Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1989, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1989, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1989. Spunúngin Á ríkið að bjarga loðdýra- ræktinni? Ragnheiður Pálsdóttir: Nei, annaö hvort ertu sjálfstæður atvinnurek- andi eða ekki. Þorvarður Brynjólfsson: Ég held það sé ódýrast héðan af að bjarga loð- dýraræktinni. Gréta Guttormsdóttir: Að einhveiju leyti. Það á að bjarga þeim búum sem standa sig best. Linda Björnsdóttir: Já, það er búið að etja svo mörgum út í þetta. Hrönn Ottósdóttir: Að vel athuguðu máli. Einhveijir eiga rétt á að þeim sé bjargað. Rósmundur Guðmundsson: Nei, það ætti bara að láta þá fara á hausinn sem ekki geta um sinn rekstur séð. Lesendur Er mannslíf ekki 100 þús. króna virði? Sigrún Björgvinsdóttir skrifar: Nýlega kom fram í fréttum að slas- aður maður hefði verið sóttur inn í Kverkfjöll. Þar er lítill flugvöOur og það var flugvél frá Flugklúbbi Egils- staða sem flutti manninn á sjúkra- hús á Akureyri, og tók það ekki nema um hálfa aðra klukkustund. ÞórhaOur Þorsteinsson hjá Flug- klúbbi EgUsstaða kom að máh við fréttaritara DV og vOdi vekja athygU á þessu atviki. Það var Flugklúbbur- inn sem átti hugmyndina að því að leggja flugbraut þarna innfrá, en björgunarsveitarmenn víða að hafa lagt vöUinn fyrir eigið fé, og í sjálf- boðavinnu, ásamt félögum í flug- klúbbnum. VöUurinn er um 500 metra langur og er mjög grófur. Því sóttu þessir aðUar um 100.000 króna framlag úr ríkissjóði tU að yfirkeyra vöUinn með finna efni. - Þeirri beiðni var synjað á þeirri forsendu að miklu heppUegra Frá flugvallargerð í Kverkfjöllum. væri að nota þyrlu til aðstoðar slös- uöum á þessu svæði. Nú sýndi það sig - sagði Þórhallur - að þyrla komst ekki frá Reykjavík, og það hefði tekið aUt að fimm klukkustundir að aka með sjúkling tU Akureyrar. Svo langur akstur gæti orðið iUa slösuðum ofviða. Okk- ur sýnist því að völluí á þessum slóð- um hafi sannað gUdi sitt. ÞórhaUur lét þess og getið, að aukin slysahætta væri nú í Kverkfjöllum vegna bráðn- unar á íshellum. Það væri stöðugt að hrynja úr þeim og fólk anaöi þama um án þess að gera sér grein fyrir hættunni. Það væri aðeins tímaspursmál hvenær þarna yrði stórslys. Þá gæti komið sér vel að geta komið lækni og hjúkrunarfólki á staðinn frá EgUssöðum, en þangað er ekki nema nokkurra mínútna flug. „Okkur finnst því að mannslífin séu UtUs metin hjá hinu opinbera í þessu tilfeUi," sagði ÞórhaUur. Mávunum, sem brélritari kallar „fljúgandi rottur", hefur fjölgað ískyggilega við Tjörnina upp á síðkastið. Drepið mávana! Daglaunamaður skrifar Er ekki með einhverjum hætti hægt aö hreinsa miðbæ Reykjavíkur af mávagerinu sem hefur hertekið hann? Mér fmnst það bera vott um fá- heyrðan sóðaskap borgaryfirvalda að láta það afskiptalaust að þessar „fljúgandi rottur“ haldi til á Tjarnar- svæöinu og víðar í miöbænum. Ef um væri að ræða veiyulegar rottur án vængja væri sjálfsagt fyrir löngu búið að koma þeim fyrir kattanef. Fyrir skömmu fór ég með ungan son minn niður að Tjöm að gefa önd- unum brauð. Eftir stuttan stans var drengurinn gráti nær þar sem í hvert sinn sem hann henti brauðmola tU andanna stakk mávur sér niður úr loftinu og gleypti molann fyrir fram- an nefnið á öndunum. Það er sjálf- sagt hægt að hlæja innra með sér að bamslegum vonbrigðum drengsins. Ég hef hins vegar ekki trú á að Reyk- víkingar vUji fóma þessari skemmt- an bamanna, að gefa öndunum brauð niðri á Tíöm. Ef vonbrigði drengsins míns þykja ekki næg ástæða til að eitra fyrir mávunum þá má sjálfsagt fá ein- hvem líffræðing eða farsóttarfræð- ing til sanna upp á mávana að þeir beri með sér smithættu eins og aðrar rottur. Þegar ástvinur deyr Þórður Ásgeirsson hringdi: Ég vU eindregiö mótmæla þeirri smekkleysu sem kemur fram í les- ! endabréfi Ástu Jónsdóttur í dag í DV i (18.7.) undir fyrirsögninni: MikU er vinnugleðin - Smekkleysa í minning- argreinum. Sérstaklega að því leyti aö t.d. þeg- [ar ástvinur deyr er í minningar- ' greinum