Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1989, Blaðsíða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Simí 27022
FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 1989.
Gámaleyfi:
Engu breytt
„Nei, viö munum ekki breyta okk-
ar starfsaöferöum. Þessi skýrsla var
ekki svaraverð. Þaö er ekkert bita-
^ stætt í henni aö mínum dómi. Þetta
er bara blaður út í loftiö," sagði Stef-
án Gunnlaugsson, deildarstjóri í við-
skiptaskrifstofu utanríkisráðuneyt-
isins.
í skýrslu veiðieftirlitsmanna sjáv-
arútvegsráðuneytisins um úthlutun
söluleyfa á ferskfiski er dregin upp
dökk mynd af ástandinu. Sú gagn-
rýni, sem þar birtist, er samstofna
gagnrýni sem Landssamband ís-
lenskra útvegsmanna hefur haldið
fram frá því um miðjan vetur.
„Það má segja það. Þetta er búið
að vera stöðug gagnrýni frá lands-
sambandinu. Þaö er ekkert nýtt,“
sagði Stefán. -Sse
''Vangoldinn söluskattur:
Reglugerðin
ekki afturvirk
- segir flármálaráöherra
Ólafur Ragnar Grímsson íjármála-
ráðherra segist leggja þann skilning
í reglugerð, sem fjármálaráðuneytið
gaf út um innheimtu á vangoldnum
söluskatti, að hún sé ekki afturvirk.
■y Því eigi þau fyrirtæki, sem hafi greitt
söluskatt á undanfomum dögum,
ekki rétt á endurgreiðslu þó að mál
þeirra séu til meðferöar hjá ríkis-
skattanefnd og þau geti lagt fram
fullnægjandi bankatryggingar.
í DV í gær var haft eftir Steinari
Berg ísleifssyni verslunarmanni að
hann teldi sig eiga rétt á endur-
greiðslu söluskatts enda geti hann
lagt fram fullnægjandi bankatrygg-
ingar. -SMJ
Hvalveiöamar:
Þriðjungur
kvótans veiddur
Það sem af er þessari hvalvertíð
hafa veiðst 24 dýr. í morgun vom
tuttugu og tveir hvalir komnir á land
í hvalstöðinni og tveir voru á leiðinni
í land.
Alls verða veiddir 68 hvalir á þessu
ári þannig að rúmlega þriðjungur
kvótanserþegarkominn. HV
Smygl í
Hofsjökli
Tollverðir í Vestmannaeyjum
fundu 85 flöskur af vodka við leit í
iHofsjökli í gærkvöld. Áfengið fannst
víða í skipinu - mest fannst í lestun-
um. Skipveijar hafa verið yfirheyrð-
^ir vegna smyglsins og verður yfir-
heyrslum haldið áfram í dag. -sme
LOKI
Ég hef alltaf verið með það
„svart á hvítu'' að maður
verður að greiða söluskattinn.
Mikil eftirspurn en lítið framboð á aflakvóta:
Kvoti boðmn til solu
a um 20 kronur kiloið
- flest sveitarfélög hafa bannað sölu á kvóta úr héraði
Sá litli kvóti sem nú er boöinn
til sölu er seldur á allt að tvöföldu
því veröi sem hann gekk á í fyrra.
Þá var þorskígildið á um 10 krónur
hvert kíió. Nú er kvóti hins vegar
boöinn á 18 til 20 krónur og allt upp
í 25 krónur kílóið.
Ástæðan fyrir þessari hækkun
er aö flestir togarar og bátar em
komnir langt með kvóta sína. Afll
hefur verið betri í ár en í fyrra. Sá
10 prósent samdráttur sem gert er
ráð fyrir að náist í ár leggst þvi
með fullum þunga á seinni hluta
ársins. Þetta ástand hefur hækkaö
verðið á kvótunum. Það er bæöi
lítið framboð og óvenjumitól eftir-
spum. Annað sem setur strik í
reikninginn er að flest sveitarfélög
haía nu bannaö sölu á kvóta út fyr-
ir byggðarlagið.
„Við svörum yfirleitt öllum aug-
lýsingum þar sem kvóti er boðinn
til sölu,“ sagði Þorsteinn Már Bald-
vinsson, framkvæmdastjóri Sam-
heija á Akureyri. „Menn hafa verið
að bjóða kvóta á aíllt aö 20 krónur.
