Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1989, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1989, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 1989. Frjálst.óháÖ dagblaö Útgáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF. "Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÖNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVlK, SlMI (1 >27022 - FAX: (1 )27079 Setning, umbrot, mynda- og plótugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ARVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 900 kr. Verð í lausasölu virka daga 85 kr. - Helgarblað 100 kr. Góð byrjun hjá þeim gamla Dagblaðið Tíminn er á gamals aldri farið að taka þátt í að ræða um, hversu mikið sé tjón okkar af land- búnaði. Kemst blaðið að þeirri niðurstöðu, að tölur DV um 10,5 milljarða árlegt tjón neytenda á ári séu 1,8 mill- jörðum of háar. Eftir ættu þá að standa 8,7 milljarðar. Ofangreindar tölur eru um tjón neytenda af núver- andi banni við innflutningi á ýmissi búvöru og takmörk- unum á innflutningi sumrar annarrar búvöru. Blöðin eru að fjalla um, hvort neytendur mundu græða 8,7 eða 10,5 milljarða á frjálsum innflutningi búvöru. Tíminn telur rangt að miða álagningu í heildsölu og smásölu á erlenda búvöru við prósenturnar, sem nú eru notaðar. Hann segir, að verzlunin þurfi hærra hlutfall, þegar grunnverðið lækkar. Vitnar blaðið í kaupmann, sem segist mundu þurfa hærra álagningarhlutfall. Hafa verður í huga, að núverandi álagning milliliða í landbúnaði er hærri hér á landi en tíðkast í öðrum löndum. Hún er hér 15% í heildsölu og 20% í smásölu. DV taldi, að aukin samkeppni í kjölfar verzlunarfrelsis mundi halda innlendri álagningu í skeQum. Ekki skiptir öllu máli, hvort neytendur mundu græða 8,7 milljarða eða 10,5 milljarða á frjálsri verzlun með innlenda og erlenda búvöru. Meira máh skiptir, að Qöl- miðlar eru farnir að úalla efnislega um einstök atriði útreikningsins í stað þess að neita staðreyndum. Mestu máh skiptir þó, að sérhver fjölskylda í landinu hefði stórgróða af sínum hlut upphæðarinnar, hvort sem hún nemur 8,7 eða 10,5 mihjörðum króna. Athyghsvert er einnig, að þetta atriði hefur að verulegu leyti farið framhjá samtökum neytenda og launafólks. Ýmsir fleiri hafa tekið þátt í þessari umræðu, þar á meðal hagfræðingarnir Þorvaldur Gyhason og Markús Möher. í stórum dráttum eru niðurstöðutölurnar svip- aðar, 8,7-12,6 mihjarðar, hjá öhum aðilum, þótt reikn- ingsaðferðirnar séu að ýmsu leyti misjafnar. Tölurnar fara að nokkru eftir álagningarprósent- unni, sem miðað er við. Þær fara hka eftir, hvort út- reikningamir ná aðeins yfir afurðir kúa og kinda eða hvort einnig er tekið tilht til afurða fiðurfénaðar, svína og garðyrkju. Efnislega eru reikningsmenn sammála. Gaman væri, að Tíminn tæki þátt í fleiri hðum um- ræðunnar um herkostnað þjóðarinnar af landbúnaði. Hann gæti til dæmis reiknað, hver yrði hagnaður skatt- greiðenda af frjálsri innflutningsverzlun búvöru og hver yrði gjaldeyrissparnaður þjóðarinnar af henni. DV hefur reiknað út, að skattgreiðendur mundu spara sér 4,3 mihjarða á ári, ef ríkið hætti fjárhagslegum af- skiptum af landbúnaði og gæfi verzlunina frjálsa. Tíminn gæti th dæmis reynt að lækka þessa tölu eitt- hvað og þá væntanlega með góðum rökstuðningi. DV hefur einnig lagt saman tvo og tvo og komizt að raun um, að samanlagður spamaður neytenda og skatt- greiðenda mundi jafnghda 30.000 krónum á mánuði í launaumslagi fjögurra manna fjölskyldu. Dagblaðið Tíminn gæti kannski fengið 25.000 krónur úr dæminu. DV hefur ennfremur reiknað út gjaldeyriskostnað