verið að tjá ást sína til hins látna. Þegar fólk er í þessu hugar- ástandi að skrifa um hinn látna er það oftar en ekki bundið tilfinninga- legum böndum. Jafnvel þótt fólk (eins og Ásta Jóns- dóttir) sé eitthvað pirrað út í hina hörðu veröld má það ekki láta shkt bitna á hinum eftirlifandi á jafnkald- hæðnislegan hátt og gert er í nefndu lesendabréfi. Hvet ég fólk sérstaklega tU að taka ekki mark á þeim hugsunarhætti sem þama kemur fram og halda áfram að tjá tilfinningar sínar í garð hinna látnu í ræðu og rití.. Góð leiðsögn við Laxá í Kjós Frimann Ólafsson hringdi: Ég sá í DV í dag (17. júlí) grein um Laxá í Kjós. Þar var farið hörðum orðum um það hvemig farið er með ána. Ég var þama fyrir um það bU hálf- um mánuði og fékk þar afar góða leiðsögn um svæðið. Ég og félagi minn hefðum ekki getað veitt þá fiska sem við veiddum nema vegna þess að leiðsögn um svæðið var fram- úrskarandi góð. - Þessu vUdi ég koma á framfæri að gefnu tilefni. m Frjálsir Qármagnsflutnmgar: Astæðulaus étti Gísli skrifar: Eitt það versta sem þjóðernis- hyggjumenn hér á landi telja að steðji að þjóðinni, fyrir utan það að hafa erlent vamarhö í landinu, er ef að því kæmi að leyíðir yrðu fijálsir fjár- magnsflutningar tU og frá landinu, t.d. meö því að erlendar bankastofn- anir fengju hér starfsleyfi. Það er hins vegar staðreynd, sem ekki veröur hrakin, að hvarvetna þar sem fijálsir fjármagnflutningar eru leyfðir er þjóðarhagur með mestum blóma. Ekki þarf að Uta lengra en tU landanna Lúxemborgar, Belgíu, HoUands og Sviss til að sannfærast um það. Þetta em þau þijú lönd í Vestur-Evrópu þar sem efnahagur er blómlegastur og landsmenn eru með hæst launin og um leið lægstu skatta. Margoft hefur verið um þetta mál rætt hér og um það ritað margar greinar af lærðum og leikum. En það era stjómmáhn í landinu, eða réttara sagt hin margþætta flokkaskipting sem kemur í veg fyrir að einhver niðurstaða fáist. Margflokka kerfið er mikUl þrándur í götu efnahags- legra framfara á í slandi. Og það á enn eftir að verða okkur dýrkeypt. Ég er þó þeirrar skoðunar að hægt verði að ryðja úr vegi þröngsýnum sjónarmiðum hvað gjaldmiðU og höft á fijálsa fjármagnsflutninga varðar ef ofstæki í þjóðernishyggju verður ofurUði borið. í vinstri flokkunum svokölluðu viröist nú brydda á örlít- ið meiri skUningi og opnari viðhorf- um en hingað tU og á ég þar við vissa einstakUnga í bæði Framsóknar- flokki og Alþýðubandalagi. Sumir þessara manna hafa þegar tjáð sig opinberlega og vUja gerast talsmenn hins opna hagkerfis og sjá að þörf okkar Islendinga er orðin brýn á að opna landið fyrir alþjóðleg- um viðskiptum og fijálsum fjár- magnsflutningum. Það er nauðsyn- legt að þetta verði að veruleika áður en hvers konar ákvarðanir verða teknar um aðUd að Evrópubandalag- inu. Bflastyrkur þingmanna H. Skarph. skrifar: Ég var á leiðinni heim um daginn og hafði kveikt á útvarpinu á einhveij- um af þessum þjóðarsálnaþáttum Hvaö skyldu margir vera með bila- styrk? sem ég veit ekki í hvaða útvarpsstöð em og það var Guðrún Helgadóttir, alþingismaður og rithöfundur, sem var þjóðarsáhn að þessu sinni. Þann tíma sem ég hafði tök á að hlusta á hana var verið að tala um bílastyrk þingmanna. Mér, sem ekki • hef bílastyrk, fannst styrkurinn ansi ríflegur en það fannst Guðrúnu greinUega ekki. Hún sagðist ekki mega vera að því að fara í strætó og sumir þingmenn ættu um langan veg aö fara heiman og heim. Ég má ekki heldur vera að því að fara í strætó og ég á líka nokkuð langt í vinnu. Samt hef ég engan bUastyrk og að ég best veit á ég enga heimt- ingu á honum. Eða er það svo að allir eigi heimt- ingu á bUastyrk frá vinnuveitanda sínum? Hvað ætli maður þurfi þá að eiga langt að fara í vinnu? Eða er nóg að vera sár á tíma sinn og tíma ekki - fremur en alþýðubandalagsmaður- inn, Guörún Helgadóttir - að sólunda honum á almenningsfarartæki? Hringið í síma 27022 milli kl. 14 og 16, eða skrifið. ATH. Nafn og sími verður að fylgja bréfum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.