Ég get ekki séð að þaö verði mitóð
eftir ef menn greiða það verð.“
Þorsteinn sagðist ektó hafa keypt
kvóta síðan stuttu eftir áramót og
þá ekki greitt nema 11 krónur fyrir
kílóið. Síðan þá hefði hann stund-
um tekiö vel undir þegar menn
væru aö bjóða honum kvóta á 20
krónur og jafnvel meira en þá fyrst
og fremst tíl að stríða mönnum þar
sem hann mættt ekki kaupa kvó-
tann vegna ákvarðana sveitarfé-
laga.
Sveinn Hjörtur Hjartarson, hag-
fræðingur Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna, sagöi að það
lítíö hefði veriö um kvótasölu á
árinu að það verð sem hafi fengist
væri ekki marktækt. Ástandið ein-
kenndist fyrst og fremst af því að
lítil sem engin kvótasala færi fram.
Sala á kvóta hefur verið talin
einn af kostum kvótakerfisins. Með
henni mætti ná fram aukinni hag-
kvæmni í útgerð. Þessi sala hefur
hins vegar nánast legið niðri í ár.
Halldór Ásgrimsson sjávarút-
vegsráöherra lét vinna tillögnr um
nýjan úreldingarsjóð fiskiskipa í
vetur. Sá sjóöur átti að standa fýrir
umtalsverðum kaupum og sölum á
kvóta tíl að tryggja aukna hag-
kvæmni. Þessar tíllögur komu hins
vegar aldrei til meðferðar Alþingis
vegna andstööu Alþýðubandalags-
ins.
-gse
Bang-pfffffff... Æi, það er sprungið. Þetta getur gerst hvar sem er og hvenær sem er. Það fékk Ásta Sveinsdóttir
að reyna á dögunum. Hún var ekkert að tvinóna við hlutina og byrjaði að skipta um dekk á staönum. Það hafði
hún aldrei gert áður og studdist því við leiðbeiningar bílframleiðandans. Þrátt fyrir að Ijósmyndari DV hefði ítrek-
að boðið fram aðstoð sína lét stúlkan ekki segjast og skipti um dekk upp á eigin spýtur, með bros á vör.
DV-mynd JAK
Veðrið á morgun:
„Sumar, sumar,
sumar og sól“
Veðurguðirnir hafa enn velþókn-
un á íslendingum. Á morgun verð-
ur hæg breytileg átt eða gola og
bjart veður um allt land. Þó er
hætt við síðdegisskúrum sums
staðar til sveita sunnanlands og
vestan. Hitinn verður 10-15 stig.
Sjómannafélag
Reykjavíkur boðar
yfirvinnubann
Sjómannafélag Reykjavíkur hefur
boðað yfirvinnubann frá og með mið-
nætti 5. júlí. Verður þá öll vinna há-
seta í höfnum hér og erlendis bönnuð
milli klukkan 17 og 8.
Samningar Sjómánnafélagsins og
kaupskipaútgerðanna voru felldir í
almennri atkvæðagreiðslu í félaginu
og nú hefur slitnað upp úr viðræðum
aðilanna.
Samkvæmt heimildum DV bar
ektó mikið í milh þegar slitnaði upp
úr viðræðunum. Höfðu aðilarnir
ekki náð samkomulagi um orlofs-
greiöslur og 9 þúsund króna desemb-
eruppbót. Eru taldar litlar líkur á að
samningar tatóst áður en yfirvinnu-
bannskellurá. -hlh
hækkar um
5 prósent
Húsaleiga fyrir atvinnu- og íbúðar-
húsnæði hækkar um 5 prósent frá
og með 1. júlí. Leigan gildir fram til
1. október er hún breytist aftur. Síð-
ast hækkaði húsaleiga 1. apríl. En
þar áður var hún óbreytt frá því í
fyrrahaust þegar tímabundin verð-
stöðvun rítósstjómarinnar tók gildi.
-JGH
NÝJA
SENDIBÍLASTÖÐIN
68-5000
GÓÐIR BÍLAR
ÁGÆTIR BÍLSTJÓRAR
GÆÐI -
GLÆSILEIKI