við aðfong landbúnaðarins og gjaldeyriskostnað við að halda fólki við landbúnað í stað arðbærra starfa, sem afla gjaldeyris eða spara hann. Tíminn gæti kannski með góðum rökum khpið eitthvað af þeim tölum. En menn em alténd farnir að ræða af viti um stærsta vanda þjóðarinnar, þegar þeir em farnir að rökræða, hvor talan sé réttari, 10,5 eða 8,7. Það er góð byijun. Jónas Kristjánsson Innheimta söluskatts Undanfarið hefur innheimta söluskatts mjög verið í sviðsljós- inu. Mér virðist margir ánægðir með forgöngu fiármálaráðherra þótt margt orki þar tvímælis. Allir eru sammála um að sölu- skatti á að skila. Ríkið á auðvitað að innheimta söluskatt af festu og í því efni á ein og sama regla að gilda fyrir alla. Á hinn bóginn kunna mál að vera með ýmsu sniði. Mér finnst í þessu sambandi margir rugla saman söluskatts- svikum og greiöslu söluskatts sam- kvæmt skýrslum sem sendar hafa veriö réttum yfirvöldum. Innheimtumálin margræddu snerta lítið söluskattssvik. Þeir sem svíkja undan söluskatti geta þess ekki á skýrslum. Verk þeirra koma einfaldlega hvergi fram. Hér er í flestum tilvikum verið að fjalla um þá sem gera grein fyr- ir þeim söluskatti sem greiða á en hafa ekki greitt á tilskildum tíma, trassað það eða ekki getað greitt, eða þá ágreiningur er um máhð og beðið úrskurðar. Á þessu tvennu þurfa menn að gera skýran greinarmun. Eitt er að uppræta söluskattssvik, annað að innheimta hjá þeim sem hafa gert grein fyrir því hverju þeir eigi að skila sem söluskatti. Þriöja málið er síðan ágreiningsat- riðin. Lögfræðingar fjármálaráðuneyt- is hafa gert grein fyrir því að lögin heimili þeim að innheimta þótt ágreiningur sé fyrir ríkisskatta- nefnd eða jafnvel dómstólmn. Sjálf- sagt hefur Alþingi veitt fram- kvæmdavaldinu víðtækt vald með lagasetningu. Það er út af fyrir sig umhugsunarefni hvort ríkið á að hafa víðtækara vald í deilumálum en einstaklingar þjóðfélagsins, umhugsunarefni hvort Alþingi hafi gengið of langt í lagasetningu. Hitt er svo enn annað hvernig lögum er beitt þegar um áhtamál er aö ræða. Einhver lögvísasti mað- ur íslendinga, Ólafur heitinn Jó- hannesson, fyrrverandi lagapró- fessor og dómsmálaráðherra, var einhvem tíma spurður í ákveðnu máh hvort lögin væru ekki ótvi- ræð. „Jú,“ svaraði Ólafur, „en það þarf stundum dáhtiö brjóstvit með.“ Ósjálfrátt koma þessi orð í hug- ann þvi sumir meðhöndla lögin eins og óviti tvíeggja sverð. Ógreiddur söluskattur Það er auðvitaö óþolandi að fyrir- tæki innheimti söluskatt og skih honum ekki. í slíkum thvikum ber að innheimta söluskattinn sam- kvæmt strangasta laganna bókstaf. En menn mega ekki gleyma því að sum fyrirtæki em í erflðri stöðu. Þau skrifa reikning á viðskipta- vin. Á honum er söluskattur. Innan ákveðins tíma frá dagsetningu reiknings verðaþau að skila ríkinu söluskattinum. En viðskiptavinur- inn greiðir ekki. Lítið fyrirtæki getur hæglega átt þannig útistand- andi 10 mihj. kr. í reikningum sem ekki fást borgaðir, ef th vih aldrei eins og málum er háttað í þjóð- félaginu nú. En fyrirtækið verður e.t.v. að skha 2,5 milij. kr. í söluskatt sem það hefur ekki fengið greiddan. Þannig er fyrirtækið ekki aðeins innheimtuaðih fyrir ríkið í sölu- skatti. Það ber ábyrgð á greiðslu hans þótt það fái ekki greitt. Ég heyrði um fyrirtæki úti á landi sem vann mikið fyrir ríkið. Rikið greiddi ekki reikningana en fyrir- tækið varð að greiða söluskattinn af reikningunum sem ríkið greiddi ekki. Þar kom að fyrirtækiö gat ekki greitt og innheimtumenn rík- isins lokuðu fyrirtækinu vegna KjaUaiinn Guðmundur G. Þórarinsson alþingismaður þess