Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1989, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1989, Blaðsíða 26
MÍÐVIKUDAGUR 14. jÚNlk'989: 44» Akureyri_______________________________________ i>v - segir Elfa Ágústsdóttir, dýralæknir á Akureyri Gyffi Kristjánssan, DV, Akureyii; „Hún er langbest í þessu, það er ekki spuming,“ sagði hestamaður einn á Akureyri er Elfa Ágústsdóttir dýralæknir hafði hugað að tveimur hestum hans á dögunum. Ekki ama- legt „comment" það. Skömmu áður hafði DV fylgst með er Elfa hugaði að hrossi sem var með gamabólgu og hrossasótt og þar virtist hún vera búin að gera það sem gera þurfti og allt var á réttri leið. „Það er búið að vera alveg geysi- lega mikið að gera upp á síðkastið. Það var verkfall allan aprílmánuð hjá ríkisráðnum dýralæknum og það kostaði mjög aukna vinnu hjá mér enda vinn ég sjáifstætt. Síðan tók sauðburðurinn við í maí og þá var unnið dag og nótt. Kýmar era líka mikið að bera á þessum árstíma Elfa Ágústsdóttlr sprautar hest Þórarins Guómundssonar sem hafði þjáðst af garnabólgu og hrossasótt. DV-mynd gk Elfa ræðir við hestamann í Breiöholtshverfinu á Akureyri, en það er hverfi hestamanna þar i bænum. „Hún er best í þessu“ sagði þessi hestamaður ákveðinn. DV-mynd gk þannig að það hefur verið mikill annatími að undanfömu,“ sagði Elfa er DV ræddi stuttlega viö hana. Elfa lauk 6 ára dýralæknisnámi í Osló í desember 1984 og vann síðan í tæpt ár í Norður-Noregi. „Lengst norður í Norður-Noregi í 40 stiga frosti þannig að það var ágætis byij- un,“ segir Elfa. Síðan lá leiðin heim til Akureyrar og eftir að heim kom hefur hún unn- ið með tveimur dýralæknum á svæð- inu, föður sínum, Ágústi Þorleifs- syni, og Guðmundi Knudsen, og nær svæði þeirra yfir nær allan Eyja- fjörð, Óxnadal, Hörgárdal og austur að Ljósavatnsskarði. En Elfa lætur sér þetta ekki nægja, hún rekur einn- ig sinn eigin dýraspítala. „ Já, ég er sú eina okkar þriggja sem sinnir gæludýrunum, reyni aö vinna við það á kvöldin og um helgar þegar ég kem heim úr sveitinni." - Hvað finnst þér mest gaman að fást við í.þessu starfi? „Þetta er allt mjög skemmtilegt og starfið er ekki síst skemmtilegt fyrir það hversu fjölbreytt það er. Mestur tíminn fer í kýmar vegna þess hversu mikið er um þær hér á svæð- inu. Hestamir taka einnig mikinn tíma og kindumar um sauðburðinn. Varðandi gæludýrin þá er mest kom- ið með hunda og ketti og mikið er um ófijósemisaðgerðir á læðum.“ Þá ákvörðun Elfu að gerast dýra- læknir bar ekki brátt að. „Ég var alltaf ákveðin í því að verða dýralæknir. Þeir segja það við mig, bændurnir, að þegar ég var smá- stelpa að koma á bæina með pabba hafi ég þegar sagst ætla að verða dýralæknir þegar ég yrði stór. Það er gaman að þessu og bændumir hafa tekið mér mjög vel og ég hef aldrei orðið vör við neinar efasemda- raddir vegna þess að ég er stelpa,“ sagði Elfa. í»að borgar sig að þekkja landið sitt! Ef þú berð kennsl á staðinn á myndinni skaltu senda okkur svarið ásamt nafni, heimilisfangi og símanúmeri og þú getur átt von á glæstum vinningi. Þetta er fyrsta ferðagetraunin af þremur, hinar tvær verða í innlendum ferðablöðum, sem fylgja munu DV miðvikudagana 28. júní og 26. júlí nk. Dregið verður úr réttum svörum fyrir hverja getraun og 15 verðlaun veitt í hvert skipti. Og verðlaunin eru ekki af verri endanum. í tilefni af 5 ára afmæli sínu ætlar FRAMKÖLL- UN SF., LÆKJARGÖTU 2 OG ÁRMÚLA 30, að gefa heppnum lesendum DV ferðafélagann í ár: WIZENSÁ, alsjálfvirka 35 mm myndavél að verð- gildi 3.500 kr. WIZENSA myndavélin er með ★ 35 mm glerlinsu ★ föstum fókus ★ sjálfvirkri filmufærslu ★ innbyggðu flassi (leifturljósi) Ferðagetraun Þekkirðu staðinn? Skilafrestur er til laugardagsins 24. júní. Svar sendist til DV, Þverholti 11, 105 Reykjavík, merkt Ferðagetraun DV I. Nafn.................................. Heimilisfang.......................... Símanúmer............................. Þetta er mynd af: a) Hólum í Hjaltadal □ b) Þingeyrakirkju í Húnavatnssýslu □ c) Grund í Eyjafirði □

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.