Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1989, Side 2
2
FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1989.
Fréttir
Fundur lánardrottna loödýrabænda og ráðherra:
Miklu bjartsýnni
eftir fundinn
„Ég er miklu bjartsýnni eftir þenn-
an fund á að það finnist lausn," sagði
Stefán Valgeirsson, formaður stjóm-
ar Stofnlánadeildar landbúnaðarins,
eftir fund ráðherra, forsvarsmanna
loðdýrabænda og helstu lánar-
drottna loðdýragreinarinnar í gær.
Stefán sagði aö engin bein niöur-
staða hefði orðið á fundinum en
menn hefðu lýst yfir skilningi á
vanda greinarinnar.
í tillögum Steingríms J. Sigfússon-
ar landbúnaöarráðherra var gert ráð
fyrir að bæði Stofnlánadeildin,
Framleiðnisjóður og Byggðastofnun
afskrifuðu stóran hluta af lánum sín-
um til loðdýrabænda.
- Er ekki ljóst að sá stuöningur, sem
greinin þarf til að láta enda ná saman
í rekstrinum sjálfum, muni koma frá
ríkinu?
- segir Stefán Valgeirsson
„Einhvern veginn í gegnum það,
geri ég ráð fyrir. Það er búið að draga
allt of lengi að taka ákvörðun. Það
þarf þvi skjót viðbrögð nú.“
- Voru menn á fundinum að tala um
að bjarga greininni sem heild eða
bara þeim best stæðu?
„Það var talað um að bjarga því
sem talið væri að þýddi að bjarga.
Þetta er náttúrlega matsatriði. Ég hef
það á tilfinningunni að það séu ekki
margir tugir sem þyrftu að hætta
vegna þess að reksturinn sé ekki í
lagi."
- Ernokkurtloðdýrabúþaðvelstætt
aö það þurfi ekki aðstoð?
„Það getur vel verið að það séu ein-
hver bú sem eru þá hluti af öðrum
búrekstri. En allir þeir sem stunda
þetta alfarið þurfa aðstoð," sagði
StefánValgeirsson. -gse
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon
landbúnaðarráðherra héidu fund í gær með helstu lánardrottnum loðdýra-
ræktarinnar og fulltrúum bændasamtakanna um aðgerðir vegna gjaldþrots
greinarinnar. Stefán Valgeirsson, einn helsti stuðningsmaöur viðtækra að-
gerða, segist miklu bjartsýnni eftir þennan fund en áður. DV-mynd JAK
Matador
Danska leikkonan Ghita Norby
kemur í sex daga heimsókn til
landsins á morgun þar sem hún
mum ríða út og lesa upp. Ghita
Norby er flestum sjónvarspáhorf-
endum kunn sem frú Skjem í
dönsku þáttaröðinni Matador.
Leikarahjónin Susse Wold og
Bent MejcÚng koma í ágúst og
verða með H.C. Andersen-sýn-
inguna Manneskjan og ævintýra-
skáldið í tengsium viö Hunda-
daga ’89. í Matador lék hann ráð-
villtan bróður Varnæs banka-
stjóra og hún Gitte Graa, dóttur
iönjöfurs.
-hih
HafnarQöröur:
Hjólum ferða-
manna stolið
Tveimur fjallahjólum af gerð-
inni MBK Ranger Hightech var
stolið frá tveimur frönskum
ferðamönnum við sædýrasafnið i
Hafnarfirði á þriöjudagskvöld.
Hjólin em rrýög litskrúðug, gul,
græn og appelsínugul að lit Sást
til krakka í nágrenni sædýra-
safnsins þetta kvöld. Aö sögn lög-
reglu er þetta slæm landkynning.
-hlh
íMwiirT ; i m lí "TT——
f7 m !
Slökkviliðsmenn á fundi sínum í gærkvöldi.
DV-mynd Hanna
SlökkvUiðsmenn funda vegna afleysingamanns:
Lýsa fullri ábyrgð
á hendur borgarráði
„Fundurinn harmar þá ákvörðun
Borgarráðs Reykjavíkur að brjóta
gegn samþykkt um slökkvilið
Reykjavíkur við ráðningu starfs-
manns í afleysingastarf sem engan
vegin stenst þær faglegu kröfur sem
settar voru í samþykktinni og borg-
arstjóm hefur samþykkt," segir
meðal annars í ályktun sem sam-
þykkt var á fjölmennum félagsfundi
Bmnavarðafélags Reykjavíkur á
slökkvistöðinni í gærkvöldi.
Boðað var til fundarins vegna
ráðningar afleysingamanns hjá
slökkviliðinu. Heitt hefur verið í
slökkviliösmönnum vegna þessa
máls, meðal annars vegna þess að
ráðningin, framhjá samþykktinni, er
talin geta verið fordæmisgefandi.
