Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1989, Blaðsíða 5
■J4-01 fí FU '/ il' '1;!/! I
FIMMTÚDAGUR 29. JÚNÍ 1989.
Fréttir
Verslunarráð kannar afkomu 102 fyrirtækja í fyrra:
Aukning eigin fjár
gerð að miklu tapi
- 1,2 milljarða aukning á eigin fé verður að 1,8 milljarða rýmun
I óútkominni greinargerð frá
Verslunarráði íslands um afkomu
102 fyrirtækja á síðasta ári er þvi
haldið fram að þessi fyrirtæki hafi
vantaö um 1.781 milljón króna í árs-
lok til þess að halda sama eiginfjár-
hlutfalli og árið á undan. Þetta er í
sjálfu sér rétt en gefur alls ekki rétta
mynd af afkomu þessara fyrirtækja
í fyrra. Réttara væri að segja að eigið
fé þeirra hefði vaxið að raungildi um
1.212 milljónir milh áranna 1987 og
1988.
Aðferð Verslunarráðs felst í því að
bera saman eiginfjárhlutfall fyrir-
tækjanna í árslok 1987 og 1988. Eig-
infjárhlutfall gefur til kynna hversu
stór hluti af heildarfiárhag fyrirtækj-
anna er eigið fé og hversu stór hluti
lánsfé. í árslok 1987 var þetta hlut-
faU 14,63 prósent en í árslok 1988 var
það komið niður í 13,66 prósent. Mis-
munurinn er 0,97 prósent. Verslun-
arráð deilir síðan þessu hlutfalli í 183
milljarða heildarfjárhag fyrirtækj-
anna og fær út að ef þau hefðu hald-
ið eiginfjárhiutfallinu frá 1987 hefði
vantað um 1.781 milljón í eigið fé fyr-
irtækjanna um síðustu áramót.
Af þessum 102 fyrirtækjum eru 8
bankar og lánastofnanir. Slík fyrir-
tæki hafa gífurlega mikið heildar-
fiármagn, það er öll útlán sín, en lít-
ið eiginfiárhlutfall. Þessi fyrirtæki
skiluðu 648 milljóna króna hagnaði
á síðasta ári eða um helmingi af
heildarhagnaði fyrirtækjanna 102.
Ef þessum gróðafyrirtækjum er
sleppt úr samanburði Verslunar-
ráðsins gerist það að 1.781 milljónar
króna eiginfiártap fyrirtækjanna
verður einungis 493 milljóna króna
tap. Ástæðan er sú að mismunur á
eiginfiárhlutfalli milli áranna 1987
og 1988 verður reyndar hærra en
áður, eða 1,01 prósent, en þar sem
risavaxið heildarfiármagn lánastofn-
ana er farið verður tapið 1.288 millj-
óna króna minna en samkvæmt út-
tekt Verslunarráðs.
Nú er annar samanburður á breyt-
ingum eiginfiár milli ára algengari
en sá sem Verslunarráð beitir. Hann
er sá að athuga hversu vel eigið fé
fyrirtækjanna hefur haldiö verðgildi
sínu. Samkvæmt skattalögum er
byggingavísitala notuð við verðupp-
færslu í ársreikningum fyrirtækja.
Samkvæmt henni hefur eigið fé fyrir-
tækjanna vaxið um 1.212 milljónir
milh áranna 1987 og 1988 eða um 5,1
prósent.
Ef lánastofnunum er aftur sleppt í
þessum samanburði verður aukning
eigin fiár minni eða um 271 milljón.
Það er um 1,8 prósent aukning um-
fram verðbólgu.
Þegar einstakar atvinnugreinar
eru skoðaðar kemur í ljós að eigið fé
í verslunarfyrirtækjum í könnun-
inni minnkaði um 6,6 prósent að
raungildi. Eigið fé framleiðslufyrir-
tækjanna minnkaði einnig eða um
6,3 prósent. Hins vegar óx eigið fé
fyrirtækja í þjónustu um hvorki
meira né minna en 20,8 prósent milli
áranna 1987 og 1988. Þó þarna kunni
að vera einhver hlutafiáraukning þá
er þetta dágóð útkoma.
-gse
Úthlutun fræöimannsíbúðar 1 Kaupmannahöfn:
Skoða bréf íslenskra kvenna
- segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagnfræöingur
„Eg veit í raun ekki hvað er til af
bréfasöfnum íslenskra kvenna á
Konunglega bókasafninu en ætla að
sjá hvað er þar. Þá ætla ég að sjá
hvort hafa átt sér stað upplýsinga-
skipti milli íslenskra kvenna á þess-
um tíma um það sem þær voru að
lesa og heyra um kvenréttindamál,“
sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
sagnfræðingur í viðtali við DV i
morgun.