að það skhaði ekki söluskatti sem ríkið átti að greiða. Almenningur telur úr fjarlægð að hér sé um söluskattssvik að ræða. Svo er ekki. Söluskatturinn er tahnn fram á skýrslu en greiðsluþrot verður vegna þess að viðskiptavinir greiða ekki. Þannig em máhn í sumum thvik- um. Hinir sem raunverulega stela söluskattinum gera engar skýrsl- ur, þeir em ekki th umræðu í þessu sambandi. Deilumálin Síðan koma þeir sem em með óútkljáð dehumál varðandi álagn- ingu. Það er auðvitað rétt að kerfið má ekki vera þannig að alhr geti sjálf- krafa aflað sér greiðslufrests með því að vísa máh sínu th úrskurðar. Á hinn bóginn er það alvarlegt umhugsunarefni að ríkið hafi í öh- um thvikum rétt th lokunar fyrir- tækja þó að málin séu th úrskurðar og hvers eöhs sem þau eru. Borgar- amir eru ekki alhr glæpamenn og það nálgast lögregluríki að þannig sé unnt að ganga að einstaklingum hvemig sem málin kunna að vera. Mér finnst af orðum {jármálaráð- herra og viðskiptaráðherra eins og þeir sjái veröldina einvöröungu eins og hún lítur út frá tröppunum á stjómarráðinu. Vandinn í þessu máli er augljós. Tökum fyrirtæki sem lokað er við shkar aöstæður. Ríkiö telur sig hafa rétt til innheimtu og lokar án tillits th þess aö máhð er óútkljáð fyrir dómstólum. Ef fyrirtækið get- ur ekki greitt þýðir lokun að starf- rækslu er hætt, starfsfólkið missir vinnu og í versta falli verður fyrir- tækið gjaldþrota. Úrskurður gæti síðan komið frá hæstarétti eftir tvö ár, e.t.v. á þann veg að ríkið sé í órétti og verði að opna. En skaðinn er skeður. Margir e.t.v. búnir að missa aht sitt. Fyrirtækið yrði að fara í skaða- bótamál sem gæti tekið 3-4 ár. Auðvitað gengur þetta ekki upp. Tjónið yrði ekki bætt. Að ganga fram af offorsi í shkum málum er óviturlegt í hæsta máta. En Davíð sagði í Hræreki kon- ungi á Kálfsskinni: „Orstir hlaut af hlum sigri Ólafur konungur digri.“ Ríkiö sjálft Alþingi hlýtur að endurskoða lög um innheimtu söluskafts. Það að máhð er flókið réttlætir ekkl að menn takist ekki á við það. í réttar- ríki er það grundvaharatriði að ekki sé unnt að krossfesta menn meðan þeir leita réttar síns. Ríkið er fyrir okkur en við ekki fyrir það. Ríkið á ekki rétt umfram aöra. En í sumum thvikum á ríkið að greiða söluskatt, endurgreiöa sölu- skatt. Það getur verið í ýmsum th- vikum. Fiskeldið fékk th dæmis endurgreiddan söluskatt fyrir árið 1986 árið 1988 án verðbóta og vaxta. Þannig er sjálfsagt um fleiri. Regl- umar snúast við þegar ríkið á í hlut. Þá tekur nú stundum tíma að fá fram ákvarðanir. Alþingi ákvað um áramótin síð- ustu að lántökuskattur af erlend- um lántökum skyldi ekki vera á lánum th fiskeldis á þessu ári. Fyr- irtækin hafa verið að greiða þenn- an skatt, hundruð þúsunda og mihjónir, þrátt fyrir lagasetningu vegna þess að fjármálaráðuneytið hefur enn ekki 6 mánuðum seinna útbúið einhveijar reglur!! Síðan fá menn sjálfsagt einhvern tima endurgreiðslu, líklega án verðbóta og vaxta. Hvað segja menn um það? Nú má enginn misskilja orð mín. Fjármálaráðherra gerði rétt að herða innheimtu á söluskatti. Hins vegar er það aht annað en að upp- ræta söluskattssvik. Það er umhugsunarefni og spuming til fyrrverandi fjármála- ráðherranna beggja hvernig þessar fjárhæðir gátu hlaðist svona upp. En máhð er ekki einfalt. Deilu- málin verða að skoðast hvert fyrir sig. Ella fer samlíkingin um óða tarfinn í postulínsbúðinni að eiga viö. Guðmundur G. Þórarinsson. „Alþingi hlýtur að endurskoða lög um innheimtu söluskatts.“ Fjármálaráðherra gerði rétt í að herða innheimtu á söluskatti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.