett á laggirnar snemma
árs 1988. Hún er til húsa við
Ráðhústorgið þar sem einnig er
Ferðaskrifstofa Akureyrar. Gisli
er einmitt forstjóri hennar. Hann
segir uppsveifluna i starfsemi
Fjárfestingarfélagsins nyrðra
greinilega.
„Þær áætlanir, sem við settum
okkur í upphafi, voru kannski
hófsamar. En þær stóðust og
rúmlega það," segir hann.
„Augu fólks eru óðum að opnast
fyrir þvi að fleiri leiðir eru til
sparnaðar en þær sem bankarnir
bjóða upp á. Við höfum líka var-
ið töluverðum tíma til að kynna
starfsemina, bæði með auglýs-
ingum, einkaviðtölum og fund-
um sem hafa oft orðið fjölmenn-
ir."
Starfsmaður skrifstofu Fjár-
okkarflyst ekki suðurtil Reykja-
víkur. Reynslan sýnir að þeir
peningar sem hér koma inn fara
og út í atvinnulífið hér nyrðra."
Um það bil fjórir og hálfur millj-
arður króna er nú í sjóðum Fjár-
festingarfélags islands og við-
skiptavinirnir eru um þrettán
þúsund. Fjölmörg fyrirtæki
standa að félaginu. Má þar nefna
Eimskip, Verzlunarbanka Íslands
og Lifeyrissjóð verslunarmanna.
Námskeiðin
norður
Gisli Jónsson segir skrifstofu
Fjárfestingarfélagsins á Akur-
eyri geta boðið upp á alla þá
þjónustu sem fæst í Reykjavík.
„Og við höfum fullan hug á
að bæta við okkur eftir því sem
málin þróast syðra," segir hann.
„Fjármálaskólinn er nú að fara
af stað. Mér líst mjög vel á það
framtak. Við stefnum á að geta
boðið upp á öll þau sömu nám-
skeið og nú er verið að skipu-
leggja fyrir sunnan þegar um
hægist. Eftir því sem ég hef frétt
hefur skólinn slegið i gegn og
ég á ekki von á öðru en að það
sama gerist jafnframt hér fyrir
norðan."
fólk og eldra, konur jafnt sem
karla. Það má raunar segja að
við byggjum viðskiptin upp á
mörgum smáum í stað fárra
stórra."
Að sögn Gísla eru kjarabréfin
vinsælust hjá einstaklingum.
Eigendur fyrirtækja veðja fremur
á skyndibréfin. Þau henta líka
vel þeim sem þurfa að ávaxta
peninga sína i skamman tíma,
eins og nafnið bendir til.
„Og mig langar að benda á
það," heldur Gísli áfram, „að
það fjármagn sem fer um hendur
festingarfélags íslands á Akur-
eyri er Guðmundur B. Guð-
mundsson. Hann annast allan
daglegan rekstur útibúsins.
Viðskiptavinir
á öllum aldri
Viðskiptavinir Fjárfestingarfé-
lags íslands á Akureyri koma
víða að af Norðurlandi, allt frá
Blönduósi til Mývatns. En hverj-
ir eru þeir?
„Hverjir eru þeir ekki?" svarar
Gisli Jónsson án þess að hika.
„Við fáum bæði til okkar ungt
Verð 195 kr. stk.
með áletrun
Einnig mikiö úrval af bikurum
og öörum verðlaunagripum.
Pantið tímanlega.
GULLSMIÐIR
Sigtryggur & Pétur.
Brekkugötu 5 - Akureyri.
Sími: 96-23524.
„Reynslan sýnir að þeir peningar sem hér koma inn
fara og út í atvinnulífið hér nyrðra."
„Fólk er farið að hugsa meira um ávöxtun peninganna
sinna en áður var."
FJARFESTINGARFELAGIÐ
Ráðhústorgi 3, Akureyri
Simi (96) 25000
Fleiri leiðir
til sparnaðar en þær sem
bankarnir bjóða upp á