Ingibjörg Sólrún er ein fimm ís-
lenskra fræðimanna sem fengið hafa
fræðimannsíbúð í húsi Jóns Sigurðs-
sonar í Kaupmannahöfn til afnota
næstu tólf mánuði.
Þeir sem fá íbúðina til afnota næsta
starfsár eru:
Jónas Hallgrímsson, prófessor í
læknisfræði, til að ljúka ritverki um
magakrabbamein í íslendingum
1954-1984.
Matthías Viðar Sæmundsson, lekt-
or í íslenskum bókmenntum, til að
ljúka ritverki um þróun íslenskrar
menningar 1600-1900 og til að kanna
skjöl og heimildir um nokkur tiltekin
atriði er að þessu lúta.
Helgi Skúli Kjartansson, lektor í
sögu, til að kanna landsnefndarskjöl,
sinna Grágásarrannsóknum og til að
afla gagna um valtýskuna.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagn-
fræðingur til að kanna bréfasöfn ís-
lenskra kvenna á Konunglega bóka-
safninu í því skyni að skrifa um hug-
myndafræðilegar rætur íslenskrar
kvennahreyfingar um og eftir alda-
mótin.
Páll Valsson bókmenntafræðingur
til að stunda framhaldsrannsóknir á
verkum Jónasar Hallgrimssonar og
bókmenntasögu 19. aldar.
-HV
Jónsmessuhrím
á Egiisstöðum
Sigrún Björgvinsd., DV, Egilsstöð unv
Eftir hlýja daga með yfir 20
stiga hita hefur nú kólnaö svo á
Héraði að hreytir snjó í byggð og
sannast þar að á Héraði er þó allt-
af veður, annaðhvort vont eða
gott og lítið þar á milli.
Á Jónsmessunótt skal velta sér
upp úr dögginni en í ár munaöi
minnstu að fólk hér eystra gæti
velt sér upp úr hrírai og snjó.
BfLLINN VERÐUR
HUCDMLEIKAHÖLL
MEÐ PIONEER
Pioneer er hvarvetna samnefnari fyrir hljómgæði.
Pioneer framleiðir fjölmargar gerðir hljómtækja, hátalara og fylgihluta í bíla.
Við bendum á þrjú bíltæki sem dæmi, en bjóðum þér að koma og skoða- og hlusta - á miklu fleiri.
UH3 CD cp
FM tl O 0- ~Ií;6
~r
ta 33.C?.6
-•'-yS-'ii t' 33.E.6
DEH 55 - Olíkt nokkru öðru bíltæki.
Örtölvustýrður geislaspilari og útvarp með
innbyggðum kraftmagnara í sama tækinu. 2x20
músíkwött, lagaleitari og aörir eiginleikar geislaspilara.
24 stöðva minni með fínstillingu, þar af fara 6 sterkustu
stöðvarnar sjálfvirkt inn á minnið. Fjöldi annarra
eiginleika.
- 46.900 kr. stgr. -
KEH-5090B - Tæki með mikla tækni-
eiginleika, þrátt fyrir lágt verð.
Útvarps- og kassettutæki með innbyggðum
kraftmagnara. Tengimöguleiki við 2 eða 4 hátalara.
2x25 eða 4x15 músíkwött. Rafeindastilling fyrir 24
stöðvar. Minni með fínstillingu, þar af fara 6 sterkustu
stöðvarnar sjálfvirkt inn á minnið. Sjálfvirk spólun.
Aðskilin stilling á bassa og hátónum. Hlutfallsstillir milli
fjögurra hátalara. Dolby kerfi.
- 26.490 kr. stgr. -
KE-1030 - Einfalt, en traust
og hljómmikið tæki.
Útvarps- og kassettutæki, 2x8,5 músíkwött.
Rafeindastillt 24 stöðva minni, þar af fara 6 sterkustu
stöðvarnar sjálfvirkt inn á minnið. Stöðvaleitari.
Sjálfvirk aukning fyrir bassa og hátóna á lágum styrk.
- Aðeins 17.749 kr. stgr. -
ísetning samdægurs hjá Radíóþjónustu Bjarna,
Síðumúla 17, Reykjavík.
flð PIONEER
HLJOMBÆR
HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999
Umboðsmenn Radióþjónusta Bjarna Reykjavík, KEA Akureyri, Kaupfélag Skagfirðinga, Verslunin Ösp Selfossi, Hljómtorg ísafirði, EYCO Egilsstöðum, Radíóver Húsavík,
Kaupfélag Húnvetninga, Kaupfélag Borgfirðinga, Kaupfélag Rangæinga, Myndbandaleiga Reyðarfjarðar, Rás Þorlákshöfn, Hornabær Hornafirði,
Vörumarkaðurinn hf. Reykjavík, Bókaskemman Akranesi, Ljósboginn Keflavík, Tónspil Neskaupstað, Rafsjá Bolungarvík.