Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1989, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1989, Síða 9
FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1989. 9 Breti tekinn af Fangaverðir í Malaysíu flytja lík Derrick Gregory til líkhúss nærri Kuala Lumpur, höfuðborg landsins. ■ Símamynd Reuter Malaysíu dauðadómur lögboðinn fyrir þá er fundnir voru sekir um að hafa í fór- um sínum meira en 15 grömm af heróíni eða 200 grömm af maríjúana. Alls hafa rúmlega sjötíu verið teknir af lífi, flestir Asíubúar. Mörg erlend ríki gagnrýndu stjóm Malaysíu árið 1986 þegar tveir Astr- aiiubúar voru teknir af lífi. En stjórn landsins hefur tiikynnt að eiturlyfja- smygl verði ekki þolað, sama hver eigi í hlut. í Malaysíu er mikill eitur- lyfjavandi. Samkvæmt opinberum tölum eru eiturlyfjasjúklingar um 130 þúsund talsins en margir telja að í raun séu þeir fimmfalt fleiri. Reuter lands. Hann var handtekinn á flug- . vellinum á eyjunni Penang árið 1982. Hann sagði við yfirheyrslur að hann hefði verið neyddur til að reyna að smygla eiturlyíjunum eftir að hann hefði fengið dauðahótanir frá tveim- ur mönnum sem hann hitti á eyj- unni. Derrick Gregory var tekinn af lífi I Malaysíu snemma I morgun vegna meints fíkniefnasmygls. Simamynd Reuter Viö réttarhöldin sagði geðlæknir að Gregory ætti við alvarleg geðræn vandamál að stríða. Gregory er þriðji maðurinn af vestrænum uppruna sem tekinn er af lífi í Malaysíu vegna meintra brota á eiturlyfjalöggjöf landsins síðan árið 1975 þegar eitur- lyfjalöggjöfinni var breytt. Þá var Ivfi í Breskur ríkisborgari, sem dæmdur var til dauða fyrir tveimur árum fyr- ir að hafa fíkniefni í fórum sínum, var tekinn af lífi í Malaysíu snemma í morgun. Bresk yfirvöld, sem farið höfðu fram á að dómurinn yfir Derrick Gregory yrði mildaður, lýstu yfir' vonbrigðum sínum strax og fréttist um aftökuna. Dómstóll í Malaysíu dæmdi Greg- ory til dauða í marsmánuði árið 1987. Honum var gefið að sök að hafa reynt að yfirgefa landið með 576 grömm af heróíni í fórum sínum. Fíkniefnið faldi hann í stígvélum sínum og und- irfatnaöi. Aftakan fór fram í dögun í morgun. Gregory var hengdur. Gregory var 42 ára gamall málari frá Middlesex í suðurhluta Bret- Hreyfilbilun talin orsök slyssins Bilun í hreyfli gæti hafa orsakað flugslysið á miðvikudaginn þegar DC-10 þota brotlenti í Sioux í Iowa í Bandaríkjunum. Hundrað og tíu manns fórust þegar þotan tættist í sundur en hundrað áttatíu og þrír komust lífs af. Flugstjórinn er sagður hafa háð örvæntingarfulla baráttu í fjörutíu og tvær mínútur við að halda flugvél- inni á lofti eftir að hreyfillinn missti afl. Farþegar sem komust lífs af segja flugstjórann hafa róað farþega og tjáð þeim að lendingin gæti orðið svolítið harkalegri en þeir ættu að venjast. íbúar í litlum bæ í um 120 kíló- metra fjarlægð frá slysstað tilkynntu í gær að þeir hefðu fundið úti á akri hlut sem virtist vera hluti af flugvél- arstéli. Enn er verið að tína saman Sabrina Michaelson, eins árs, var ein þeirra sem komst lífs af úr flug- slysinu í Bandaríkjunum á miðviku- daginn. Hún varð viðskila við for- eldra sina en fannst i örmum annars farþega. Símamynd Reuter hluti úr þotunni sem ekki brunnu. Fremsti hluti vélarinnar og aftasti eyðilögðust en sætaraðirnar nálægt vængjum vélarinnar sluppu best. Svarti kassinn, sem geymir hljóð- ritanir, hefur fundist og er nú verið að rannsaka hann. Ekki er búist við niðurstöðum af rannsókn slyssins fyrr en eftir nokkra mánuði. í gær lenti DC-10 þota frá flugfélag- inu United Airlines með tvö hundruð sjötíu og fimm manns á Chicagoflug- velh en sú lending var ekki sam- kvæmt áætlun. Hafði fugl sogast inn í