Neituðu slökkviliðsmenn að fara
með manninum í útköll og var hann
þvi settur í símavörslu fyrst í staö.
Síðan segir í ályktuninni:
„Ákvöröun þessi, svo og önnur
brot á gerðum samþykktum varð-
andi slökkviliðið, virðast tilkomin að
hluta til vegna umsagna og afstöðu
yfirmanna slökkvistöðvarinnar og
gerð með fullri vitund þeirra og vilja.
I samtölum yfirmanna við trúnaðar-
menn starfsmanna hefur komið fram
að borgarráð muni reka hvern þann
brunavörð sem neiti að gegna skrán-
ingu með þeim afleysingamanni sem
hér um ræðir."
Segir að brunaveröir ætli að láta
borgarráði einu eftir slíkt valdboð
og muni sinna störfum sínum áfram
af skyldurækni. Telur fundurinn að
fastráðning viðkomandi starfsmanns
komi ekki til greina. Lýsa slökkvi-
hðsmenn fullri ábyrgð á hendur
borgarráði vegna ráðninga er brjóta
gegn samþykkt um slökkviliðið.
-hlh
Olís hefur lagt fram tryggingar að
uppJiæð 354 milljónir króna upp í
kyrrsetningarkröfu Landsbankans,
sem nemur 534 milljónum króna. Þá
verða eignir félagsins, aö upphæð 180
milljónir króna, kyrrsettar.
Þetta eru meginatriðin í samkomu-
lagi milli Olís og Landsbankans sem
gengið var frá í gær og er þar með
lokið einu langvinnasta kyrrsetning-
armáli sem rekið hefur verið fyrir
íslenskum dómstólum.
Þegar Landsbankinn sagði upp öll-
um samningum við Olís og höfðaði
mál gegn félaginu námu kröfur hans
á hendur því 438 milljónum króna.
Lagði félagið fram tryggingar fyrir
skuldinni og benti á eignir til kyrr-
setningar en þær upphæðir þóttu
ekki nægilega háar aö mati bankans.
Síðastliðinn miðvikudag var svo lögö
fram sáttatillaga í málinu og höföu
þá verið lagöar fram eignir að upp-
hæð tæpar 172 milljónir. Á þessum
grunni var svo samkomulagið gert í
gær og lagði Olís fram viðbótareignir
aö upphæð 8 milljónir króna, svo og
tryggingu aö upphæð 354 milljónir
króna.
„Þetta er bara byijunaraðgerð sem
framkvæmd var núna,“ sagði Rein-
hold Kristjánsson, lögmaður Lands-
bankans, er DV ræddi við hann. „Nú
er eftir svokallað staðfestingarmál
því það þarf að staðfesta kröfuna.
Einnig verður rekiö mál fyrir bæjar-
þingi til að sannreyna hana. Það
verður teldð fyrir strax að loknu rétt-
arlúéi. Skuldamálið hefur þegar ver-
ið þingfest og verður staðfestingar-
málið sameinað því í byijun sept-
ember." -JSS
Sættir milli Olís og Landsbankans
Lögmenn unnu fanga
I góðum leik í gær
í gærkvöldi fór fram knattspyrnu-
leikur á milli fanga á Litla-Hrauni
og lögmanna. Leikurinn var mjög
skemmtilegur og prýðilega leikinn.
Fyrsta markiö var skorað rétt fyrir
leikhlé. Atkvæðamestir í hði lög-
manna voru Jón Steinar Gunnlaugs-
son og Ólafur Garöarsson sem skor-
uðu tvö mörk hvor. Föngum tókst
aðeins að skora eitt mark þrátt fyrir
hetjulega framgöngu. Lögmannafé-
lag íslands gaf veglegan bikar sem
sigurvegaramir hömpuðu að leik
loknum. Vonast báðir aðilar til að
áframhald verði á samskiptum lög-
manna og fanga í framtíðinni á
knattspymusviðinu.
-ÓTT
Markahrókarnir Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Garöarsson (fyrir
miðju) standa kampakátir ásamt félögum sínum. Þeir skoruðu tvö lögleg
mörk hvor í knattspyrnuleiknum í gær. DV-mynd Hanna
Danski hundaatferlisfræðingurinn Roger Abrantes hefur haldið fyrirlestra
fyrir hundaeigendur undanfarið. í gærkvöldi hélt hann sýnikennslu þar sem
hundaeigendum var kennt hvernig á að fá hundana til að hlýða. Meðal
þess sem lögð var áhersla á var að verðlauna hundinn strax og hann
hefur gert rétt en ekki löngu seinna. Á myndinni er Roger að sýna Gutt-
ormi Birni hvernig hann getur látið íslenska hundinn Stássa setjast og bíða
frekari skipana. Horfast þeir þarna i augu, fræðingurinn og Stássi. Miklar
umræður urðu á eftir um aðferðir Rogers. DV-mynd Rasi