hreyfil vélarinnar sem var á leið frá New York til San Francisco. Reuter Þota frá United Airlines flugfélaginu flýgur yfir braki DC-10 þotunnar með nokkra þeirra farþega sem lifðu af flugslysið. Símamynd Reuter Útlönd Leiðtogi Kúrd Dæmdur fyrir njósnir Hinn myrti leiðtogi íranskra Kúrda, Abdölrahman Qassemlu, sem myrtur var í Vín 13. júlí þegar hann átti í samningaviðræöum við íranska embættismenn, var jarð- settur í París í gær langt frá fjöllun- um þar sem hann háöi baráttu sína. Menntamálaráðherra Frakka, Lionel Jospin, gekk með þúsund syrgjendum, flestum Kúrdum, eftir breiögötu að kirKjugarðinum. Flokkur Qassemlus, Demókrata- flokkur Kúrdistans, hefur sakað írana um morðiö á leiðtoganum og tveimur aðstoöarmönnum hans. Saka þeir yfirvöld í íran um að hafa fallist á samningaviðræður til þess að lokka Qassemlu í dauða- gildru. Reuter Kurdiskur skæruliði í Vín með mynd af Qassemlu, leiðtoga ír- anskra Kúrda, sem myrtur var í vin fyrir viku. Simamynd Reuter Ferðamenn flýja skógarelda Ferðamenn og þorpsbúar í suðurhluta Frakklands lögðu á flótta i gær undan skógareldum sem herjað hafa á þessum slóðum í þrjá daga. Um sex þúsund manns nutu aðstoðar lögreglu til aö komast í skjól. Notaðar voru jarðýtur til aö hlaða varnargarð við þorpið Longarisse eför að fimmtán hundruð íbúar þess höfðu lagt á fiótta. Bjarga tókst þorpinu undan eldunum. Viðbúnaður er til að flytja á brott tuttugu þúsund manns frá bænum Lacanau ef eldurinn kemst of nálægt honum. Reuter Aung San Suu Kyi sett í stofufangelsi Herstjómin í Myanmar, fyrrum Burma, settuií gær einn helsta leiötoga stjómarandstæðinga, Aung San Suu Kyi, í stofufangelsi. Að sögn vest- rænna stjómarerindreka tóku hermenn sér stöðu fyrir utan heimili Suu Kyi í úthverfi Rangoon, höfuðborgarinnar, í gær. Hún reyndi að yfn-gefa heimili sitt að sögn en var ekki hleypt út. Bandaríkjastjórn hvatti her- stjómina i gær til þess að láta Suu Kyi lausa sem og aðra póhtíska fanga. Þúsundir hermanna vakta nú götur Rangoon. Stjórnarandstæðingar aflýstu vegna þrýstings frá yfirvöldum mótmælaaðgeröum sem halda átti á miövikudag. Hersfjórn hefur setið við völd í Myanmar síðan í sept- ember. Sam Ibrahim, sem dæmdur varfyrir njósnir I Egyptalandi, ásamt lögfræð- ingi sínum. Simamynd Reuter Dómstóll í Kaíró dæmdi í gær fjarstaddan bandarískan ríkisborgara í fimm ára þrælkunarvinnu fyrir að hvetja Egypta til aö njósna um herskáa múhameðstrúarmenn fyrir bandarísku leyniþjónustuna. Sam Ibrahim, sem er Egypti af bandarískum ættum, og bróðir hans, Samir, sem enn leikur lausum hala, voru dæmdir í tíu ára þrælkunarvinnu fyrir að hafa afhent upplýsingar sem skaðað hefðu egypska ríkið. Reuter Enn róstur á herteknu svæðunum ísraelskir hermenn skutu til bana ungan Palestínumánn á vest- urbakkanum í gær. Þann dag stóð yfir allsherjarverfall Palestínu- manna á herteknu svæðunum. Samkværat heimildum í ísrael var maðurinn skotinn í rannsókn- arleiðangri hermanna í þorpinu Bureen á vesturbakkanum. Her- menn gripu til vopna eftir að þeir voru grýttir. Annar Palestínumað- ur særðist. Fimm hundruð sextíu og sex Palestínumenn hafa látið lif- ið síðan uppreisn þeirra á herteknu svæðunum hófst fyrir nítján mán- uðum. Þtjátíu og níu ísraelar hafa látist. Palestínskir kaupmenn á svæð- unum lokuðu verslunum sínum í gær og opinberar samgöngur lágu niðri vegna verkfallsins. Leiðtogar Palestínumanna hvöttu til verk- fallsins til að mótmæla áætlunum ísraelskir hermenn skutu Palest- ínumann til bana á herteknu svæö- unum í gær. Þann dag voru Patest- inumenn á svæðunum í verkfalli. Simamynd Reuter ísraela um kosningar á herteknu svæðunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.